Alþýðublaðið - 11.07.1995, Blaðsíða 8
Þriðjudagur 11. júlí 1995 102. tölublað - 76. árgangur Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
■ Leiðtogi Jómsvíkinga ræðir við Alþýðublaðið
„Ekki eins auðvelt að finna góða
víkinga nú og fyrirþúsundárum
ÆÆ
Já, ég veit að margir voru þorparar og
glæpamenn. Það eru margar hliðar á
ólíkum mönnum, sem endurspegla
öll stig samfélagsins, ekki síst í sam-
félagi víkinganna. En þú verður að
hafa í huga, að meðal víkinganna
voru líka mikilmenni. Og það voru
mennirnir sem hinir víkingarnir
fylktu sér um: menn voru merktir
miklum örlögum. Mér finnst þetta
rómantískt. Og það voru slíkir menn
sem fundu þessa eyju, uppgötvuðu
Grænland, fóru til Finnlands og
sigldu upp rússnesku ámar, og sumir
lögðu leið sína alla leið til Mikla-
garðs. Heimurinn var vettvangur
mikilla ævintýra. Norrænu víkingam-
ir vom fyrstu útverðir Evrópu.
Um skattsvik
En þér er vitaskuld Ijóst að víking-
arnir sem komu til Islands, gerðu
það fyrst og fremst af því þeir vildu
ekki borga skatta í Noregi?
Mér finnst ekkert athugavert við að
koma sér undan því að borga skatta -
og ég tel að flestir íbúar þessarar eyju
geti tekið undir það með mér. Ef það
væri einhversstaðar önnur stjarna,
annað eyland, sem við gætum flúið
til, þá myndum við flýja þangað.
Um útlegð
Ég var gerður útlægur úr Víkingafé-
laginu á Englandi.
Afhverju varþað?
Af því ég hef sömu hugmyndafræði
og Islendingar höfðu upphaflega, og
byggir á frjálsræði og málfrelsi ein-
staklingsins. Ég trúi ekki á miðstýr-
ingu eða valdboð. Við verðum að
hafa svigrúm til að lifa lífinu einsog
okkur sýnist. Ég er frjáls andi, rétt
einsog aðrir sem yfirgáfu breska Vík-
ingafélagið til að stofna Alþjóðlega
víkingafélagið, sem ég er nú í for-
svari fyrir.
Um lestir
Hvað geturðu sagt mér um Víkinga-
félagið á Englandi?
Væm þessir menn ekki að leika vík-
inga, myndu þeir safna frímerkjum
eða horfa á lestimar fara hjá.
Um ellilífeyrisvíkinga
Brœðraregla?
Já, við endurstofnuðum reglu Jóms-
víkinga. Reglan var stofnuð fyrir sex
ámm og við emm nú 13 talsins: við
verðum náttúrlega að horfast í augu
við, að það er ekki eins auðvelt að
fmna góða víkinga nú og það var fyr-
ir þúsund árum. En Jómsvíkingar
koma frá mörgum löndum, enda
spyrjum við ekki um uppruna, trúar-
brögð eða stjómmálaskoðanir...
Hér skýtur einn afhinum víkingunum
inn áríðandi leiðréttingu: Jómsvík-
ingar eru 14, ekki 13.
Það er rétt. En einn er sestur í helgan
stein.
Sestur í helgan stein? Geta víkingar
dregið sig í hlé?
Já. Allir víkingar draga sig um síðir í
hlé: annaðhvort í gröfina eða í rekkju
konu sinnar.
Um lykil hamingjunnar
Ef víkingarnir hefðu átt Jameson
[viskí] hefðu þeir verið hamingju-
samir.
Um alþjóðamál
Hann er danskur Jómsvíkingur, hann
er hollenskur Jómsvíkingur, hann er
svissneskur Jómsvíkingur og ég er
enskur Jómsvíkingur. Við emm svo
sannarlega alþjóðleg bræðraregla.
Phil Burthun: Eg var gerður útlægur úr Víkingafélaginu á Englandi... Eg
trúi ekki á miðstýringu eða valdboð. Ég er frjáls andi, rétt einsog aðrir
sem yfirgáfu breska Víkingaféiagið til að stofna Alþjóðlega víkingafélagið,
sem ég er nú í forsvari fyrir. A-mynd: E.ÓI.
Blessun hinna fornu guða
Gott og vel: Hvað skiptir ykkur máli
í lífinu?
Við viljum knýta bönd milli þeirra
sem eiga samleið, vopnabræðra. í líf-
inu, þeirra sem vilja lifa samkvæmt
sömu hugmyndum. Okkar æðsta hug-
sjón er tryggð og vinátta. Það eina
sem aldrei deyr, er það sem aðrir
segja um manninn og afrek hans. Við
veljum þá sem við teljum að séu
kraftmiklir og reglu okkar samboðnir
og spyrjum hvort þeir vilji bera
Hringinn. Síðan er haldin vígsluhátíð
sem við köllun Blessun hinna fomu
guða. Hringurinn er afhentur; það er
allt og sumt. Þetta er ekkert flókið.
Um atvinnumennsku
Þú skalt átta þig á einu: Við lítum á
okkur sem hina útvöldu. Málaliðar til
leigu. Enginn dauði án hefndar!
Það er ekkert annað. Segðu mér eitt
- líturðu á sjálfan þig sem atvinnu-
víking?
Atvinnumaður lifir af því sem hann
fæst við. Ég vinn ekki einvörðungu
fyrir mér með því að vera víkingur.
Ég verð því miður að fást við aðra
hluti. Hinsvegar vil ég sannarlega
helga mig víkingastarfinu, og ég er
ákveðinn að gera það. Sama máli
held ég að hafi gegnt um hvaða vík-
ing sem var fyrir þúsund ámm.
Trúlega. En hvað sýslar þú með-
fram garpskapnum?
Ég vinn við kvikmyndaauglýsingar
sem sagnfræðilegur ráðunautur.
Um ísland og Arizona
Nei, ég hef aldrei komið til íslands
áður. Þetta er algert menningarsjokk,
af því ísland er engu líkt - þótt ég
verði að viðurkenna að miðborg
Reykjavíkur líkist dálítið Arizona í
fyrstu skímu morgunsins, þegar sólin
gyllir fjallahringinn.
Um mesta hrósið
Lifir andi víkinganna enn á íslandi?
Það held ég, vegna þess að í gær-
kvöldi komu nokkrir íslenskir harð-
jaxlar - einn þeirra var áreiðanlega
lyftingamaður - til okkar í skólann, í
því skyni að sanna að þeir væm okk-
ur yfirsterkari.
Þeir hafa trúlega tapað?
Við getum orðað það svo, að þeim
hafi ekki tekist að hafa viðdvöl í
skólanum. Okkur væri hinsvegar
sönn ánægja að drekka með þeim í
framtíðinni... Ég held að andi vík-
inganna lifi enn á íslandi. Þetta er
harðbýlt land. fslendingar em harðir
af sér - og það er mesta hrós sem ég
get gefið.
Um konur
Léku konur stórt hlutverk í lifi vík-
inganna Jyrir þúsund árum?
Svo sannarlega. Konur nutu jafnréttis
í samfélagi víkinganna. Ef þú lest
milli línanna í íslendingasögunum
sérðu að konur eru ástæðan og afl-
vaki flestra atburða. Já, konur léku
stórt hlutverk í lífi víkinganna, vegna
þess að maðurinn getur ekki lifað
einn. Að lokum fer hann í gröfina, og
einsog Hávamál spyrja: Hver reisir
manni minnismerki ef sonur hans
gerir það ekki? Allir víkingar hlutu
þessvegna að leita að góðri og sterkri
konu.
Þá er við hcefi að koma með per-
sónulega spurningu: Hefur þú
fundiðþína góðu og sterku konu?
Þú ættir að slökkva á þessu! [Bendir
á segulbandstækið.]
Bandið gengur.
Ég er sömu skoðunar og Róbert the
Bmce Skotakóngur sem sagði: Ef þér
tekst ekki í fyrstu atrennu verðurðu
að reyna aftur og enn aftur. En ég
gæti vel hugsað mér að setjast að á
Islandi ef ég ftnn réttu konuna. Ég er
að vinna að þeim málstað á þessari
stundu - en maður veit aldrei hvað
bíður bakvið homið.
Ertu búinn að fá símanúmerið
hennar?
Hm... Það væri hægt að koma því í
kring, en ég held að hún myndi
móðgast ef símanúmerið yrði birt.
Ég var ekki að biðja um að fá að
birta það. Ég var bara að spyrja
hvort þú vœrir búinn að fá síma-
númerið.
Já, ég hef símanúmerið. ■
Þeir voru senuþjófar á velheppnaðri og
stórfurðulegri Víkingahátíð í Hafnarfirði:
bardagamenn Jómsvíkinga, alþjóðlegrar
bræðrareglu nútímavíkinga. Höfuðpaur
reglunnar er Englendingurinn Phil Burthun
sem sagði skilið við enska Víkingafélagið
og segir að félagsmenn á þeim bæ ættu að
snúa sér að frímerkjasöfnun. Phil er enginn
frímerkjasafnari, heldur hörkutól sem trúir á
drengskap og fornar dyggðir. Hrafn Jökulsson
hætti sér í einvígi við kappann. Samtalið fór
fram í skólastofu í Víðistaðaskóla. Viðstaddir
voru vígalegir Jómsvíkingar.
Um lærdóm
Hvað varð um víkingana?
Hvað varð um vfldngana? Eitt af því
sem kom fyrir þá var kristindómur-
inn, sem batt enda á gullöldina. En
við höfum enn blóð víkinganna í æð-
um og varðveitum anda þeirra, við
trúum á siðalögmál Hávamála og Is-
lendingasagnanna. Við erum þeirrar
skoðunar að víkingarnir hafi margt
að kenna börnum okkar enn í dag:
um heiður, hvernig við eigum að
koma fram gagnvart öðrum og hvaða
lífssýn við eigum að tileinka okkur.
Þegar öllu er á botninn hvolft -
hvaða aðra kosti höfum við fyrir
bömin okkar? Sjónvarpið? Eiturlyf?
Nei, við getum lært af víkingunum
margt um heiður, aga, sjálfsstjóm.
Um dágóðan slatta af hefnd
Hefurðu lesið íslendingasögurnar?
Ég hef lesið sumar þeirra. Ég hef les-
ið „hinar frægu fimm“: Egils sögu,
Njáls sögu...
Og hver er eftirlcetispersóna þín í ís-
lendingasögunum ?
Maðurinn sem hefndi vina sinna í
Njáls sögu, hvað hét hann - Ka...
Kári.
Kári, einmitt. Hann eyddi löngum
tíma í að elta uppi óvini sína. Eitt af
því sem sífellt vekur fúrðu mína, er
að nú á dögum kennum við bömum
okkar að lögin vemdi þau, en þannig
er það því miður ekki. Einstaklingur-
inn nýtur ekki vemdar laganna í vest-
rænum nútímaþjóðfélögum. Lögin
vemda aðeins ríkið. Það er ekkert at-
hugavert við dágóðan slatta af hefnd
ef málstaðurinn er góður - svo Kári
er minn maður.
Um rómantík
Sú mynd sem þið dragið upp af vík-
ingunum - er hún ekki dálítið róm-
antísk?
Jú, vitanlega má segja það...
Margir víkinganna voru ótíndir
þorparar og glœpamenn.
„Við lítum á okkur sem hina útvöldu. Málaliðar til leigu. Enginn dauði
án hefndar!" A mynd: e.ói.