Alþýðublaðið - 11.07.1995, Qupperneq 3

Alþýðublaðið - 11.07.1995, Qupperneq 3
ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ1995 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3 s k o ð a n i r íhaldið og vofa kommúnismans í sögunni af góða dátanum Svejk greinir hann á einum stað frá lögreglu- hundi sem gat rakið spor og þefað uppi glæpamenn. Slátrari írá Vrsovice keypti þennan hund og beitti honum fyrir vagn sinn. Þessi hundur hafði sem sé, eins og Svejk orðaði það: lent á rangri hillu í lífinu. Pallborðið Gunnar Kristmannsson skrifar Því miður hendir það margt fólk að lenda á rangri hillu og þá dettur mér fyrst í hug ungt ftjálshuga fólk sem fyllir stóra hillu í rangri hillusam- stæðu, það er að segja Sjálfstæðis- flokknum. Þetta fólk hefur látið sig hafa að draga vagn flokksins í hveija þá átt sem ökumanninum þóknast sem yfir- leitt er nú eitt skref í hveija höfúðátt þannig að vagninn stendur í stað. Þau hafa gert sig ánægð með að fá að reka upp gelt stöku sinnum og klapp á koll- inn í upphafi ferðar. Menn hafa gaman af hundunum sínum og vilja þeim yfirleitt vel án þess þó að missa húsbóndavaldið yfir þeim. Formaður Sjálfstæðisflokksins hefur hænt að sér bæði hunda og menn en honum virðist ekki ljóst að hann er eigandi hundsins en ekki fólksins. Formaðurinn opinberaði þetta með skýrum hætti í síðustu kosningabaráttu en þá fór hann í fýlu vegna þess að annar flokkur dirfðist að kynna sína steftiu og biðla með því til kjósenda sem formaðurinn taldi sig eiga. Þetta viðhorf formannsins varpar skýru ljósi á hugmyndir hans og flokksins um hvað fijáls samkeppni á að snúast um. Nefnilega að Sjálfstæð- isflokkurinn á atkvæðin á sama hátt og nokkrar fjölskyldur og einstakling- ar eiga fiskimiðin og megnið af fjármagni landsins. Lok kalda stríðsins komu af stað hræringum sem engan veginn sér iyiir endann á. Hér á Islandi hafa Sjálf- stæðismenn verið óþreytandi að benda á að Alþýðubandalagið þurfi að gera upp fortíð sína - hvað sem það nú þýðir. Nornaveiðar og fjölmiðlaof- sóknir finnast mér ógeðfelldar og skiptir þá engu hvort fómarlambið er Svavar Gestsson eða Hrafn Gunn- laugsson. En þeir félagar hafa nú svo sem vegið hvom annan upp. Svavar vó að æm Hrafhs til að æfa sig í lýðskmmi, vitandi það að fólki finnst gaman að hata Hrafn. Forsagan er sú að forsæt- isráðherra skipaði þáverandi mennta- málaráðherra að veita Hrafni ráðn- ingu, menntamálaráðherra misskildi fyrirmæli forsætisráðherra og réði Hrafn í stöðu framkvæmdastjóra Sjón- varpsins. Fyrir þetta hlaut fyrrverandi menntamálaráðherra óvinsældir kjós- enda og var því hækkaður í tign og gerður forseti alþingis. Eftirmaður hans í menntamálaráðuneytinu beindi í millitíðinni skeytum að Svavari og dugði þá ekkert minna en að ýja að meintum landráðum hans. f fyrstu fannst mér undarlegt að svo gáfaður og skilvirkur maður, sem Björn Bjarnason er, nennti að fjasa um svona ólíklegan hlut sem vonlaust er að sanna eða afsanna. í rauninni er ástæðan samt augljós. Það er aðeins eitt sem hefur sameinað Sjálfstæðis- menn í gegnum tíðina og það er óttinn við kommúnista. Davíð Oddsson lét hafa eftir sér í viðtali fýrir nokkuð löngu síðan að í hans augum væri Ronald Reagan einn af mestu stjómmálaskörungum seinni ára. Ástæðan var sú að hann átti að hafa komið kommúnismanum á kné. Það er staðreynd að félagi Brésneff er sá maður sem hvað ötulast vann að hruni kommúnismans og því gaman að velta fyrir sér hvar hann er í röð hæfra stjómskörunga að mati Davíðs. Sjálfstæðisflokknum er nauðsynlegt að halda lífi í vofu kommúnismans sem lengst því annars væri hætt við að fleiri en Alþýðubandalagsmenn „Sjálfstæðisflokknum er nauðsynlegt að halda lífi í vofu kommúnismans sem lengst því annars væri hætt við að fleiri en Alþýðubandalagsmenn lentu í tilvistarkreppu. Sjálfstæðisflokkurinn hefur fleiri en eina stefnu í öllum stórum málum ... Flokkurinn er eins og klofinn persónuleiki sem stendur í stað meðan „raddirnar" æra höfuð hans." lentu í tilvistarkreppu. Sjálfstæðisflokkurinn hefur fleiri en eina stefnu í öllum stómm málum. Þess vegna er goðsögnin um yfirburði tveggja flokka stjóma undir forystu Sjálfstæðisflokksins tómt „húmbúkk". Flokkurinn er eins og klofinn persónu- leiki sem stendur í stað meðan ,radd- imar“ æra höfuð hans. Hvemig í ósköpunum stendur á því að doktor Hannes Hólmsteinn, Egill Jónsson, Einar Oddur og Þorsteinn Pálsson eru allir í sama flokknum? Það verður með engu móti séð að ályktanir og athafnir flokksins geti gert þá alla ánægða. Það eina sem getur haldíð öllum sáttum er að gera sem minnst í öllum mikilvægustu málunum. Það sést greinilegast á því hvernig flokkurinn meðhöndlar lið- hlaup, að samstaða hans er um ekki neitt. Menn mynda meirihluta í sveitarfélögum og jaftivel ríkisstjómir í óþökk flokksins án þess að missa flokksskírteinið. Sjálfstæðisflokkurinn er eins og stór kolkrabbi sem hefur fest armana í allar áttir og færist ekki úr stað. Þegar kolkrabbi er í hættu staddur spýr hann bleki svo hann dyljist féndum sínum. Sjálfstæðisflokkurinn spýr sínu bleki til að hylja aðstöðu sína fyrir eigin kjósendum. Blekið er nú farið að þynnast hægt og rólega og fleiri og fleiri ungum kjósendum að verða ljóst að afstaða með flokki sem rúmar skoðanir þeirra beggja, Hannesar Hólmsteins og Egils Jónssonar, er engin afstaða. ■ Höfundur er tónlistarkennari og jafnaðarmaður. h i n u m e < i n FarSide" eftir Gary Larson. Víkingahátíðin í Hafnarfirði hefur þótt takast vel og bæjarbúar flestir ánægðir með þennan viðburð í bæjar- lífinu. Frá því eru þó undan- tekningar. Kunningi Alþýðu- blaðsins þurfti að ná tali af vini sínum í síma í hádeginu á sunnudaginn, en sá er bú- settur í Hafnarfirði og er ann- álaður reglumaður. Frúin kom í símann og var greini- lega ekki í sem bestu skapi. Þegar spurt var um bóndann svaraði konan æst í bragði: „Hann er ekki fær um að koma í símann. Hann vildi endilega kíkja á Víkingahátíð- ina í gærkvöldi en ég' ætlaði að horfa á sjónvarpið á með- an. Hann kom síðan ekki heim fyrr en klukkan níu í morgun og þá blekfullur. Þegar ég spurði hvað þetta ætti að þýða leit hann á mig með fyr.irlitningu og sagði: Við víkingar hlustum ekki á neitt helvítis kellingaröfl! - Með það datt hann út af og sefur enn. Ég segi fyrir mig að ég vona að svona Víkinga- hátíð verði aldrei hér í Firðin- um aftur"... Aðalfundur Verðandi, sam- taka ungs alþýðubanda- lagsfólks og óflokksbundins félagshyggjufólks, var hald- inn í Kópavogi á laugardag- inn. Þar bar helst til tíðinda að Helgi Hjörvar lét af for- mennsku Verðandi, en við tók Róbert Marshall. Nýi formaðurinn er 25 ára gam- all, ættaður úr Eyjum, og hef- ur unnið talsvert á flokkskon- tór Alþýðubandalagsins. Hann er ennfremur einn harðasti stuðningsmaður Margrétar Frímannsdóttur í formannsslagnum við Steingrím J. Sigfússon. Það vakti þessvegna nokkra kátínu fundargesta að þeir tveir menn sem bera uppi kosningabaráttu Steingríms mættu á aðalfundinn, Árni Þór Sigurðsson og Ástróð- ur Haraldsson. Árni Þór er ekki félagi í Verðandi, enda of gamall til að vera hlutgengur í félagi ungs fólks, en sat eigi að síður allan fundinn og tók virkan þátt í umræðum. Sömu sögu er að segja um Ástráð, sem að vísu er enn á unga aldri, en hefur ekki starf- að innan samtakanna. Greini- legt þótti að Steingrímsmenn ætluðu að sjá til þess að ekk- ert „slys" yrði á fundinum... Meira um vini vora í Alþýðu- bandalaginu. í síðasta tölu- blaði Vikublaðsins, málgagns flokksins, staðfestir Bryndís Hlöðversdóttir alþingismað- ur að hún styðji Margréti Frímannsdóttur í formanns- slagnum. Þá staðfestir hún frétt Alþýðublaðsins í síðustu viku, að stuðningsmenn Steingríms J. Sigfússonar hafi reynt að fá hana til að gefa kost á sér til varafor- mennsku. Þannig vonaðist Steingrímur til að reka fleyg í raðir stuðnings- manna Margrétar. Bryndís hefur hinsvegar ekki áhuga á varaformennsku - einsog við vorum náttúrlega búin að segja frá... „Aftur... Djöfullinn hafi það, Guðrún Vilmundardóttir! Aldrei nokkurn tíma framar munt þú fá að taka myndirnar í sumarfrí- um fjölskyldunnar. Neinei, það þýðir ekkert elsku Guðlaugur minn við mig. Þetta er fjórtánda slædsmyndin í röð sem er ónýt vegna þess að þú varst meö arminn yfir linsunni!!!" fimm á förnu Fylgdist þú með víkingahátíðinni í Hafnarfirði? m e n n Mér finnst framboð Margrétar ákaflega heillandi. Bryndís Hlööversdóttir þingmaöur Alþýöubandalagsins um formannskjör í flokknum, þarsem takast á Margrót Frímannsdóttir og Steingrímur J. Sigfússon. Vikublaöiö. Heiðarlegur 23 ára karlmaður, óvirkur alki, nýkominn úr Tuktinu, gerir hvað sem er fyrir góð Laun. Atvinnuauglýsing í MP í gær. íslenska útfærslan er ekki í anda GATT-samkomulagsins. Fullkomlega óeðilega háir tollar hafa verið settir á innfluttar landbúnaðarvörur og sérstakir „magntoIIar“ skotið upp kollinum öUum á óvart Með þessari aðferð hefur tekist að girða fyrir innflutning á nánast öUum landbúnaðarvörum, þvert á yfiriýstan tílgang GAIT. Ur forystugrein Viöskiptablaösins. Löglegt? Líklegast Siðlaust? Örugglega. Óli Björn Kárason ritstjóri Viöskiptablaösins aö skrifa um samstarfssamning Alþýöubandalags og Sjólfstæöisflokks í Hafnarfiröi í fyrra, þarsem meöal annars var tekiö fram aö Jóhann G. Bergþórsson fengi stööu bæjarverkfræöings. Árni Johnsen bað um að fá að skemmta í lokahófi Þjóðleikhússins: Fékkst ekki tU að hætta. Frótt í MP í gær. Eylandið í norðri þarf ekki á ESB að halda. Andrea Scholz víkingur í MP í gær. Víkingamir táruðust á ÞingvöUum. Jóhanns Viðar Bjarnason víkingafrömuður í Hafnarfiröi. Er með ólíkindum að Ámi Bergmann skuli skipa sér í flokk með þeim, sem gagnrýna of mikla miðstýringaráráttu. Hann hefur í áratugi verið talsmaður þjóðskipulags áætlunarbúskapar og miðstýringar. Björn Bjarnason menntamálaráöherra aö fjalla um húrrahróp Árna Bergmanns vegna þjóðhá- tíöarræðu Davíðs Oddssonar. DV í gær. Hann sagði að tvær konur hefðu lifað hrunið af og verið skammt frá sér í rústunum. En þær hefðu drukknað þegar slökkviliðið hóf að sprauta vatni á rústirnar tíl að halda rykinu í skefjum og þegar það byrjaði að rigna. En sama vatn og varð kon- unum að bana hélt í honum lífinu. Eins dauði er annars brauö. DV í frétt um hinn 21 árs gamla Choi Myong-sok sem lifði af kringluhruniö í Seoul. Pétur Jón Buchan, nemi: Nei. En ég hefði mjög gjaman viljað vera þar. Kristín Guðmundsdóttir, húsmóðir: Lítillega. Mér finnst þetta mjög veglegt fram- tak. Ég fór til dæmis að sjá vík- ingaskipin í Hafnarfjarðarhöfn. Brynjólfur Helgason, að- Asa Fanney Rögnvalds- stoðarbankastjóri: Nei, ég dóttir, nemi: Nei, ég var að var ekki í bænum. vinna alla helgina. En mér fannst þetta sniðug uppákoma. Olafur Hlynsson, nemi: Já, og ég skemmti mér konung- lega. Sérstaklega fannst mér bardagaatriðin góð. Villtir á Vefnum ■ Aaarrggghhh! Það hlaut að koma að því: Ekki einu sinni Veraldarvefurinn er óhultur fyrir bandarísku forsetakosningunum 1996. Fyrstir til að setja upp sérstakar heimasíður voru frambjóðendumir Phil Gramm, Richard Lugar og Lamar Alexander er veita þar upplýsingar um aldur, uppeldi, fjölskyldu, menntun, störf, stefnu og svo framvegis sem ríkulega eru myndskreytt með baráttumyndum og tækifærissmellum af Qölskyldunni. Býsna hefðbundið drasl hjá þeim tveimur fyrstnefndu, en herra Alexander sýnir af sér óvanalega framfæmi (og að vísu dæmigerða banda- ríska smekkleysu) á veffanginu http://www.lamar.com/~~lamar/. Þar gefst manni nefnilega tækifæri til að hlaða inn fyrrverandi Tennessee-ríkisstjórann spilandi á píanó og syngjandi kosningalagið sitt! Næst á dagskrá: heimasíður Bob Dole og Clinton/Gore... TAKE THAT! veröld ísa Leiðtogar Frakklands hata frá örófi alda verið skrautlegir persónuleikar og sú stað- reynd raunar í miklum metum höfð meðal frönsku þjóðarinnar. Þannig er að finna þá hálfgröfnu staðreynd í annálum 19. aldar, að Georges „tígrisdýr" Clemenceau (1841-1929) dvaldi í fjögur ár í Bandarikj- unum sem ungur maður. Clemenceau starfaði þá sem blaðamaðurog kenndi seinna frönsku við kvennaskóla í Stam- ford í Connecticut-fylki. Hann naut mikillar hylli meðal nemenda sinna að frönskum sjarmörahaetti og endaði með því að gift- ast einum þeirra. Hjónin skildu hinsvegar að skiptum eftir sjö ára stríð... Byggt á Isnac Asimov's BookofFacts. I

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.