Alþýðublaðið - 12.07.1995, Síða 7

Alþýðublaðið - 12.07.1995, Síða 7
MIÐVIKUDAGUR 12. JULI 1995 ALÞYÐUBLAÐK) ikraftur" í vegabréfi sínu og það með rentu: í lok ágúst hefur hann komið fram á 122 tónleikum á eins árs abarn, fjögur heimili og milljarð króna í bankanum. í viðtalinu hér á opnunni ræðir hann meðal annars um bækur og hinar hljómsveitirnar; um ríkidæmið, stjórnmálin, tíðarandann, alþjóðamálin og skoðanir sínar gður maður og gott ef hljómsveitin er það ekki líka. Aðdáendahópurinn er í öllu falli athyglisverð stúdía... ÞETTA ER BARA ROKK & ROL... ■ Hljómsveitin Rolling Stones hefur frá árinu 1963 átt 36 metsölu- lög, hljóðritað 20 plötur (fyrir utan tónleikaplötur og safnplötur) og selt þær í yfir 100 milljónum eintaka. ■ Tónleikaferðalagið Voodoo Lounge hófst í Washington 30. júlí 1994 og mun Ijúka í Aþenu 29. ágúst 1995. Miðasalan ein og sér skilar 13 milljörðum í kassann og áætlað er að minjagripir hali inn 19,5 milljarða til viðbótar. ■ Sviðið sem notað er í ferðinni kostaði 260 milljónir að smíða og 120 manns eru fjóra daga að reisa það. Til að færa sviðið frá einni borg til annarrar þarf 50 vöruflutningabíla og milli heimsálfa þarf 72 gáma og þrjár júmbóþotur. ■ Tónleikarnir sjálfir taka til sín tæplega 3,9 milljónir vatta eða raf- magn sem nægja myndi 4 þúsund manna bæ í sólarhring. Hljóm- sveitin notast við 3 þúsund hátalara og 1,5 milljónir vatta af hljóði. ■ Viö lok tónleikaferðarinnar mun Mick Jagger hafa sungið 2.806 lög (þaraf Jumping Jack Flash 122 sinnum) og hlaupið í kringum 800 kílómetra um 90 metra breitt sviðið. brauðs. Vitaskuld þarf ég ekki að gera þetta, en lífið væri ótrúlega leiðinlegt ef ég sæti bara aðgerðalaus á rassinum allan daginn. Þó svo að ég hafi unnið mér inn nokkra aura þá get ég ekki hallað mér aftur og slakað á. Þannig virkar lífið einfaldlega ekki. Ef maður er kappsfullur og metnaðargjam á ein- hveiju sviði þá reynir maður að sanna sig í hvert einasta skipti sem maður fer út; lögfræðingar með því að ná góðum samningum, íþróttamenn með því að vinna keppnir og bólfrmir með því að vanda sig í kynlífmu [hlærj... Ég sanna mig ávallt á nýjan leik með því að ':oma fram á ég kem fram á tónleikum." Hvað starfsheiti hefurðu í vega- bréfiþínu? „Skemmtikraftur og er barasta hæst- ánægður með það.“ Tónlistarsmekkur flestra upphaf- legra aðdáenda ykkar hefur fyrir margt löngu stirðnað í íhaldssemi sinni. Sumir gagnrýnendur segja að Rolling Stones hafi lent íþví sama. „Það er eðlilegt. Flestu fólki líkar ennþá við það sama og því likaði við á unglingsaldri eða í kringum tvítugt. Fólk tekur fátt nýtt inná sig eftir þann tíma. Stóra vandamálið hjá plötufram- leiðendum í dag er að fá fólk sem kom- ið er yftr hálffertugt til að kaupa plötur. Þá sjaldan sem þessi aldurshópur fer og kaupir sér plötu þá er það gjaman ein- hver af risasmellunum hjá Eagles. Hljómlistarmenn horfa öðruvfsi á hlut- ina en almenningur því við hlustum miklu meira eftir því sem er að gerast. Það er okkar sérgrein. Það er aukþess svo mikið af áhugaverðum nýjum hljómsveitum að koma framá sjónar- sviðið, Oasis núna, Suede voru á síð- asta ári, Blur kom einhversstaðar þar inná milli. Ég held að Oasis eigi eftir að spila með okkur á einhveijum tón- leikum, en ég hef samt ekki séð hana á sviði. Það skiptir máli að hljómsveitir sýni ágæti sitt á tónleikum. Það er ekki nóg að hafa hlustað á plötuna." Hvaða Rolling Stones lög eru í uppáhaldi hjá þér? „Þau em öll ákaflega sérstök í huga mínum og hvert um sig hefur mismun- andi tengingu. Ég á virkilega erfitt með að ræða um lögin okkar og í alvöm tal- að þá hlusta ég aldrei nokkum tíma á þau: hef einungis áhuga á þeim nýju. Þá sjaldan sem ég spila gömlu lögin er ástæðan sú, að hljómsveitin er að setja saman nýja dagskrá og ég þarf að athuga hvort það er eitthvað varið í þau eða hvort það er bara minningin sem er svona góð.“ Manstu í raun og veru eftir öllum lögunum ykkar? „Hvort ég geri. Ég man hvert einasta lag sem við höfum spilað. Það er hálf- gerð árátta hjá mér að muna að minnsta kosti eitt vers og viðlagið í hveiju ein- asta Rolling Stones lagi ffá upphafi. Ég stríði Keith og Charlie miskunnarlaust á því, að þeir geti aldrei sigrað mig í þessum leik, sama hversu furðuleg og óminnisstæð lög jreir grafa upp.“ Halda Rolling Stones áfram að vera til svo þið getið komist í tónleika- ferðalög, ekki til að taka upp plötur? „Bæði og. Þessi tvö atriði sjá nefni- lega um að halda hvort öðm lifandi. Við höfúm aldrei selt mikið af plötum. Söluhæsta verkið var annaðhvort Some Girls eða Tattoo You sem hvor um sig seldist í sjö milljónum eintaka. Við höfum aldrei átt okkar Thriller. En maður verður að gera plötur til að ganga í endumýjun lífdaga sinna sem tónlistarmaður. Ég væri einstaklega hamingjusamur með að gera plötu og fara síðan ekki í tónleikaferðalag, en ég vil ekki fara í stórt tónleikaferðalag án þess að vera með nýtt efhi í farteskinu. Lögin em mikilvægasta byggingarefhi bandsins." Hvaða bcekur ertu síðan að lesa í augnabWdnu? „Fullt af kjaftæði einsog allir aðrir. Ég les aðallega skáldsögur og ævisagn- ir - ásamt stöku heimspekirits sem svæfir mig yfirleitt samstundis. Nýver- ið kláraði ég Portrait of Power um John Kennedy. Ég hef einnig lesið nýjustu bók John Le Carré og The Infonnation eftir Martin Amis, sömu- leiðis aðdáunarverða bók Simon Schama um frönsku byltinguna og þessa bók þama - American Tabloid - eftir James Ellroy, góð bók sú og mjög löng til aflestrar. Þegar við erum á tónleikaferðalagi vil ég helst lesa tvær bækur í einu; aðra þunga og hina létta - svo ég geti valið mér bók til að lesa samkvæmt því skapi ég er í hverju sinni." Hverskonar listmunum safharðu? ,Js sjötta áratugnum keypti ég mest- megnis list Andy Warhol. Mér var gefið fyrsta verkið efúr hann í afmælis- gjöf. Ég kaupi málverk svona annað veifið, en ég er alls enginn trylltur unn- andi einhvers ákveðins tímabils eða stfls - liktog til dæmis Andrew Lloyd Webber með viktoríönsku listina sína. Síðasta málverk sem ég keypti var vatnslitamynd eftir Ed Burra af nekt- ardansara í Appolloleikhúsinu á þriðja áratugnum. [Bestu vatnslitamyndir Burra fara á 5-7,5 milljónir stykkið.]" En hvað höfðar helst til þín? Mér skilst að heimÚi þitt sé fultt af gömlum enskum antíkmunum. „Þetta er mikil blanda allskyns hluta; bæði ný málverk og gömul, antíkhús- gögn og nútímalegir hlutir. Þetta virkar prýðilega svona hlið við hlið einsog það gerir í tónlistinni. Það er engin höf- uðdygð finnst mér að vera bara nútíma- legur. Ég fer gjaman á sýningar á nýj- um og gullfallega hönnuðum breskum húsgögnum og innanstokksmunum. í gær fór ég á eina slika og keypti nokkra hluti. Ég held að fólk geri sér ekki fulla grein fyrir hvflíkri gnótt af hæfileikum þetta land býr yfir. Sumt af þessari nú- tímahönnun felur í sér frábæra kúnni- gáfú og mér finnst það afskaplega mik- ilvægur eiginleiki: húmorinn. Fólk er svo huglaust í eðli sínu, að það fer útí búð og kaupir gamalt viktoríanskt dót vegna Jress að það veit það er öruggt. Það þorir ekki að gefa neina yfirlýsingu með vali sínu á húsmunum af einskær- um ótta við að verða aðhlátursefhi." Þú varst alltaf mikill aðdáandi Rúdolf Núrajevs og Tina Tumer segir að þú hafi verið hrikalega erfiður nemandi þegar hún var að kenna þér „hliðasporshestinn“. Nýturðu dansins sem listforms eða er þetta sviðshœfi- leiki sem þú hefur neyðst til að ná valdi á? „Ég dansaði síðast í gær og hef not- að dansinn til að halda mér í góðri æf- ingu, en ég reyni lflca að fara á ballett- sýningar eins oft og ég get. Ég elska dans og hef alltaf gert það.“ I nýlegri sjálfscevisögu Richard Neville skrifar hann: „Sandy Lieber- son - framleiðandi Performance, nýj- ustu kvikmyndar Mick Jagger, hafði smyglað ritskoðuðum úrklippum úr myndinni hingað til hátíðarsýningar. Atriðið þarsem Jagger er í rúminu með Anitu Pallenberg leiddi í Ijós að hann hafði getnaðarlim á stœrð við salamipylsu og klofstykki jafnstórt sykumelónu.“ „Ég vissi ekki að þessi bók væri komin á markað. Guð minn góður, er þetta ekki yndislegt? Ég held við látum bara þama við sitja. Ég hef ekkert að segja um þessa yfirlýsingu. [glottir rosalegaj" Ian Stewart sagði einu sinni, að það eina sem hann öfundaði þig af vceri að hafa átt í ástarsambandi við Brigitte Bardot. Er þessi orðrómur sannur? „Nei. Við vomm aldrei saman. Ég held að hún hafi alveg fyllilega verið tíl í það, en ég var of feiminn. Brigitte var alltof guðdómleg í mínum augum til að ég legði í hana.“ Laða Rolling Stones enn að sér grúppíur? „Hvflík spuming. Öll tónleikaferða- lög laða að sér fólk sem bara hangir í kringum bandið. Ég geri ráð fyrir því, að grúppíur komi á tónleikana okkar, en þær em engan veginn eins skipu- lagðar og einu sinni var. Ég held að ég sé ekkert að ræða um tilvist grúppía í kringum tónleikaferðalögin... Ég held að þær séu ekki lengur til á sama hátt og... Kannski em þær bara hættar að vera hrifhar af mér...“ Keith Richards hefur talað um Rolling Stones einsog gamla blúsleik- ara sem fari á svið til að taka rútínuna sína. Gítaristar geta jú alltaf sest nið- ur, en ég get ekki séð Mick Jagger fyr- ir mér hreyfingarlausan á sviðinu. Veltur framtíð hljómsveitarinnar máski á líkamlegu ásigkomulagi þínu? ,JÉg skil ekki allt þetta blúskjaftæði. Fólk man ekki eftir Muddy Waters einsog hann var uppá sitt besta - sem betur fer em jafnvel við ekki nógu gamlir til að muna það, að hann var al- gjör kynferðissprengja á sviði. Það em til myndir af Muddy á sviði í Newport þarsem hann dansar um sviðið á afar kynæsandi hátt einsog hver önnur rokkstjama. Þetta atriði er meðal þess sem verður á væntanlegum tölvugeisla- diskum frá Rolling Stones. Síðan varð Muddy vitaskuld eldri, eyðilagði sjálf- an sig með nokkmm slysum og neydd- ist til að setjast á sviði. Þegar ég fór fyrst á tónleika með John Lee Hooker var ég eitthvað í kringum sautján ára aldurinn og hugsaði með sjálfum mér: Vá, hrikalega er hann gamall. Hann á ekki eftir að endast mikið lengur í þessu. John Lee Hooker hefúr verið um 38 ára gamall þá og hann er enn þann dag í dag á kreiki í bransanum... Og sömuleiðis ég. Það angrar mig svolítið að einn daginn verði ég alltof upptek- inn af aldrinum. En kannski er málið bara að það, að meðan við getum gert það sem fólkið ætlast til af okkur - að semja lög og spila, hljóðrita þau og leika á tónleikum - þá mun Rolling Stones hökta útí hið óendanlega. Þeir tímar munu renna upp þegar ég get ekki lengur hlaupið um sviðið einsog vitlaus væri á tónleikum. Ég segi ávallt: Já, þá mun ég hætta... En þú veist hvemig því er varið með þessi loforð. Þau elta mann uppi einsog draugar." Hvemig tekst þér að lifa með þess- ari mestmegnis uppdiktuðu ímynd: „tákngervingur alþýðumenningarinn- ar“? „Auðvitað geri ég mér grein fyrir þeim áhrifum sem Rolling Stones hafði á heila kynslóð fólks, en ég er ekki fé- lagslega þenkjandi sagnfræðingur. Ég hef mikinn áhuga á menningarsögu, en fyrirlít hinsvegar frá dýpstu hjartarót- um goðsagnasmiðina í bransanum sem taka sig svo hátíðlega. Það er fjöldi þeirra á sveimi alltumkring og þeir eru sannast sagna hundleiðinlegir. A sjötta og sjöunda áratugnum voru mennta- mennimir mikið að skrafa og skegg- ræða um alþýðumenninguna og í fyrsta skipti sem einhver alvarleg tónhstarleg greining fór ffarn á þeim nótum vom Bítlamir teknir fyrir. Þetta hafði aldrei gerst áður. Enginn hafði tekist á við EIvis á þennan hátt. Og þeir tóku til handanna við að greina alþýðumenn- inguna, lisfina og tískuna. Óg síðan þá hefúr þessi hraðlest ekki stoppað." Rokktónlistin er talin ná prýðisvel að fanga anda ríkjandi kynslóðar. Hvernig myndir þú lýsa núverandi „œði“? „Tvístígandi milli neytendahyggju og árþúsundsins.“ Og finnst þér að tónlist ykkar endurspegli það? „Rolling Stones endurspegla vissu- lega það andrúmsloft sem ríkjandi var á sjötta og sjöunda áratugnum, en við byggjum okkar tilvist og tón hinsvegar á allri þessari blúshefð sem hefur verið svo mikið lengur til og á sér miklum mun dýpri og sterkari rætur. Við erum ennþá að spila tólfitakta þemu og spuna þannig að þú getur sagt að Rolling Stones séu hreinlega að koma fram og sýna sjálfa sig frekar en þeir séu að endurspegla einhveija ákveðna alþýðu- menningu. Ég vonast að vísu til að við náum að gera bæði.“ Mun ykkur takast það? „Við sjáum til með það... Mér er eiginlega skítsama." ■ «hh / Byggt i Esquire

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.