Alþýðublaðið - 29.09.1995, Side 4
4 ALÞÝÐUBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 1995
■ Stjórn Dagsbrúnar
Samningar
Á stjómarfundi Dagsbrúnar í gær
var samþykkt ályktun þar sem Dags-
brún lýsir yfir þeirri skoðun sinni að
kjarasamningar séu lausir. Skorað er á
verkalýðsfélög láglaunafólks í Verka-
mannasambandinu að hafa samstarf
um að stöðva ranglætið og knýja ffam
breytingar. I ályktuninni segir að nær
allir samningar sem gerðir hafa verið
eru lausir
eftir febrúarsamningana hafi falið í sér
meiri kauphækkanir. Því til viðbótar
komi svo ráðstafanir svokallaðs kjara-
dóms. „Verði ranglætið ekki stöðvað
mun Dagsbrún ásamt öðmm láglauna-
félögum í Verkamannasambandi ís-
lands gera þær ráðstafanir sem duga
og hvorki ríkisstjórn né Vinnuveit-
endasamband getur stöðvað," segir
Dagsbrún.
Sjálfsbjörg - landssamband fatlaðra
Viðurkenningar
fyrir gott aðgengi
Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra, hefur ákveðið að veita
fyrirtækjum og þjónustuaðilum um land allt viðurkenningar
fyrir gott aðgengi hreyfihamlaðra. Viðurkenningarnar verða
veittar árlega á alþjóðadegi fatlaðra, 3. desember, í fyrsta
skipti nú í vetur.
Um er að ræða tvenns konar viðurkenningar:
1. Fyrir fullkomlega aðgengilegt húsnæði, bæði
fyrir gesti og starfsmenn fyrirtækja og
stofnana.
2. Fyrir lagfæringu á áður óaðgengilegu húsnæði
til verulegra bóta fyrir hreyfihamlaða.
Þeir aðilar, sem vilja koma til greina á þessu ári, geta
óskað eftir úttekt á aðgengi hjá Sjálfsbjörgu, L.s.f., fyrir 1.
október 1995.
Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra,
Hátúni 12, 105 Reykjavík,
sími 552 9133.
MARKAÐSSETNING
ERLENDIS
Ríkisstjórnin veitir á þessu ári
styrki til útflytjenda til sértækra
markaðsaðgerða á eftirfarandi
sviðum:
ATAKSYERKtFNI OG
RAÐGJOF
MARKAÐSRANN$.OKNIR OG
ÞEKKINGAROFLUN
FRAMKVÆMD
MARKAÐSAÆTLUNAR
Um styrki geta sótt fyrirtæki og einstaklingar með skráð
lögheimili á íslandi. Umsækjendur skulu leggja ffam umsóknir
á þar til gerðum eyðublöðum sem fást hjá Útflutningsráði
íslands. Gert er ráð fyrir að styrkimir geti að jafnaði numið
um þriðjungi af skilgreindum kostnaði hvers verkefnis, þó
aldrei meira en helmingi. Umsækjendum ber að gera grein „
S
X
fyrir því hvernig þeir hyggjast fjármagna mismuninn. >
3
>■
Nánari upplýsingar um reglur vegna markaðsstyrkja fylgja £
s
umsóknareyðublöðum. Umsóknarfrestur er til 25. október S
n.k. og umsóknum skal skilað til Útflutningsráðs íslands,
Hallveigastíg 1, sími!54000, bréfasími 511 4040.
UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ
ÚTFLUTHHf GS RÁ <
ÍSLAHDS
Erling Kristinsson, Sæmundur Stefánsson og Halldór Árni Sveinsson eigendur Hafnfirskrar fjölmiðlunar hafa
haslað sér völl á sjónvarps-útvarps og blaðamarkaði.
Líflegt fjölmiðlastarf í Hafnarfirði
Sérstakt hafnfirskt útvarp,
sjónvarp og dagblað
Erling Kristinsson, Halldór Árni
Sveinsson, Lúðvík Geirsson og Sæ-
mundur Stefánsson eiga og reka fyr-
irtækið Hafnfirska fjölmiðlun sem þeir
stofnuðu fyrir einu og hálfu ári. Fyrir-
tækið sér um útvarps-og sjónvarps-
sendingar í Hafnarfírði og gefur auk
þess út vikublað.
„Það má segja að þetta sé þverpólit-
ískt samstarf því við félagamir kom-
um hver úr sinni áttinni í þeim efnum
og þrír okkar ritstýrðu áður flokksmál-
gögnum í Hafnarfirði. Við ákváðum
að fara í samstarf og gefum nú út
vikublað og emm einnig með útvarps-
og sjónvarpssendingar," segir Sæ-
mundur Stefánsson. „Blaðaútgáfan lá
niðri í sumar, enda er það slakur tími
til bæjarblaðaútgáfu, en nú er útgáfan
um það bil að byrja aftur af fullum
krafti.
Af útvarpsstöðinni er það að segja
að frá áramótum höfum við útvarpað
fundum bæjarstjórnar. Við höfum
einnig verið með reglulega dagskrá
milli 17 og 19 á daginn. Sú dagskrá
byggir að töluverður leyti á tónlist, en
þar á milli em viðtöl ásamt umfjöllun-
um um eitt og annað.
I apríl hófum við sjónvarpsútsend-
ingar. Sjónvarpað er fjóra daga vik-
unnar, hálftíma í senn, fyrst og ffemst
bæjarefni, fréttum og fréttatengdu
efni.
Sjónvarpsútsendingamar em bæði
nýjung og ákveðin tilraun, sem við
vitum ekki enn hvort komin er til að
vera til langframa, en það er stefnt að
því. Við lítum svo á að við séum á
ákveðnu reynslutímabili."
Handagangur í öskjunni við útskipun í Hafnarfjarðarhöfn. A-mynd. E. Ól.
§Alþýðuflokkskonur
í Hafnarfirði
Kvenfélag Alþýðuflokksins í Hafnarfirði heldur aðalfund
miðvikudaginn 4. okt, kl. 20.30 í Alþýðuhúsinu við Strand-
götu.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Steinunn Þorsteinsdóttir, sagnfræðingur, les valda kafla
úr óútkominni sögu kvenfélagsins.
3. Önnur mál.
4. Kaffiveitingar.
Mætum allar, takið með ykkur gesti.
Hlökkum til að sjá ykkur.
Stjórnin.
Nokkur ár eru síðan Norræna húsið
tók upp þann sið að sýna norrænar
kvikmyndir fyrir börn og unglinga á
sunnudögum kl. 14 yfir vetrartímann.
Næstkomandi sunnudag verður fyrsta
sýning þessa vetrar, en þá verða sýnd-
ar tvær sænskar teiknimyndir Lilla syst-
er kanin og Kalle stropp och Grodan
Boll. Fyrri myndin fjallar um vinalega
kanínufjölskyldu og sú seinni Kalle
frosk og Grodan halakörtu og leit
þeirra að vinkonu sinni hænunni sem
var rænt. Myndirnar eru samtals 55
mínútur að lengd og eru með sænsku
tali. Aðgangur er að sjálfsögðu ókeyp-
is. Kvikmyndasýningar verða svo alla
sunnudaga fram í miðjan desember...
Næstkomandi laugardag klukkan
17.15 flytur Erling Zanchetta,
framkvæmdastjóri Arhus Stiftstidende
fyrirlestur í Norræna húsinu. Zanchetta
mun meðal annars ræða hlutverk og
stöðu dagblaða og aðferðir til að
tryggja stöðu dagblaða sem menning-
ar- og upplýsingarmiðils, en ýmislegt
bendir til að dagblöð eigi undir högg
að sækja í nútímaþjóðfélagi. Ný rann-
sókn á vegum Félagsvísindastofnunar í
Danmörku sýnir til dæmis fram á að
einungis 50% ungs fólks í Danmörku
les daglega dagblað, en það eru 30%
afturför á síðustu sex árum...
Meðal þess sem í boði verður á
vetrardagskrá Norræna hússins er
dagskrárröð undir heitinu Orkanens
öje og verður á dagskrá á sunnudög-
um kl. 16. Tónlist, myndlist, leikhús og
málefni líðandi stundarfá sinn sess
auk fyrirlestra um málefni líðandi
stundar. Sunnudaginn 1. október verða
tónleikar þar sem koma fram Blásarak-
vintett Reykjavikur og tónlistarmaður-
inn Herman D. Koppei. Átónleikun-
um verða flutt verk eftir W.A. Mozart,
Carl Nielsen og Herman D. Koppel.
Aðgangur að tónleikunum er 800 krón-
ur...