Alþýðublaðið - 26.10.1995, Blaðsíða 1
■ Opinn fundur í kvöld um vinstra samstarf
■ Útsala hefst í dag
Ágreiningur í mörg-
um stórum málum
- segir Sighvatur Björgvinsson alþingismaður.
„Fólk stofnar stjómmálaflokka um
ákveðnar skoðanir og ekki eðlilegt að
gera ráð fyrir því að fólk sem hefur
mjög ólíkar skoðanir eigi mjög auð-
velt með að sameinast í einum flokki.
Það em engar tilviljanir sem skilja að
Alþýðuflokk og Alþýðubandalag eða
duttlungar forystumanna heldur er
um málefnaágreining að ræða í
mörgum stómm málum,“ sagði Sig-
hvatur Björgvinsson alþingismaður
í samtali við blaðið.
f kvöld efnir Alþýðubandalagið í
Reykjavík til opins fundar umræðu-
fundar um vinstra samstarf og verður
fundurinn haldinn á Hótel Sögu. Sig-
hvatur á að vera meðal þátttakenda í
pallborðsumræðum á fundinum. Þeg-
ar Alþýðublaðið ræddi við hann í gær
var hann hins vegar staddur á Pat-
reksfirði og óvíst hvort hann kæmist
suður í dag vegna óveðurs.
„Sá málefnaágreiningur sem er
milli Alþýðuflokks og Alþýðubanda-
lags hveríur ekki á einni nóttu eða á
einum fundi. Þar fyrir utan er ekki
loku fyrir það skotið að þessir flokkar
geti unnið saman. En það hefur ekk-
ert sérstakt gerst í þeim málum eftir
landsfund Alþýðubandalagsins. Ég
var beðinn um að mæta á þessum
fundi í kvöld og mér finnst það sjálf-
sagt enda grundvallaratriði að fólk
ræði saman,“ sagði Sighvatur.
„Þó svo að mörg gömul ágrein-
ingsmál hafi gufað upp eins og að
hluta til í utanríkismálum þá hafa
önnur komið í þeirra stað. Þrátt fyrir
Sighvatur: Ágreiningurinn hverfur
ekki á einni nóttu.
allt endurtaka flokkarnir að sumu
leyti sínar gömlu áherslur. Eitt af því
sem Alþýðubandalagið samþykkti á
sínum landsfundi var gamla slagorð-
ið ísland úr NATO - herinn burt.
Þetta skýtur auðvitað skökku við
ástandið eins og það er í dag því
margir af fyrrverandi skoðanabræðr-
um Alþýðubandalagsins í löndum
Evrópu eiga enga ósk heitari en þá að
fá aðild að NATO. Meira að segja
þessi gömlu ágreiningsmál virðast
því ekki úr sögunni ennþá. Þar fyrir
verða þessir flokkar að sýna að þeir
geti unnið saman um þau mál sem
ekki er ágreiningur um. En náið sam-
starf þeirra þarf að eiga sér talsverðan
aðdraganda," sagði Sighvatur Björg-
A-mynd: E. Ól. VmSSOn.
Mfa
Laxness: Stefna Framsóknar ein-
faldlega að gera sveitabúskap að
atvinnuvegi fyrir ölmusumenn.
■ Laxness
og landbúnaðurinn
Sport og
meinlæta-
lifnaður
Átök í Kaffileikhúsinu Föstudagskvöldið 27. október frum$ýnir Kaffileikhúsið Sápu þrjú og
hálftí leikstjórn Sigríðar Margrétar Guðmundsdóttur. Hér má sjá þá Kjartan Bjargmundsson og Þröst Leó takast
á með tilþrifum svo ekki virðist lognmollan ráða ríkjum í verkinu.
■ Jafnrétti kynjanna verður aðalefni landsfundar Sjálfstæðisflokksins
Gengið á
kjötfjallið
I dag hefst sérstök útsala á um eða
yfir eitt þúsund tonnum af dilkakjöti.
Með því móti vonast menn til að hægt
verði að minnka miklar birgðir dilka-
kjöts sem til eru í landinu.
Um er að ræða fyrsta flokks dilka-
kjöt og verður kjötið selt í hálfum
skrokkum í tvenns konar pakkningum.
Annars vegar er boðið upp á hlutað
kjöt þar sem hámarkssmásöluverð er
349 krónur kílóið. Hins vegar er boðið
upp á pakkningar þar sem kjötið er
meira unnið og snyrt og er hámarks-
verð á því kjöti 399 krónur kílóið. Þá
hefur verið ákveðið að ffá næstu mán-
aðamótum verði allt annað kindakjöt
af birgðum frá í fyrra selt með 15%
verðlækkun frá heildsöluverði.
■ Percy B. Stefánsson
Engir hommar
eða lesbíur í
sögubókunum
„I sögubókunum í skólanum var
ekkert minnst á lesbíur eða homma.
Ætli einhver okkar hafi fengið Nób-
elsverðlaun eða staðið á tunglinu?
Við þurfum hetjur til að vera stolt af
og finna til samkenndar með,“ segir
Percy B. Stefánsson varaformaður
Samtakanna ’78 í athyglisverðri
grein í Alþýðublaðinu í dag. „Kenn-
arinn og sagan þagði yfir hommun-
um í íslandssögunni, yfir „fylgi-
sveinum" konunga, yfir skáldunum
og listamönnunum sem elskuðu sitt
eigið kyn. Sagan er þannig skrifuð
að ég finn enga fyrirmynd, enga
hetju sem er eins og ég. Engan sem
hefur komist á spjöld sögunnar
vegna þess að hann er hommi, ekki
þrátt fyrir að hann væri það,“ segir
Percy sem jafnframt skorar á alþing-
ismenn að afgreiða á yfirstandandi
þingi lög „sem gera lesbíur og
homma að íslendingum til jafns við
aðra Islendinga."
Siá blaðsíðu 6.
„Landbúnaður á íslandi er þannig
stundaður, að það eru áhöld um fyrir
hvors þörfum hann sé miður, fram-
leiðendanna eða markaðarins,“ sagði
Halldór Kiljan Laxness í grein í Tíma-
riti Máls og mermingar árið 1942. Al-
þýðublaðið rifjar í dag upp skrif
skáldsins mikla um landbúnaðarmál.
Halldór lét þau mikið til sín taka og
skrifaði nokkrar greinar þarsem hann
úthúðaði ríkjandi kerfi. Ástandinu
lýsti Halldór með þessum orðum:
„Landbúnað á að stunda sem fagra en
óarðgæfa list, og ef bændur hafa
hvorki í sig né á, þá skal fá þeim
hundrað miljón krónur af almannafé
undir allskonar yfirskyni, svo þeir geti
haldið áffam í lengstu lcg þessu sam-
blandi af meinlætalifnaði og sporti."
Framsóknarmenn fengu það óþveg-
ið hjá skáldinu fyrir hálfri öld: „Land-
búnaðarstefna Framsóknarflokksins
hefur ofur einfaldlega verið sú, að
gera sveitabúskap á íslandi að at-
vinnuvegi fyrir ölmusumenn."
Sjá miðopnu.
Gef áfram
- segir Friðrik Sophusson varaformaður flokksins.
,,Ég mun áfrarn gefa kost á mér til
varaformennsku í Sjálfstæðisflokkn-
um. Hvað varðar umræðu um að
breikka forystu flokksins þá er það
landsfundarins að ákveða slíkt, hvort
af því verður og þá hvenær. Einnig er
hugsanlegt að ákveðið verði að endur-
skoða skipulagsreglumar fyrir lands-
fundinn 1997,“ sagði Friðrik Sop-
husson varaformaður Sjálfstæðis-
flokksins í samtali við Alþýðublaðið.
Landsfundur Sjálfstæðisflokksins
hefst á fimmtudaginn í næstu viku og
lýkur sunnudaginn 5. nóvember. Búist
er við að um 1.600 manns sæki fund-
inn. Ymsar konur innan flokksins telja
að konur hafi verið afskiptar við röðun
á framboðslista og þær eigi erfitt með
að komast til áhrifa innan Sjálfstæðis-
flokksins. Þær vildu að stofnað yrði
embætti ritara til að breikka forystu
flokksins og kona yrði valin í starf rit-
ara. Einnig kom upp sú hugmynd að
hafa tvo varaformenn og annar þeirra
væri kona.
„Það eru engar kosningar fyrirsjá-
anlegar á næstu tveimur árum eða
fram til landsfundarins 1997. Það er
því gott lag til að skoða þessi skipu-
lagsmál bæði með tilliti til umræðunn-
ar um breikkun á forystunni og eins ef
menn vilja breyta skipulaginu eitthvað
í takt við nýja tíma,“ sagði Friðrik.
,,Ég geri ráð fyrir að þessi mál verði
rædd á landsfundinum. Inn í þær um-
ræður blandast hugmyndir um hlut
kvenna og þá ekki bara hvað varðar
formlegar stöður innan flokksins held-
ur einnig flokkinn sem vettvang fyrir
hugmyndir kvenna. Sumir telja að
kost á mér
Friðrik: Rætt verður sérstaklega
um hlut kvenna.
vettvangur íslenskra stjómmálaflokka,
utan Kvennalistans, sé ekki sniðinn al-
veg við hæfi kvenna. Það sé erfitt fyrir
konur að koma sínum hugmyndum og
áhugamálum á framfæri á vettvangi
flokkanria.
Á landsfundinum verður sérstak-
lega rætt um jafnrétti og frelsi einslak-
lingsins. Það verður lögð mikil áhersla
á þau mál á fundinum sjálfum og þau
verða sérstaklega tekin upp. Við telj-
um að stór stjómmálaflokkur eins og
Sjálfstæðisflokkurinn verði að ræða á
sínum æðsta vettvangi þessi mál sem
em afar mikilvæg fyrir framvinduna
hér á landi. Ég á von á því að umræð-
an um jafnrétti kynjanna, launamál,
fjölskyldumál og feminisma verði að-
alefni landsfundarins," sagði Friðrik
Sophusson.
Leiðarinn Kristín Ástgeirsdóttir Guðmundur Árni Stefánsson Eyvindur Erlendsson
um Kasper og um sameiningu umtýndan um Gorbatsjov
Jesper og Jónatan jafnaðarmanna Sjálfstæðisflokk forseta íslands