Alþýðublaðið - 26.10.1995, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 26.10.1995, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 1995 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3 s k o ð a n i r Hvar er Sjálfstæðisflokkurinn ? Margir höfðu á orði á síðasta kjör- tímabili, að svo virtist með köflum að aðeins einn stjómmálaflokkur stæði að ríkisstjóm Davíðs Oddssonar. Og það væri ekki flokkur sjálfs forsætis- ráðherrans, heldur þvert á móti Al- þýðuflokkurinn, sem hafði þó aðeins 10 þingmgnn innanborðs á móti 26 þingmönnum Sjálfstæðisflokksins. Astæðan fyrir þessum viðhorfum á liðnu kjörtímabili var fyrst og fremst sú, að þegar í haróbakkann sló og stór mál komu upp, sem ríkisstjórnin var Háborðið að fást við, þá vom það oftar en ekki forystumenn Alþýðuflokksins sem stóðu í eldlínunni, en minna fór fyrir forystu Sjálfstæðisflokksins. Einkan- lega átti þetta við þegar viðkomandi mál vom umdeild og vart var við and- stöðu hér og þar í þjóðfélaginu, oftast hjá hagsmunahópum. Sjálfstæðisflokkurinn sigldi lygnan sjó, en á erfiðum tímurn, kreppu- ástandi í atvinnu- og efnahagslífi, var það Alþýðuflokkurinn sem bar hita og þunga dagsins. Við jafnaðarmenn kvörtuðum ekki undan þessu. Við viljum láta til okkar taka, en ekki hrökkva undan þó að blási tímabundið á móti. En þetta var á síðasta kjörtímabili. Nú er mnnið upp nýtt kjörtímabil og ný ríkisstjóm hefur setið að völdum í um sex mánuði, Ennþá er Sjálfstæðis- flokkurinn aðili að ríkisstjórninni. Enn er forsætisráðherrann. Davíð Oddsson, fonnaður þess flokks. Og ennþá er ástæða til að auglýsa eftir Sjálfstæðisflokknum. Hvar er hann? Hver er stefna hans? Hvað er hann að gera? Hvar eru ráðherrarnir og forystumennimir? Eðlilega hefur Framsóknarflokkur- inn, hinn nýi ríkisstjórnarflokkur. þurft að standa til svara fyrir kosn- ingaloforðin frá í vor, sem sýnilega á að svíkja. Og Framsóknarflokkurinn hefur veikan málstað að verja. Ekki óeðlilegt þótt kaldir vindar næði um forystumenn flokksins. Það breytir því þó ekki. að Sjálf- stæðisflokkurinn er í ríkisstjórn og ekki nokkur ástæða til þess að hann sé stikkfrí þegar kemur að hverju klúðrinu á fætur öðm við ríkisstjóm- arborðið. Friðrik í feium Það er varaformaður Sjálfstæðis- flokksins, fjármálaráðherrann, sem leggur fram fmmvarp til fjárlaga. Það er hins vegar að litlu leyti hann sem svarar þeirri.hörðu gagnrýni sem fram hefur komið á ýmsa þætti frumvarps- ins. Skulu hér tilgreind nokkur dæmi. Fjármálaráðherra hefur sett nafn sitt undir fjölmarga samninga við sveitarfélög um uppbyggingu á vett- vangi heilbrigðisþjónustu víða um land, meðal annars byggingu nýrra heilsugæslustöðva. I frumvarpinu er hreinlega gert ráð fyrir því að brjóta þessa samninga, því aðeins eru 27 milljónir króna settar í stofnkostnað á vettvangi heilsugæslu, en samkvæmt gildandi samningum, sem þessi sami fjármálaráðherra hefur undirritað, em skuldbindingarnar á næsta ári upp á um 90 milljónir. Fagráðherrann í þessu tilfelli, heil- brigðisráðherrann, Ingibjörg Pálma- dóttir, hefur auðvitað engu getað svarað, heldur hallar undir flatt og brosir. En fjármálaráðherrann hefur hins vegar komist hjá því fram að þessu að svara fyrir þessi samnings- brot. Hvað er hann að hugsa? Hvað með þingmenn Sjálfstæðisflokksins? Hafa þeir samþykkt það að brjóta gerða samninga fyrir norðan. austan, sunnan og hér á höfuðborgarsvæð- inu? Hvað em þeir að hugsa? Þessi sami fjármálaráðherra hefur einnig skrifað undir samninga við heimamenn um byggingu hjúkmnar- heimilis á Fáskrúðsftrði. Heilbrigðis- ráðherrann brosandi hefur sagt að þann samning eigi að brjóta. Hvað segir fjármálaráðherrann? Hvað segir Jón Kristjánsson núverandi formaður fjárlaganefndar og Egill Jónsson? Hver eru þeirra svör þegar kemur að Fáskrúðsfirði? Eins og frægt er fór heilbrigðisráð- herrann brosandi á fund Suðumesja- manna og sagði þeim, að hún hygðist bijóta samning um byggingu svokall- aðrar D-álmu í Reykjanesbæ. Þeim var hins vegar ekki hlátur í huga sveitarstjórnarmönnunum á Suður- nesjamönnum og hún fékk kaldar kveðjur. En hvar er fjármálaráðherrann sem skrifaði undir samning um uppbygg- ingu D-álmu í apríl síðastliðnum, skömmu fyrir þingkosningar? Hver er hans afstaða? Er ekkert að marka hans undirskrift? Eða veit Friðrik ekki af þessum uppákomum hjá henni Ingibjörgu? Þetta em aðeins nokkur dæmi um fjármálaráðherrann sem aðeins kynnir fjárlagafmmvarpið en lætur aðra um að svara fyrir það. Þetta er verklagið hjá Sjálfstæðisflokknum í hnotskum. Afstaða óljós Fleiri dæmi mætti nefna. Hver er í raun afstaða Sjálfstæðisflokksins til landbúnaðarmála þegar allt kemur til alls? I umræðum um nýjan búvöru- samning eru þingmenn flokksins út og suður. Einn þeirra, Egill Jónsson, segir bændur fá of lítið. Annar, Krist- ján Pálsson, segir bændur fá of mikið en neytendur of lítið. Ungliðar flokks- ins segja samninginn handónýtt plagg. Einhvers staðar mitt á milli í mjög óljósum hlutverkum eru svo svífandi forystumenn flokksins. Láta þó Framsóknarflokkinn í aðalatriðum svara fyrir gjöminginn. Hver er afstaða Sjálfstæðisflokks- ins til smábátanna? Út og suður. Öll sjónarmið reifuð hjá fjölda þing- manna flokksins með ólfk viðhorf. Hver er afstaða flokksins til einka- væðingar ríkisbanka? Hver til hús- næðismálanna? Er það til dæmis af- staða þingmanna flokksins, sem íjár- málaráðherra hefur reifað, að flytja eigi húsnæðislánakerfið út úr Hús- riæðisstofnun og til bankanna (sem þá sennilega eiga allir að verað komnir í einkaeigu)? Það var eiginlega undirstrikun á af- stöðuleysi Sjálfstæðisflokksins í öll- um meginmálum. að í daglöngum umræðum um íjölskyldumál í þinginu nú í haust taldi ekki einn einasti Sjálf- stæðisflokksins ástæðu til að leggja þar orð í belg. Þeir höfðu ekki einu sinni áhuga á því að sitja undir um- ræðunni og hlusta og reyna að læra. Þeir voru einfaldlega ekki með. Flokkur allra um ekki neitt Annars er fullkomlega ástæðulaust að tíunda dæmi í þessa veru. Allir sem nenna ða leggja sig eftir því, verða þess áþreifanlega varir að Sjálf- stæðisflokkurinn er til hlés. Hann tek- ur ekki af skarið í nokkru máli. Þetta er ekkert nýtt í íslenskri pólitík. Það er hins vegar umhugsunarefni, hvers vegna þessi flokkur afstöðu- leysis sé um leið stærsti flokkur þjóð- arinnar. Hann setur að sönnu upp spariandlitið rétt fyrir kosningar og segist flokkur allra stétta, mannúðar og mildis og allt það. Og uppsker ríkulega. Það er verkefni íslenskra stjórn- málamanna að draga Sjálfstæðis- flokkinn fram á sjónarsviðið og sýna hann, afhjúpa hann, láta hann svara áleitnum spumingum sem uppi eru í samfélagi okkar. Af hverju skyldu nýju fötin keisar- ans koma upp í hugann, þegar þetta verkefni er nefnt til sögunnar? Höfundur er alþingismaður og varafor- maður Alþýðuflokksins - Jafnaðar- mannaflokks. JÓN ÓSKAR v i t i m e n n Ekkert viðhald í 35 ár. Fyrirsögn forsíðufréttar Alþýöublaösins í gaer. Fréttin snerist reyndar um viðhald gatna. Áfrýjunardómstóll á Spáni úrskurðaði í gær að lagalega séð dygði hjónum ekki að bera því við að ástin væri horfin til að fá skilnað. Frétt í Morgunblaöinu i gær. Geislavirkari en tilraunir Frakka. Jacques Santer forseti framkvæmdastjórnar ESB um nýja bók Ritt Bjerregaard fulltrúa Dana i framkvæmdastjórninni, þarsem hún segir ýmsum þjóöarleiötogum og stórmennum til syndanna. DV í gær. Þegar ég held veislu vil ég ekki hafa einhvern viðstaddan sem hefur átt þátt í morðum á Ameríkönum. Rudolph Guiliani borgarstjóri New Vork sem lét fleygja Yasser Arafat útaf tónleikum í borginni. Níunda sinfónía Beethovens var á efnisskránni. DV í gær. Borgarsjóður hefur greitt rúmlega 21 þúsund krónur fyrir hreinlætisvörur og snyrtivörur, svo sem hárblásara og púður, sem ákveðið hefur verið að hafa til- tækar á snyrtingu borgarstjóra í Ráðhúsinu. Frétt í DV í gær. Hvíldarlaus ferð inní drauminn er margbrotið verk og stundum stórbrotið... Stundum eru vinnubrögð skáldsins svo markviss að engu er líkara en það sé að greina eigið verk. Það ásamt ljóðrænum krafti, upphöfnu málfari, meðvitaðri notkun tákna og tilvísana gerir bók þessa að mínu mati að einhverju merkasta smásagna- safni seinni ára. Ritdómur Skafta Þ. Halldórssonar um nýtt smásagnasafn Matthíasar Johannessens. Morgunblaöiö í gær. fréttaskot úr fortfð Orðskýringar Vegna þeirra alþýðumanna og annara lesenda, sem skilja ekki útlendu orðin í grein þessari, skal þess getið, að , jómantískur" þýðir bæði skáldlegur °gjJarlœgur, „húmor" gamansemi, ,jealisti“ raunsceis eða veruleika- skáld, „rómantíker" hugsœis eða firð- arstefnuskáld, (er laðast sérstaklega að hinu fjarlæga í hug og heimi óg gerir sér það að yrkisefni, - liðnar aldir, háar hugsjónir, fjarlæg lönd og þjóðir, himinblámann o.s.frv.) „estet- iskur“ (eða: æstetiskur) þýðir fegurð- aifrœðiiegur. Ritstj. Orðskýringar ritstjóra Alþýðublaðsins, Hallbjörns Halldórssonar, við grein Brynjólfs Bjarnasonar um Bréftil Láru eftir Þórberg Þórðarson. Birtist i blaðinu 24. mars 1925. h i n u m e g i n Vesturbæingar eru mjög uggandi um sinn hag eftir upp- gangstíma KR síð- ustu árin. Guðjón Þórðarson er far- inn heim á Skag- ann og tekur að minnsta kosti hinn sókndjarfa Bibercic með sér. Annars hef- ur vakið mesta athygli að eftir að Lúkas Kost- ic var ráðinn nýr þjálfari KR hefur örlítil borgarastyrjöld í anda Júgóslavíu blossað upp í Vesturbænum. Daði Dervic og Heimir Porca, sem verið hafa máttarstólpar liðsins, voru í reynd flæmdir í burtu. Þeir eru báðir mús- limar en Kostic er Serbi frá Króatíu. Daða og Heimi þykir framkoma KR-inga fyrir neð- an allar hellur, enda þau lið líklega vandfundin sem myndu segja þeim að taka pokann sinn uppúr þurru. Vesturbæingar hviskra því um að „þjóðhreinsanir" eigi sér stað, og geðjast víst fæstum að aðförurtum... \/firlýsingagleði Y Finns Ingólfs- sonar uppá síð- kastið hefur vak- ið mikla athygli, einkum í álmál- inu. Taisverður titr- ingurfylgdi í kjöl- farið og því mun Halldór Ásgríms- son utanríkisráð- herra og formaður Framsóknarflokks- ins hafa tekið Finn á teppið og beðið hann að stilla opin- berum yfirlýs- ingum í hóf... Einn af þeim sem nu spnd- ir frá sér bók er sjálfur biskupinn, Ólafur Skúla- son. Hann hefur safnað ritn- ingargreinum fyrir hvern dag ársins, og kemur bókin út hjá Hörpu á Akranesi og ber titilinn Ord dagsins úr biblíunni... Lögreglan á Suðurlandi hefur að undanförnu staðið fyrir ýmsum aðgerð- um til að kanna ökuhæfni bifreiða og ganga úr skugga um að allt sé einsog vera ber. Við heyrum að eitt fyrsta „fórnarlamb" lögregl- unnar hafi verið einn kunn- asti sjónvarpsfréttamaður landsins. Eitthvað mun bif- reið hans hafa verið áfátt, alltjent dró löggan snarlega upp klippur og fjarlægði númerin. Hinum annáluðu gárungum er skemmt: enda hefur téður fréttamaður flutt marga pistla um öryggi í umferðinni... FarSide" eftir Gary Larson fimm á förnum vegi Hvaða bók last þú síðast? Ragnhitdur Baldursdóttir starfsstúlka: Falsarann eftir Björn Th. Björnsson. Hún er þung í byrjun en kemst á skrið. Edda Sigríður Oddsdóttir líffræðingur: Ég er að glugga í Einkalíf plantnanna eftir At- tenbourogh. Guðbjörg Birna Gunn- Rúnar Freyr Sævarsson laugsdóttir húsmóðir: sölumaður: Ég er að lesa Bókina um Bryndísi Schram Nightmare... eftir Stephen las ég fyrir nokkru. King. Ásta Sigríður Einarsdóttir hagfræðingur, flugfreyja og fyrrum fegurðardrottn- ing: The Chamber eftir John Grisham.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.