Alþýðublaðið - 26.10.1995, Page 5

Alþýðublaðið - 26.10.1995, Page 5
FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 1995 ALÞÝÐUBLAÐK) 5 list & landbúnaður Landbúnað á að stunda sem fagra en óarð- gæfa list, og ef bændur hafa hvorki í sig né á, þá skal fá þeim hundrað miljón krónur af almannafé undir allskonar yfirskyni, svo þeir geti haldið áfram í lengstu lög þessu samblandi af meinlætalifnaði og sporti. jöfnunargjöld falin í því að verðlauna menn fyrir að íramleiða vöru, til dæm- is mjólk, á sem alóhentugustum svæð- um, og loks „kreppulán", sem miða að því að strika út skuldir landbúnaðar- fyrirtækja með lögum... Vitanlega er það aðeins orðaleikur að kenna „- styrki“ þessa við amboð, kreppu, veiki í fé og svo framvegis. Hverju nafni sem þeir nefnast tákna þeir aðeins eitt: ölmusur, svo þeir menn hafi til fata og matar, sem látnir eru sveitast blóði við að stunda atvinnurekstur, sem skortir hagfræðilegan grundvöll.“ Framsóknarmenn fá það líka óþvegið í annarri grein Halldórs Kilj- ans, Gegn óvinum landbúnaðarins, sem birtist í TMM 1943: „Meðan landbúnaðurinn er gerður ðhæfur til að inna af höndum þjóðfélagshlutverk sitt... þá er uppi stjómmálaflokkur, sem læzt vera bændaflokkur, þar sem flokksforingjamir sjálfir hafa með svo gagngerðum hætti sagt skilið við alla raunsæi í landbúnaðarmálum, að það er ekki hægt að kalla tillögur þeirra í þeim málum annað en kaldriíjað spott um bændur, svo fremi forustumenn þessir eigi sjálfir að teljast með fullu viti.“ Offramleiðsla var afleiðing þeirrar landbúnaðarpólitíkur sem rekin var fyrir hálfri öld, rétt einsog nú. Um það segir skáldið: „Með því lagi að hafa íslenzkt kindakjöt svo dýrt, að það getur ekki orðið dagleg neyzluvara al- mennings í landinu, er sköþuð á því offramleiðsla, sem talin er nema allt að tveim þúsundum tonna árlega, en fólk verður að lifa á hrossakjöti. Á síðasta Alþingi var samþykkt utan fjárlaga að heimiluð skyldi úr ríkis- sjóði ótakmörkuð fjárfúlga, sem allt eins gat numið 30-40 milljónum króna, til þess snjallræðis að verðbæta landbúnaðarvörur, sem svo er kall- að... Borgaraflokkamir keppast um, hver geti látið sér detta í hug að bjóða bændum hærri fúlgur fyrir atkvæði þeirra á þennan hátt; þessi iðja er köll- uð landbúnaðarpólitík!" Snorri „bóndi" Sturluson Halldór Laxness gerir stólpagrín að þeim sem fram í rauðan dauðann standa vörð um einyrkjabúskapinn, enda hefur hatm íyrir sitt leyti afgreitt þá rómantík í Sjálfstæðu fólki. Skáldið sér ekki að neinskonar menning spretti af því að menn vinni myrkranna á milli til að sjá fáeinum kindum far- borða. Halldór er reyndar þeirra skoð- unar að daðrið við einyrkjabúskapinn sé byggt á misskilningi: ,Álla æðri menningu frá fyrri tím- um á íslandi eigum við því að þakka, að hér var rekinn stórbúskapur, en ekki einyrkja. Hefði hinn danski hús- mannsbúskapur, sem ýmsir yfirmenn Framsóknarflokksins berjast fyrir, nokkum tíma verið ríkjandi búskapar- lag á Islandi, mundi aldrei hafa verið samin hér bók. Bækur á íslandi vom skrifaðar á stórbúum, - í sumar þeirra þurfti allt að fjögur hundmð kálfskinn; hvemig hefði danskur húsmaður, sem var allan daginn að þræla fyrir hænsni og svíni, getað skrifa slíkar bækur? Þó vilja yfirmenn Framsóknarflokksin,s óðir og uppvægir telja Snorra Sturlu- Landbúnaðar- stefna Framsókni arflokksins hefur ofur einfaldlega verið sú, að gera sveitabúskap á ís- landi að atvinnu- vegi fyrir ölmusu- menn. son bónda í sömu merkingu og ein- yrkja nútímans. Tvær óskyldari þjóð- félagsstéttir em þó varla hugsanlegar á jarðríki. Bú vom til foma rekin með íjölda verkamanna og margbreytilegri verkaskiptingu, frá fjármennsku til bóklistar. Svo við höldum okkur við höfðingjann Snorra Sturluson, sem pólitískir sagnfræðafalsarar vilja fyrir hvem mun nefna „Snorra bónda“ og flokka með einyrkjum, þá hefur hann sennilega verið mestur auðmæringur, sem nokkm sinni hefur uppi verið á íslætdi." Áfram heldur Halldór að úthúða hugsjón Bjarts í Sumarhúsum, og telur einsýnt að einyrkjabúskapur geti ekki verið nema annað af tvennu: skemmt- un fyrir milljónamæringa eða afsökun fyrir ölmusumenn: ,JEf maður á miljón krónur á vöxt- um í arðbæm fyrirtæki, en hefur lítið við tímann að gera, þá er ágætt að duðra við að rækta garð uppi í sveit eða heyja fyrir kú sér til skemmtunar; það er að minnsta kosti afsakanlegt - svo fremi það er afsakanlegt af fátækri þjóð að ala miljónamæringa; en það er ekki hægt að kalla slíkt atvinnuveg. Maður sem ætlar að hafa atvinnu af laxveiði eða silungs leggur net eða dregur fyrir, en veiðir ekki á stöng. Stangaveiði er eins og litli garðurinn: sport fyrir efnamenn. Af einyrkjabú- skap má maður ekki vænta daglauna né lífsuppeldis handa sér og sínum, nema maður hafi skap til að lifa á endalausum styrkjum, ívilnunum og eftirgjöfum." Til marks um himinhátt verð á ís- lenskum landbúnaðarvörum segir Halldór í TMM 1943: „...eins og ég sannaði í haust í Þjóðviljanum með óyggjandi tölum frá Viðskiptaskrif- stofu Bandaríkjanna hér, vinnur hafn- arverkamaður í New York fyrir hálfu ljórða kílói af fyrsta flokks neyzlukjöti á einni klukkustund í dagvinnu, með- an reykvískur hafnarverkamaður vinn- ur fyrir tveim þriðju úr kílói af al- mennu neyzlukjöti á sama tíma.“ Halldór taldi innflutning raunhæfan kost: „Ef tollmúrar hrynja, verndai- tollar verða afnumdir, samþjóðlegur gjaldmiðill í milliríkjaviðskiptum verður settur í heiminum, eins og full- trúar Bandamanna lýsa yfir, að geri muni að stríðslokum, getur það hæg- lega orðið til þess, að framleiðsla sauðfjárafurða leggist niður á Islandi og vér kaupum þessar vörur frá út- löndum við litlu broti þess verðs, sem framleiðslukostnaðurinn skapar ís- lenzku kjöti.“ Þýðingarlítil útflutningsvara Það er kunnara en frá þurfi að segja, að tillaga Halldórs um innflutning á kindakjöti hefur ekki til þessa dags komið til framkvæmda. Á hinn bóg- inn hefur ríkissjóður á síðustu áratug- um eytt um 50 milljörðum króna í út- flutningsbætur. Markaðssetning á ís- lensku kjöti í útlöndum hefur jafnan farið í handaskolum. Halldór taldi ein- sýnt að fáránlegt væri að flytja út ís- lenskt kjöt: „Við megurn ekki láta villa okkur sýn, þótt Bandaríkjamenn kaupi nú af okkur og sendi til Englands þessi 2000 umframtonn íslenzkrar kinda- kjötsframleiðslu, sem annars hefði orðið að fleygja. Morgunblaðið leggur mjög ríka áherzlu á það, blað eftir blað, að kaupin hafi verið gerð hag- kværn „af því Bandaríkjamenn vilji reynast okkur vel“ og sé „engin ástæða til að fara dult með, að við höf- um áreiðanlega notið góðs af velvild amerísku sendisveitarinnar og for- stjóra Láns- og leigustofnunarinnar hér og samskonar hugarfars hlutaðeig- andi stjórnarvalda í Washington.“ Jaíhvel mitt í matvælaskorti ófriðarins er það gustukaverk að kaupa af okkur þessa vöru! Þeir sem hafa hins vegar séð með eiginaugum, hvemig Bretar, og útlendingar yfirleitt, meðhöndla þá íslenzku kindaskrokka áður en þeir matreiða þá, munu varla gerast óðfúsir talsmenn þess, að sú vara sé framleidd til útflutnings. Verkin sýna merkin á sorphaugum brezka setuliðsins hér, hvaða skoðun Bretar hafa á íslenzku kindakjöti." Halldór telur alla íslenska landbún- aðarsérfræðinga - „sem ekki áh'ta sér pólitískan ávinning að villa hér um fyrir mönnum“ - sammála um að ,Js- lenzkt kindakjöt sé þýðingarlítil mark- aðsvara utanlands." Þessi orð standa óhögguð. Síðan em Uðin 52 ár og 50 milljarðar famir í súginn vegna útflutningsbóta. Eignaréttur afnuminn á jörðum En hver em úrræði Halldórs Kiljans Laxness í landbúnaðarmálum á því herrans ári 1942? Hann talar eins og sá sem valdið hefur: „Landbúnaður á Islandi krefst gagngerðrar nýskipunar. Það eitt nægir ekki að leggja af jafn augljósan öfugsnúning, eins og að verðlauna menn fyrir að framleiða sem versta vöro á sem óhentugustum stöðum, en refsa þeim fyrir að fram- leiða sem bezta vömr á sem hentug- ustum stöðum, eins og til dæmis er gert með verðjöfnun mjólkur - til þess að skapa sérstökum stjórnmálaflokki kjósendalið í íjarsveitum. Og ekki er heldur einhlítt að láta ríkið snögghætta styrkveitingum til fátækra manna. [... ] Eitt frumskilyrði þess, að hægt sé að hefja viturlega endurskipan land- búnaðar, er það, að eignaréttur verði aíhuminn á jörð. Það gmndvallaratriði verður að öðlast viðurkenningu í stjómarskránni, að land sé ekki eign, heldur gagn allrar þjóðarinnar, óselj- anlegt og ókaupanlegt, en sú stjóm, sem þjóðin kýs sér, hafi ráðsmennsku þess á hendi og vald til að ráðstafa því til nýtingar eftir settum reglum." Halldór vill að ríki og bæjarfélög taki höndum saman í því skyni að nytja hentugustu framleiðslusvæðin í nánd bæjanna. Halldór var á þessum ámm sannfærður sósíalisti, og hafði skrifað margt um þau „afrek“ sem unnin voru í austurvegi við endur- skipulagningu landbúnaðar. Hann tel- ur hinsvegar ekki að samyrkjubúskap- ur sé lausnin á Islandi, enda slík til- högun landbúnaðar háð allt öðrum hugmyndum um vinnu, eign og arð en þeim sem em undirstaða í „þjóðskipu- lagi auðvalds, stéttaskiptingar og stéttabaráttu eins og okkar.“ Halldór segir: „Það sem vakir fyrir höfundi þess- arar greinar er ekki fyrst og fremst sósíalistiskur rekstur landbúnaðar, því slíkt er enn ekki tímabært, þótt svo þurfi ef til vill ekki að vera oflengi úr þessu, heldur endurbætur á búrekstri innan þess auðvaldsþjóðskipulags, sem við fslendingar búum við, til þess að bæta úr nauðsyn, sem tveim höfuð- aðiljum er jafnbrýn í svip, neytendum og framleiðendum." Halldór vill að fjármagni ríkis og bankakerfis sé markvisst beint „til stórra landbúnaðarfyrirtækja, ríkisbúa, bæjarbúa, héraðsbúa eða félagsbúa, sem rekin eru með hagfræðilegu skipulagi, nútímastóriðjutækni og á vísindalegum jarðyrkjugrundvelli og peningsræktar." Hann áréttar skoðanir sínar í grein sinni í TMM 1943: „Til umræðu em vandamál almennings í sveitum, hinna mörgu, vandamál smábænda og ein- yrkja og fjölskyldna þeirra. Það eru þeir, smábændumir, sem verða að fá því til leiðar komið í samráði við stétt- arbræður sína, aðra verkamenn í land- inu, og skeleggustu landbúnaðarfföm- uði vora, að opinbemm búnaðarstyrki- um sé ekki dreift út sem einstaklings- ölmusum undir ýmsum nöfnum, held- ur sé opinberu fjármagni beint til stórra samyrktra landbúnaðarfyrir- tækja, sem rekin em með hagfræði- legu skipulagi, nútímastóriðjufyrirtæki og á vísindalegum jarðyrkjugryndvelli og peningsræktar til að framleiða sem mestar, beztar og ódýrastar landbún- aðarvörur fyrir þjóðarheildina, þó þannig, að fólk það, sem að fram- leiðslunni starfar, beri úr býtum laun og lífskjör sambærileg því, sem bezt gerist og allrabezt með öðrum at- vinnustéttum þjóðfélagsins." List listarinnar vegna Samúð Halldórs er öll með bænd- um, og hann tekur ýmisleg dæmi um fátækt og úrræðaleysi sem ómannúð- legt kerfi hefur hneppt bændur í. Þar var vitanlega fyrst og fremst við hina sjálfskipuðu „vini“ bænda að sakast - blessaða framsóknarmennina sem litu svo á að landbúnað ætti að stunda landbúnaðarins vegna. í grein í TMM 1944, Búskapurinn, segir Halldór Kiljan Laxness: „Þessir hugsuðir segja, að búskapur í stxjálbýli sé ekki aðeins íslendings- eðlið sjálft, heldur sé það fortakslaust mjög hátt siðferðisstig og dyggð að hafa langt á milli bæja, búa síðan bú- skaparins vegna og rækta ræktunar- innar vegna til að göfga sálina, án þess slfk starfsemi hafi nokkurt þjóðfélags- legt markmið eða hagrænt gildi. Þetta er sú gamla góða kenning um l’art po- ur l’art. Landbúnað á að stunda sem fagra en óarðgæfa list, og ef bændur hafa hvorki í sig né á, þá skal fá þeirn hundrað miljón krónur af almannafé undir allskonar yfirskyni, svo þeir geti haldið áfram í lengstu lög þessu sam- blandi af meinlætalifnaði og sporti."

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.