Alþýðublaðið - 14.11.1995, Qupperneq 2
2
ALÞYÐUBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 1995
MÞYDUBUBIÐ
21018. tölublað
Hverfisgötu 8 -10 Reykjavík Sími 562 5566
Útgefandi Alprent
Ritstjóri Hrafn Jökulsson
Umbrot Gagarín hf.
Prentun ísafoldarprentsmiðjan hf.
Rítstjórn, auglýsingar og dreifing
Sími 562 5566
Fax 562 9244
Áskriftarverð kr. 1.500 m/vsk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
• •
Orþreyttur Kvennalisti
Yfirleitt tekst stjórnmálaflokkum að nota landsfundi sér til
framdráttar: þar er farið í saumana á málefnum, forysta valin,
framtíðarsýn mótuð. Kvennalistanum tókst hinsvegar um helgina
að gera eitt allsheijar klúður úr landsfundi sínum. Einu fréttimar
sem þaðan bárust vom af heitum deilum um það, hvort Kvenna-
listinn ætti yfirhöfuð eitthvert erindi við framtíðina. Sjálfseyðing-
arhvöt hefur einkennt störf Kvennalistans síðustu misserin. Nýja-
bramið er löngu fokið út í veður og vind, og engin málefnaleg
endumýjun hefur orðið í háa herrans tíð. Grasrótin er kalin, ein-
sog glöggt kom í ljós fyrir kosningar þegar lítil klíka hafði að
engu niðurstöðu lýðræðislegs forvals. I kosningabaráttunni höfðu
frambjóðendur flokksins ekkert fram að færa sem fangaði athygli
kjósenda - mest bar á heldur kátlegri tilkynningu um að Kvenna-
iistinn væri á leið í ríkisstjóm. Reyndin varð önnur, og á kosn-
inganótt mátti litlu muna að Kvénnalistinn hrataði fyrir ætternis-
stapa.
Þótt Kvennalistann hafí nú þrotið örendið skyldi samt enginn
velkjast í vafa um að flokkurinn hafði framan af umtalsverð áhrif
á þróun íslenskra stjómmála. Þegar Kvennalistinn bauð fyrst
lfam, árið 1983, sátu aðeins Ijórar konur á þingi; nú em þær 16.
Hugmyndafræði og baráttuaðferðir Kvennalistans hafa átt ríkan
þátt í að grafa undan því tregðulögmáli sem ríkt hefur í jafnréttis-
málum á íslandi. Það lögmál felst sem kunnugt er í því að hyl-
djúp gjá hefur verið milli fyrirheita og framkvæmda í jafnréttis-
málum, og em allir gömlu stjómmálaflokkamir því miður undir
þessa sök seldir að meira eða minna leyti.
Fulltrúar á landsfundinum um helgina skiptust í tvær öndverðar
fylkingar. Annarsvegar vom þær konur sem hreinlega vilja að
Kvennalistinn hætti að bjóða fram, og telja það úrelta baráttuað-
ferð, hinsvegar þær sem höfðu stór orð um að efla flokksstarfið
og vilja halda til streitu framboði á landsvísu. Þórhildur Þorleifs-
dóttir, fyrmm þingkona tlokksins, bar fram tillögu um að hætta
við framboð Kvennalistans. Hún sagði í viðtali við DV í gær:
„Með því hætta framboði vil ég gefa konum pólitískt frelsi. Um
leið emm við að gefa þeim sköpunarfrelsi... Mér dettur ekki í
hug að halda að kvenfrelsisbaráttu sé lokið eða að Kvennalistinn
sé hið endanlega svar.“
Á landsfundinum var líka tekist harkalega á um það hvort
kvennalistakonur eiga að taka þátt í umræðum um samfylkingu á
vinstri væng. Það kom ekki á óvart að konur úr Reykjavík, sem
unnið hafa innan R-listans, skyldu eiga fmmkvæði í þeirri um-
ræðu. Steinunn V. Óskarsdóttir, borgarfulltrúi Reykjavíkurhstans,
kvaðst í DV-viðtali vera þeirrar skoðunar að einhverskonar sam-
vinna eða kosningabandalag komi ‘il greina. Hún sagði: „Við
^ærðum að taka mið af þeim raunvemleika sem við lifum í núna.
Raunveruleikinn kallar á einhverskonar samvinnu. Ég vitna til
góðrar reynslu af starfi Reykjavíkurlistans. Þar er enginn að
leggja sig niður heldur em þeir að starfa saman.“
Um þessar mundir er mikil gerjun á vinstri væng stjómmál-
anna, bæði innan flokka og utan. Hin pólitíska staða á vettvangi
landsmála knýr menn til umhugsunar um það, hvort vænlegt sé
að fjórir áhrifalausir stjómarandstöðuflokkar gaufi hver í sínu
homi - eða stilli saman strengi með einhverju móti. Landsfundur
Kvennalistans sýnir glöggt að á þeim bæ em margar konur reiðu-
búnar til að skoða nýjar leiðir. ■
s k o ð a n
Oraunhæft hvalveiðital
Enn á ný eru hvalveiðar til umræðu.
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráð-
herra lýsti því yfir á Alþingi fyrir
stuttu að hann myndi á næstunni flytja
þingsályktunartillögu um að Islend-
ingar hæfu hvalveiðar að nýju. Það
var hins vegar eftirtektarvert að ráð-
herrann neitaði algjörlega að ræða
hvenær umræddar veiðar ættu að hefj-
ast. Það væri Alþingis að ákveða það.
Heitstrengingar um að hefja hvla-
veiðar að nýju hafa svo sem heyrst áð-
ur, án þess að neitt hafi úr orðið. Eng-
in ástæða er til að ætla að breyting
verði á þessu nú. Að berja sér á brjóst
Hringborðið |
Birgir
Hermannsson
skrifar
og tala digurbarkalega um hvalveiðar
er orðið að innihaldslausu ritúali í ís-
lenskum stjómmálum: einskonar stað-
festing á því að viðkomandi sé sannur
íslendingur, veiðimaður sem láti ekki
lilfinningasama útlendinga kúga sig.
Það verður annars fróðlegt að sjá
hvað mun standa í þingsályktunartil-
lögu Þorsteins Pálssonar. Engin tíma-
setning verður þar, ef marka má orð
ráðherrans, en stóra spurningin er sú
hvort kveðið verður á um veiðar á
stórhvölum, eða hvort eingöngu verð-
ur talað um hrefnuveiðar. Litlar sem
engar líkur eru á því að hið fyrmefnda
verði upp á teningnum enda komast
íslendingar vart upp með það að taka
ákvarðanir um slíkar veiðar einhliða.
Líklegra er að íslendingar fari að
dæmi Norðmanna og hefji Hrefnu-
veiðar í mjög takmörkuðum mæli.
Norðmenn hafa lent í miklum vand-
ræðum á alþjóðlegum vettvangi vegna
hvalveiða sinna. Ekki verður sagt að
veiðamar séu miklar og aðeins er leyft
að selja afurðimar á innlendum mark-
aði. Japanir - hinir sönnu hvalaætur
heimsins - fá því ekki að bragða á
norskri Hrefnu. Nú er svo komið að
hvalveiðimenn í Noregi telja frekari
veiðar vart borga sig fyrr en þeir fá að
selja afurðir sínar á alþjóðlegum
markaði. Hvalveiðimenn í Noregi telja
sig því svikna af stjómvöldum, sem
hafa sér það til málsvarnar að vilja
ekki fórna minni hagsmunum fyrir
meiri.
Islendingar em að þessu leyti í svíp-
aðri stöðu og Norðmenn. Veiðar á
nokkmm hvölum skipta engu máli til
eða frá í efnahagslífi þjóðarinnar, en
fómarkostnaðurinri getur orðið mikill
sé ekki rétt haldið á spöðunum. Það er
einnig ljóst að verði ekki leyft að selja
afurðirnar á alþjóðlegum markaði
munu veiðamar ekki borga sig hér á
landi irekar en í Noregi. Ég efa stór-
lega að Alþingi sé tilbúið að fórna
minni hagsmunum fyrir meiri og
ganga skrefi lengra en Norðmenn og
selja hvalaafurðir á alþjóðlegum
mörkuðum. Til lengri tíma mun slíkt
vart þjóna hvalveiðihagsmunum ís-
lendinga.
Hvalveiðar í stómm stíl í blóra við
alþjóðlegar stofnanir, eins og Alþjóða
hvalveiðiráðið, eru óhugsandi og
hefðu í för með sér mikla áhættu fyrir
Islendinga. Mikið er talað um nauðsyn
hvalveiða til að gæta jafnvægis í lífrfki
hafsins. Þetta em auðvitað sterk rök
fyrir hvalveiðum, en vart er ástandið
orðið svo aðkallandi að rétt sé að
grípa til neyðarúrræða sem án efa
munu einangra íslendinga á alþjóðleg-
um vettvangi.
Umræða um hvalveiðimál er á
miklum villigötum hér á landi.
Stærstu einstöku mistökin á þessum
vettvangi var sú ákvörðun að segja sig
úr Alþjóða hvalveiðiráðinu á sínum
tíma. Það er smám saman að renna
upp fyrir mönnum að ekki er hægt að
heija hvalveiðar fyrr en ísland gengur
aftur í ráðið. í það súra epli verða þeir
Þorsteinn Pálsson og Halldór Ás-
grímsson nú að bíta. Þeim væri einnig
hollt að minnast heilræðis Max We-
bers, sem líkti pólitík við það að
klappa hörðurn steini. Ef Islendingar
ætla sér að veiða hval fyrir alvöru
verða þeir að klappa steininn lengi og
af þolinmæði. Það er ekki vænlegt til
árangurs að hlaupa á dyr með þjósti
og tala digurbarkalega. Slíkt sannfærir
engan á alþjóðlegum vettvangi, en
skapar óraunhæfar væntingar heima
fyrir. ■
Höfundur er stjórnmálafræðingur.
Að berja sér á
brjóst og tala digur-
barkalega um hval
veiðar er orðið að
innihaldslausu
ritúali í íslenskum
stjórnmálum;
einskonar
staðfesting á
því að við-
komandi
sé sannur
íslendingur,
veiðimaður
sem láti
ekki tii-
finninga-
sama
útlending
kúga sig
nóvember
Atburðir dagsins
1894 Sjómannafélagið Báran
stofnað í Reykjavík, fyrst ís-
ienskra sjómannafélaga. 1925
Sýning á súrrealískum lista-
verkum í París. Meðal lista-
manna cru Picasso, Miró, Pau!
Klee, Hans Arp, Man Ray og
Max Ernst. 1938 Gyðingum
bannaður aðgangur að háskól-
um í Þýskalandi. 1963 Surts-
eyjargos hefst. 1983 Tó'mas
Guðmundsson skáld lést, 82
ára. 1985 Hólmfríður Karls-
dóttir kjörin ungfrú heimur.
Afmælisbörn dagsins
Claude Monet 1840, franskur
listmálari. Jawaharlal Nehru
1889, fyrsti forsætisráðhérra
sjálfstæðs lndlands. Joseph
McCarthy 1908. bandarískur
öldungadeildarþingmaður,
upphafsmaður galdrafárs gegn
kommúnistum. Karl Filippus
Arthúr Georg 1948, ríkisarfi
Breta.
Annálsbrot dagsins
Kona nokkur f Laugardal fyrir
sunnan sat á palli sínum einn
sunnudagsmorgun og sagði:
„Eg vildi guð vildi koma mér
héðan með einhverju móti.“
Féll svo dauð niður af pallin-
um.
Hrafnagilsannálí 1751.
Málsháttur dagsins '
Neyð mín gerði, að ég fastnaði
þig. fátæka Gunna.
Stjórnendur landsins
Það er afleitt að þéir sem vita
best hvemig á að stjórna land-
inu skuli allir vera uppteknir
við að keyra leigubíla eða
klippa hár.
George Burns.
Móðgun dagsins
Eruð þér einráðir Islendingar
og ósiðblandnir.
Haraldur haröráði Noregskonung-
ur Sigurðarson við Sneglu- Halla.
Orð dagsins
1 hamianna helgilundum
hugur minn unir sér.
Ég krýp þar ú hverju kvöldi
í kyrrðinni og bið fyrir þér.
Tómas Guðmundsson. Hann lést
þennan dag fyrir 12 árum.
Skák dagsins
Austurríkismaðurinn Wilhelm
Steinitz < 1836-1900) var fyrsti
opinberi heimsmeistarinn t
skák (Kasparov er sá þrett-
ándi). Steinitz varð heims-
meistari 1886 cn tapaði titlin-
um til Laskers 1894. í dag
skoðum við handbragð gamla
meistarans. Steinitz hefur svart
og á leik gegn Reiner. Skákin
var tefld árið 1860.
Svartur leikur og mátar í
þremur leikjum.
1. ... Dh4! 2. Hg2 Dxh2+! 3.
Hxh2 Hgl Mát.