Alþýðublaðið - 14.11.1995, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 14.11.1995, Blaðsíða 4
4 ALÞÝÐUBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 1995 framtíðin Kosningabarátta 19 9 9 Halldór E. Sigurbjörnsson skrifar Á KJÖRDÆMISRÁÐSFUNDI REYKJANESS núna nýverið þurfti ég að gera grein fyrir nokkrum atrið- um varðandi ferli kosningabaráttu flokksins 1995. Er ég gekk út af lokn- um fundi út í miðnæturmyrkrið kom mér í hug að rétt væri að huga að und- irbúningi alþingiskosninga 1999 sem í raun hófust að morgni hins 9. apríl síðastliðinn (eða var það fyrr?). SAMEINING-SAMFLOT-EINIR Á BÁTI? Það væri nú væntanlega að skjóta sjálfan sig í fótinn að hafna með öllu samfloti eða sameiningu að minnsta kosti ef klárt væri að kjósend- ur vildu gripinn. Hér þarf þó eins og jafnan að skilja hafrana ífá sauðunum. „Félagi" Svavar Gestsson reynir til dæmis að „sjhanghæja" JAFNÁÐAR- STEFNUNA frá Alþýðuflokknum í nýlegum áróðursritlingi sínum „Sjón- arrönd,, (1995). Við þessu eiga raun- verulegir jafnaðarmenn auðvelt svar líkt og prófessoramir mínir í lagadeild þegar kvartað var yfir gömlum og úr- eltum kennslubókum. „Strikið yfir lagagreinar og önnur breytt atriði og skrifið leiðréttingar á spássíu!" Þetta skulu því við jafnaðarmenn gera við bækling Svavar og leiðrétta þar sem hann dreitir ,jafnaðarmenn/stefna„ (sic) svona ,jafHaðarmonn/stofna„ o.s.frv. og ritum síðan á blaðrönd „sameignarsinnar/stefna,, o.s.frv. Þannig verður pési Svavars skiljan- legri fyrir hann sjálfan og aðra þá sem í einfeldni láta augu reika um síður. Meðan „félagi" Svavar og Jón Bald- vin glíma við að skilgreina pólitíska fortíð sem varla skiptir raunhæfu máli lengur, nema til þess að útiloka þá sem ekki koma til greina, telur sá sem þessar lfnur ritar að rétt sé að horfa fram á veginn. HVAÐ ÞARF AÐ BÆTA fyrir kosningabaráttu Alþýðuflokksins - Jafnaðarmannaflokks íslands fyrir kosningalotu 19991 Það er það helst sem að neðan greinir: ÍMYND FLOKKSINS OG FLOKKSSTARF. Ekki þarf um það að deila að hressa þarf upp á ímynd flokksins eftir síðustu orrahríð vegna kosningaúrslita, fjármálastjórnar, framkvæmdastjóra, gjaldkera og brott- hvarfs Ámunda - eða er hann kominn aftur? (vonandi!). Vegna flokksstarfs- ins þarf að ráða strax framkvæmda- stjóra eða réttar nefndan ,Jlokks- stjóra,, sem einungis sér um eflingu flokksstarfs. Flokksstjóri þessi þarf að vera óháður öllum forystumönnum og vinna einungis flokknum til hagsbóta heilt og óskipt. Verkefni flokksstjóra og annarra fastráðinna starfsmanna eru efling og útbreiðsla flokksstarfs - ekkert annað. Eins og Vilhjálmur Þor- steinsson hefur rakið hér í Alþýðu- blaðinu þarf flokkurinn að vanda vel til þeirra manna sem hann velur til starfa. Til þess að styrkja þessa aðila betur I sessi og í anda lýðræðis kemur vel til greina að kjósa flokksstjóra á flokksþingi svo og aðra starfsmenn flokksins umffarn það sem nú greinir í lögum flokksins. Setja mætti slíkt ákvæði í flokkslög. Máttvana og „hryggjarlaust“ flokksstarf er aðal veikleiki Alþýðuflokksins á landsvísu en játa ber að Hafnfirðingar kunna til verka. Undirbúningur alþingiskosn- inga 1999 hefst fyrir alvöru með að- draganda sveitarstjórnarkosninga 1998 og þá er krafan að einungis verði boðið fram í nafhi „Alþýðuflokksins - jafnaðarmannaflokks Islands,,. Það er sérstaklega brýnt að efla flokksstarfið í Reykjavík og þar verða menn að gera sem fyrst upp við sig hvort þeir vilji „xR“ eða „xA“. Styrkja þarf og tryggja fjármál flokksins og aðildarfé- laga hans - peningar eru jú nauðsyn- legir í bland við hugsjónastarf. MÁLEFNI. Ekki þarf um það að deila að Alþýðuflokkurinn heldur fram skýrustu og sértækustu málefn- um íslenskra stjórnmálaflokka. Það þarf hins vegar að gera betur og styrkja framsetningu þessara málefna og sannfæra kjósendur um að þau komi raunverulega til framkvæmda. Hvar er til dæmis mannréttindamálið alger jöfnun atkvæðisréttar??? Alger jöfnun atkvæðisréttar er þungamiðja eða sveifarás íslenskra stjórnmála. Þegar til þess kemur að sérhver Is- lendingur á kosningaaldri hefur sama vægi og annar - einn maður - eitt at- kvceði - muni leggjast niður sjálfkrafa, „byggðaratkvæðastefna" og „landbún- aðarþrotastefna" eins og við þekkjum hana í dag. Athuga þarf aftur á ný for- gangsröð, hlutfall eða spannvídd efna- hagsmála gagnvart eða samhliða hin- um félagslegu manngildismálum. Réttast er að líta betur í „málefna- kism“ Vilmundar Gylfasonar - þar er margt að finna. ESB-málið er „okkar“. Það þarf hins vegar að skýrgreina bet- ur varðandi forsendur aðildarumsókn- ar. ESB ög önnur alþjóðamál verður að meðhöndla með varúð eins og reynslan sannar. Því hefur stundum verið haldið fram hér á landi að ESB sé fyrst og fremst pólitískt eða hag- fræðilegt fyrirbrigði en því má alls ekki gleyma að ESB er einstök al- þjóðastofnun eða fyrirbæri í þjóðar- rétti (sui generis) með sitt eigið laga- kerfi sem meðal annars hvflir á stofn- samningum þess og síðari samning- um. Lagakerfi þetta er sívirkt og í stöðugri sköpun (acquis commu- nautaire). Þanþol réttarheimilda ESB spilar stóra rullu varðandi aðildar- möguleika íslands - því má ekki gleyma. FRAMBJÓÐENDUR. Það er álit stjómmálaspekúlanta að vegna sam- runa eða nálgunar pólitískra málefha á stefnuskrá íslenskra stjómmálaflokka hafi frambjóðendur forgang fyrir mál- efhum í hugum kjósenda. Ef Alþýðu- flokkurinn væri fótboltafélag þá má segja að kosningaúrslitin í ár feli í sér fall frá toppi fyrstu deildar og svo til á botninn í fjórðu deild. Eins og vera ber myndi félagið þá reka þjálfarann (framkvæmdastjóri?/kosninga- stjóri?/grasrótin?), selja fjölda leik- manna og yngja upp liðið. Alþýðu- flokkurinn er ekki knattspymuklúbbur þó margt sé keimlíkt en verklagið upp á síðkastið gefur það til kynna og em atlögur gegn almennum starfsmönn- um hans launuðum sem ólaunuðum, óheiðarlegar, ósanngjarnar og óút- reiknanlegar. Það er nefnilega verið að reyna „að hengja bakara fyrir smið“. Það er ekki útilokað að „Kall- inn í brúnni" og einhveijir „skipverj- ar“ kunni að endurskoða sín mál, stokka upp „æfingakerfið“ og öðlast nýja og ferska ímynd hjá kjósendum - „fiska“ aftur og meira. Það er þó lík- lega fremur undantekning en regla. Málefnum flokksins þarf að koma fram og það er brýnna en persónulegt skipbrot eins eða annars. „Næsta kyn- slóð“ flokksins þarf fram og það er brýnna en persónulegt skipbrot eins eða annars. „Næsta kynslóð" flokksins þarf að fá að reyna sig fremur en að beita enn á ný gömlu aðferðinni þekkt- andlit-úr-sjónvarpinu“ sem flokkurinn hefur ofhotað. Áf því leiðir tækifærisbragur flokksins og skortur á trúverðugleika þó eflaust megi finna hæfa menn í tíma hjá fjölmiðlum landsins. Við val á framboðslista ber að beita prófkjömm en þá með varúð og vandvirkni í ffamsetningu og fram- kvæmd. KOSNINGABARÁTTAN. Hina eiginlegu „kosningabaráttu" þarf að skilgreina upp á nýtt og tengja við öll atriði er hér eru greind. Hin stöðugt vaxandi ,Jtægri“ slagsíða á íslenskum fjölmiðlum og fjölbreytileiki þeirra er nýtt og vaxandi vandamál sem glíma þarf við. Flokkurinn er alltaf í kosn- ingabaráttu og því mega forystumenn hans eða aðrir flokksmenn ekki gleyma. Kosningabarátta verður ekki hönnuð á teikniborði auglýsingaskrif- stofu. Hún er barátta fjöldans þar sem hver flokksmaður vinnur sitt hlutverk - öll ár - alltaf. Jafnaðarmannaflokkur hefur það fram yfir íhalds- eða sér- gæðaflokka að þar vinna menn að jafnaði umbunarlaust og af hugsjón. Það er því mikilvægt til mótvægis að forystumenn Alþýðuflokksins veiti öðrum flokksmönnum umboð, svig- rúm og stuðning til þess að verða „málsvarar" og „eldhugar" flokksins - myndi fjöldahreyfingu sem best á hverri vígstöð. Menn verða að finna tilgang og fá hvatningu í sínu stússi. Lokaskref kosningabaráttu með hefð- bundnum bægslagangi krefst öflugrar fjáröflunar, fjáráætlunargerðar (sem fara verður eftir), samráðs og hug- myndaauðgi. Hlutverk og valdsvið kosningabaráttu þarf að skilgreina. Sé rétt að kosningabaráttu staðið, eins og hún er skilgreind hér, kann hún að verða árangursríkari heldur en nýliðin „auglýsingaskothríð". AF UNGUR FÓLKI. Alþýðu- flokknum hefur tekist að viðhalda sjálfum sér og hefur ætíð horft fram á veginn þrátt fyrir að oft hafi verið siglt um ólgusjó. Einn af ljósu punkmnum í svartnætti síðustu kosninga var kosn- ing Lúðvíks Bergvinssonar á þing. Hann þarf hins vegar að fá áframhald- andi stuðning af flokksstarfinu ef sá ávinningur á ekki að glatast. Það er þó dæmigert fyrir eftirköst síðustu kosn- inga að bændur og búalið á Suður- landi virðist hafa meiri áhuga á land- búnaðarstefnu Alþýðuflokksins en „dauðastefnu" Framsóknarþjóðemis- sirmanna sem þeir henm þó í atkvæði. Ætti það eitt að veita Lúðvik væntan- legt brautargengi næsm ár. í kosninga- baráttunni kynntist ég mörgum öðrum ungum og efhilegum stjómmálamönn- um flokksins og öflugum stuðnings- mönnum hans. Nægir í dæmaskyni að nefna sérstaklega hér unga alþýðu- flokksmenn sem flestir unnu í kosn- ingabarátm flokksins bæði í Reykja- víkur- og Reykjaneskjördæmi, þá Hrein Hreinsson, Þóm Amórsdóttur, Baldvin Björgvinsson, Hrein Jónsson, Vilberg Ólafsson, Jón Einar Sverris- son, Hrönn Hrafnkelsdóttur, Hákon Óla Guðmundsson og ýmsa fleiri. Unga fólkið var tveir þriðju af starfs- mönnum flokksins í kosningabarátt- unni og fyllti okkur hin krafti og bjart- sýni. Flokkur sem hefur úr slíkum efhivið að moða nær árangri - á því er enginn vafi. Kosningaúrslitin 1978, sem að mestu vom Vilmundi Gylfa- syni að þakka, em okkur eilífur vitnis- burður um það hvað getur gerst þegar ferskir vindar fá að blása. Höfundur var einn af kosningastjórum Alþýðuflokksins - Jafnaðarmannaflokks (slands á Reykjanesi 1995. r ■ A dögunum gaf Forlagið út endurminning lagið Iðunni <pg gerði að einu umsvifamesta i um 1942-42 í eftirfarandi kafla bókarinnar sei skrifa allt blaðið, meðal annars forystugreinir n Kommúni Kommí Valdimar Jóhannsson segir frá veru sinni á Fyrst eftir að Þjóðólfsævintýri mínu lauk, starfaði ég við lestur handrita og prófarka fyrir bókaútgefendur, Guðjón Ó. Guðjónsson og Gunnar Einarsson í ísafold. En dag nokkum hringir Stefán Pjetursson, ritstjóri Alþýðublaðsins, til mín og býður mér að gerast blaðamað- ur hjá sér. Ragnar Jóhannesson var að hætta og gerast starfsmaður á skrifstofu útvarpsráðs. Við Stefán þekktumst lítil- lega; hann hafði kennt við Samvinnu- skólann samtímis mér. ,Ég er ekki alþýðuflokksmaður," segi ég strax, því að í þá daga vom starfsmenn póhtísku blaðanna nálega allir flokksbundnir. „Ég veit það,“ segir Stefán. ,En þú styður samt stefhu okkar jafnaðar- manna í mörgum málum.“ , Já, ég geri það,“ svara ég. „Það ætti að nægja,“ segir hann - og þar með var ég ráðinn blaðamaður við Alþýðublaðið. Það kom flestum á óvart, ekki síst sjálfum mér, en ég var feginn að hafa hilotið fasta vinnu. Ráðn- ing mín var forboði nýrra tíma, því að líklega er ég fyrsti blaðamaðurinn sem ekki var flokksmaður þess stjómmála- flokks sem gaf blaðið út. Ég hafði reyndar starfað áður við dagblað stjómmálaflokks; og þá var ég bundinn þeim flokki, Framsóknar- flokknum. Ég var blaðamaður við Nýja dagblaðið skamman tíma sumarið 1938, þegar ég kenndi við Samvinnu- skólann. Starfsmenn við það blað vom aðeins tveir: Þórarinn Þórarinsson var ritstjóri, og Jón Helgason blaðamaður, en Jónas frá Hriflu skrifaði oft greinar, og það munaði nú aldeilis um hann. Jón stundaði nám í Samvinnuskólan- um veturinn 1936-1937 og hafði ekki verið þar nema hálfan þriðja mánuð, þegar Jónas kallar hann á sinn fund. Jón hefur sjálfur líst þeim atburði með svo- felldum orðum: ,Eann sat í slopp inni í litlu herbergi, sem var fyrir framan íbúð hans í Sam- bandshúsinu; réttir mér höndina laus- lega, eins og hans var háttur, tekur af sér gleraugun og horfir í gaupnir sér. Ég vissi ekki hvað honum var í huga, fyrr en hann sagði: ,Nú ferð þú heim í jólafrí. Ég ætla að láta þig hætta í skólanum. Þú skalt gera ráð fyrir því við föður þinn, að þú farir að vinna við Nýja dagblaðið eftir ára- mótin“. Þar með var það ákveðið, og örlög Jóns Helgasonar ráðin, því að hann var blaðamaður og ritstjóri alla sína ævi og ferill hans glæsilegur. Þegar ég kem til skjalanna hefur hann unnið við Nýja dagblaðið hálft annað ár, stendur þá til boða að fara á blaðamannanámskeið til Svíþjóðar og biður mig að leysa sig af. Ég mæti í Edduhúsinu við Skugga- sund á þriðjudegi eftir hvítasunnu fullur eftirvæntingar. Mér til undrunar frétti ég að Þórarinn Þórarinsson muni ekki koma til vinnu fyrr en eftir nokkra daga; hann hafði farið vestur á Snæ- Forsíða Alþýðublaðsins 1942, þeg- ar Valdimar starfaði þar, var öll lögð undir auglýsingar. fellsnes, en þaðan er hann ættaður. Svo að ég þarf að koma blaðinu út upp á eigin spýtur, algjörbyijandi; skrifa ná- lega allt efni þess. Mér h'st sannarlega ekki á blikuna; ég kófsvima, en byija að skrifa; um annað var ekki að ræða. Nýja dagblaðið kom út á morgnana, fjórar síður, og var þannig unnið að svokallaður innformur þurfti að vera til- búinn á miðjum degi, en í honum var leiðarinn sem Þórarinn var vanur að skrifa. Nú verð ég sem sagt að hefja minn blaðamannsferil með því að skrifa for- ustugrein sem er vandasamt verk og ekki ætlað nýliðum. Blaðið var yfirleitt ekki tilbúið til prentunar fyrr en klukkan tvö eða þijú á nóttunni. Þá loksins komst ég heim, en þorði ekki annað en setjast niður dauð- þreyttur til að skrifa leiðarann fyrir næsta dag, því að ég var svo hræddur um að mér tækist ekki að ljúka við hann í tæka tíð. Þannig baslaðist þetta, þar til Þórar- inn mætti til vinnu á ný, og síðan starf- Alþýðublaðið hafði þá einsog nú aðsetur í Alþýðuhúsinu. aði ég með honum, uns Jón Helgason kom aftur frá Svíþjóð. Þama hlaut ég eldskffn mína í blaðamennskunni. Ritstjóm Alþýðublaðsins hafði aðsetur í tveimur herbergjum á annairi hæð í Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu. Annað herbergið var bjart og vistlegt, með útsýni yfir Ámarhólinn, höfnina og sundin blá. Það hafði Stefán Pjetursson, en í hinu sátum við allir blaða- mennimir hlið við hlið: Vilhjálm- ur S. Vilhjálmsson, sem skrifaði hinn vinsæla smálemrsdálk sinn undur dulnefninu Hannes á hom- inu, Karl ísfeld, Thorolf Smith, Ingólfur Kristjánsson og Helgi Sæmundsson.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.