Alþýðublaðið - 14.11.1995, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 14.11.1995, Blaðsíða 7
ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 1995 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 7 Hendrickje, sambýliskona Rembrandts, sat fyrir þegar hann málaði fræga mynd sína af Batsebu. an lést árið 1802. Goya lifði hana í tuttugu og sex ár og lést í Frakklandi áttatíu og tveggja ára. Suzanne Valadon Suzanne Valadon, sem sjálf var ágætur listamaður, sat fyrir hjá Rcnoir og Degas. Hún var móðir Maurice Utr- illo. en vissi aldrei hvor listamannanna var faðir að baminu. Henni þótti vissulega vænt um son sinn en uppeldisaðferðir hennar voru ekki hefð- bundnar. Þegar sonur hennar var sex ára tók hún að hella ofan í hann slatta af koníakktil að geta verið viss um að hann svæfi meðan hún skemmti sér framundir morgun á Montmartre. Afleiðingamar urðu þær að sonur hennar þjáðist alla ævi af drykkjusýki. Suzanne var í fimrn ár ástkona lögfræðingsins Paul Mousis. Þegar Mousis giftist henni loks neitaði hann að gefa syni hennar ættamafn sitt og sendi hann í sveit til fósturs. Suz- anne tókst að telja spánskan blaða- rnann Miguel Utrilio á að ættleiða drenginn, en Maurice tók þann greiða óstinnt upp. Suzanne varð fljótlega leið á eiginmanni sínum, skildi við hann og tók sér nýjan ástmann. Sá var Málverk af hertogaynjunni af Alba eftir Goya ástmann hennar. hana eins og hún raunverulega var: heimsk, illgjöm og ljót. Luisa drottn- ing var sögð full afbrýði vegna íjög- urra ára sambands Goya við hertoga- ynjuna og sendi hana í útlegð. Sú gjörð varð einungis til þess að Goya stökk á eftir ástkonu sinni. Sterkur orðrómur komst á kreik þess efnis að hertogaynjan hefði byrlað eiginmanni sínum eitur og að drottningin hefði- komið því svo fyrir að hertogaynjunni væm sköpuð sömu örlög. Hertogaynj- Helena Fourment, hin káta eigin- kona Rubens, í brúðarkjól sínum á málverki bónda síns. félagi sonar hennar, André Utter, sem var tuttugu ámm yngri en hún. Hún giftist honum og sonur hennar bjó hjá þeim. Þótt Suzanne væri ekki jafn hæfileikamikill listamaður og sonur hennar auðgaðist hún af sölu málverka sinna og lifði um tíma áhyggjulausu lífi. Hinum unga eigin- manni hennar tókst þó, frernur fyrir- hafnarlítið, að sólunda fjármunum hennar. Hann hélt einnig ffamhjá henni og barði hana reglulega, allt þar til þau skildu að skiptum. Suzanne sneri sér þá að því að efla áhuga sonar síns á konum, en hann hafði ævinlega verið í lágmarki. Hún útvegaði honum gleðikonur en fann honum loks eigin- konu. Suzanne lést árið 1938. Sonurinn Utrillo minntist dauða hennar ár hvert með því að loka sig inni og biðja fyrir sálu hennar. ■ Bók um jökulsvæði landsins eftir Ara Trausta Guðmundsson Fjölbreyttir jökulheimar Bókaútgáfan Ormstunga hefur senl frá sér bókina Jökulheimar. Höfundur texta er Ari Trausti Guðmundsson og bókin er prýdd 77 ljósmyndum Ragn- ars Th. Sigurðssonar. Bókin fæst einn- ig á ensku og þýsku. í inngangi bókar- innar eru grunnatriði jöklafræðinnar skýrð á lipran og læsilegan hátt. Mynd- un jöklanna, jöklabúskapur, framhlaup og jökulrof eru meðal eíhisþátta. Síðan er öllum helstu jökulsvæðum landsins lýst í máli og myndum. í myndatextum finna lesendur viðbótarupplýsingar sem ekki eru í meginmálinu. „Mig hafði lengi langað til að gera úttekt á íslensk- um jöklum, sem eru 11% af landinu," sagði Ari Trausti Guðmundsson í sam- tali við Alþýðublaðið. „Það hefur vantað bók þar sem er fjallað keifisbundið um jökla og sagt frá eðh þeirra. Síðan ferð- uðumst við Ragnar um landið og tókum myndir. Það em einstök forréttindi að fá að skrifa um svo fallega hluú. Þrátt fyrir að flestir haldi að jöklar séu bara snjór og ís þá er í umhverfi þeirra mikill lita- heimur og víða má finna skemmtilegt samspil gróðurs, jarðhita og íss. Þetta er miklu fjölbreyttari heimur en fólk held- ur og honum er hægt að koina til skila með mynduin og texta." Þegar Ari Trausti er spurður hvemig hann nálgist viðfangsefnið segir hann: „Sá maður er steindauður sem ekki finnur einhverjar skaplegar tilfinningar vakna með sér þegar hann fjallar um íslenska náttúru. Sömuleiðis er ekki hægt að fialla um raunvísindi fyrir almenning nema lýs- ingar vekji með fólki einhveijar kennd- ir. Mitt verk er að fræða fólk um raun- verulega hluti og staðreyndir, en ég vil gjarnan búa þannig um efnið að það virki skemmtilega og áhugavekjandi á fólk. Ég geng ekki bara að verkinu með „Ég reyni að pakka efninu inni í mannvinsamlegar umbúðir," segir Ari Trausti Guðmundsson sem ásamt Ragnari Th. Sigurðssyni hef- ur sent frá sér bók um íslenska jökla. tommustokk og reiknivél og skila þvf svo frá mér. Ég reyni að pakka efninu inn í mannvinsamlegar umbúðir." Að lokum er Ari Trausti spurður að því hvort hann haldi að náttúrufræðingar séu almennt meiri ættjarðarvinir en gengur og gerist. „Meirihiuti náttúru- skoðenda held ég að sé tryggari landinu og fólkinu sem hér býr en margur ann- ar,“ segir hann og bætir við: „Það er ein- faldlega vegna þess að þeir skilja hvað landið hefur upp á að bjóða umfram mörg önnur lönd. Langflestir íslenskir náttúruvinir þekkja útlönd og geta því borið lönd saman. Þeir sjá hér fjöl- breytnma og hreinleikann sem mörg önnur iönd eru fyrir löngu búin að glaia. Þeir vita að íslensk náttúra er dýnnælur sjóður sem þjóðinni er trúað fyrir og ber að varðveita." Louise Boucher, öðru nafni La Morphise, fá- tæka stúlkan sem varð ástkona Lúðvíks 15. Málverk eftir Francoois Boucher. § Ungir jafnadarmenn Framkvæmdastjórnarfundur verður haldinn miðviku- daginn 15. nóvember klukkan 15. nóvember klukkan 18. Fundarstaður er Alþýðuhúsið, Hverfisgötu 8-10. Dagskrá fundarins er eftirfarandi: 1. Fundargerð síðasta fundar lögð fram til samþykktar. 2. Frágangur ályktunar frá síðasta sambandsstjórnar- fundi. 3. Útgáfumál (kálfur, símaskrá). 4. Fundartími framkvæmdastjórnar. 5. Önnur mál. Mikilvægt er að þeir framkvæmdastjórnarmenn sem ekki sjá sér fært að mæta tilkynni forfoll á skrifstofu sambandsins. Þar sem á dagskrá fundarins er frágangur á ályktun síð- asta sambandsstjórnarfundar er þessi framkvæmda- stjórnarfundur opinn öllum meðlimum samþandsstjórn- ar. Framkvæmdastjórn SUJ jir iafnaðarmenn SkrifstóTa sambandsins verður opin til áramóta sem hér segir. Mánudaga og þriðjudaga: 9-13 Miðvikudaga: 12-16 Fimmtudaga: 14-18 Framkvæmdastjórn SUJ Félag ungra jafnaðarmanna í Hafnarfirði Aðalfundur Aðalfundur Félags ungra jafnaðarmanna í Hafnarfirði verður haldinn föstudaginn 24. nóvember klukkan 20.30. Dagskrá verður auglýst síðar. Formaður FUJ í Hafnarfirði.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.