Alþýðublaðið - 14.11.1995, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 14.11.1995, Blaðsíða 8
Þriðjudagur 14. nóvember 1995 173. tölublað - 76. árgangur Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk Samkeppnisstofnun Þorsteinn á beinið Samkeppnisstofnun hefur vakið at- hygli sjávarútvegsráðherra á því áliti sínu að skilyrði sem sjávarútvegsráðu- neytið setur fyrir leyfi til hörpudisk- veiða á Breiðafirði stríði gegn því markmiði samkeppnislaga að efla virka samkeppni í viðskiptum. Þetta álit Samkeppnisstofnunar má rekja til kvörtunar sem stofnuninni barst frá útgerðinni Seley hf. sem gerir Skilyrði sjávarút- vegsráðuneytis- ins stríða gegn samkeppnislög- um. út bát á hörpu- diskveiðar í Breiðafirði. Kvartað var yfir því skilyrði sem ráðuneytið setur fyrir veiðunum að bátur útgerðarinn- ar megi aðeins landa fiskinum hjá viðurkenndri skelfiskvinnslu- stöð á Brjánslæk. A Bijánslæk hátti hins vegar svo til að aðeins eitt fyr- irtæki sé í skelfiskvinnslu og þess vegna hafi útgerðin ekki um nema eitt að velja. Var ofangreint skilyrði talið brjóta í bága við samkeppnislög og þess óskað að Samkeppnisráð hlutað- ist til um að skilyrðið yrði fellt niður. Samkeppnisráð segir að sú kvöð á leyfi til hörpuskelsveiða að þurfa alltaf að landa aflanum hjá ákveðinni vinnslustöð stangist á við markmið samkeppnislaga og komi í veg fyrir samkeppni í viðskiptum með skelfisk. Kvöðin geti ennfremur komið í veg fyrir að eðlileg verðsamkeppni mynd- ist milli vinnslustöðva. Reykjavíkurborg Þróunarstyrkir Atvinnumálanefnd Reykjavíkur veitir á hveiju ári styrki til þróunar at- vinnulífs í Reykjavík. Styrkimir eru einkum veittir til verkefna sem stuðlað geta að nýsköpun, þróun, hagræðingu, markaðssetningu og uppbyggingar í atvinnulífi Reykjavíkurborgar. í ár bárust tæplega 50 umsóknir frá ein- staklingum og fyrirtækjum og hlutu 20 styrki. Heildarupphæð styrkjanna nemur sjö milljónum króna. NÓVEMBERTILBOÐ A myndarlegu Nóvembertilboði Japis gefst þér einstakt tækifæri á að eignast 28" TATUNG sjónvarp á hreint ótrúlegu verði 28" Nicam stereo Sjónvarp FST Black Matrix myndlampi Textavarp Allar aðgerðir á skjá Scarttengi SVHS Tengi fyrir aukahátalara Tengi fyrir heyrnatól Fjarstýring Timer Endursöluaðilar TATUNG a landsbyggðinni Keflavík: RAFHUS Akranes: METRÓ Borgarnes: KAUPFÉLAGIÐ Snæfellsnes: BLÓMSTURVELLIR ísafjörður: PÓLLINN Skagafjörður: SKAGFIRÐINGABÚÐ Akureyri: RADÍÓV.STOFAN og METRÓ Húsavík: ÓMUR Egilsstaðir: RAFEIND Selfoss: KAUPFÉLAGIÐ Vestmanneyjar: BRIMNES JAPIS íslandsbanki Lækkar vexti Með hliðsjón af lækkun markaðs- vaxta hefur Islandsbanki ákveðið að lækka vexti. Verðtryggðir útlánsvextir lækka um 0,25% og verðtryggðir inn- lánsvextir um 0,15 til 0,25%. Kjör- vextir útlána lækka því úr 6,30% í 6,05%. Óverðtryggðir útlánsvextir lækka um 0,15% og innlánsvextir um 0,10 til 0,15%. Kjörvextir víxla lækka því úr 8,60 í 8,45% og kjörvextir óverðtryggðra skuldabréfa lækka úr 8,50 í 8,35%. Bankinn lækkaði þessa vexti einnig 11. október og þá um 0,10%. Matvæladagur Manneldisrád fékk fjöreggið Fjöregg MNI er verðlaunagripur sem veittur er á Matvæladegi Mat- væla- og næringarfræðingafélags ís- lands, MNÍ. Á Matvæladegi 1995 voru verðlaunin veitt Manneldisráði fslands fyrir útgáfu tengda neyslu- könnun, útgáfu manneldismarkmiða og annars fræðsluefnis. Að mati dóm- nefndar er fræðsluefni sem Manneld- isráð heíúr gefið út vandað, öfgalaust og til þess gert að nýta það. I dóm- nefnd sátu Sveinn Hannesson, Sam- tökum iðnaðarins, Alda Möller, SH og Einar Matthíasson, Mjólkursam- sölunni. Samtök iðnaðarins gáfu verð- launagripinn sem er handunnin íslensk ffamleiðsla frá Gleri í Bergvík. Laufey Steingrímsdóttir forstöðu- maður Manneldisráðs tekur við fjöregginu úr hendi Sveins Hannes- sonar. Gunnar Gunnarsson, Anna Pálína og Jón Rafnsson. Haustvísa í Hafnarborg Annað kvöld, miðvikudags- kvöld, klukkan 20 efnir vísna- söngkonan Anna Pálína Árna- dóttir til tónleika í Menningar- miðstöð Hafnarfjarðar undir yfirskriftinni Haustvísa í Hafn- arborg. Á efnisskránni verða ís- lensk, norræna og frönsk ljóð og lög sem eiga það sameiginlegt að fjalla um ástina, haustið og lífið og tilveruna í ýmsum myndum. Hluti af efnisskránni er væntan- legur á nýrri geislaplötu sem verður gefin út á næsta ári. Með Önnu Pálínu leika þeir Gunnar Gunnarsson á píanó og Jón Rafnsson á kontrabassa. Anna Pálína hefur á undanförnum ár- um getið sér gott orð fyrir flutn- ing sinn á vísnatónlist bæði hér- lendis og á Norðurlöndum.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.