Alþýðublaðið - 14.11.1995, Side 6
6
ALÞYÐUBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 1995
AUGLYSIIMG UM
STARFSLAUN LISTA-
MANNA ÁRIÐ 1996
Hér meö eru auglýst til umsóknar starfslaun til handa lista-
mönnum árið 1996, í samræmi við ákvæði laga nr. 35/1991.
Starfslaunin eru veitt úrfjórum sjóðum þ.e.:
1. Launasjóði rithöfunda.
2. Launasjóði myndlistarmanna.
3. Tónskáldasjóði.
4. Listasjóði.
Umsóknir skulu hafa borist Stjórn listamannalauna, mennta-
málaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, á þar til
gerðum eyðublöðum fyrir kl. 16.00 mánudaginn 15. janúar
1996. Umsóknir skulu auðkenndar „Starfslaun listamanna"
og tilgreina þann sjóð sem sótt er um laun til. Umsókna-
reyðublöð fást hjá menntamálaráðuneytinu.
Ath. Hafi umsækjandi áður hlotið starfslaun verður umsókn
hans því aðeins tekin til umfjöllunar, að hann hafi skilað
stjórn listamannalauna skýrslu um störf sín í samræmi við
ákvæði 4. gr. laga um listamannalaun nr. 35/1991.
Reykjavík, 10. nóvember 1995,
Stjórn listamannalauna.
Utboð
F.h. Strætisvagna Reykjavíkur er óskað eftir verðtil-
boðum í áttatíu fargjaldabauka.
Lýsing: Baukarnir skulu vera gerðir fyrir mynt, seðla og
farmiða. Stærð peningahólfs u.þ.b. 5000 rúmsentimetr-
ar. Fargjaldalosun fari þannig fram að skipt sé um pen-
ingahólfið.
Afhending verði í síðasta lagi fyrir 1. júlí 1996.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, að Fríkirkju-
vegi 3. Reykjavík.
Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtudaginn
14. desember 1995. kl. 11.00 f.h.
Hundaeigendur
í Reykjavík
Samkvæmt 5. gr. reglugerðar nr. 201/1957 um varnir
gegn sullaveiki skulu eldri hundar en sex mánaða
hreinsaðir af bandormum í október eða nóvember ár
hvert.
Starfandi dýralæknar í Reykjavík annast hreinsun.
Heilbrigðiseftirlitið hvetur þá hundaeigendur sem halda
óskráða hunda í Reykjavík að skrá þá hið fyrsta.
Þeir hundaeigendur sem enn hafa ekki greitt leyfisgjald
fyrir 1995 eru hvattir til að gera það strax svo komist
verði hjá frekari innheimtuaðgerðum.
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.
Vinningstölur
iaugardaginn:
11. nóv. 1995
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ Á HVERN VINNING
fflsa.S 0 2.003.450
g+4at5 4 80.580
04af5 67 8.290
EJsafS 2.213 580
Aðaltölur:
T)íl6
18 23 32
BÓNUSTALA:
6o)
Heildampphæð þessa viku:
kr. 4.164.740
TJPPCÝS1NGARrS(M5VSRr568T5t fEDAGRÆNT
NR. 800 6511 - TEXTAVARP 453 BIRT MEO FYRIR-
VARA UM PRENTVILLUR
Þær urðu ódauðlegar á léreftinu
Fyrirsætur
meistaranna
Simonetta
Sandro Botticelli var samkyn-
hneigður og Simonetta Catteano var
sextán ára saklaus brúður aðalsmanns-
ins Marco Vespucci. Stuttur fundur
þeirra varð kveikja að mesta listaverki
Botticelli. Fegurð Simonettu vakti að-
dáun skálda, tónlistarmanna og málara
á Italíu 15. aldar sem hylltu hana í
verkum sínum. Giuliano Medici varð
ástfanginn af Simonettu og fól Bottic-
elli að mála mynd af henni á fána sem
hann bar í burtreiðum. Fegurðin var
líklega það eina eftirtektarverða við
Simonettu, en ekki er vitað til að hún
hafi á ævi sinni sagt, hugsað eða gert
nokkuð það sem athygli vakti. Reynd-'
ar veittist henni lítill tími til slíkra at-
hafna þar sem hún lést einungis tvítug
að aldri. Botticelli gat ekki gleymt
henni. Þremur árum eftir dauða henn-
ar hóf hann að mála madonnumyndir
þar sem andlit hennar var fyrirmynd.
Tíu árum síðar, þegar Lorenzo her-
togi bað Botticelli að mála fyrir sig
mynd kallaði Botticelli aftur ífam
andlit hinnar látnu Simonettu og gerði
hana ódauðlega í myndinni Fœðing
Venusar. Bottjcelli gleymdi aldrei
Simonettu og hyllti hana í fjölmörgum
verkum sínum.
Mona Lisa
Nær fimm hundruð árum eftir að
Leonardo da Vinci málaði Monu
Lisu velta menn því enn fyrir sér
hvaða merkingu beri að leggja í hið
dularfulla bros hennar. Því hefur verið
haldið ffam að brosið beri vott um
sorg vegna andláts bams hennar eða
opinberi lostafulla hugsun um elsk-
huga. Hugmyndaríkur maður, en ekki
að sama skapi hygginn, sagði brosið
þjáningarbros því núbúið hefði verið
að draga tönn úr ungu konunni þegar
hún sat fyrir.
Árið 1495 varð Mona Lisa þriðja
eiginkona Fransesco Gioconda.
kaupmanns ffá Flórens sem var 19 ár-
um eldri en hún. Gioconda réð Leon-
ardo til að gera mynd af eiginkonu
sinni. Leonardo dundaði við að mála
m^ndina í fjögur ár, en hann var löng-
um önnum kafinn maður. Hann átti
mörg áhugamál, bæði á listræna svið-
inu og því vísindalega, og sinnti auk
þess í frístundum ungum drengjum
sem einhver gaf þessa einkunn: „Þeir
voru auðnuleysingjar en höfðu ómót-
Hin engilfagra Simonetta Catteano
varð eftir dauða sinn fyrirmyndin
að Venusi Botticellis.
ishaldið og fjármálin,
hjúkraði hinum veik-
byggða syni listamanns-
ins, fæddi honum dóttur,
og varð ódauðleg sem
fyrirmynd að frægum
málverkum, eins og
Stúlka í glugga og Bats-
hebu. Hendrickjé bjó með
Rembrandt í rúm tuttugu
ár, allt þar til hún lést af
völdum berkla.
La Morphise
Louise O’Murphy var
einungis þrettán ára þegar
Casanova uppgötvaði
hana í skítugu þakher-
bergi þar sem hún bjó
ásamt írskættaðri fjöl-
skyldu sinni. Casanova
heillaðist af fegurð sem
leyndist bak við skítuga
garma og sagði lista-
manninum Francois
Boucher frá stúlkunni.
Hún varð eftirlætis módel
Boucher og þegar hún var
fimmtán ára héngu mál-
verk af henni í öllum
helstu stássstofum í París.
Louise hlaut viðumefftið
La Morphise og vakti at-
hygli Madame Pomp-
adour, ástkonu Lúðvíks
15. Hin fijálslynda Pomp-
adour viidi hvfla sig á
.
PjrBwi* tÉt.
Suzanne Valadon í málverki Reno-
irs Dans í Bougival.
stæðileg og löng augnhár". Giocondo
tók loks að leiðast biðin eftir málverki
af konu sinni. Loks gafst hann upp og
neitaði að borga fyrir málverkið sem
ekki var að fullu lokið. Leonardo fór
með málverkið til Parísar. Frakkakon-
ungur keypti málverkið og kom því
fyrir í Louvre. Þar er það enn.
Helena Fourment
Peter Paul Rubens vai- fimmtíu og
þriggja ára ríkur, myndarlegur, lífs-
glaður ekkjumaður í leit að nýrri eig-
inkonu þegar hann hitti kaupmannin-
um Meer Fourment, sem kynnti
hann fyrir sjö feitlögnum, ólofuðum
dætrum sínum. Rubens hreifst af einni
þeirra, hinni sextán ára holdmiklu He-
lenu Fourment og giftist henni. í
einkar farsælli og áhyggjulausri sam-
búð hafði Helena þann meginstarfa að
vera fyrirsæta eiginmannsins. Á
vinnustofu Rubens var fjöldi
aðstoðarmanna og ekki var
óalgengt að Helena sæti fyr-
ir nakin tímunum saman
meðan karlmenn dyttuðu að
einu og öðru í návist hennar.
Þetta olli Helenu ekki
áhyggjum því feimni var
ekki til í hennar orðabók.
Fyrirferðarmikill líkami
hennar skreytti málverk
bónda hennar allt þar til Ru-
bens lést af völdum hjarta-
áfalls þegar Helena var tutt-
ugu og sex ára.
Hendrickje Stoffels
Árið 1642 færði Rembr-
andt van Rijn litla gæfu.
Meistaraverki hans Nœtur-
verðinum var fálega tekið og
hann naut ekki sömu virð-
ingar og fyrr. Sama ár missti
hann eiginkonu sína Saskiu.
Þijú ár liðu þar til hinn
skuldum vafni ekkjumaður,
með ungan son á framfæri,
hitti Hendrickje Stolíels
Hún var tuttugu og þriggja
ára og varð þjónustustúlka
hans en gegndi jafnframt
margvíslegum öðrum hlut-
verkum. Hún sá um heimil-
Eitt frægasta málverk heims, Mona
Lisa, sem Leonardo dundaði við að
mála í fjögur, eða þar til hann var
rekinn úr vinnunni.
þeirri iðju að gista reglulega í rekkju
konungs og leit á stúlkuna sem tíma-
bundinn arftaka sinn. Pompadour réð
Boucher til að skreyta Versali og í
samráði við hana fýllti hann Versali
með myndum af La Morphise. Kon-
ungurinn var frá sér numinn og sendi
eftir stúlkunni. La Morphise fæddi
konunginum tvö böm. Eina nóttina
spurði stúlkan konunginn í sakleysi
sínu hvort hann svæfí enn hjá Pomp-
adour. Konungurinn varð æfareiður,
rak hana frá sér og gerði systur hennar
að næstu ástkonu sinni. La Morphise
giftist hermanni sem féll á vígvelli.
Hún giffist tvisvar eftir það og seinni
maður hennar var þijátíu árum yngri
en hún. La Morphise lést í París árið
1814, sjötíu og sjö ára.
Hertogaynjan af Alba
Fransisco Goya var miðaldra, feit-
laginn, heymarsljór tuttugu barna fað-
ir þegar hann kynntist hinni undir-
fögm hertogaynju af Alba sem varð
ástkona hans og sat fyrir í frægum
málverkum eins og Nakta Maja og
Ktœdda Mœja. Goya var hirðmálari
spænsku konUngsfjölskyldunnar, sem
dáði hann jafnvel þótt hann málaði