Alþýðublaðið - 29.11.1995, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 29.11.1995, Blaðsíða 4
4 ALÞÝÐUBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER 1995 Það var vinur Flauberts Louis Bouilhet sem sagði honum söguna af Eugene De- lamare og Delphine, konu hans. Delamare var læknir við sjúkrahús í Rouen en stund- aði jafnframt störf í litlum bæ þar í grennd. Eftir dauða fyrri eiginkonu hans, sem var mörgum árum eldri en hann, kvæntist hann Delphine, fallegri bóndadóttur, sem var hé- gómleg og eyðslusöm. Hún þreyttist fljótt á fremur leiðinlegum eiginmanni og tók sér elskhuga. Hún eyddi um efni fram og stofnaði til botnlausra skulda. Að lokum fyrirfór hún sér með því að taka eitur. De- lamare fyrirfór sér einnig, ekki löngu síðar. Flaubert sagði að sagan væri ekki byggð á raunverulegum atburðum. Það var reynd- ar rangt. En hann sagði einnig: „Hún hefur ekki að geyma neinar af tilfmningum mín- um né atvik úr lífi mín sjálfs. Sannleiks- blær þessarar sögu (ef um hann er að ræða) stafar þvert á móti af því hve hún er ópersónuleg. Ein af frumreglum mínum er að höfundur á ekki að vera skáldskaparefni sjálfs sín. Listamaðurinn á að vera í verki sínu eins og guð í sköpunarverkinu, ósýni- legur og almáttugur; maður á að verða var við hann alls staðar en hvergi sjá hann.“ Þegar Flaubert skrifaði Madame Bovary ætlaði hann sér að sýna hlutlægni. Hann ætlaði að lýsa raunveruleikanum eins og hann væri, ekki eins og hann vildi að hann væri. Hann ætlaði ekM að taka afstöðu til gjörða persóna sinna, hvorki lasta þær né lofa. Ef hann hefði samúð með einhverri þeirra ætlaði hann ekki að sýna þá samúð. Ef hann hefði andúð á einhverri þeirra ætl- aði hann sér ekki að opinbera þá andúð. Segja má að Flaubert hafi unnið þessari aðferð þegnrétt í bókmenntasögunni og hún átti eftir að hafa gífurleg áhrif á kom- andi kynslóð rithöfunda. Flaubert tókst ætlunarverk sitt í öllum meginatriðum í verki sem býr yfir nær tæknilegri full- komnun og er fullkomlega laust við til- finningasemi, en það kann einmitt að vera ástæða þess að mörgum lesendum þykir sem nokkum kulda stafi af verkinu. En eins og rithöfundurinn Somerset Ma- ugham hefur bent á þá mistókst Flaubert að vera ópersónulegur á sama hátt og öðr- um höfúndum hefúr ætíð mistekist, því það er einfaldlega ekki hægt. Höfundurinn opinberar sjálfan sig í vali sínu á efni, per- sónum og með þeirri ffásagnaraðferð- eða tækni sem hann beitir. Somerset Maugham, sem áleit Frú Bo- vary eina af tíu bestu skáldsögum allra tíma, skrifaði um hana langa grein og vakti athygli á því að í lifanda lífí hefði Flaubert enga samúð haft með fólki. Persónusköp- un í Frú Bovary sagði Maugham greini- lega endurspegla það álit Hauberts. Per- sónumar em, segir Maugham, „grimmar, heimskar, hégómlegar og óheflaðar. Það em margir,“ bætir hann réttilega við, „en ekki allir, og það er óhugsandi að í litlum bæ, skuli ekki finnast ein persóna, eða tvær eða þijár, sem séu skynsamar, velvilj- aðar og hjálpfúsar.“ Niðurstaða hans var sú að í Frú Bovary megi lesa sitthvað um persónuleika og við- horf höfúndarins. Hún sé því alls ekki ópersónuleg. Um þá niðurstöðu Maug- hams má þvæla fram og aftur og hártoga að vild, á sama hátt og hann hártogar orð og tilgang Flauberts, en til slíks orðaskaks verður ekki stofnað hér. Flaubert var tæp sex ár að skrifa Frú Bo- vary. Vinnuaðferð hans var hin sama og hann beitti jafnan í verkum sínum. í fyrstu gerði hann gróft uppkast sem hann vann úr þar til hann náði þeim áhrifum sem hann sóttist eftir. Þegar það hafði tekist fór hann út á verönd og hrópaði textann sem hann hafði skrifað. Ef honum fannst orðin ekki hljóma nægilega vel sannfærðist hann um að þau væm ekki nothæf. Þá endurvann hann textann. Þetta var seinvirk aðferð, en Flaubert var haldinn fullkomnunaráráttu. Hvert orð varð að hafa vægi. Hann skrifaði eitt sinn til George Sand: „Þú hefur enga hugmynd um það hvemig er að sitja við allan daginn, fela andlit í höndum sér og berja á hinum ógæfusama heila í leit að réttum orðum.“ Það má gagnrýna menn fyrir alla skap- aða hluti, einnig fyrir að vera of samvisku- samir, og sumum hefur jafnvel þótt Flau- bert, hafa vandað sig um of. Einn seinni tíma gagnrýnandi hans sagði hnyttilega en kannski ekki af sanngimi um þennan rit- höfund: „Flaubert skorti aldrei efni en hann sauð það of lengi og stóð of lengi yfir pottunum.“ í bókmenntasögunni brúar Flaubert bilið milli rómantísku skáldanna og þeirra raun- sæju og er trúlega áhrifamesti 19. aldar rit- höfundur Evrópu. Hann er oft nefndur fyrsti franski raunsæishöfundurinn og leið- togi raunsæisskólans, þótt hann væri and- snúinn mörgum kenningum stefnunnar. „Það var vegna andúðar minnar á raunsæ- inu sem ég skrifaði þessa bók (Frú Bo- vary),“ sagði hann. Hann neitaði að skil- greina sig sem raunsæishöfund, en það hefur líkast til aðallega stafað af því að hann vildi vera einstakur, ekki einn af skil- greindum hópi manna. Og hann var ein- stakur í hópi raunsæishöfunda, hópi sem hann óneitanlega tilheyrir, um leið og hann skapaði sér sérstöðu meðal þeirra, vegna þeirrar hörkulegu kröfu sem hann gerði til listrænnar og fagurfræðilegrar úrvinnslu efnisins. Eftir útkomu Frú Bovary var Flaubert og útgefandi verksins ákærðir og þeim gefið á sök að hafa skrifað og gefið út bók sem væri siðspillandi og hættuleg. Við réttar- höldin las sækjandi kafla úr verkinu sem hann sagði vera klámfengna. Verjandi bar því við að kaflamir væm nauðsynlegir til að varpa ljósi á persónur og sagði boðskap bókarinnar vera góðan þar sem Emma Bo- vary fengi maklega málagjöld fyrir ósið- legt framferði sitt. Dómarar samþykktu þau rök og sakbomingar vom sýlóiaðir. Það fór reyndar framhjá hinum ágætu dómumm að hinn slæmi endir varð ekki vegna þess að Emma drýgði hór heldur vegna þess að hún stofnaði til skulda sem henni var ókleift að greiða. Réttarhöldin gerðu Flaubert frægan. Les- endur tóku Frú Bovary fagnandi og hún varð metsölubók. Gagnrýnendur létu sér fátt um finnast, og sumir vom beinlínis fjandsamlegir í garð verksins. Nú er öldin önnur og saga Flauberts er viðurkennd sem meistaraverk og einn áhrifamesta skáldsaga 19. aldar. ■ ■ Ein umtalaðasta og tíma, Madame Bovarj er komin út hjá Bjarti í arssonar. Kolbrún Be höfundinn og skáldsö ákærður fyrir að hafa: Skáldi hafði ( mann Gustave Flaubert fæddist árið 1821 á sjúkrahúsi í Rouen þar sem faðir hans var yfirlæknir. Hann þótti við- kvæmt og einrænt bam með mikið hugmyndaflug og gleymdi sér iðulega í bóklestri. Snemma var augljóst að hann hafði engan sérstakan áhuga á samneyti við aðra menn. „Ég fór í skóla þegar ég var tíu ára,“ sagði hann, „og fljótlega var ég haldin djúp- stæðri óbeit á mannkyninu." Þessi óbeit fylgdi honum alla ævi, en Flau- bert lét þó eftir sér að unna nokkmm einstaklingum. Ein var móðir hans. Önnur var Karólína systir hans, en þau systkini voru nánast óaðskiljanleg í æsku, og lfam að ótímabæru andláti sínu var Karólína nánasti vinur bróður síns. Flaubert giftist aldrei og var reynd- ar í hópi þeirra karlmanna sem elska heitast þá konu sem þeir ekki gátu hreppt. Hann sagði sjálfur að stóra ástin í lífi sínu hefði verið kona sem hann hitti þegar hann var fimmtán ára. Hún hét Elisa Schlesinger, var tíu ár- uni eldri en hann, gift kona og móðir. Um þessa ást, sem ekki var endur- goldin, skrifaði Flaubert skáldsögu, þá aðeins sautján ára gamall, og reyndar skaut þessi gamla æskuást upp kollin- um í fleiri verkum höfundarins. @Meginmál = Flaubert taldi sér trú um að það alla ævi að allt hefði farið á betri veg hefði Elisa staðið honum við hlið. í stað Elisu varð Flaubert að sætta sig við móður sína, en þau mæðgin fékk ekkert aðskilið nema dauðinn. Þau bjuggu saman allt þar móðirin lést, en þá var Flaubert orð- inn fimmtugur. Og þótt honum væri margt betur gefið en vinsamlegt hug- arþel í samskiptum voru allir á einu máli um að hann hefði verið blíðlynd- ur, hugulsamur og undirgefinn sonur. Flaubert ætlaði sér að verða lög- fræðingur og stundaði lögfræðinám í þtjú ár. Hann hafði reyndar engan sér- stakan áhuga á þeim starfa en varð að finna sér framtíðarverkefni og hélt sig hafa vahð það skásta sem í boði var. Hann komst fljótt á aðra skoðun. Honum leiddist námið og háskólalíf- ið. Hann fyrirleit meðalmennsku skólabræðra sinna og smáborgaraleg- ar venjur þeirra. Sjálfur var hann ekki auðveldur í samskiptum, þótti önug- lyndur og dramblámr og hafði ekkert umburðarlyndi gagnvart skoðunum sem voru andstæðar hans eigin. Á þeim tíma sem Flaubert stundaði nám sitt tók að bera á dularfullum veikindum sem áttu eftir að hijá hann mestalla ævi. Menn eru ekki á einu máli um hvað amað hafi að. Flestir telja að Flaubert hafi þjáðst af floga- veiki. Víst er að hann fékk krampa- köst og þeim fylgdu ofsjónir, ofheym- ir og meðvitundarleysi. Eftir köstin þjáðist Flaubert af svartnættisþung- lyndi dögum saman, ekki síst vegna þess að hann óttaðist mjög að veikind- in myndu leiða til heilaskemmda. Þar sem köstin gerðu engin boð á undan sér varð Flaubert að breyta lífs- stíl sínum. Hann hætti laganámi og ákvað að helga sig ritstörfum. Óhætt er að fullyrða að hann hafi ekki sér- lega harmað þau umskipti. Árið 1845 lést faðir Flauberts og örfáum mánuðum síðar lést Karólína,

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.