Alþýðublaðið - 29.11.1995, Page 4
4
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER 1995
Það var vinur Flauberts Louis Bouilhet
sem sagði honum söguna af Eugene De-
lamare og Delphine, konu hans. Delamare
var læknir við sjúkrahús í Rouen en stund-
aði jafnframt störf í litlum bæ þar í grennd.
Eftir dauða fyrri eiginkonu hans, sem var
mörgum árum eldri en hann, kvæntist hann
Delphine, fallegri bóndadóttur, sem var hé-
gómleg og eyðslusöm. Hún þreyttist fljótt
á fremur leiðinlegum eiginmanni og tók
sér elskhuga. Hún eyddi um efni fram og
stofnaði til botnlausra skulda. Að lokum
fyrirfór hún sér með því að taka eitur. De-
lamare fyrirfór sér einnig, ekki löngu síðar.
Flaubert sagði að sagan væri ekki byggð
á raunverulegum atburðum. Það var reynd-
ar rangt. En hann sagði einnig: „Hún hefur
ekki að geyma neinar af tilfmningum mín-
um né atvik úr lífi mín sjálfs. Sannleiks-
blær þessarar sögu (ef um hann er að
ræða) stafar þvert á móti af því hve hún er
ópersónuleg. Ein af frumreglum mínum er
að höfundur á ekki að vera skáldskaparefni
sjálfs sín. Listamaðurinn á að vera í verki
sínu eins og guð í sköpunarverkinu, ósýni-
legur og almáttugur; maður á að verða var
við hann alls staðar en hvergi sjá hann.“
Þegar Flaubert skrifaði Madame Bovary
ætlaði hann sér að sýna hlutlægni. Hann
ætlaði að lýsa raunveruleikanum eins og
hann væri, ekki eins og hann vildi að hann
væri. Hann ætlaði ekM að taka afstöðu til
gjörða persóna sinna, hvorki lasta þær né
lofa. Ef hann hefði samúð með einhverri
þeirra ætlaði hann ekki að sýna þá samúð.
Ef hann hefði andúð á einhverri þeirra ætl-
aði hann sér ekki að opinbera þá andúð.
Segja má að Flaubert hafi unnið þessari
aðferð þegnrétt í bókmenntasögunni og
hún átti eftir að hafa gífurleg áhrif á kom-
andi kynslóð rithöfunda. Flaubert tókst
ætlunarverk sitt í öllum meginatriðum í
verki sem býr yfir nær tæknilegri full-
komnun og er fullkomlega laust við til-
finningasemi, en það kann einmitt að vera
ástæða þess að mörgum lesendum þykir
sem nokkum kulda stafi af verkinu.
En eins og rithöfundurinn Somerset Ma-
ugham hefur bent á þá mistókst Flaubert
að vera ópersónulegur á sama hátt og öðr-
um höfúndum hefúr ætíð mistekist, því
það er einfaldlega ekki hægt. Höfundurinn
opinberar sjálfan sig í vali sínu á efni, per-
sónum og með þeirri ffásagnaraðferð- eða
tækni sem hann beitir.
Somerset Maugham, sem áleit Frú Bo-
vary eina af tíu bestu skáldsögum allra
tíma, skrifaði um hana langa grein og vakti
athygli á því að í lifanda lífí hefði Flaubert
enga samúð haft með fólki. Persónusköp-
un í Frú Bovary sagði Maugham greini-
lega endurspegla það álit Hauberts. Per-
sónumar em, segir Maugham, „grimmar,
heimskar, hégómlegar og óheflaðar. Það
em margir,“ bætir hann réttilega við, „en
ekki allir, og það er óhugsandi að í litlum
bæ, skuli ekki finnast ein persóna, eða
tvær eða þijár, sem séu skynsamar, velvilj-
aðar og hjálpfúsar.“
Niðurstaða hans var sú að í Frú Bovary
megi lesa sitthvað um persónuleika og við-
horf höfúndarins. Hún sé því alls ekki
ópersónuleg. Um þá niðurstöðu Maug-
hams má þvæla fram og aftur og hártoga
að vild, á sama hátt og hann hártogar orð
og tilgang Flauberts, en til slíks orðaskaks
verður ekki stofnað hér.
Flaubert var tæp sex ár að skrifa Frú Bo-
vary. Vinnuaðferð hans var hin sama og
hann beitti jafnan í verkum sínum. í fyrstu
gerði hann gróft uppkast sem hann vann úr
þar til hann náði þeim áhrifum sem hann
sóttist eftir. Þegar það hafði tekist fór hann
út á verönd og hrópaði textann sem hann
hafði skrifað. Ef honum fannst orðin ekki
hljóma nægilega vel sannfærðist hann um
að þau væm ekki nothæf. Þá endurvann
hann textann. Þetta var seinvirk aðferð, en
Flaubert var haldinn fullkomnunaráráttu.
Hvert orð varð að hafa vægi. Hann skrifaði
eitt sinn til George Sand: „Þú hefur enga
hugmynd um það hvemig er að sitja við
allan daginn, fela andlit í höndum sér og
berja á hinum ógæfusama heila í leit að
réttum orðum.“
Það má gagnrýna menn fyrir alla skap-
aða hluti, einnig fyrir að vera of samvisku-
samir, og sumum hefur jafnvel þótt Flau-
bert, hafa vandað sig um of. Einn seinni
tíma gagnrýnandi hans sagði hnyttilega en
kannski ekki af sanngimi um þennan rit-
höfund: „Flaubert skorti aldrei efni en
hann sauð það of lengi og stóð of lengi yfir
pottunum.“
í bókmenntasögunni brúar Flaubert bilið
milli rómantísku skáldanna og þeirra raun-
sæju og er trúlega áhrifamesti 19. aldar rit-
höfundur Evrópu. Hann er oft nefndur
fyrsti franski raunsæishöfundurinn og leið-
togi raunsæisskólans, þótt hann væri and-
snúinn mörgum kenningum stefnunnar.
„Það var vegna andúðar minnar á raunsæ-
inu sem ég skrifaði þessa bók (Frú Bo-
vary),“ sagði hann. Hann neitaði að skil-
greina sig sem raunsæishöfund, en það
hefur líkast til aðallega stafað af því að
hann vildi vera einstakur, ekki einn af skil-
greindum hópi manna. Og hann var ein-
stakur í hópi raunsæishöfunda, hópi sem
hann óneitanlega tilheyrir, um leið og hann
skapaði sér sérstöðu meðal þeirra, vegna
þeirrar hörkulegu kröfu sem hann gerði til
listrænnar og fagurfræðilegrar úrvinnslu
efnisins.
Eftir útkomu Frú Bovary var Flaubert og
útgefandi verksins ákærðir og þeim gefið á
sök að hafa skrifað og gefið út bók sem
væri siðspillandi og hættuleg. Við réttar-
höldin las sækjandi kafla úr verkinu sem
hann sagði vera klámfengna. Verjandi bar
því við að kaflamir væm nauðsynlegir til
að varpa ljósi á persónur og sagði boðskap
bókarinnar vera góðan þar sem Emma Bo-
vary fengi maklega málagjöld fyrir ósið-
legt framferði sitt. Dómarar samþykktu
þau rök og sakbomingar vom sýlóiaðir.
Það fór reyndar framhjá hinum ágætu
dómumm að hinn slæmi endir varð ekki
vegna þess að Emma drýgði hór heldur
vegna þess að hún stofnaði til skulda sem
henni var ókleift að greiða.
Réttarhöldin gerðu Flaubert frægan. Les-
endur tóku Frú Bovary fagnandi og hún
varð metsölubók. Gagnrýnendur létu sér
fátt um finnast, og sumir vom beinlínis
fjandsamlegir í garð verksins. Nú er öldin
önnur og saga Flauberts er viðurkennd
sem meistaraverk og einn áhrifamesta
skáldsaga 19. aldar. ■
■ Ein umtalaðasta og
tíma, Madame Bovarj
er komin út hjá Bjarti í
arssonar. Kolbrún Be
höfundinn og skáldsö
ákærður fyrir að hafa:
Skáldi
hafði (
mann
Gustave Flaubert fæddist árið 1821
á sjúkrahúsi í Rouen þar sem faðir
hans var yfirlæknir. Hann þótti við-
kvæmt og einrænt bam með mikið
hugmyndaflug og gleymdi sér iðulega
í bóklestri. Snemma var augljóst að
hann hafði engan sérstakan áhuga á
samneyti við aðra menn. „Ég fór í
skóla þegar ég var tíu ára,“ sagði
hann, „og fljótlega var ég haldin djúp-
stæðri óbeit á mannkyninu." Þessi
óbeit fylgdi honum alla ævi, en Flau-
bert lét þó eftir sér að unna nokkmm
einstaklingum. Ein var móðir hans.
Önnur var Karólína systir hans, en
þau systkini voru nánast óaðskiljanleg
í æsku, og lfam að ótímabæru andláti
sínu var Karólína nánasti vinur bróður
síns.
Flaubert giftist aldrei og var reynd-
ar í hópi þeirra karlmanna sem elska
heitast þá konu sem þeir ekki gátu
hreppt. Hann sagði sjálfur að stóra
ástin í lífi sínu hefði verið kona sem
hann hitti þegar hann var fimmtán ára.
Hún hét Elisa Schlesinger, var tíu ár-
uni eldri en hann, gift kona og móðir.
Um þessa ást, sem ekki var endur-
goldin, skrifaði Flaubert skáldsögu, þá
aðeins sautján ára gamall, og reyndar
skaut þessi gamla æskuást upp kollin-
um í fleiri verkum höfundarins.
@Meginmál = Flaubert taldi sér trú
um að það alla ævi að allt hefði farið á
betri veg hefði Elisa staðið honum við
hlið. í stað Elisu varð Flaubert að
sætta sig við móður sína, en þau
mæðgin fékk ekkert aðskilið nema
dauðinn. Þau bjuggu saman allt þar
móðirin lést, en þá var Flaubert orð-
inn fimmtugur. Og þótt honum væri
margt betur gefið en vinsamlegt hug-
arþel í samskiptum voru allir á einu
máli um að hann hefði verið blíðlynd-
ur, hugulsamur og undirgefinn sonur.
Flaubert ætlaði sér að verða lög-
fræðingur og stundaði lögfræðinám í
þtjú ár. Hann hafði reyndar engan sér-
stakan áhuga á þeim starfa en varð að
finna sér framtíðarverkefni og hélt sig
hafa vahð það skásta sem í boði var.
Hann komst fljótt á aðra skoðun.
Honum leiddist námið og háskólalíf-
ið. Hann fyrirleit meðalmennsku
skólabræðra sinna og smáborgaraleg-
ar venjur þeirra. Sjálfur var hann ekki
auðveldur í samskiptum, þótti önug-
lyndur og dramblámr og hafði ekkert
umburðarlyndi gagnvart skoðunum
sem voru andstæðar hans eigin.
Á þeim tíma sem Flaubert stundaði
nám sitt tók að bera á dularfullum
veikindum sem áttu eftir að hijá hann
mestalla ævi. Menn eru ekki á einu
máli um hvað amað hafi að. Flestir
telja að Flaubert hafi þjáðst af floga-
veiki. Víst er að hann fékk krampa-
köst og þeim fylgdu ofsjónir, ofheym-
ir og meðvitundarleysi. Eftir köstin
þjáðist Flaubert af svartnættisþung-
lyndi dögum saman, ekki síst vegna
þess að hann óttaðist mjög að veikind-
in myndu leiða til heilaskemmda.
Þar sem köstin gerðu engin boð á
undan sér varð Flaubert að breyta lífs-
stíl sínum. Hann hætti laganámi og
ákvað að helga sig ritstörfum. Óhætt
er að fullyrða að hann hafi ekki sér-
lega harmað þau umskipti.
Árið 1845 lést faðir Flauberts og
örfáum mánuðum síðar lést Karólína,