Alþýðublaðið - 29.11.1995, Qupperneq 6
6
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER 1995
! e i k h ú s
Absúrdstund
í Kaffileikhúsi
Verkefni: Kennslustundin
Höfundur: Eguéne lonesco
Þýðing: Gísli Rúnar Jónsson og
Þorsteinn Þorsteinsson
Ljósahönnun: Sigurður Kaiser
Leikstjórn: Bríet Héðinsdóttir
Sýningarstaður: Kaffileikhúsið -
Hlaðvarpanum
Kaffileikhúsið virðist hafa fundið
upp nokkuð góða formúlu að leiksýn-
ingum sem hæfa þeim kringumstæð-
um sem leikhúsið býr við. Kvöldverð-
ur og einþáttungur í eftirrétt og ef vill
má sleppa aðalréttinum og taka bara
desertinn. Þannig skapast grundvöllur
til að labba við í leikhúsinu án þess að
setja sig í allt of miklar stellingar,
svona lfkt og þegar maður skreppur í
bíó. Eðlilegt framhald væri svo ef til
vill að taka upp síðdegissýningar sem
áhorfendur gætu litið inn á um leið og
haldið er heim úr vinnu. Allt um það
er Kaffileikhúsið gleðilegur viðauki
Tllkynning til
vínveitingahúsa
Föstudaginn 1. desember 1995 fellur niður einkaréttur
ÁTVR til innflutnings og til dreifingar áfengis til veitinga-
húsa sem hafa almennt leyfi til vínveitinga. Veitingahús-
um er þó heimilt að kaupa áfengi í verslunum ÁTVR.
Veitingahúsin geta komið pöntunum á framfæri símleið-
is til vínbúða utan Reykjavíkursvæðisins en til þjónustu-
deildar vínbúðarinnar Heiðrúnar, Stuðlahálsi 2, séu hús-
in í Reykjavík og nágrenni. Vakin er athygli á að Heiðrún
og Vínbúðin á Akureyri eru opnar frá 10-12 á laugardög-
um.
ÁTVR sendir ekki vöru á sinn kostnað en mun að sjálf-
sögðu aðstoða við að ferma bíla svo sem verið hefur.
ÁTVR tekur við ávísunum sem greiðslu sé upphæð
þeirra innan ábyrgðarsviðs debetkorta, gefnar út af
bönkum eða séu með ábyrgð banka. ÁTVR mun ekki
taka við öðrum ávísunum frá veitingahúsum nema sam-
kvæmt sérstöku samkomulagi þeirra við verslunarstjóra
vínbúðanna eða Þór Oddgeirsson aðstoðarforstjóra
ÁTVR. Forsenda samkomulags um notkun ávísana í við-
skiptum er m.a. að í fórum ÁTVR séu rithandarsýnis-
horn þeirra sem skuldbinda mega viðkomandi veitinga-
stað svo og upplýsingar um af hvaða reikningi megi
ávísa greiðslum.
Reykjavík 27. nóvember 1995
Áfengis og tóbaksverslun ríkisins.
Jólafundur
Hinn árlegi jólafundur kvenfélags Alþýðuflokksins í
Hafnarfirði verður haldinn á A.Hansen þann 30. nóvem-
ber. Boðið verður upp á frábært jólahlaðborð, skemmti-
atriði, upplestur og hugvekju.
Heiðursgestir kvöldsins verða engir aðrir en hjónin Jón
Baldvin Hannibalsson og Bryndís Schram.
Mæting er klukkan 20 og viljum við hvetja allar félags-
konurtil að koma og endilega taka gesti með sér.
Skemmtinefndin
Jólahvað?
Jólaglögg Alþýðuflokksins verður haldið laugardaginn
16. desember í Risinu Hverfisgötu 105 kl. 20.30.
Veislustjóri: Bryndís Schram
Dagskrá:
Hrafn Jökulsson flytur heimatilbúna jólasögu
Leynigestur
Söngur, glens og gaman
Skemmtiiega nefndin.
Leikhús___________|
Arnór
Benónýsson
skrifar um
leiklist
þess leikhússlífs sem fyrir var og von-
andi nær það að blómgast og festa
rætur sem duga um framtíð.
Kennslustundin er ásamt Sköllóttu
söngkonunni og Nashyrningunum
þekktust verka lonescos hér á Islandi.
Nashymingana hef ég ekki séð á sviði
en Söngkonuna sá ég í uppfærslu
Menntaskólans á Isafirði fyrir margt
löngu. Ut frá þeirri reynslu má segja
að Kennslustundin hafi ekki komið
mjög á óvart. Knappur textinn er sótt-
Ungir jafnaðarmenn
Skrifstofa sambandsins verður opin til áramóta sem hér
segir:
Mánudaga og þriðjudaga: 9-13
Miðvikudaga: 12-16
Fimmtudaga: 14-18
Framkvæmdastjórn SUJ
Ungir jafnaðarmenn
Framkvæmdastjórnarfundur verður haldin mið-
vikudaginn 29. nóvember kl. 17:30 að Hverfisgötu
8-10
Dagskrá
1. Fundargerð síðasta fundar lögð fram til samþykktar
2. Skipulagning næsta sambandsstjórnarfundar
3. FNSU, stjórnarfundur
4. Innra starf Alþýðuflokksins
5. Önnur mál
Mikilvægt er að þeir framkvæmdarstjórnarmeðlimir
sem ekki sjá sér fært að mæta tilkynni forföll á skrifstofu
sambandsins.
Framkvæmdastjóri SUJ
Ungir jafnaðarmenn kynna:
Stórfundur
á efri hæð Sólon íslandus, miðvikudagskvöldið
29. nóvember klukkan 20:30.
Stjórna prófkjör verkum þingmanna?
Framsögumenn:
Margrét Frímansdóttir formaður Alþýðubandalagsins.
Jón Baldvin Hannibalsson formaður Alþýðuflokksins.
Gestur G. Gestsson stjórnmálafræðingur
Láta þingmenn stjórnast af vinsældum f
rekar en hugsjónum?
Hefur starfsemi þingsins breyst?
Er hægt að greina mun á milli starfa
„prófkjörsþingmanna" annarsvegar og
„flokksþingmanna" hins vegar?
Spennandi umræður, fjölmennum
Málstofa um stjórnskipan
Knappur textinn er
sóttur í daglegt mál
sem sett er í fáránleg-
ar kringumstæður og
fáránleiki hans ýktur
með því að hafa sam-
hengið ekki alltaf á
hreinu línunum.
ur í daglegt mál sem sett er í fáránleg-
ar kringumstæður og fáránleiki hans
ýktur með því að hafa samhengið ekki
alltaf á hreinu línunum. Og höfundur-
inn er gagnrýninn á tilgangs- og inni-
haldsleysi svokallaðrar menntunar,
háðið er síðan vopnið sem hann hvet-
ur með texta sínum.
Þýðingin er verk þeirra Gísla Rún-
ars og Þorsteins Þorsteinssonar. Ekki
var annað að heyra en skopskyn Gísla
og skörp og öguð málkennd Þorsteins
rynni saman í góða og bráðfyndna
blöndu.
Leikstjóm Bríetar Héðinsdóttur var
örugg og markviss. Hún leiðir fólk sitt
af miklu öryggi í gegnum þessa sýn-
ingu sem byggir á markvissum flutn-
ingi textans og ýktum, en öguðum
leik. Og hún missir aldrei tökin, sýn-
ingin er hugsuð út í hörgul og þrátt
fyrir átaka og kraftmikinn leik er
aldrei ofgert og útkoman er meitluð,
skemmtileg og umframallt kraftmikil
sýning.
Gísli Rúnar fer með hlutverk pró-
fessorsins og ekki verður annað sagt
en sérstæður leikstfll hans falli vel að
þessu hlutverki. Ég man í svipinn ekki
eftir öðmm leikara sem vinnur hlut-
verk sín af jafn smásmugulegri ná-
kvæmni og Gísli. Hver smáhreyfing,
smákækur er tekinn og við nostrað
svo útkoman verði sem eðlilegust.
Stundum hefur inanni fundist hann
ganga út í öfgar í þessum stfl sínum.
En ekki hér, í þessu verki passar þessi
aðferð vel og útkoman er vel unnin
persóna sem skerpir og dýpkar verk
höfundarins.
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir leik-
ur nemandann. Hún skapar af vand-
virkni persónu sem geislar af upplýstri
fáfræði og karakterheimsku, sem
verður leiksoppur í höndunum á pró-
fessomum. Samleikur Steinunnar og
Gísla var sérstaklega góður, kjaminn í
þessari kraftmiklu sýningu.
Ráðskona Guðrúnar Þ. Stephensen
var eins og við var að búast unnin af
fagmennsku og leikgleði.
Lýsing Sigurðar Kaiser var vel unn-
in og virtist hann ná því besta út úr
erfiðum aðstæðum.
Niðurstaða: Kraftmikil og vel
unnin sýning, enn ein skrautfjöð-
urin í hatt Kaffileikhússins.
Alþýðublaðið
-alltaf!