Alþýðublaðið - 29.11.1995, Blaðsíða 8
Miðvikudagur 29. nóvember 1995
MMÐUBLiBIB
182. tölublað - 76. árgangur
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
■ Búvörusamningurinn loks að koma frá
landbúnaðarnefnd sem fékk umsagnir
hagsmunasamtaka
Allar gegn
samningnum
-segir Lúðvík Bergvinsson alþingismaður.
„Landbúnaðarnefnd hefur fengið
umsagnir frá morgum aðilum sem eru
nánast allar á einn veg. Þessu samn-
ingi er hafnað. Málið er að fara frá
nefndinni og minnihlutinn mun leggja
fram ítarlegt álit þar sem lagt er til að
málinu verði vísað aftur til ríkisstjóm-
arinnar," sagði Lúðvík Bergvinsson
alþingismaður í samtali við blaðið.
Búvömsamningurinn hefur verið til
umfjöllunar í landbúnaðarnefnd Al-
þingis að undanfömu. Stjómarliðar í
nefndinni hafa átt erfitt með að ná
samkomulagi um sameiginlegt álit,
enda era ýmsir sjálfstæðismenn afar
óánægðir með búvörusamninginn.
Reiknað er með að umræður um
samninginn verði á Alþingi í dag og
má búast við hörðum deilum. Land-
búnaðarráðherra leggur mikla áherslu
á að samningurinn verði samþykktur
af hálfu þingsins nú þegar.
Það vekur athygli að meðal þeirra
sem hafa gefið landbúnaðamefnd nei-
kvæða umsögn um búvörusamninginn
er hagþjónusta landbúnaðarins. Meðal
annarra sem leggjast gegn samningn-
um í sínum umsögnum er Alþýðu-
sambandið, Vinnuveitendasambandið
og Neytendasamtökin.
■ Ný bók eftir Guðmund Árna Stefánsson
Islendingar
Ut er komin bókin Hver vegur að
heiman... lslendingar íútlöndum eftir
Guðmund Arna Stefánsson alþingis-
mann. Þar ræðir höfundur við sex Is-
lendinga sem eiga það sameiginlegt að
hafa flust af landi brott og dvalið er-
lendis við störf og leik um langt ára-
bil.
Viðmælendur era Ástþór Magnús-
son athafnamaður á Englandi, Gunn-
í útlöndum
laugur Stefán Baldursson arkitekt í
Þýskalandi, Gunnar Friðþjófsson út-
varpsstjóri í Noregi, Linda Finn-
bogadóttir hjúkrunarfræðingur í
Bandaríkjunum, Rannveig Braga-
dóttir óperusöngvari í Austurríki,
hjónin Þórður Sæmundsson flug-
virki og Drífa Sigurbjarnardóttir
hótelstjóri í Luxemborg. Utgefandi er
Skjaldborg.
Norræna húsið
Verk eftir
Debussy
Á Háskólatónleikum í Norræna
húsinu á morgun, miðvikudag, flytja
Martial Nardeau flautuleikari, Eyj-
ólfur Bjarni
Alfreðsson víóluleikari og Sophie
Schoonjas hörpuleikari verk eftir
Diabelli, Debussy og Jolivet. Þau
leika Trío eftir Antonio Diabelli,
En bateau eftir Debussy og Pa-
storales de Noel (Jólahjarðljóð) eftir
André Jolivet. Tónleikarnir eru um
hálftíma að lengd hefjast klukkan
12.30.
BSRB um sjávarútvegsmál
Gjald fyrir
aflaheimildir
Bandalagsráðstefna BSRB sam-
þykkti álykmn þar sem segir að smða
eigi gallana af fiskveiðistjómuninni og
breyta kerfinu þannig að ríkið taki
gjald fyrir aflaheimildir. Kvótinn
gangi nú kaupum og sölum þannig að
með þessu sé ekki verið að íþyngja út-
gerðinni með auknum álögum. Taka
verði tillit til núverandi handhafa
kvóta og veita þeim aðlögunartíma að
nýju og breyttu kerfí. Allur afli skuli
fara um innlendan fiskmarkað.
„Núverandi fiskveiðistjómunarkerfi
hefur ekki skilað tilætluðum árangri.
Kvótinn hefur safnast á fáar hendur,
umgengnin við auðlindina er slæm,
sóunin í kerfmu er mikil og kerfið hef-
ur stuðlað að því að útgerðarmenn era
famir að líta á kvótann sem sína eign.
Þar af leiðandi er kerfið lokað og eng-
in endumýjun á sér stað meðal útgerð-
araðila," segir í ályktun BSRB.
SÁÁ
Fræðsla
foreldra
SÁÁ býður foreldrum á fræðslu-
fund um vímuefnaneyslu unglinga í
kvöld klukkan 20. Fundurinn verð-
ur haldinn í húsnæði SÁÁ við Síðu-
múla 3-5 og er aðgangur ókeypis. Á
fundinum munu ráðgjafar og lækn-
ar SÁÁ flytja fyrirlestra og svara
spurningum.
BSRB um fjárlagafrumvarpið
Skerðingu
mótmælt
Bandalagsráðstefna BSRB lýsir
eindregni andstöðu gegn þeim
áformum í fjárlagafrumvarpinu að
skerða kjör öryrkja, aldraðra, at-
vinnulausra og almenns launafólks.
I ályktun ráðstefnunnar segir að
ljóst sé að verki ekkert gert muni
afnám vísitölu- og launatengingar
rýra lífskjör atvinnulausra, lífeyris-
og örorkuþega og auka skattbyrði
launafóiks því fyrirsjáanlegt sé að
skattleysismörk muni lækka í raun.
I fjárlagafrumvarpinu sé gert ráð
fyrir einkavæðingu í heilbrigðis-
kerílnu og auknar gjaldtökur boð-
aðar. Þá sé boðuð gjaldtaka fyrir
ákveðin verk sem unnin eru á
sjúkrahúsum, svokölluð ferliverk,
og innritunargjöld á sjúkrahús.
Þessum áformum er harðlega mót-
mælt.
Helgi Þorgils Friðjónsson heldur á mynd eftir Karin Kneffel en hún er ein af þeim 19 erlendu listamönnum sem
verk eiga á sýningunni VerGangur í Gerðubergi.
■ Afrakstur grasrótarstarfsemi Helga Þorgils
Heimsþekktir lista-
menn í Gerðubergi
Föstudaginn 1. desember opnar í
Menningarmiðstöðinni Gerðubergi
sýning á verkum margra heims-
þekktra listamanna sem sýnl hafa
hjá málaranum Helga Þorgils
Friðjónssyni í Gallerí Gangi und-
anfarin 15 ár. Er þetta jafnframt
hugsað sem kynning á þessari
merku grasrótarstarfsemi. Alls
eiga 19 listamenn verk á sýning-
unni, en þeir eru: Martin Diesler,
Peter Angermann, Per Kirkeby,
Gerwald Rockenschaub, Helmut
Federle, Jan Knap, Karin Knef-
fel, Milan Kunc, Alice Stepanek,
Steven Maslin, Alan Johnston,
Franz Graf, John van Slot, Dav-
id Weiss, Chung Eun Mo, John
Aemleder, Peter Mönning, An-
tonin Strizek og Daryush Sho-
kof.
Saga Gangsins er um leið saga
búferlaflutninga Helga Þorgils og
fjölskyldu, en tilgangurinn með
þessu heimarekna galleríi hefur frá
upphafi verið sá að skapa eins
konar umræðuvettvang fyrir ís-
lenska og erlenda listamenn.
Gangurinn var fyrst til húsa á
Laufásvegi 71, í stórri forstofu í
stigagangi. Þaðan fór hann yfir í
langan þröngan stigagang og for-
stofu í Mávahlíð 24, svo í forstofu
á Freyjugötu 32 og að lokum í
ganginn á Rekagranda 8, þar sem
hann hefur verið starfræktur allar
götur síðan.
Gangurinn átti sér hins vegar
nokkurn aðdraganda og má segja
að hann hafi fyrst farið í gang með
Gallerí Vísi, sem Helgi hafði um-
sjón með árið 1976: „Eg samdi við
Dagblaðið Vísi um að fá sýningar-
pláss fyrir listamenn í helgarblað-
inu. Þetta gekk bærilega til að
byrja með, en fljótlega fóru að ber-
ast kvartanir og smám saman
minnkaði ritstjórnin galleríplássið
þangað til næstum ekkert var eftir.
Það var því ekki um annað að ræða
en að loka. Eitthvað framhald á
Gallerí Vísi var þó í tímaritinu
Svart og hvítu meðan það var og
hét.
Þrátt fyrir hæverskt yfirbragð
átti Gallerí Gangur drjúgan þátt í
að koma hreyfingu á listalífið í
byrjun áttunda áratugarins þegar
nýja málverkið svokallaða hóf að
ryðja sér til rúms. Engu að síður
mæltist framtakið misvel fyrir, sér-
staklega í byrjun. „Mönnum kann
að þykja sem Gangurinn hafi
nokkuð hljótt um sig, en hann var
þokkalega kynntur á sínum tíma
og ég skrifaði oft langar fréttatil-
kynningar ásamt Kristni G. Harð-
arsyni sem var mér talsvert innan-
handar. Maður heyrði utan af sér
að ýmsum þætti þetta broslegt fyr-
irtæki, og ef til vill svolítið sjálf-
birgingslegt, bara rekið í eigin-
hagsmunaskyni - fyrir mig og
mína vini.“
Helgi telur ástæðuna fyrir þess-
um aðfinnslum hugsanlega stafa af
því, eins og Aðalsteinn Ingólfsson
bendir einnig á í bókinni Northern
Poles, að nýmálararnir hafi skipst í
tvo hópa; annars vegar Helga og
hans félaga (Ganginn) og hins veg-
ar þá sem byggðu á hefðbundnari
forsendum, og hafi nokkurs óró-
leika gætt þarna á milli. „Satt að
segja varð ég ekki mikið var við
þennan óróleika. Ég hef alltaf litið
svo á að Gangurinn væri fyrir fs-
lendinga, til eflingar á listflórunni
hér, og til að auka kynni á milli
listamanna. Til að mynda hafa
margir þessara erlendu listamanna
sýnt í Nýlistasafninu, gallerí ann-
arri hæð og öðrum stöðum hér á
landi, kennt við Myndlista- og
handíðaskólann og jafnvel stuðlað
að sýningum íslenskra listamanna
erlendis. Þegar Gangurinn kom á
núverandi stað var mér einhverra
hluta vegna bannað að auglýsa
hann, svo nú er hann hljóðlátur
sem skugginn, en dreifir úr sér við
ólíklegustu birtuskilyrði og leggst
yfir lög og láð, dökkur og þungur
eða ljós og léttur eftir aðstæðum, „
segir Helgi.