Alþýðublaðið - 12.12.1995, Side 3
ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 1995
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
s k o ð a n i r
Blessað barnalán
IÞað er engin skynsemi í því að eiga börn og
hvernig er hægt að útskýra það fyrir einhleyp-
um, karlkyns, ungum viðskiptafræðingi.
Það er ekki hægt að leyna því leng-
ur í hvaða ástandi ég er. Kúlan framan
á maganum á mér stækkar stöðugt og
bumban á mér hlykkist til og hreyfist
af allt öðrum orsökum en meltingar-
truflunum. Innan í mér er að þroskast
lítill einstaklingur, bæði kvíðvænlegt
Pallborðið |
og vndislegt í senn.
Otrúlegt en satt þá er ég ekki fyrsta
konan til að upplifa þessar skrýtnu
breytingar þó að mér finnist það
stundum. Fyrir utan almenna þreytu,
slen, bakverki og fleiri fylgikvilla þá
hefur þetta ástand veitt mér áður
óþekktan umræðugrundvöll. Nú sest
ég varla niður á fundum, í kaffiboðum
eða í matartímanum án þess að spurt
er hvemig mér heilsist, mér eru gefin
ráð gegn sinadrætti og bjúg, bamsfæð-
ingar em ræddar og raktar, veik böm,
heilbrigð börn, allir hafa skoðun á
þessum málum. Færri ræða það sem
ef til vill ætti að skipta meira máli en
það er hvað tekur við eftir að krílið er
komið í heiminn og hvar er gert fyrir
blessaða fjölskylduna í þessu þjóðfé-
lagi.
A móti mér í matartímanum situr
ungur maður á „uppleið“ og spyr mig
með stríðnistón hve lengi fyrirtækið
þurfi að kosta mig á meðan ég er í
burtu. Ég segi honum að ég hætti að fá
laun í sex mánuði á meðan ég fái
greitt frá Tryggingastofnun ríkisins
um það bil 60 þúsund krónur á mán-
uði. Það em bara kvenkyns opinberir
starfsmenn sem halda sínum launum
svo til óskertum. Hann starir á mig í
fomndran og ég les hugsanir hans á
augabragði: „Hvern andsk... er
stúlkukindin að spá? Ekki nóg með að
missa af tengslum við atvinnulífið og
ef til vill einhverjum ffamamöguleik-
um heldur missir hún líka hluta af sín-
um tekjum og ef við núvirðum síðan
bleyjukostnað, dagheimilskostnað,
skólakostnað... ekkert nema kostnað-
ur!“ Um stund stari ég í mjólkurglasið
mitt og hef engin svör. Það er engin
skynsemi í því að eiga böm og hvem-
ig er hægt að útskýra það fyrir ein-
hleypum, karlkyns, ungum viðskipta-
fræðingi. Inn í umræðuna blandast
ung kona og segir að kannski er skýr-
ingin á því að fólk eignist böm sú að
það vilji verða ódauðlegt en finni ekki
aðra leið en að- geta af sér afkvæmi.
Það em sem sagt bara meðaljónin sem
eignast böm. Já, há, mikið er ég fegin
að til er svona mikið af „meðaljónum"
og að ekki allir láti skynsemina ráða á
þessum tímum getnaðarvarna. Það
gildir nefnilega um fjölgun mannkyns
eins og svo margt annað að stundum
gerist ekkert ef skynsemin ein fær að
ráða.
Fyrir skömmu las ég það í banda-
rísku viðskiptablaði að margar banda-
rískar konur á „uppleið" koma aftur til
vinnu jafnvel viku eftir að þær hafa
fætt, skíthræddar að missa af öllu sem
er að gerast á skrifstofunni og vera
minna metnar. Sennilega er ástæðan
það skilningsleysi sem þær mæta á
vinnustað. Þar er fæðingarorloftð 12
vikur og þykir gott. Svo slæmt er það
ekki hér og öfgarnar liggja frekar í
hina áttina, þegar ég segi vinkonum
mínum frá því að ég ætli að fara að
vinna aftur eftir 6 mánuði, allan dag-
inn hneykslast þær yfrrleitt. Kannski á
ég eftir að breyta um skoðun, en núna
triíi ég því að á þeim tímapunkti verð
ég orðin hundleið á því að hanga
heima. Það sem ég helst myndi vilja
er að maðurinn minn gæti tekið við og
verið í bamsburðarfríi eftir 6 mánuð-
ina mína. Maðurinn minn fær ekkert
frí, hann tekur af sumarfríinu sem
hann vill þó eiga sem mest af næsta
sumar. Það er þó spuming hvort að
við getum nýtt okkur þann rétt að ég
„gefi“ honum mánuð af mínu orlofi en
um leið styttist náttúrlega sá tími sem
ég hef með barninu. Nú er verið að
ræða það að lengja fæðingarorlofið,
ekki pabbanum eða öðrum aðstand-
anda til góðs, heldur áður en konan
fæðir. Það er nefnilega búið að finna
það út að 2/3 af óftískum konum þurfa
að hætta að vinna á meðgöngu vegna
veikinda. Hingað til hefur þessi tími
verið greiddur af atvinnurekendum í
formi veikindalauna. Nú yerður sem
sagt minni „hætta" á því að þeir þurfi
að lenda í slíku, heldur er blessuð
Tryggingastoftiun að taka þann kostn-
að á sig. Tillögurnar eru að líta sitt
fyrsta ljós en einhvem veginn bjóst ég
við meiru, einhveiju róttækara og bíð
spennt eftir því að nefndin ljúki störf-
um. Kannski verður það ekki fyrr en
ég er að verða amma...
Höfundur er viðskiptafræðingur
r
Ovænt ritstjóraskipti urðu
á Helgarpóstinum í síð-
ustu viku þegar Karli Th.
Birgissyni var sagt upp
störfum og Stefán Hrafn
Hagalín ráðinn í hans stað.
Karli mun hafa verið gefin
upp sú ástæða að blaðið
væri ekki nógu „brútal" und-
ir hans stjórn, en auk þess
munu samskipti hans og
Þorbjörns Tjörva Stefáns-
sonar framkvæmdastjóra
hafa verið afleit. I kjölfar
brottreksturs Karls sögðu
blaðamennirnir Jakob
Bjarnar Grétarsson og Eg-
ill Helgason upp störfum.
Stefán Hrafn Hagalín var áð-
ur blaðamaður og fréttastjóri
á Alþýðublaðinu. Aðeins
hálfur þriðji mánaður er síð-
an hann hvarf til starfa á
Helgarpóstinum, og því
óhætt að segja að hann hafi
klifið metorðastigann af ein-
urð og festu...
Jólablað Mannlífs er kom-
ið út, sneisafullt og fjör-
legt og næstum 200 síður.
Forsíðuviðtalið
er við Sophiu
Hansen um
baráttuna enda-
lausu fyrir tyrk-
neskum dóm-
stólum. Áhuga-
menn um pólit-
ík geta hinsveg-
ar lesið ítarlegt
viðtal við Siv
Friðleifsdóttur
alþingismann og mótor-
hjólakappa (hún segist að
vísu fara mjög varlega á
mótorhjólinu). Hún ræðir
meðal annars baráttuna um
ráðherrastólinn í vor og seg-
ir að sér hafi verið hafnað
einvörðungu vegna þess að
hún er kona. Mörg dæmi
séu um að nýliðar á þingi
setjist beint í ráðherrastól -
en þá hafi alltaf verið um
karla að ræða. Samstarfs-
flokkurinn fær líka skeyti frá
Siv. Hún segir að Sjálfstæð-
isflokkurinn hafi sloppið
ótrúlega vel við gagnrýni, og
gefur í skyn að sjálfstæðis-
menn standi ekki nógu vel
með framsóknarmönnum.
Og fjármálaráð-
herrann fær eina
pílu: „Friðrik Sop-
husson er fjár-
málaráðherra og
ber því mikla
ábyrgð á þeim
ramma sem hverju
ráðuneyti er settur.
Enn hann hefur
sagt að í ríkis-
stjórninni séu tíu
fjármálaráðherrar. Þetta er
ekki rétt," segir Siv...
h i n u m e g i n
"FarSide" eftir Gary Larson
///
fimm á förnum vegi
Gerir þú laufabrauð?
Björg Eiðsdóttir verslunar- Steinunn Ásta Roff versl- Guðrún María Guðmunds- Arnfinnur Ragnarsson Guðrún Árnadóttir hag-
maður: Stundum, en það unarmaður: Nei, ég kann dóttir húsmóðir: Nei, ég hef nemi: Stunduin. Það tilheyrir fræðingur: Já, ég er að fara í
kemur afar sjaldan fyrir. það ekki. aldrei vanist því. jólastemmningunni. þoð í kvöld.
v i t i m e n n
Síminn hefur frá upphafi
verið notaður af glæpamönnum
til að skipuleggja verk sín.
Úr leiðara
helgarblaðs DV.
Ýmislegt þykir benda til þess
að spænskir gaukfuglar beiti
skjóa miklu harðræði og þvingi
þá til að ala upp unga sína með
morðherferðum í
anda mafíunnar.
Helgarblaö DV.
Sumir innan Verkamanna-
sambandsins segja að núna eigi
VMSI að taka Alþýðusambandið
yfir og bola þessum tvíhöfða
þurs verslunarmanna og iðnaðar-
manna úr hásætinu.
Ónafngreindurviðmælandi innan ASÍ.
Morgunblaðið á sunnudag.
Póstur og sími er svo
yfirþyrmandi aðili á
fjarskiptairiárkaðnum, að lítil
einkafyrirtæki fá ekki þrifizt
í skugga þessa risa.
Úr Reykjavíkurbréfi
Morgunblaðsins.
Fundargerðabókin fannst
á góðum stað. Lögreglan var
bara hamingjusöm.
Eiríkur Stefánsson, formaður Verkalýös- og
sjómannafélags Fáskrúðsfjarðar. DV í gær.
í afstöðu sinni til Evrópu-
sambandsins túlkar forsætisráð-
herra íslenska hagsmuni og
hefur haldið þannig á málum að
full ástæða er til að þakka honum
fyrir skelegga frammistöðu.
Úr leiðara Vikublaðsins síöastliðinn föstudag.
fréttaskot úr fortfð
Belgískur
langskeggur
Belgi nokkur Preux að nafhi hefir svo
langt skegg að hann getur stigið í það.
Hann er 68 ára að aldri, og 165 centi-
metrar á hæð. Skegg karlsins er því
rúmlega 5 fet á lengd, en samt fer það
honum prýðilega, gamla m;mninum.
Alþýðublaðiö
3. september 1920