Alþýðublaðið - 19.12.1995, Qupperneq 3
ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 1995
ALÞYÐUBLAÐIÐ
3
s k o ð a n i r
Kveöjur úr Rangárþingi
Á að kyssa vöndinn?
Þórarinn V. Þórarinsson hjá VSÍ
vakti athygli á athyglisverðu máli í
viðtali við Sjónvarpið um daginn.
Hann furðaði, sig á að samtök verka-
fólks íhuguðu ólöglegar aðgerðir til að
ná fram betri kjörum. Það væru ein-
Pallborðið |
Tryggvi
Skjaldarson
skrifar
mitt þeir launalægstu og þeir veikustu
sem ættu mest undir áð lög væru hald-
in. Hinir, þeir efnameiri gætu olnbog-
að sig í gegnum h'ftð.
Þórarinn er vel gefinn maður og
sjálfsagt launaður að verðleikum til að
gæta þeirra hagsmuna sem honum er
falið. En að tala svona á sér líklega
tvær mögulegar skýringar. I fyrsta lagi
talaði hann af sér. f öðru lagi er hann
öruggur um að atvinnurekendur haft
tryggt sér það sterk ítök í stjóm lands-
ins til lengri tíma og það sé óhætt að
láta sjást í vöndinn. Ummæli Þórarins
V. Þórarinssonar sýna að jafnaðar-
menn og jafnaðarsinnar verða að ýta
smærri málum til hliðar og sameinast
um það sem raunvemlega skiptir máli,
að gæta bróður síns... og systur.
Er gengið til góðs?
Allar götur síðan um 1970 hefur
verið viðvarandi svokallaður fíkni-
efnavandi.
Fyrst snerist vandinn um hass-
neyslu. Síðan bættust við efni eins
LSD, amfetamín og kókaín. Nú allra
síðustu ár hefur efnum fjölgað, það er
meiri breidd á markaði. Þrátt fyrir efl-
ingu á löggæslu. fijálslega virt mann-
réttindi þar sem tilgangurinn helgar
meðalið og þyngri dóma, gengur ekk-
ert að halda æsku landsins frá fíkni-
efnum. Það er eitthvað að. Þegar fólk
hættir neyslu er það sjaldnast vegna
aðgerða lögreglu og dómsyfirvalda.
Fólk hættir vegna þess að það upp-
götvar að heilsan er í veði. Bæði and-
leg og líkamleg. Margir uppgötva það
þó alltof seint. Hvað er til ráða? Af
hverju leiðast sífellt yngri og yngri
krakkar út í vímuefni? Heldur fólk að
lausnin sé fólgin í þyngri dómum og
fleiri harðgemm lögreglumönnum?
Er hugsanlegt að tengsl kynslóða
rofrii um of vegna þess hvemig samfé-
lagið er? Stöldmm við. Til hvers er að
sigra heiminn ef við bíðum tjón á sál-
inni og týnum bömunum?
Að kjósa rétt!
Sá er þetta ritar hefur ekki komist
hjá að smitast af umræðunni um hver
eigi að verða næsti forseti Islands.
Eftir margar erfiðar andvökunætur
og eftir að hafa rifjað upp öll andlit
sem hægt er að muna eftir úr sjónvarpi
hefur náðst niðurstaða. Það kemur
enginn annar til greina en Davíð
Oddsson. - Grínlaust.
Þegar Davíð var í borgarpólitík tók
hann á stuttum tíma öll völd. Það datt
engum í hug að andmæla Davíð. Dav-
íð er svo magnaður.
Þegar Davíð fór úr borgarmálum í
landsmálapólitík var sagt að þar syntu
fiskar stærri en svo að Davíð hefði
eitthvað í þá að gera. Það reyndist
rangt. Það er hreinlega fyndið að sjá
þingmenn Sjálfstæðisflokksins éta of-
an í sig hveija yfirlýsinguna eftir aðra
sem þeir hafa látið út úr sér án leyfis.
Davíð er svo magnaður að ég trúi því
að hann gæti látið þá éta stöðumæla-
sektarmiða - í plasti - ef hann vildi
svo við hafa. Davíð er svo magnaður
að ég vil hann út úr flokkapólitík svo
auðveldara sé að höggva skarð í fylk-
ingu Sjálfstæðismanna.
Því segi ég: Davíð Oddsson sem
næsta forseta Islands.
Höfundur er bóndi í Þykkvabæ.
Davíð er svo magnaður að ég trúi því að hann
gæti látið þingmenn Sjálfstæðisflokksins éta
stöðumælasektarmiða - í plasti - ef hann vildi
svo við hafa.
Þingmenn og starfsfólk Al-
þingis kom saman til
hins árlega jólahádegisverð-
ar í síðustu viku. Forseti
þingsins, Ólafur G. Einars-
son, hélt stutta tölu áður en
hangikjötið og laufabrauðið
var borið á borð og fór á
kostum. Ólafursagði meðal
annars að eftir að máltíð lyki
væri ætlunin að syngja jóla-
lögin við undirleik nýrrar
hljómsveitar, sem væri undir
stjórn „Árna eyrnaklípis".
Það þarf vart að taka fram að
salurinn lá í hlátri við þessi
orð forseta...
Það er mismunandi hvern-
ig menn taka mótlæti.
Trúlega hefurenginn rithöf-
undur verið jafn grátt leikinn
af gagnrýnendum uppá síð-
kastið og Kormákur Braga-
son, höfundur skáldsögunn-
ar Auga fyrír tönn. Gagnrýn-
endur eru á einu máli um að
sagan hafi tæpast eða alls
ekkl verið útgáfuhæf, og
hreinlega slátrað bókinni. En
Kormákur er ekki af baki
dottinn: Um helgina auglýsti
hann bók sína og tíndi til al-
verstu yfirlýsingarnar um
hana. Yfirleitt eru útgefendur
á höttunum eftir lofsamleg-
um ummælum, og er þetta
því nýmæli. Við óskum Kor-
máki alls góðs - en það er
höfundarnafn dr. Braga
Jósepssonar sem eitt sinn
var áberandi í Alþýðuflokkn-
um en helgar nú Kennarahá-
skólanum starfskrafta sína.
Það er að segja þegar hann
er ekki að skrifa...
Nú eru alþýðubandalags-
menn að undirbúa stofn-
un fyrirtækis utanum útgáfu
Vikubladsins. Blaðið hefurtil
þessa verið rekið af flokkn-
um og hefur aðsetur á skrif-
stofum Alþýðubandalagsins.
Stofnað verður hlutafélag og
umsjónarmaður ráðinn til að
annast reksturinn sem að
mestu hefur verið í höndum
Einars Karls Haraldsson-
ar...
h i n u m e g i n
"FarSide" eftir Gary Larson
Nú, ef þið skoðið línuritin vandlega sjáið auðvitað hvert
stefnir - nú, nú, herra Rex virðist hafa fundið eitthvað at-
hyglisverðara en þessa ráðstefnu.
fimm á förnum vegi
Hvað ætlar þú að borða á aðfangadag?
Harpa Ingólfsdóttir nemi:
Ég veit það ekki. Mér er boðið
í mat.
Guðrún Gauksdóttir lög-
fræðingur: Það eru engin jól
án rjúpna.
Anna Guðrún Konráðs-
dóttir nemi: Það verða lík-
lega ijúpur.
Guðmundur Gíslason
starfsmaður ÍSÍ: Það er föst
venja á mínu heimili að borða
lambahrygg.
Katrín Ýr Óskarsdóttir
nemi: Læri, eða eitthvað svo-
leiðis.
JÓN ÓSKAR
v i t i m e n n
Það liggur í hlutarins eðli,
að trauðia er hægt að treysta
fjölmiðli sem stærir sig af sívirkri
stjórnarandstöðu ef hann leggur
svo lykkju á leið sína til að lýsa
sig sammála Stóra bróður.
Leiöari Helgarpóstsins 14. desember
síðastliðinn.
Menn rísa að vísu upp,
verða ofboðslega reiðir, haida
jafnvel útifund og rétta hnefann
upp í loft og krefjast réttlætis.
Síðan gerist ekkert meira.
Kristján Gunnarsson, formaöur Verkalýös- og
sjómannafélags Keflavíkur, um forystu ASÍ.
Helgarblaö DV.
Ef það verða varanleg örlög
þjóðarinnar að híma yfir fjárlaga-
halla og framtaksleysi, verður ekki
mikið rúm fyrir bjartsýni til að
þeyta okkur inn í 21. öldina.
Leiöari Helgarblaðs DV.
Það mætti því í raun kalla
það sigur iýðræðisaflanna ef út-
koma þessara kosninga verður sú
að vænta megi annarra.
Um kosningarnar í Rússlandi.
Sunnudagsblaö Moggans.
Jafnframt er óhjákvæmilegt
að ræða í meiri alvöru en gert hef-
ur verið, hvort hægt sé að byggja
upp einkarekinn valkost við hið
opinbera heilbrigðiskerfi.
Leiðari Sunnudags-Mogga.
Ef menn halda að Bítlaæðið
sé eitthvað nýtt í sögunni þá er
það misskilningur.
Konráð Friöfinnsson, í lesendabréfi
í sunnudagsblaöi Morgunblaösins.
fréttaskot úr fortíð
Heimssýning
í Reykjavík í
júní í vor?
I enska blaðinu Times stendur eftir-
farandi klausa þ. 5. nóvbr.
„Islenzka stjómin hefur farið þess á
leit við Canadaríki, að það sendi sýn-
ishom af landbúnaðar afurðum og
landbúnaðarvélum á heimssýninguna
sem halda á í Reykjavík í næstkom-
andi júnímánuði.“
Alþýðublaðið
7. desember 1920