Alþýðublaðið - 26.01.1996, Page 1
■ Landlæknir ritar heilbrigðisráðherra bréf og leggurtil að heimilið
að Bjargi verði rekið áfram
Ákvörðunin um að
loka Bjargi er röng
- segir Ólafur Ólafsson landlæknir. Leggur til að Bjarg
verði lagt undir Félagsmálastofnun. „Mannréttindi
heimilismanna að eiga heimili á Bjargi áfram. Margfalt
dýrara að flytja heimilismenn á geðdeildir."
Föstudagur 26. janúar 1996
„Ég hef lagst gegn lokun Bjargs
og óskað eftir því að Bjarg verið
lagt undir Félagsmálastofnun.
Ákvörðunin um að loka Bjargi er
röng hvernig sem á hana er litið.
Bjarg er heimili þessa fólks, þar
líður því best og það eru mannrétt-
indi þess að fá að eiga heimili þar
■ Vaka-Helgafell
íslandssagan
á geisladiski
Bókaútgáfan Vaka-Helgafell er nú
að undirbúa útgáfu á Islandssögu á
geisladiski eða svokölluðum cd-rom.
Að sögn Ólafs Ragnarssonar útgef-
enda er undirbúningsvinna langt kom-
in og er geisladisksins að vænta seint
á þessu ári eða snemma á því næsta.
Ólafur segir að Vaka-Helgafell hafi
unnið að útgáfu disksins í samvinnu
við innlenda og erlenda aðila. Hann
segir að textinn verði að megni til úr
íslandssögu frá A-Ö, þriggja binda
uppflettiriti eftir Einar Laxness sem
kom út hjá forlaginu fyrir jólin. Við
bætist svo ýmislegt myndefni og skýr-
ingarefni: ljósmyndir, kort, línurit,
stuttir kvikmyndakaflar, talað mál og
tónhst.
Ólafur Ragnarsson nýtur ráðgjafar
nafna síns Ólafs Jóhanns við
geisladiskavæðinguna.
Ólafur segir að ef útgáfan eigi að
standa undir nafni sé óhjákvæmilegt
að fara út á þessa braut. íslandssagan
sé aðeins fyrsta verkefnið, en til um-
ræðu sé að gefa út ýmislegt fleira með
þessum hætti þegar ffam líða stundir.
Ólafur telur að íslendingar búi að
ágætri þekkingu á þessu sviði og því
sé góður grundvöllur til að ráðast í út-
gáfu á innlendu efni. Einnig sé líklegt
að Vaka-Helgafell gefa út alþjóðlegt
efni í samstarfi við erlenda aðila, ekki
ósvipað því og hefur verið venjan í
svokölluðu alþjóðlegu samprenti.
Eins og kunnugt er hefur Ólafur Jó-
hann Ólafsson, einn af höfundum
Vöku-Helgafells, verið með helstu
frumkvöðlum á sviði margmiðlunar
síðasta áratuginn. Aðspurður segir Ól-
afur Ragnarsson að vissulega hafi
hann notið þess að hafa Ólaf Jóhann
innan handar á þessum fyrstu stigum
geisladiskaútgáfu, enda hafi hann
reynsluna af því að gefa út tugi al-
fræðibóka á diskum.
áfram. Ef farið verður að flytja
þetta fólk inn á geðdeildir verður
jjað margfalt dýrara en að halda
rekstri heimilisins áfram. Og ef
þetta fólk yrði heimilislaust og
færi illa þá yrði það enn dýrara,“
sagði Ólafur Ólafsson landlæknir í
samtali við Alþýðublaðið.
Stofnað 1919
Landlæknir sagðist hafa sent
Ingibjörgu Pálmadóttur heilbrigð-
isráðherra bréf með tillögu þess
efnis að rekstri Bjargs verði haldið
áfram og heimilið lagt undir Fé-
lagsmálastofnun. Landlæknir sagð-
ist ekki búast við öðru en heil-
brigðisráðherra myndi styðja til-
lögur sínar.
Ólafur Ólafsson landlæknir: Býst
ekki við öðru en heilbrigðisráð-
herra styðji tillögur um áframhald-
andi rekstur Bjargs.
ÞREFALDUR1. VINNINGUR
15. tölublað - 77. árgangur
r
Eg segi ekki að
ég sé algóður
og hann aga-
legur...
„Það eru ákaflega
miklir fáleikar á
milli okkar Bene-
dikts Davíðssonar.
Ég segi ekki að ég
sé algóður og hann
agalegur en milli
okkar hefur aldrei
tekist samstarf. Benedikt er greindur
og vel gerður maður á margan hátt en
ég get ekki samþykkt hann sem forseta
Alþýðusambandsins," segir Guðmund-
ur J. Guðmundsson í opnuviðtali í Al-
þýðublaðinu. Guðmundur er ólíkt
hrifnari af Davíð Oddssyni sem hann
segir að hafi í starfi síhu sem borgar-
stjóri reynst verkamönnum ákaflega
vel. í viðtalinu gefur Guðmundur eldri
stjómmálakempum og yngri einkunn,
rifjar upp minningar frá kreppu- og
stríðsárum, segir frá setu sinni á Al-
þingi, fálkaorðunni sem hann vildi
ekki þiggja og lífið að lokinni for-
mennsku í Dagsbrún. Sjá miðopnu
■ Guðmundur Árni Stef-
ánsson varaformaður Al-
þýðuflokksins
Skynsamlegt
að ræða um
snertifleti
„Lít ekki á viðræður við Þjóð-
vaka sem upphaf þess að Al-
þýðuflokkurinn leggi sig niður."
„Alþýðuflokk-
urinn er auðvitað
opinn og lýðræð-
islegur flokkur,
og fagnaðarefni ef
þeim fjölgar sem
vilja Ijá honm at-
fylgi sitt,“ sagði
Guðmundur Ami
Stefánsson vara-
formaður Al-
þýðuflokksins um , Guðmundur
möguleika á sam- Arni: Nýir félagar
vinnu eða samein- velkomnir.
ingu Þjóðvaka og
Alþýðuflokks. Guðmundur Ámi sagði
ennfremur: „Það gefur auga leið að
sjónarmið Alþýðuflokksins og Þjóð-
vaka eru samstiga í lykilmálum enda á
Þjóðvaki rætur í Alþýðuflokknum.
Ekki þarf að rifja upp tilurð Þjóðvaka á
sínum tíma, en hann varð ekki til á
grundvelli málefnaátaka. Ég held að
það sé ósköp skynsamlegt að forystu-
menn flokkanna ræði saman um
snertifleti. Ég horfi ekki á slfkt ferli
sem upphaf að því að Alþýðuflokkur-
inn leggi sig niður til að sameinast öðr-
um flokki. Það vil ég undirstrika ræki-
lega. En nýir félagar eru vitaskuld vel-
komnir í Alþýðuflokkinn."
Rannveig: Fagna því ef þingmenn
Alþýöuflokksins og Þjóðvaka
leggja sárindi og gamlar syndir að
baki.
Dýrabær í Tjarnarbíó Leikfélag Menntaskólans við Hamrahlíð frumsýnir annað kvöld leik-
verkið Animal Farm, eða Dýrabær, sem byggt er á skáldsögu George Orwell. Höfundur leikgerðar er Peter Hall.
Leikstjóri er Andrés Sigurvinsson og alls koma 50 leikendur fram i sýningunni.
Rannveig Guðmundsdóttir formaður þingflokks Alþýðuflokksins
um samvinnu við Þjóðvaka
Fyllsta ástæða til bjartsýni
„Búið að taka í útrétta sáttahönd."
„Mér er alls ókunnugt um af
hvaða hvötum eða með hvaða þekk-
ingu Tíminn gerir mér upp skoðanir.
Ég hef sagt afdráttarlaust að Alþýðu-
flokkurinn eigi að vera með opið til-
boð til Þjóðvaka. Ég sagði ennfrem-
ur að ég vonaði að tekið yrði í útrétta
sáttahönd. Það var gert og ég fagna
því innilega,“ sagði Rannveig Guð-
mundsdóttir formaður þingflokks Al-
þýðuflokksins í samtali við Alþýðu-
blaðið.
í Tímanum í gær var fullyrt að
Rannveig, Sighvatur Björgvinsson
og Gísli S. Einarsson væru óánægð
með að „Jóhanna skuli nú banka upp
á.“
Rannveig sagði að frétt Tímans
væri algerlega tilhæfulaus, og ítrek-
aði þá von að hægt væri að ná sam-
stöðu með Þjóðvaka. „Á þessari
stundu er fyllsta ástæða til að vera
bjartsýnn á að menn geti náð saman.
Það er alveg ljóst að Rannveig Guð-
mundsdóttir mun taka því tveim
höndum ef þingmenn Alþýðuflokks-
ins og Þjóðvaka leggja sárindi og
gamlar syndir að baki,“ sagði Rann-
veig Guðmundsdóttir.
Samkvæmt heimildum Alþýðu-
blaðsins er sú fullyrðing Tímans að
Sighvatur og Gísli séu óánægðir með
gang mála líka úr lausu lofti gripin.