Alþýðublaðið - 01.02.1996, Blaðsíða 8
* *
\WREVF/tZ7
4 - 8 farþega og hjólastólabílar
5 88 55 22
Fimmtudagur 1. febrúar 1996
mUBLMÐ
18. tölublað - 77. árgangur
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
Katrín Fjeldsted, formaður Félags íslenskra heimilislækna, ráðfærir sig við tvo kollega sína á fundi í gær.
■ Níu af hverjum tíu heilsugæslulæknum á íslandi hafa ákveðið að segja upp störf-
um frá og með deginum í dag. Þeir spyrja hvort það sé vilji stjórnvalda að komi upp
stjórnlaus samkeppni milli heimilislækna og sérfræðinga
■
■jtllip
Komið að hruni heilsu-
gæslunnar í Reykjavík
- segir Gunnar Ingi Gunnarsson heilsugæslulæknir: „Við
okkartil þess að reyna að halda þeim."
„Heilsugæslan í Reykjavík er
byrjuð að hrynja. Það hefur verið
von á því f mörg ár, en nú er komið
að hruninu," segir Gunnar Ingi
Gunnarsson heilsugæslulæknir í
samtali við Alþýðublaðið. Frá og
með deginum í dag segja 127
heilsugæslulæknar upp störfum, en
það eru 90 af hundraði heilsugæslu-
lækna á öllu landinu. Akveðið hef-
ur verið að læknar sem þjóna Flat-
eyri segi ekki upp störfum.
Styrrinn milli heilsugæslulækna
og heilbrigðisyfirvalda stendur
einkum um verkaskiptingu þeirra
og sérfræðinga. Telja heilsugæslu-
læknar að verkaskiptingin eins og
henni er lýst í lögum og reglugerð-
um sé komin í uppnám. Samkvæmt
núverandi skipulagi heilbrigðis-
þjónustu sé það sé í verkahring
heillsugæslulækna að annast frum-
þjónustu sem feli meðal annars í sér
kvaðir um að sinna sjúklingum á
vöktum allan sólarhringinn, vitjun-
um og mæðra- og ungbarnavernd.
Sérfræðinganna sé hins vegar að sjá
um annars stigs þjónustu svokall-
■ Evrópusambandið
Verður kosið um
aðildarumsóknir?
Sá orðrómur er á kreiki í höfuð-
stöðvum Evrópusambandsins í Brus-
sel að ráðamenn þar telji ástæðu til
að haldnar séu þjóðaratkvæðagreiðsl-
ur um aðildarumsóknir í þeim ríkjum
þar sem tvísýnt er að Evrópusam-
bandsaðild hafi stuðning kjósenda.
Áður hafa verið haldnar þjóðarat-
kvæðagreiðslur um samninga sem
hafa verið gerðir um inngöngu í
ESB, en ekki um hvort eða með
hvaða hætti skuli sótt um aðild.
Þetta kemur fram í nýju tölublaði
Evrópufrétta, sem gefnar eru út af
Samtökum iðnaðarins og Vinnuveit-
endasambandinu. Þar segir ennfrem-
ur að ESB vilji forðast að aftur skap-
ist sú andhælislega staða sem kom
upp þegar Norðmenn felldu aðild að
ESB eftir langar og strangar samn-
ingaviðræður. Því sé komin upp sú
krafa að í ríkjum þar sem mikill
ágreiningur er um aðild verði stjóm-
völd að láta fara fram þjóðaratkvæða-
greiðslu um umsókn áður en hún er
tekin fyrir, hvort sem þeim líkar bet-
ur eða verr. Þetta gæti skipt talsverðu
máli fyrir íslendingar, ef þeir ein-
hvem tíma vildu sækja um að komast
inn í ESB, enda yrði þjóðin þá að
kjósa um aðildarumsóknina áður en
til beinna samningaviðræðna kæmi.
I fréttabréfinu segir ennfremur að
viðræður um stækkun ESB gætu haf-
ist stuttu eftir að ríkjaráðstefnu þess
lýkur um mitt næsta ár. Gert er ráð
fyrir að þá verði Malta og Kýpur efst
á blaði, en að ríki í Austur-Evrópu
sem hafa lýst áhuga á inngöngu bíði
enn um sinn.
erum í þeirri einkennilegu stöðu að segja upp störfum
aða á afmarkaðri sviði læknisfræð-
innar, á stofu, göngudeild eða
sjúkrahúsi.
Heilsugæslulæknarnir telja að
þetta sé kerfi sem hefur gefist vel,
sérstaklega úti á landi. Ástandið
hafi hins vegar verið erfiðara á höf-
uðborgarsvæðinu, enda fjölgi sér-
fræðingum sem þar fá leyfi til sjálf-
stæðs rekstrar utan sjúkrahúsa stöð-
ugt meðan lítil endurnýjun eigi sér
stað í röðum heimilislækna. Ein
ástæða þess sé að það sé lítt freist-
andi fyrir unga heimilislækna að
hefja störf í Reykjavík meðan
ástandið ekki breytist.
Heilsugæslulæknum finnst að
sérfræðingar séu sífellt að fara
lengra inn á verksvið sitt, til dæmis
þegar komið var á fót formlegri
vakt barnalækna í Reykjavík síðast-
liðið haust. Þeir segja að stefni í
stjórnlausa samkeppni heimilis-
lækna og annarra sérfræðinga um
verkefni frumþjónustunnar og
spyrja í greinargerð vegna uppsagn-
anna: „Líta stjórnvöld svo á að
heimilislækningar og sérgreina-
lækningar eigi að keppa innbyrðis?
Líta stjórnvöld svo á að skipta megi
einstökum þáttum heimilislækninga
milli sérgreina og heimilislæknar
sitji eftir með þá þætti sem aðrir
hafa ekki áhuga á að sinna?“
I haust, í kjölfar þess að vakt
barnalækna var sett á stofn, sögðu
heilsugæslulæknar upp samningi
um rekstur læknavaktarinnar í
Reykjavík. Þær uppsagnir taka gildi
I. mars. Eftir það hafi þeir freistað
þess að eiga viðræður við stjórn-
völd um skipulag læknisþjónust-
unnar. Þau hafi hins vegar ekki get-
að tekið af skarið heldur fjallað um
málið í kyrrþey.
„Það er verið að gera atlögu að
kerfinu án þess að um það sé rætt,“
segir Gunnar Ingi Gunnarsson.
„Þess vegna standa menn upp sem
einn maður og segja hingað og ekki
lengra. Við viljum fá að vita hvort
það sé ákvörðun stjórnvalda að
leggja þetta kerfi niður. Ef svo er
viljum við að okkur sé sagt hvað
komi í staðinn. Við erum í þeirri
einkennilegu stöðu að segja upp
störfum okkar til þess að reyna að
halda þeim.“
■ Stóra Ameríkulottóið
23.910 „græn kort" í
Sendiráð Bandaríkjanna á íslandi
hefur tilkynnt að Islendingum gefist
enn kostur á að sækja um svo kallað
lukkuleyfi samkvæmt „Visa Lottery"
áætluninni (Diversity Immigrant Visa
(lottery) Program). Umsóknarfrestur
Verður frá 12. febrúar til 12. mars
næstkomandi. Áætlunin er opin fólki
frá löndum sem hafa lágt hlutfall inn-
flytjenda í Bandaríkjunum; 23.910
leyfum hefur verið úthlutað til Evr-
ópulanda.
Þeir sem vilja taka þátt skulu senda
inn aðeins eina umsókn, vélritaða eða
skrifaða með prentstöfum á venjuiég-
an pappír, til „D-97 Program, National
Visa Center, Portsmouth, NH 00212,
USA.“ Upplýsingar um kröfur sem
gerðar eru til umsækjenda og þær
upplýsingar sem verða að fylgja um-
■ Kvikmyndahátíð
20th Century Fox
Shirley
Temple, Cary
Grant og Yul
Brynner í
Regnboganum
Um næstu helgi munu Skífan og
bandaríska kvikmyndafyrirtækið 20th
Century Fox efna til kvikmyndahátíð-
ar í Regnboganum í tilefni af því að
um þessar mundir eru liðin hundrað ár
frá fyrstu kvikmyndasýningum fyrir
almenning. Mun ætlunin að sýna bíó-
myndir sem hafa fallið ágætlega í
kramið hjá almennum bíógestum, en
máski vakið misjafnar tilfinningar í
bijóstum gagnrýnenda.
Myndirnar eru gerðar á árunum
1937 til 1966. Elst er Wee Willy
Winkie með barnastjörnunni lokka-
prúðu Shirley Temple. Leikstjóri er
enginn annar en meistari John Ford.
David and Bathsheba er mikil Biblí-
umynd frá 1951 með draumatröllinu
Gregory Peck í aðalhlutverki. The
King and I er ein sögufrægasta
söngvamynd allra tíma; músíkin er
eftir Rogers og Hammerstein en
ógleymanlegur í aðalhlutverki er Yul
Brynner. An Affair to Remember er
rómantísk gamanmynd þar sem Cary
Grant er á heimavelli, en síðast er að
nefna kvikmynd sem heitir einfaldlega
The Bible. Þetta er stórmynd eins og
menn eru löngu hættir að gera; þama
eru raktir tuttugu og tveir íyrstu kaflar
Biblíunnar, til dæmis frásagnimar af
Adam og Evu, Kain og Abel og Nó.a-
flóðinu. Leikstjóri er John Hústoþ, eri
meðal leikara eru Peter O’Toole og
Ava Gardner.
Myndimar verða sýndar án íslensks
texta en miðaverð er 300 krónur.
Shirley Temple leikur í myndinni
Wee Willy Winkie frá 1937.
verðlaun
sókninni er hægt að fá með því að
hringja í upplýsingasíma í Bandaríkj-
unum, sem opinn er allan sólarhring-
inn, (001) 202-663-1600; eða með því
að hringja í (001)202-647-3000)
(númerl 103) úr fax-síma til að fá
prentaðar upplýsingar með símbréfi,
eða með því að korna í sendiráð
Bandaríkjanna í Reykjavík, þar sem
upplýsingar liggja ífammi í móttöku.