Alþýðublaðið - 15.02.1996, Qupperneq 3

Alþýðublaðið - 15.02.1996, Qupperneq 3
FIMMTUDAGUR 15. FEBRUAR 1996 ALÞYÐUBLAÐIÐ s k o ð a n Kraftbirtingarhljómur hinnar kratísku æsku Alþýðuflokkurinn er í stjórnar- andstöðu þessa dagana. Þetta átt- ræða afmælisbarn ætti þó að kunna á því tökin og orðið vant því að hafa annan fótinn í stjórn og hinn í stjórnarandstöðu. Hálfa ævina hef- ur flokkurinn haldið um stjórn- Pallborð I tauma þjóðfélagsins, en einnig oft mátt horfa úr fjarlægð upp á sér- hagsmunavörslugengið skara eld að sinni köku langa hríð. Flokkur- inn er alltof lítill, og þess vegna hefur hann þurft að koma sínum helstu baráttumálum fram í krafti oddaaðstöðu í íslenskri pólitík. Það fyrirkomulag hefur haft í för með sér bæði kosti og galla. Kostir hafa falist í því að geta mútað sér- hagsmunabandalögum til að sam- þykkja meiriháttar þjóðþrifamál til dæmis Framsókn vegna velferðar- kerfisins á 4, áratugnum og Sjálf- stæðisflokki vegna EES-samning- anna núna nýverið. Ljóðurinn hef- ur verið sá að með því að fara þessa leið hefur flokkurinn gert sitt til að viðhalda þessum sérhags- munabandalögum og greitt þeim leiðina í vasa landsmanna sem lítið er orðið eftir í. Það er óþarft að rekja frekar harmsögu íslenskra jafnaðarmanna fyrir lesendum þessa blaðs, enda hafa margir býsna fróðir menn rak- ið þá sögu á þessum síðum. Það er mín skoðun að mál sé að þessari sápuóperu linni. Ég á mér þá ein- lægu ósk að öðruhvorumegin við aldamótin verði til margumræddur „stór nútímalegur jafnaðarmanna- flokkur". En í upphafi skyldi end- irinn skoða. Ef á næstu misserum tekst að bræða saman brotasilfur íslenskra jafnaðarmanna, þýðir það þá að Framsóknarflokkurinn verð- ur hér við völd að eilífu, til skiptis með Jafnaðarmannaflokki og Sjálfstæðisflokki? Sterk málefnastaða og skýr framtíðarsýn Alþýðuflokksins hef- ur skilað honum miklu og vaxandi fylgi meðal ungs fólks. Þessu unga fólki fylgir þróttur og baráttuþrek sem gefur flokknum byr undir báða vængi. Með því að hafa laðað þetta fólk að sínu starfi hefur Al- þýðuflokkurinn sannað sig og tryggt sér „framhaldslíf" í pólitík hvað sem öllum skoðanakönnunum líður. I fyrra kvöld varð undirritaður vitni að endurfæðingu Alþýðu- flokksfélags Reykjavíkur. A hressilegum aðalfundi uppi á Kornhlöðulofti birtist áhugi, skiln- ingur og umhyggja ungs fólks fyrir þessum aldna stjórnmálaflokki og um leið ástæða þess að hann er þrátt fyrir háan aldur í árum talið, ávallt síungur. Sannkallaður kraft- birtingarhljómur æskunnar. Ég vil nota þetta tækifæri til að óska ný- kjörinni stjórn AR og öllum fé- lagsmönnum innilega til hamingju. Við í Félagi Ungra Jafnaðarmanna í Reykjavík hlökkum til að eiga við þessa nýju stjórn samstarf og erum sannfærð um að saman mun- um við lyfta hverjum grettistakinu á fætur öðru fyrir jafnaðarstefn- una. Enn og aftur til hamingju. Höfundur er formaður Félags ungra jafnaðarmanna í Reykjavík. r / Á hressilegum aðalfundi uppi á Kornhlöðulofti birtist áhugi, skilningur og umhyggja ungs fólks fyrir þessum aldna stjórnmálaflokki og um leið ástæða þess að hann er þrátt fyrir háan aldur í árum talið, ávallt síungur. h i n u m e g i n "FarSide" eftir Gary Larson Innan Háskólans fara nú fram miklar umræður um hvort breyta eigi skólanum í sjálfseignastofnun. Háskóla- ráð skipaði til að athuga málið og sátu í henni pró- fessorarnir og sjálfstæðis- mennirnir Gunnar G. Schram og Þórólfur Þór- lindsson, Sigurður J. Grétarsson dósent, Ágúst Einarsson, þingmaður Þjóðvaka og prófessor, og Guðrún Pétursdóttir, for- stöðumaður Sjávarútvegs- stofnunar og forsetafram- bjóðandi. Nefndin reyndist hlynnt sjálfseignarfyrirkomu- laginu og er Björn Bjarna- son menntamálaráðherra það einnig. Innan Háskólans eru skoðanir hins vegar mjög skiptar; þartelja marg- ir að ef skólanum yrði breytt í sjálfseignarstofnun gæti það haft í för með sér fjár- hagslegt óöryggi, niður- skurð, fjöldatakmarkanir og há skólagjöld. Meðal þeirra sem eru mjög á báðum átt- um erSveinbjörn Björns- son og þótt hann hafi ekki beinlínis tekið afstöðu í mál- inu finnur hann sjálfseignar- áformum flesttil foráttu I viðtali við nýtt tölublað Fréttabréfs Háskóla Is- lands... Fátt er rætt meira í kaffi- stofu Alþingis þessa dag- ana en væntanlegt forseta- framboð Davíðs Oddsson- ar. Hagyrðingar þingsins gera sér vitaskuld mat úr þessu, einsog meðal annars má ráða af þessari vísu sem Páll Pétursson félagsmála- ráðherra heyrðist tauta: Davíds allvel dafnar bú, deilur ekki harðar. Hugurinn er þó hálfur nú handan Skerjafjarðar. Sameining jafnaðar- manna kann að vera kominn lengra á veg en menn hugðu. Á hinum sögulega aðalfundi Al- þýðuflokksfélags Reykja- víkur í fyrrakvöld létu ungir jafnaðarmenn mjög til sín taka, og hafa nú meirihluta I stjórninni. Þeir stóðu fyrir talsverðri smalamennsku á fundinn einsog verkast vill í stjórnmálafélögum, og við heyrum að einn liðs- manna þeirra á fundinum hafi verið Kristján Eldjárn Jóhannsson. Fyrir utan að bera virðulegt nafn og vera mikill efnismaður er hann sonur Svanfriðar Jónas- dóttur þingmanns Þjóðvaka og fyrrum varaformanns Al- þýðubandalagsins... „Ókei, Halldór. Við höfum þá náð samkomulagi og getum nú látið mitt fólk og þitt fólk um að ganga frá smáatriðunum." f i m m förnum vegi Hver er varaformaður Framsóknarflokksins? Rétt svar: Guðmundur Bjarnason. Pálína Þórarinsdóttir há- Guðrún Olsen nemi: Éghef skólanemi: Finnur Ingólfs- ekki hugmynd um það? Guðlaugur Eyjólfsson Hermann Ottósson fram- júdómaður: Ég man það ekki kvæmdastjóri: Ingibjörg en ég held að það sé kona. heilbrigðisterroristi. Þórunn Brandsdóttir nemi: Ég veit það ékki. JÓN ÓSKAR m e n n Hann er maður sem þekkir hið óskoraða vald og hefur unun af því að beita því. Valdið er hugmyndafræði hans og besti vinur. Vjatsjeslav Kostíkov um Boris Jeltsín Rúslandsforseta. Morgunblaðið í gær. En hvað er frelsið hérna í raun og veru? Bankarnir hafa fengið frelsi, en lántak- endur hafa ekki frelsi, nema örfáir. Steingrímur Hermannsson í Tímanum í gær. Garri vill því gera það að tiltögu sinni að Errósafnið verði áfram látið liggja í dvala í geymslum, þar sem það hefur verið undanfarin misseri engum til ama eða tjóns. Garri í Tímanum í gær. Flokkurinn er ekki bara formaðurinn og Davíð tekur auðvitað þá ákvörðun sem hann telur sér fyrir bestu. Pétur H. Blöndal alþingismaður um hugsalegt forsetaframboð Davíðs Oddssonar. DV í gær. Þess vegna vil ég koma því á framfæri við þá sem ráða að aldrei hefur verið á dagskrá þáttur sem er jafn lélegur og Þeytingur. Lesendabréf í DV í gær. Raunar er kyndugt, að þjóð, sem seilist til áhrifa í erlend- um sjávarútvegi, skuli hamla gegn erlendri fjárfestingu í innlendum sjávarútvegi. Jónas Kristjánsson í leiðara DV í gær. fréttaskot úr fortið Eftir Olympíu- leikanna Sænski íþróttamaðurinn, Maraþon- hlauparinn Tore Enochsson, sem tók þátt í Olympíuleikunum í Berlín í sumar, var tekinn fastur um daginn fyrir innbrotsþjófnað í Stokkhólmi. Lögreglan kom að honum, þar sem hann var að bijótast inn, elti hann um götumar og vann Maraþonhlaupið. Alþýðublaðið sunnudaginn 22. nóvember 1936

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.