Alþýðublaðið - 21.02.1996, Side 4
4
ALÞÝÐUBLAÐHD
MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 1996
ó r n m á I
Að þessu gefnu, og vegna þess að Jeltsín er kænn og miskunnarlaus andstæðingur, kann hann að
rata aftur inn í Kreml - ekki af því Rússar telji hann góðan forseta heldur vegna þess að þeir ótt-
ast, ekki að ástæðulausu, að aðrir frambjóðendur muni reynast verri forsetar.
■ Eftir að hafa komið efnahag Rússlands í kalda kol sækist
Borís Jeltsín eftir endurkjöri sem forseti Rússlands
Sigurmöguleikar
Jeltsíns
Sjaldan hefur stjórnmálamaður
sem sóst hefur eftir endurkjöri haft
jafnslæma „afrekaskrá'* að baki og
Borís Jeltsín. Frá því hann var kjör-
inn forseti Rússlands í júní 1991
hefur iðnaðarframleiðsla landsins
dregist saman um helming, at-
vinnuleysi vaxið og laun lækkað.
Rúblan hefur fallið meira en hundr-
aðfalt í verði. Raunvextir eru gríð-
arlegir. Bankakerfið riðar til falls.
Glæpir og spilling eru daglegt
brauð.
Þó telur Jeltsín sig eiga erindi í
baráttuna um forsetastólinn. Þann
15. febrúar þegar hann heimsótti
heimabæ sinn Jekaterínborg gaf
hann út formlega yfirlýsingu um
framboð sitt. Og engir, síst af öllu
andstæðingar hans, þora að veðja á
að hann sé úr leik; ólíkt því sem
haldið var fram fyrir hálfu ári þegar
menn lýstu glaðhlakkalegir þeirri
skoðun sinni að Jeltsín ætti ekki
möguleika á endurkjöri.
Ráðgjafar Jeltsíns viðurkenna að
æði margt verði að ganga forsetan-
um í haginn eigi hann að ná endur-
kjöri, en þeir segja einnig að raun-
hæfir möguleikar séu á að mál snú-
ist til betri vegar. Heilsufar forset-
ans verður að vera í lagi (eftir tvö
hjartaáföll á síðasta ári og heldur
hæpna drykkjusiði), umskipti að
eiga sér stað í friðarátt í Tsetsjníju,
og einhver vottur af efnahagsbata
verður að koma í ljós; sérfræðingar
eru sammála um að fyrir honum
votti, en álit þeirra hefur lítil áhrif á
kjósendur sem segjast ekki koma
auga á hann.
Að þessu gefnu, og vegna þess
að Jeltsín er kænn og miskunnar-
laus andstæðingur, kann hann að
rata aftur inn í Kreml - ekki af því
Rússar telji hann góðan forseta
heldur vegna þess að þeir óttast,
ekki að ástæðulausu, að aðrir fram-
bjóðendur muni reynast verri for-
setar.
Tilkynningin um framboð Jelt-
síns skyggði á aðra tilkynningu um
framboð sem barst þann sama dag
frá aðalkeppinaut hans, Gennadíj
Zjúganov, leiðtoga Kommúnista-
flokksins. Þrír aðrir þungavigtar-
kandídatar hafa einn.ig tilkynnt
framboð sitt. Þeir eru öfgasinninn
Vladímír Zhírínovskíj, Grígoríj
Javlínskíj, leiðtogi Jabloko og Al-
exander Lebed, hershöfðingi á eft-
irlaunum, sem virðist sjá sjálfan sig
sem rússneskan Pinochet. Að öllum
líkindum fylla þessir menn hóp
hugsanlegra sigurvegara - þó ein-
hverjir frambjóðendur eigi líklega
enn eftir að koma fram. Nýjustu
fréttir herma að Míkhaíl Gorbatsjov
■ Jón Baldvin Hanni-
balsson um mögu-
leika Jeltsíns og
ástandið í Rússlandi
Arangur
Jeltsíns
hörmu-
legur
„Sá maður er ekki til, að
minnsta kosti ekki með fullu
viti, sem treystir sér tii að spá
um þróun Rússiands, þótt ekki
sé nema nokkra mánuði fram í
tímann. Spurningin um mögu-
leika Jeltsíns á endurkjöri hlýt-
ur náttúrlega að snúast um mat
á getu andstæðinganna. Það er
vitað að árangur Jeltsíns, sér-
staklega seinustu tvö árin, hef-
ur vægast sagt verið hörmuleg-
ur og vinsældir hans mældar í
skoðanakönnunum hafa verið
þverrandi. Þeir sem hafa styrkt
stöðu sína eru fyrst og fremst
gamli kommúnistafiokkurinn,
þjóðernissinnar undir Zhír-
ínovskíj og önnur íhaldsöfl
tengd bændum og gjaldþrota
ríkisfyrirtækjum.
Ef meta má líkleg úrslit for-
setakosninganna út frá niður-
stöðu þingkosninganna í des-
ember hlýtur Zjúganov fram-
bjóðandi kommúnista að teljast
líklegastur vegna þess að hann
á málefnanlega sterkasta stöðu
með öðrum skipulögðum sam-
tökum þjóðernissinna og íhald-
safia. Jeltsín hefur brennt býr
að baki sér, hann hcfur rekið út
úr ríkisstjórninni flesta þá sem
fylgdu honum í upphafi og
voru fulltrúar umbótaaflanna.
Á herðum hans hvílir ábyrgðin
á þriðju þjóðarmorðstilraun-
inni í Tsetsjníju sem alls ekki
er séð fyrir endann á.
Efnahagsmálin eru í ólestri,
þar hefur flest farið í handa-
skolum á seinni árum. í Rúss-
landi ríkir upplausnar- og
óvissuástand. Aðalvandamálið
er gríðarleg misskipting lífs-
gæðanna þar sem örfámenn
yfirstétt, meira og minna glæp-
samleg í öllu sínu athæfi, mak-
ar krókinn. Eldri borgarar og
barnafjölskyldur hafa bcðið af-
hroð í lífskjörum, þriðjungur
þjóðarinnar er við hungurmörk
og hefur misst alla trú á um-
bótaaðgerðunum og er þess
vegna tiltölulega auðvelt fórn-
arlamb lýðskrumara sem lofa
gulli og grænum skógum, eins
og fulltrúar gamla kerfisins nú
gera.
Almennt er talið að Jeltsín sé
búinn að vera. Hann hefur ekki
náð tilskildum árangri og hann
hefur ekki að baki sér nein þau
öfl sem líkleg eru til að tryggja
honum kosningu. Það er vand-
séð að á þeim mánuðum sem
eru til stefnu verði þau um-
skipti að þeir scm eru andsnún-
ir kommúnistum sameinist í
nægilega ríkum mæii um einn
frambjóðanda. Þaðan af síður
er Iíklegt að sá frambjóðandi
heiti Borís Jeltsín.“