Alþýðublaðið - 21.02.1996, Síða 5
MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 1996
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
5
síðasti forseti Sovétríkjanna gömlu
ætli að blanda sér í baráttuna, en
sigurmöguleikar hans teljast hverf-
andi.
Jeltsín hlýtur að líta yfir völlinn
og anda léttar. Allir aðalandstæð-
ingar hans eru þekktar stærðir, sem
hann hefur á einhverju tímabili haft
undir. Eini hugsanlegi frambjóð-
andinn sem hefði valdið óróa í her-
búðum Jeltsíns er Víktor Tsjernom-
yrdín forsætisráðherra, sem þrátt
fyrir hvatningu þess efnis hefur
ekki viljað gefa kost á sér í forseta-
embættið, og hefur skorað á stuðn-
ingsmenn sína að styðja Jeltsín.
Meðan engin breyting verður á
stöðu mála getur Jeltsfn gert sér
vonir um sigur. Hann verður að
reka af sér slyðruorð vegna hrak-
legrar frammistöðu á fyrsta kjör-
tímabili sínu, en það verk er reynd-
ar svo umfangsmikið að dregið
gæti kjark úr minni stjórnmála-
mönnum. Jeltsín hefur þegar hafist
handa, rekið ráðherra og aðstoðar-
menn sem hann gerir að blóra-
bögglum misheppnaðrar stjórnar
sinnar. Þetta er ófagurt sjónarspil,
en Jeltsín, sem hefur allnokkra
þekkingu á rússneskum hreinsun-
um, hefur sýnt umtalsverð tilþrif.
Fram að þessu hefur aðalfórnar-
lamb hans verið Anatólí Khubaís,
sem hann rak úr embætti aðstoðar-
'manns forsætisráðherra, og var sá
maður sem harðast vann að stöðug-
leika í efnahagslíf og beitti sér f
baráttu gegn verðbólgu. Ef ekki
hefði komið til framlag hans stjórn-
aði Jeltsín nú einu mesta banana-
lýðveldi heims. Laun Khubaís eru
þau að honum er nú kennt um allt
það sem miður hefur farið í hag-
kerfi Rússlands og sá árangur sem
hann uppskar af verkum sínum hef-
ur Jeltsín skrifað á eigin reikning.
Jeltsín lítur svo á að forgangs-
verkefni fyrir kosningarnar verði
að kalla rússneskar hersveitir frá
Tsjetsjníju. „Ef hersveitirnar verða
kallaðar heim þá verður gífurlegt
blóðbað í Tsjetsjníu, „ sagði Jeltsín
fyrir skömmu. „Ef hersveitirnar
verða ekki kallaðar heim þá er til-
gangslaust fyrir mig að bjóða mig
fram sem forseta. Fólk mun ekki
kjósa mig.“ Eins og hans var von
og vísa hefur hann falið Tsjernom-
yrdín að leysa Tsjetsjníju þrautina.
Það liggur Ijóst fyrir hver hlýtur
heiðurinn takist það og hverjum
verður kennt um mistakist verkefn-
ið.
Efnahagslegur bati og jákvæð
þróun í Tsjetsjníju gætu hleypt lífi í
stöðu Jeltsíns í skoðanakönnunum
en þar hefur honum farnast illa.
Nýleg könnun sýnir að 17% kjós-
enda styðia Zjúganov og aðeins
10% Jeltsín.
Jeltsín getur gert sér góðar vonir
um að sigla framúr Javlinskíj og
Lebed. Zhírínovskíj hefur öfluga
flokksmaskínu á bak við sig og
tryggan hóp stuðningsmanna.
Framkoma hans og málflutningur
hafa hins vegar orðið æ einkenni-
legri eftir því sem nær dregur kosn-
ingum og eru líkleg til að virka frá-
hrindandi á stóran hluta kjósenda.
Takist Jeltsín að sigra Zhírínovskíj
mun hann að öllum líkindum mæta
Zjúganov í annarri umferð kosning-
anna. Það gæti orðið harður slagur.
í baráttunni við Zjúganov mun
Jeltsín skilgreina sig sem frambjóð-
anda andkommúnískra afla, sem
enn eiga mikinn stuðning í Rúss-
landi. Jegor Gajdar, fyrrverandi
forsætisráðherra, telur áhrifaríkara
að kjósa einhvern frambjóðanda
umbótasinna fremur en að kjósa
Jeltsín í þeirri trú að verið sé að
bjarga Rússlandi frá kommúnisma.
Lýðræðissinnaðir Rússar eru þó
lfklegir til að styðja Jeltsín sjái þeir
fram á að kosningabaráttan verði
einvígi milli Jeltsíns og Zjúganovs.
Stórum hópi þeirra þykir lítið til
Jeltsíns koma, en þeir gera sér ljóst
að þrátt fyrir allt sem um Jeltsín má
segja þá er hann stjórnmálamaður
sem myndi vernda kosningarétt
þeirra meðan Zjúganov og fulltrúar
hans eru mennirnir sem líklegir eru
til að svipta þá réttinum. Þessi hóp-
ur kann að tryggja Jeltsín sigur,
einfaldlega vegna þess að af tvennu
illu munu þeir kjósa hann sem
skárri kost.
Snarað úr The Economist, KB.
50 deildir Rauða kross Islands
eiga fjóra af hverjum fimm
sjúkrabílum í landinu og árlega
eru nær 17 þúsund einstakl-
ingar fluttir í bifreiðum
deildanna.
Þúsund manna komu á nám-
skeið á vegum félagsins, flestir á
námskeið í skyndihjálp.
700 unglingar hafa dvalið í
Rauðakrosshúsinu - neyðar-
athvarfi fyrir börn og ung-
linga, og 34 þúsund manns
hafa hringt í trúnaðar-
símann - 800 5151.
Um 20 manns koma að
meðaltali á degi hverjum í Vin
- athvarf fyrir geðfatlaða.
Félagið hefur aðstoðað flótta-
menn hér á landi í áratugi.
Rauði kross íslands er helsti
styrktaraðili Alnæmissam-
takanna og styður við ýmsa
aðra starfsemi í þágu þeirra
sem minna mega sín.
Árlega dvelja um 800 manns
Ú; á Sjúkrahóteli RKÍ.
.og utan
Hjálparsjóður Rauða kross
íslands veitti 92 milljónum
króna til neyðar- og þróunar-
aðstoðar erlendis á síðasta
starfsári. Félagið svaraði
beiðnum um aðstoð frá
53 löndum.
Félagið stendur að þróunar-
verkefnum í Lesótó, Mós-
ambík, Gambíu og Palestinu.
Árlega eru um 20 sendi-
fulltrúar við margvísleg
hjálparstörf erlendis.
► Öskudagurinn er fjáröflunardagur
deilda Rauða kross íslands.
Þú getur lagt okkur lið með því
að kaupa penna í dag.
RAUÐI KROSS ISLANDS
Rauði kross fslands gegnir
mikilvægu hlutverki í skipulagi
Almannavarna ríkisins og á
síðasta ári veitti félagið tugum
fjölskyldna margs konar aðstoð
í kjölfar hörmulegra
náttúruhamfara.
við hjálpum
með þinni
lands
A plús, auglýsingastofa ehf.