Alþýðublaðið - 21.02.1996, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 1996
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
7
IKIUIIJBHllll
The Third Man 1943
„Á Ítalíu undir þijátfu ára stjóm Borg-
ia ættarinnar var stöðugur ófriður,
ógn, morð og blóðbað, en á sama tíma
áttu þeir Michelangelo, Leonardo Da
Vinci og endurreisnina. I Sviss ríkti
náungakærleikur, lýðræði og friður í
fimmhundruð ár - og hver var afrakst-
urinn? Gauksklukkan."
Orson Welles
They Drive by Night1340
„Trúir þú á ást við fyrstu sýn?“
„Hún sparar tíma.“
Ann Sheridan og George Raft
Angel Face 1353
„Veistu - þú ert verulega geðugur
strákur, af stelpu að vera.“
Robert Mitchum
Beware My Lovely 1332
„Ég hef ekki enn hitt þann hund
sem hefur kunnað vel við mig.“
Robert Ryan viö Ida Lupino
Ace in the Hole 1351
„Ég hef logið heilmikið á ævinni. Ég
hef logið að mönnum sem nota belti.
Ég hef logið að mönnum sem nota
axlabönd. En ég hef aldrei verið svo
heimskur að ljúga að mönnum sem
nota bæði belti og axlabönd.“
Kirk Douglas
The Big Sleep 1343
„Það skiptir mig engu þótt þér
líki ekki mannasiðir mínir. Mér líkar
þeir ekki heldur. Þeir em ansi slæmir.
Ég vola yfir þeim á löngum
vetrarkvöldum.“
Humphrey Bogart
við Laureen Bacall
■ Það voru Frakkar sem fundu upp nafnið,
film noir, sem þýðir einfaldlega svartar mynd-
ir. Það er notað um grein á meiði amerískra
kvikmynda sem gerðar voru á árabilinu 1940
til 1960. Sögusviðið er ólgandi hráslagaleg
stórborgin þar sem fátt er eins og sýnist; það
sést varla til sólar, um öngstrætin teygja sig
langir skuggar og inn í sálarfýlgsni söguper-
sónanna. Karlmenn eru oftar en ekki kaldham-
raðirtækifærissinnar í leit að skjótfengnum
gróða, löggur eru spilltar í gegn, en konur eru
viðsjárgripir. Sagan endaryfirleitt illa, það er
litla gleði að hafa eða ást: „Ef þú vilt ferskt loft,
ekki leita að
úr einni film noir myndinni. Hér á síðunni eru
heimfærð nokkur ummæli svipaðrar ættar.
Gilda 1346
„Tölfræði sýnir að konur
eru fjölmennari í heiminum en
nokkuð annað - nema skordýr."
Glenn Ford viö Ritu Hayworth
He Walked by Night1343
„Starfi lðgreglunnar, eins og starfi
kvenna, lýkur aldrei.
Þulur
High Sierra 1341
„Héyrðu, Vilma, langaði þig einhvem
tímann að fara umhverfis jörðina?"
„Umhverfis jörðina? Æ, ég veit ekki
hvort ég vildi það. Ég væri svo lengi
að komast til baka.“
Humphrey Bogart og Joan Leslie
The Enforcer 1351
„Ég? Ég gerði ekki neitt.
Ég drap engan. Ég keyrði bara
burt með líkið.“
Zero Mostel við Humphrey Bogart
ln a Lonely Place 1330
„Líturðu niður á allar konur, eða
einungis þær sem þú þekkir?"
Gloria Grahame viö Humphrey Bogart
Knock on Any Door 1343
„Lifðu hratt, deyðu ungur
og vertu fallegt lík.“
John Derek
The Maltese Falcon 1341
„Þegar þú ert laminn þá tekurðu
því og lætur þér líka það.“
Humphrey Bogart
Marked Woman 1337
,JÉg mun ná ffam hefndum,
jafnvel þó ég þurfi að skríða upp
úr gröfinni til þess.“
Bette Davis
The Manchurian
Candidate 1362
„Það er hræðilegt að hata móður sína.
En ég hef ekki alltaf hatað hana.
Þegar ég var bam var mér bara illa
við hana.“
Laurence Harvey við Frank Sinatra
Pitfall1343
„Þú ert einkennilegasti
eiginmaður sem ég hef átt.“
Jane Wyatt við Dick Powell
The Brothers Rico 1357
„Kannski er ég að deyja. Þín vanda-
mál em jafnvel enn meíri -þú lifir.“
James Darren viö Richard Conte
Casablanca 1342
„Ég kom til Casablanca
vegna vatnsins.“
„En við emm í miðri eyðimörk.
„Ég fékk rangar upplýsingar."
Humphrey Bogart og Claude Rains
Born to Kill1347
„Þú getur ekki gengið um og drepið
fólk hvenær sem þér dettur í hug.
Það er ekki viðeigandi.“
Elisha Cook Jr. við Lawrence Tierney
Dead Reckoning 1347
„Kannski var hún í lagi og kannski em
jólin í júlí. En ég trúði því ekki.“
Humphrey Bogart um Lizbeth Scott
Clash by Night1332
„Hvað viltu Joe, ævisögu mína?
Hér er hún í fjórum orðum:
stór áform, lítill árangur."
Barbara Stanwyck viö Keith Andes
Criss Cross 1343
„Eg hefði átt að vera betri vinur.
Ég hefði átt að stöðva þig. Ég hefði
átt að taka þig hálstaki. Eg hefði átt
að mola í þér tennumar.
Fyrirgefðu mér, Steve.“
Steve McNally við Burt Lancaster
Cry Danger 1331
„Drekkurðu þennan fjanda
svona snemma dags?“
„Heyrðu, elskan, sá sem drekkur eins
og ég verður að bytja snemma.“
Jean Porter og Richard Erdman
Detour 1343
„Svona er lífið. Hvert sem þú
snýrð þér þá teygja örlögin út fótinn
til að fella þig.“
Tom Neal
Fallen Angel1343
„Prófessor Madley er
gamall vinur minn.“
„Síðan hvenær?"
„Frá þeim gömlu góðu dögum.“
„Hversu gömlum?"
„Nógu göinlum til að hafa
verið góðir.“
Dana Andrews og Olin Howlin
His Kind of Woman 1331
„Ég var rétt um það bil að taka af mér
bindið og velti því fyrir mér hvort ég
ætti að hengja mig með því.“
Robert Mitchum
Hollow Triumph 1343
„Þú ert bitur, lítil dama.“
„Þetta er bitur, lítill heimur."
Paul Henreid og Joan Bennett
Impact1343
„Ég mun aldrei hugsa um samveru-
stundir okkar án þess að verða óglatt."
Brian Donlevy við Helen Walker
Shanghai Express 1332
„Það þurfti meira en
einn karlmann til að breyta nafni
mínu í Shanghai Lily.“
Marlene Dietrich
The Woman in
the Window 1343
„Hún hefur eitthvað á
samviskunni - en hvaða kona
hefur það svosem ekki?“
Raymond Massey um Joan Bennett
Key Largo 1348
„Það er betra að vera lifandi heigull
en dauð hetja.“
Claire Trevor
The Asphalt Jungle 1330
„Ef þú vilt ferskt loft, ekki leita
að því í þessurn bæ.“
Anthony Caruso