Alþýðublaðið - 19.03.1996, Blaðsíða 3
ÞRIÐJUDAGUR 19. MARS 1996
afnaðarmadurinn
B3
„Samband ungra
jafnaðarmanna hef-
ur ekki í langan
tíma verið jafn öfl-
ugt og áhrifamikið
innan Alþýðu-
flokksins. Þegar
við bætist að í
vændum eru kyn-
slóðaskipti í ís-
lenskum stjórnmál-
um og innan okkar
flokks ekki síður
en annarra er Ijóst
að unga fólkið hef-
ur til mikils að
vinna."
framkvæmd hennar var einmitt af
því fólki sem nú skipar sér í for-
ystusveit ungra jafnaðarmanna.
Þetta hefur ekki breyst. Samband
ungra jafnaðarmanna hefur ekki í
langan tíma verið jafn öflugt og
áhrifamikið innan Alþýðuflokks-
ins. Þegar við bætist að í vændum
eru kynslóðaskipti í íslenskum
stjórnmálum og innan okkar flokks
ekki síður en annarra er ljóst að
unga fólkið hefur til mikils að
vinna. Það unir illa smáflokkatil-
verunni. Það gerir þá kröfu að úr-
elt ágreiningsefni frá liðinni tíð
þvælist ekki lengur fyrir í samtím-
anum. Það gerir þá kröfu að úrelt
flokkakerfi sem endurspeglar lið-
inn veruleika, verði ekki lengur til
þess að þeir sem saman eiga nái
saman í öflugu og árangursríku
pólitísku starfi.
Flest bendir til þess að sú kyn-
slóð sem nú er að hasla sér völl
muni reynast andlega fullveðja og
sjálfstæð í afstöðu sinni. Ég held
að hún geti líka orðið gæfusöm og
grípur tækifærið og lætur að sér
kveða einarðlega á þeim tímamót-
um sem framundan eru. Persónu-
lega óska ég Sambandi ungra jafn-
aðarmanna og ungum jafnaðar-
mönnum velfarnaðar í sínu mikil-
væga starfi. ■
¥ið leitum að hugsuðum
;um
til að fást við hugbúnaðargerð
Við bjóðum:
• Tækniumhverfi sem spannar frá einmenningstölvu til ofurmiðlara.
• Spennandi og ögrandi verkefni, þar sem nýjustu tækni er beitt.
• Gæðakerfi sem stuðlar að öguðum og faglegum vinnubrögðum.
• Símenntun (ekki bara á ári símenntunar), líka á næsta ári og næsta...
/
• Anægjulegan og glaðværan fyrirtækjabrag.
Hæfniskröfur:
• Menntun: Tölvunarfræði, kerfisfræði, eðlisfræði, stærðfræði, verkfræði, tæknifræði,
viðskiptafræði eða önnur sambærileg menntun.
• Starfsreynsla er æskileg.
• Áhersla er lögð á skapandi hugsun, öguð vinnubrögð og góða framkomu.
Ef þessi lýsing á við þig þá hvetjum við þig til að sækja um fyrir 20. mars.
Nánari upplýsingar veita; Þorsteinn Garðarsson eða Pálmi Hinriksson.
Skriflegar umsóknir óskasf sendar ofanrituðum eða starfsmannastjóra.
Skýrr er öflugt og framsækið upplýsingafyrirtæki. Styrkur fyrirtækisins byggisf á áratuga reynslu
í að framleiða, þróa og reka stór upplýsingakerfi sem notuð eru á landsvísu (Landskerfi) og að dreifa
upplýsingum, þróa og reka margmiðlunarkerfin Ask og Upplýsingaheima. Áhersla er lögð á öguð
vinnubrögð, ánægjulegt samstarf og að ná árangri.
Þjúðbraut
Upplýsinga
Ármúla 2,108 Reykjavík, sími 569 5100, fax 569 5251