Alþýðublaðið - 19.03.1996, Síða 7

Alþýðublaðið - 19.03.1996, Síða 7
ÞRIÐJUDAGUR 19. MARS 1996 af naðarmaðurinn B7 Onefndur bæjarfulltrúi í Hafn- arfirði fór fyrir um áratug síðan með félögum sínum úr SUJ á ráðstefnu í Hróarskeldu í Dan- mörku. Þessi ágæti maður byrj- aði daginn í Keflavík klukkan sex að morgni á því að fá sér kaffi og koníak. í flugvélinni var svo hald- ið áfram, einnig á járnbrautar- stöðinni í Kaupmannahöfn og loks í lestinni til Hróarskeldu. Fé- lagarnir voru með miða á annað farrými en álpuðust til að koma sér fyrir á fyrsta farrými enda miklu þægilegra. Svo kom auð- vitað lestarvörður og ætlaði að láta þá færa sig en þá brugðu fé- lagarnir á það ráð að skilja ekki útlensku og bentu á tilvonandi bæjarfulltrúann sem þá var stein- sofnaður og sögðu „We don't understand sir and our tulk is de- ad". Þar með voru sætin tryggð. Hvort það er vegna þessara at- burða eða einhverra annarra, þá er það haft fyrir satt að sú regla hafi einhvern tímann verið tekin upp innan SUJ að þeir sem færu á ráðstefnur erlendis ættu að fara með skrifaða ræðu að heiman til þess að einhver annar gæti flutt hana ef ástand ræðumanns væri ekki nógu gott. Vestfjarðaferð ungra jafnaðar- manna haustið 1993 er á góðri leið með að verða einn sögufrægasti atburður í sögu SUJ. í þeirri ferð var bílstjóri Stefán Hrafn Hagalín, núverandi Morgunpóstsritstjóri, og minnast menn þess með skelfingu þegar hann keyrði Þorskafjarðarheiðina einsog um þriðju sérleið Þúsund vatna rallsins væri að ræða. Þeg- ar niður var komið spurði Sigurð- ur Pétursson þáverandi formaður Stefán hvort þetta hafi nú ekki verið full- hratt. Stef- án svaraði að bragði „Nei bless- aður vertu, ég hefði far- ið miklu hraðar ef bíllinn hefði ekki alltaf verið við það að velta". Sigurður keyrði svo sjálfur til Reykjavíkur og hefur aldrei stigið upp í bíl með Stefáni síðan. Onnur saga úr sömu ferð segir frá því að ferðafélagarnir hafi farið að skemmta sér á ísafirði. Eftir ballið ætluðu félagarnir að bjóða í partí og reyndu að sjálf- sögðu að fá tii sín stúlkur af staðnum en það gekk illa þar sem innfæddu piltarnir slógu hrein- lega skjaldborg utan um þaer stúlkur sem sýndu áhuga. Á end- anum fékkst þó ein til að koma og fannst félögunum að nokkur sigur á heimamönnum hefði unn- ist. Kom þá ekki einn úr stráka- hópnum og klappaði föðurlega á axlir ferðafélaganna og sagði „Strákar mínir, þið skuluð vara ykkur á þessari, þetta er hún Kitta klamedía". Segið svo að ísfirð- ingar hafi ekki örlitla sómatilfinn- ingu, allavega sýktist enginn í þessari ferð svo vitað sé. Fæstir vita hvernig Evrópu- stefna Alþýðuflokksins varð í raun og veru til. Það mun hafa verið þannig að á sambandsþingi SUJ í Hveragerði árið 1990 leidd- ist nokkrum drengjum svo mikið að þeir yfirgáfu þingið og fóru í sumarbústað í nágrenninu þar sem þeir hittu nokkra félaga sína. Þar á meðal var einn af helstu skósveinum Hannesar Hólm- steins Gissurarsonar og úr varð þessa nótt að hann samdi að mestu leyti Evrópuályktun SUJ þar sem þess var krafist að ísland sækti um aðild að Evrópusam- bandinu. Þessi ályktun var svo samþykkt daginn eftir á þinginu og þar með varð SUJ fyrst ís- lenskra stjórnmálasamtaka til að taka upp þessa stefnu. Enn í dag hefur þessi ágæti krati í sjálf- stæðisflokknum ekki fengið þessa stefnu samþykkta í sínum eigin flokki en Alþýðuflokkurinn hefur tekið þetta ágæta sumarbústaða- mál upp á arma sína þrátt fyrir rykugan uppruna. ratugum saman var það stefna SUJ að ganga úr NA- TÓ, ótrúlegt en satt. Það breyttist þegar ályktun var laumað í gegn fyrir nokkrum árum. Það var gert á þann hátt að SUJ lýsti stuðn- ingi sínum við þær alþjóðahreyf- ingar sem styddu frið og sam- vinnu þjóða í milli og var NATÓ í hópi þeirra samtaka sem lýst var yfir stuðningi við. Sú kenning er uppi að það að kalla NATÓ Atl- antshafsbandalagið hafi gert það að verkum að enginn hafi fattað hvað var að gerast fyrr en eftir á. Sigurður Pétursson, fyrrver- andi formaður SUJ byrjaði feril sinn í Alþýðuflokknum með ótrúlegum hætti. Hann var send- ur á ráðstefnu um verkalýðsmál í Finnlandi áður en hann hafði formlega gengið í flokkinn (eigin- lega af því að það nennti enginn annar að fara). Þarna átti svo að samþykkja ályktun um Eystra- saltsríkin og þar sem Sigurður var eini fulltrúi íslands var hann látinn lesa hana yfir. Hann var eðlilega óöruggur með þetta allt saman og faxaði því ályktunina til Jóns Baldvins sem síðan fax- aði hana til baka með hugmynd- um að breytingum. Þannig gekk um nokkra hríð og erfiðlega gekk að finna flöt á málinu og beið öll ráðstefnan eftir að niðurstaða fengist. Þá var ákveðið að skjóta málinu til toppanna og boðað til fundar á skrifstofu formanns jafn- aðarmannaflokksins í Finnlandi sem ku vera með glæsilegri skrif- stofum. Til þessa fundar voru boðaðir Ingvar Carlson frá Sví- þjóð, Sven Augen frá Danmörku, Paasio utanríkisráðhrra Finn- lands, utanríkisráðherra Noregs og Sigurður Pétursson. Saman tókst þeim að Ijúka málinu en að sögn Sigurðar er hann alls ekki viss um hvað fólst í þessari álykt- un en eftir þetta ákvað hann að ganga í Alþýðuflokkinn enda greinilegt að þar kemst maður í náið samband við heimsmálin. r Ibarnaafmæli nokkru fóru krakk- arnir að tala um pólitík og góð- ur krati var nálægt og varð vitni að eftirfarandi samtali fjögurra barna. Fyrsta barnið sagði „Pabbi minn er krati", þá sagði annað barnið „Pabbi minn er sjálfstæð- ismaður" og þriðja barnið sagði „Pabbi minn er áreiðanlega kommi". Fjórða barnið hugsaði sig um og sagði svo „Pabbi minn er málari". Hver sagði að krakkar hafi ekki vit á pólitík? Er ekki rétt að gefa ættingjunum frí ? - gisting hjá okkur kostar enga fyrirhöfn og er mun ódýrari en þig gæti grunað! Hverng væri að kynna sér kosti þess að gista á Scandic Hótel Esju næst þegar þið eigið leið til Reykjavíkur? Fyrsta flokks gisting á hagstæðu verði, úrvals veitingaaðstaða, margvísleg þjónusta og frábær staðsetning miðsvæðis í borginni. Athugið að nú bjóðast einstök gistikjör út marsmánuð: Tveir gista á verði eins og morgunmatur innifalinn!"' ‘Tilboð þf'.tw ct háð ákveónu Muttalli louíaa herbercjja hverju sinni. Er ekki tilvalið að gefa ættingjunum frí næst þegar þið komið til borgarinnar? Það kostar minna en þið haldið og er engin íyrirhöfn. SCANDIC S J A

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.