Alþýðublaðið - 22.03.1996, Qupperneq 4
4
ALÞÝÐUBLAÐK)
FOSTUDAGUR 22. MARS 1996
s k i I a b o ð
Félagsmálaráðuneytið
Ráðstefna um atvinnu-
mál kvenna haldin
föstudaginn 22. mars
1996, kl. 9.30-18.00
á Akureyri
Setning
Árni Gunnarsson aðstoðarmaður
féiagsmálaráðherra
Ávarp fulltrúa Akureyrarbæjar
Fyrirlesarar og umræðuefni:
Sérstakur opinber stuðningur við konur
í atvinnulífinu:
10.00-10.15 Ingibjörg Broddadóttir deildarstjóri í fé-
lagsmálaráðuneyti: Kvennasjóður félagsmála-
ráðuneytis.
10.15-10.30 Herdís Sæmundsdóttir formaður undir-
búningsnefndar um lánatiyggingasjóð: Lána-
tryggingasjóður kvenna á íslandi
10.30- 10.45 Sigurður Snævarr hagfræðingur á Þjóð-
hagsstofnun: Forréttindi eða jákvæð mismun-
un?
10.45- 11.10 Umræður og fyrirspurnir.
•• Ráðgjöf og átaksverkefni:
11.10- 11.25 Elsa Guðmundsdóttir atvinnuráðgjafi hjá
Fjórðungssambandi Vestfirðinga: Atvinnuráð-
gjöf til kvenna í þéttbýli og dreifbýli.
11.25-11.40 Hulda Ólafsdóttir varaformaður atvinnu-
málanefndar Reykjavíkurborgar: Reykjavíkur-
borg - atvinnumál kvenna.
,, X1,4Í);1^,0Q prnræður og fyrirsþurnir
12.00-13.30 Matarhlé
13.30- 13.45 Ávarp félagsmálaráðherra
Páls Péturssonar
Ný viðhorf gagnvart konum í atvinnulífinu:
13.45- 14.00 Hrafnhildur Sigurðardóttir útibússtjóri,
Landsbanka íslands:
Konur og karlar sem viðskiptamenn í bönkum.
14.00-14.15 Baldur Pétursson deildarstjóri í Iðnaðar- og
viðskiptaráðuneyti:
Átaksverkefni iðnaðarráðuneytis.
14.15r14.30 Ingunn St. Svavarsdóttir sveitarstjóri, Öx-
arfjarþarhreppi:
Micro Credit: Örlánastofnun.
14.30- 14.45 Sigmar B. Hauksson þjóðfélagsfræðingur:
Hugarfarsbreyting í atvinnumálum kvenna á lands-
byggðinni.
14.45- 15.10 Umræður og fyrirspurnir.
15.10- 15.40 Kaffihlé
Atvinnumál kvenna í dreifbýli
15.40- 15.55 Drífa Hjartardóttir formaður Kvenfélaga-
sambands Islands:
Atvinnumöguleikar og aðstæður kvenna á lands-
byggðinni.
15.55-16.10 Líneik Anna Sævarsdóttir endurmenntun-
arstjóri við Bændaskólann á Hvanneyri:
Símenntun og atvinnusköpun.
16.10- 16.35 Fyrirspurnir og umræður.
16.40- 18.00 Almennar umræður
Fundarstjóri: Elín Líndal formaður Jafnréttisráðs
Fundarritari: Elín Antonsdóttir atvinnuráðgjafi
hjá Iðnþróunarfélagi Eyjafjarðar.
Opið hús hjá Menntasmiðju kvenna
á Akureyri fyrir ráðstefnugesti.
Þátttökugjald er 1.000,-kr. og er matur
og kaffi innifalið.
Kaffiveitingar eru í boði Akureyrarbæjar.
Húsverndarsjóður
í apríl verður úthlutað lánum úr Húsverndarsjóði Reykja-
víkur. Hlutverk sjóðsins er að veita lán til viðgerða og
endurgerðar á húsnæði í Reykjavík sem hefur sérstakt
varðveislugildi af sögulegum eða byggingarsögulegum
ástæðum.
Umsóknum um lán úr sjóðnum skulu fylgja verklýsingar
á fyrirhuguðum framkvæmdum, kostnaðaráætlun,
teikningar og umsögn Árbæjarsafns.
Umsóknarfrestur ertil 26. mars 1996 og skal umsóknum
stíluðum á Umhverfismálaráð Reykjavíkur komið á skrif-
stofu Garðyrkjustjóra, Skúlatúni 2,105 Reykjavík.
Framboðsfrestur
Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjaratkvæða-
greiðslu í Verzlunarmannafélagi Reykjavíkur um full-
trúa á 38. þing Alþýðusambands íslands. Kjörnir
verða 65 fulltrúar og jafnmargir til vara.
Listar ásamt meðmælum 100 fullgildra félagsmanna
VR þurfa að hafa borist á skrifstofu Verzlunarmanna-
félags Reykjavíkur, Húsi verslunarinnar fyrir kl. 12:00
á hádegi mánudaginn 25. mars n.k.
Kjörstjórn"
Varnarmálaskrifstofa
utanríkisráðuneytisins
ur óskast
ff
VarnarmáTaskrifstofa utanríFisráðuneytisins óskar að
ráða löglærðan fulltrúa til starfa á varnarmálaskrif-
stofu í Reykjanesbæ.
Megin verkéfni fulltrúans yrði umsýsla málefna er
lúta að kaupskrárnefnd varnarsvæða og réttarstöðu
íslenskra starfsmanna varnarliðsins. Starfsmaðurinn
mun starfa í mjög nánu samstarfi við varnarliðið og
jafnframt sinna ýmsum öðrum málum fyrir varnar-
málaskrifstofu utanríkisráðuneytisins. Þekking á
vinnurétti er kostur og mjög góð kunnátta í ensku er
áskilin. Laun eru samkvæmt launakerfi starfsmanna
ríkisins.
Þess er óskað að umsóknir berist varnarmálaskrif-
stofu utanríkisráðuneytisins, Rauðárstíg 25, 150
Reykjavíkfyrir 12. apríl 1996.
Varnarmálaskrifstofa
utanríkisráðuneytisins
21. mars 1996."
Alþýðuflokksfélag Hafnarfjarðar - Fundaröð
Tvær þjóðir í einu landi
Ný sjálfstæðisbarátta
10. apríl - 30. apríl - 14. maí
Fundaröð um nýja sjálfstæðisbaráttu alþýðunnar gegn:
launamisrétti - eignaupptöku heimilanna - sjálfskömmt-
unarstefnu forréttindahópanna
Hefjum nýja sjálfstæðisbaráttu vinnandi stétta gegn eignaupp-
töku sjálfstæðra sjálfskömmtunaraðila og sjálfgræðismanna.
Hefjum baráttuna gegn blekkingunum - brengluðu verðmæta-
mati
Þjóðartekjurnar eru okkar -
Við vinnum verkin -
Hverjir skammta?
Hverjir skaffa? - Hverjir eyða? - Hvaðan kemur fjármagnið? -
Búa bankarnir til peningana? - Er mennt máttur? - Máttur
hverra? - Hver er hin þjóðin? - Hvað þarf margar vinnandi
hendurtil að halda uppi einum Pappírs-Pésa?
Hverjir gefa íslenskum aðli valdið?
Hverjir stjórna? - Hverjir eru að kvarta?
Launamál, húsnæðismál, heilbrigðismál, atvinnumál, sjávarút-
vegsmál, landbúnaðarmál, menntamál, mannréttindamál,
skattamál, ríkisfjármál, vaxtamál, umhverfismál, utanríkis-
mál,.................eru okkar velferðarmál.
Fundir á mannamáli fyrir þá sem vinna fyrir laununum
sínum.
Dagskrá auglýst síðar
■ I athyglisverðri ádrepu
ins, ástandið á stofnunim
isútvarpsins - Sjónvarpið
Hvert s
Síðastliðin tíu ár hafa verið ár örra
breytinga í sjónvarpsheiminum. Á
meðan að himinhvolfm eru að fyllast
af margs konar gervihnattarásum, sem
flestar dreifa auðmeltanlegu afþrey-
ingarefni til fólks og ýmsar innlendar
sjónvarpsstöðvar skjóta upp kollinum,
stendur Sjónvarpið álengdar og virðist
ekki geta ákveðið hvert stefna skal.
Annar fóturinn leitar á eftir keppinaut-
unum og reynir að fylgja í fótspor
þeirra, en hinn heldur fast við stefhuna
sem mörkuð var á fyrstu tuttugu árum
fyrirtækisins. Báðir fætur eru þó drag-
haltir vegna þess að heilinn virðist
ekki hafa fulla stjóm á þeim.
Eftir að Stöð 2 hóf göngu sína gerð-
ust ýmsar „róttækar" nýjungar sem ís-
lenskir sjónvarpsáhorfendur áttu ekki
að venjast. Nú var í fyrsta sinn hægt
að horfa á sjónvarp á fimmtudags-
kvöldum og bömin fengu líka heil-
mikið að horfa á laugardags- og
sunnudagsmorgna. Fréttatfminn hefð-
bundni tók á sig nýjar myndir og dag-
skráin lengdist verulega. Með reglu-
bundnu millibili hrfslaðist ónotalegur
hrollur um máttarstólpa Sjónvarpsins,
sem reyndi þó af fremsta megni að
láta ekki sitt eftir liggja. Því miður
hafa viðbrögðin oft einkennst af
taugaveiklun og eftiröpun, í stað þess
að svara með einhveiju frumlegu og
vel úthugsuðu, sem toppað gæti uppá-
tæki keppinautarins.
Lenging dagskrárinnar hefúr einnig
reynst Sjónvarpinu stór biti að kyngja
og hefur það bitnað mikið á gæðum
efnisins. Sumt af því erlenda efhi sem
verið er að sýna er afleitt og ætti aldrei
að sjást í dagskrá metnaðarfullrar
sjónvarpsstöðvar. Dæmi um það er
flokkurinn Leiðarljós, sem kominn er
á fjórða hundrað þætti, svo og ýmsar
bíómyndir sem sýndar hafa verið á
besta útsendingartíma, flestum áhorf-
endum til mikillar armæðu.
Ein vika í Sjónvarpinu
Ef litið er á innlenda dagskrárhði er
þvf miður fremur fátt um feita bita.
Flestir þeirra eru ódýrir, fjöldafram-
leiddir og rútínubundnir þættir, sem
gera lítið til að gleðja augu og eyru.
Við skulum líta á vikuna 16. til 22.
febrúar að sleppmm fféttum, dagsljós-
um, íþróttum, auglýsingum, útsend-
ingum ffá Alþingi og öllum endursýn-
ingum.
„Annar fóturinn leitar á eftir
keppinautunum og reynir að
fylgja í fótspor þeirra, en hinr
heldur fast við stefnuna sem
mörkuð var á fyrstu tuttugu
árum fyrirtækisins. Báðir fæt-
ur eru þó draghaltir vegna
þess að heilinn virðist ekki
hafa fulla stjórn á þeim."
Föstudagurinn býður upp á Happ í
hendi með Hemma Gunn. Þátturinn er
sambland af spumingakeppni, happ-
drætti, auglýsingum og Hemma sjálf-
um, sem flestir eru búnir að fá upp í
kok af. Afar ómerkilegt sjónvarpsefni
á besta tíma.
Laugardagurinn er örlítið skárri þar
sem Enn ein stöð er send út. Þættimir
ættu að vera skemmtilegir, en em það
sjaldnast, því að hugmyndin er gömul
og þurrausin og efnið er hraðsoðið,
unnið í flýti á föstudegi og laugardegi
Og sent út þá um kvöldið.
Sunnudagurinn er með skárra móti,
Á biblíuslóðum með biskupnum um-
deilda, Stundin okkar og Píla, spum-
ingaþáttur fyrir börn, sem líkt og
Happ í hendi er dulbúin auglýsing fyr-
ir ýmsar verslanir og fýrirtæki. Þáð er
lágkúralegt og langt fyrir neðan virð-
ingu Sjónvarpsins, sem samkvæmt út-
varpslögum á að gæta óhlutdrægni og
leggja rækt við íslenska menningararf-
leifð, að blanda saman auglýsingum
og innlendu dagskrárefhi.
Eftir kvöldfréttir er boðið upp á
t