Alþýðublaðið - 29.03.1996, Page 2

Alþýðublaðið - 29.03.1996, Page 2
2 ALÞÝÐUBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 29. MARS 1996 s k o ð a n uHmun 21090. tölublað Hverfisgötu 8-10 Reykjavík Sími 562 5566 Útgefandi Alprent Ritstjóri Hrafn Jökulsson Umbrot Gagarín hf. Prentun ísafoldarprentsmiðjan hf. Ritstjórn, auglýsingar og dreifing Sími 562 5566 Fax 562 9244 Símboði auglýsinga 846 3332 Áskriftarverð kr. 1.500 m/vsk á mánuði. Verð í lausasölu kr. 100 m/vsk Almannatryggingar í 60 ár Á mánudaginn, 1. apríl, eru liðin sextíu ár frá því lög um almanna- tryggingar tóku gildi á Islandi, eða alþýðutryggingar eins og það var þá kallað. Sama dag var Tiyggingastofnun ríkisins sett á stofn. Mál- ið er Alþýðublaðinu skylt. Það voru Alþýðuflokksmenn sem harðast börðust fyrir þessu stóra framfaramáli og það var í Alþýðuhúsinu, þar sem Alþýðublaðið hefur ritstjóm sína, að Tryggingastofnun var fyrst til húsa. Engan sem hefur alið aldur sinn í velferðarríkinu Islandi getur ór- að fyrir hvílík gerbreyting á högum alþýðufólks almannatrygginga- lögin voru. Þetta var í miðri kreppunni, tími niðursetninga og hreppaflutninga var tæpast liðinn, en hér sat stórhuga ríkisstjóm Al- þýðuflokks og Framsóknarflokks sem fékk heitið „stjóm hinna vinn- andi stétta“ og bar það með sæmd. Ráðherramir vom ungir og djarf- ir menn; Alþýðuflokksmenn höfðu barist fyrir þessu helsta stefnu- máli sínu á þingi hátt í áratug, en það var ekki fyrr en þeir eignuðust fyrsta ráðherra sinn, Harald Guðmundsson atvinnumálaráðhenra, að málið komst í höfn, sjö ámm eftir að hann hafði fyrst flutt fmmvarp um almannaöyggingar. Haraldur varð síðar forstjóri Tryggingastofn- unar ríkisins og gegndi þeirri stöðu frá 1938 til 1957. Honum hæfir, að öðmm ólöstuðum, sérstakt heiðursæti í sögu almannatrygginga á íslandi. Hveiju breyttu þessi nýju lög fyrir alþýðu manna? Því er kannski best svarað með orðum dr. Bjama Jónssonar, sem starfaði sem lækn- ir frá því árið 1936 og allt ftam á þetta ár. í viðtali í 60 ára afmælis- riti Tryggingastofnunar segir hann: „Lögin komu eins og sending af himnum ofan fyrir fátækt fólk. Almenningur gat allt í einu leyft sér að leggjast inn á sjúkrahús, án þess að verða öreigar. Fólk þurfti ekki lengur að hika við að fara í bráðnauðsynlegar aðgerðir og það gat í fyrsta sinn hiklaust leitað til læknis hvenær sem var.“ Þrátt fyrir ramma andstöðu íhaldsafla í öndverðu þykir núoiðið flestum að almannatryggingar séu sjálfsagður hlutur. Umfang þeirra er hins vegar mál sem sífþllt hlýtur að vera í brennidepli. Velferðar- kerfíð, eins og flest önnur kerfí, felur í sér innbyggða tilhneigingu til vaxtar. Það kostar alltaf meira og meira fé. Ekki aðeins vegna þess að réttindi samkvæmt því verða æ yfirgripsmeiri, heldur líka vegna þess að öldmðum og öryrkjum fjölgar stöðugt. Læknavísindin verða aukin heldur æ fullkomnari og alltaf koma ffam ný lyf og ný tæki sem borga þarf af sjúkratryggingum. Auðvelt væri að nota ekki ein- ungis 22,8 prósent af fjárlögum í almannatryggingar, eins og gert er ráð fyrir árið 1996, heldur megnið af fjárlögunum eða kannski þau öll. Á undanfömum ámm hefur orðið ljóst hversu þróun í þá átt er varhugaverð, ekki aðeins á íslandi heldur einnig í öðmm velferðar- ríkjum. Af þessum sökum hefur þurft að spara í velferðarkerfinu. Skera niður og veita minna fé til almannatrygginga. Því miður hefur sú viðleitni alltof oft einkennst af því að rokið er upp með látum þegar setja þarf saman fjárlög, skorið niður hér, afnumin greiðsla þar, allt án nokkurrar heildarsýnar. Árangurinn hefur orðið sá að almanna- tryggingalögin hafa orðið flóknari og flóknari með hveiju árinu sem liðið hefur. Það væri mikið þarfaverk að einfalda þau. Forsenda þess er að menn reyni að gera sér skýra grein fyrir því hvert markmið al- mannaöygginganna á að vera. Eiga þær að vera fyrir alla, án tillits til aðstæðna og efnahags, eða eiga þær fýrst og fremst að hjálpa þeim sem mest em hjálparþurfi? Það er brýnt að hugleiða í alvöru og með rósemd hugans hver eigi að vera framtíðarstefha íslenskra almanna- trygginga. Að því loknu ætti að vera kleift að setja saman ffumvarp um almannatryggingar sem nauðsynleg sátt væri um. Því eins og Karl Steinar Guðnason, forstjóri Tryggingastofnunar ríkisins, segir í viðtali í Alþýðublaðinu í dag: „Almannatryggingalög em aldrei full- samin. Þau verða að taka mið af aðstæðum og breytast í takt við lif- andi samfélag.“ Og ennfremur segir Karl Steinar, og það er mergurinn málsins á þessum tímamótum: „í almannatryggingum felst viðhorf byggt á hugsjón um mannréttindi og betra Iíf öllum til handa. Þeirri hugsjón þurfum við að hlúa að.“ ■ Portrait of the Artist as a Wrong Man Af hverju vakna ég ekki klukkan sjö á morgnana eins og HKL? Þetta hljómar eins og flugfélag. HKL. KLM. Helvítis HKL. Sífellt að ijúfa þjóðmúrinn yfir höfðum okkar. 500 blaðsíðna breiðþotur hans enn í áætl- unarflugi milli landa, milli manna. Og við öll hin bara að reyna að skrúfa þennan eina hreyfil á tvívængjuna. Þegar maður stendur upp og labbar útaf Sólon kemur maður allt í einu út á gatnamótin á rue Madagascar og rue des Jardiniers. Það þekkir mann eng- inn. Gallinn við útlönd er sá að það þekkir mann enginn. Kosturinn við út- lönd er sá að það þekkir mann enginn. Þetta mun vera í tólfta hverfi. f París hríðfellur greindarvísitalan eftir því sem í úthverfin dregur. Hæst er hún þó í fyrsta hverfi. Svo lekur hún smám saman niður í það tuttugasta. It’s a long way. To Tipparery. Steinn Stein- arr er steinninn á leiði íslenskrar nú- tímaljóðlistar. Eg geng upp rue des Jardiniers. Miðja vegu leggur kona bíl. Hún bakkar honum inní þröngt stæði. Frakkar leggja bílum eins og þeir heilsa fólki. Tveir kossar á hvom stuðara, á bflnum íyrir aftan og þeim fyrir framan. Puðjór heitir bíllinn. Pégút var hann kallaður þegar Trausti var að kenna og við áttum heima á Háaleitisbraut 18. Eftir kennslu sat Vikupiltar | Hallgrímur Helgason skrifar hann stundum lengi í bflnum fyrir ut- an blokkina. Hvað var Trausti að hugsa þá? Ég spyr. Svo fór hann út og setti svartan borða yfir kennslubiffeið- ar-merkið. Trausti. Ég fæ 10.000 fyrir þessa grein. Ekkert fyrir myndina. Á íslandi er borgað samkvæmt lesmáli. Á sunnu- daginn kom fax ffá auglýsingastofu á Fróni. Þeir báðu mig um að semja fjórar kexauglýsingar. Samdi HKL einhverntíma kexauglýsingar? Ég sagði jú jú. Hann hefði sagt sei sei jú, mikil ósköp. f símann sagði hún hins- vegar að Séra Bplii væri búinn að leysa Langhöltskirkjudeiluna. Af stakri snilld. Með einföldu handa- bandi. Kirkjunnár ménn. Af hverju vakna ég ekki klukkan sjö á morgnana eins og HKL? Ætli það sé ekki eitthvað í sambandi við aldur lýðveldisins? Menn voru svo æstir í byrjun aldarinnar. Allur þessi rembingur. Allir-beinir-í-baki- stemmning. Og með slaufu. Þessi óendanlega tilgerð í Kiljan, eins og Haukur segir. Maður sem gat ekki einu sinni skrifað „vínarbrauð“ án þess að vera með stæla. „Vínirbrauð". Og þó. Það bragðast jú öðruvísi, við lestur. Mikil ósköp. Greindarvísitalan hér í tólfta hveríi er greinilega nokkuð undir meðallagi. Ég meina. Hér sér maður konur á stuttum leðurpilsum sem ganga hart og hratt á ódýrum pinnahælum, svo þeir beyglast aðeins undan þeim í hverju skrefi. Þær eru með óþvegið hár og málaðar í flýti, með hunda í bandi og hnerra oní barminn þegar þær strunsa framhjá manni. Konur sem hnerra. Jessörí. Var Steinn ekki líka haltur? Eða var hann bara haltur í höndunum? Af hverju skrifar enginn bókmenntafræunginn um það? „Heltin í rithönd Steins Steinarr.“ f stórborg- um býr besta fólkið í miðbænum og síðan á ystu rönd úthverfanna. Stór- borgir eru eins og góð og blóðug steik. Best utan á og innst í rauðum kjama. Nú þorir hér enginn lengur að fá sér kjöt. Frakkar óttast nú ekkert meir en BBB (brjálaða breska beljan). Hún hefur enn ekki náðst á mynd. Og Birg- itt Bardot ekki enn búin að koma henni inn á geðdeild. Bretar eru brjál- aðir útaf þessu. Keith Richards var einfari í æsku. „Þið getið ekki ímynd- að ykkur hverskonar tussu ég hef þurft að vinna með í tuttugu ár,“ sagði hann um Jagger. Spurning hvað það var sem Illuti breytti í „tussu“ Ég er ekki eins hræddur við BBB og frakkarnir. Ég panta mér „steik frítt“ (steik og franskar) inná portú- gölskum fótboltabar á hominu á me des Jardiniers og me Charenton. Sú síðamefhda mun liggja beina leið útá geðveikrahælið í Charenton, þar sem vistmenn settu eitt sinn upp ;,Sade greifa“. Ég sá myndina ásamt Ásgeiri Asgeirssyni sagnfræðingi í London ár- ið 1979. Sonur Geirs Hallgrímssonar vildi ekki koma með. Fór heim að lesa. „Sonur Geirs Hallgrímssonar”. Það var þegar það var eitthvað. Ég sofnaði í bíó. Af hverju vakna ég ekki klukkan sjö á morgnana eins og HKL? Ætli það sé ekki eitthvað í sambandi við innspírasjónina? Fyrr á öldinni var best að ná sendingunum að ofan á morgnana. Svo var farið að hringla með tímann og ósonlagið tók að þynn- ast. Kraftbirtingarhljómurinn er betri á kvöldin núna. Nema Vilhjálmur Egils- son fái sitt í gegn. Mig dreymdi HKL í fyrrinótt. Hann kom gangandi á móti mér á blautum moldvegi, tuttugu og tveggja ára, með hatt, í frakka og reiddií hjólhest. Hann var:í svarthvítu. Ég var í lit. „Hvumig talar maður við skáld?“ spurði hann og fór svoað tala um „Ásu Sólveigu“. i.Hún var mér eldri kona sem hafði mikil áhrif á mig- Ég notaði hana í skáldsögu." „Þú meinar Ástu Sóllilju?“ hváði ég. „Nei, Ásu Sólveigu," svaraði hann. Alltaf sama snilldin útúr honum. Ég borða með portúgölskum verka- mönnum með franskt sigg í lófum. Ég skil ekkert í þeim. Það hanga Benfica- treflar uppá vegg. Landsleikur í sjón- varpinu, Italía-Portúgal. Italir eru mun meira með boltann. Portúgalskur þul- urinn bregst við með því að þegja í tuttugu mínútur. I símann sagðist hún vera að leika í hollenskri bíómynd. Var ekki viss hvenær hún ætlaði aftur til New York. Svertingjum líður betur í Evrópu en Bandaríkjunum. Portúgal- HH 18 3 ‘11 „Af hverju vakna ég ekki klukkan sjö á morgnana eins og HKL? Er ég kannski vakandi á vitlausum tíma? Er ég kannski uppi á röngum tíma? Ég er rangur maður á röngum tíma. Ég er meira að segja f vit- lausri borg. Eftir portúgalið kjötið haltra ég niður rue des Jardiniers og geng svo áfrahi eitt- hvað um hverfið, ; i leit að Haðarstíg." ir eru einhvemveginn hijáðii" á svip. Af hverju vakna ég ekki klukkan sjö á morgnana eins og HKL? Er ég kannski vakandi á vitlausum tíma? Er ég kannski uppi á röngum tíma? Ég er rangur maður á röngum tíma. Ég er meira að segja í vitlausri borg. Eftir portúgalið kjötið haltra ég niður rue des Jardiniers og geng svo áfram eitt- hvað um hverfið, í leit að Haðarstíg. Ég sofna klukkan tvö útfrá Keith Richards. Svo vakna ég klukkan sjö undan vælinu í helvítinu honum HKL. „Sei sei jú, sei sei jú...“ Ég meina. Ég fæ ekki frið fyrir honum. Láxins lax- ins hvað ha? Þegi þú þama! Yfirleitt næ ég að stinga upp í hann vínirbrauði svo hann þegir þá allavega til tíu. 2 9 . m a r s Atburðir dagsins 1787 Jón Eiríksson konferens- ráð andast með sviplegum hætti í Kaupmannahöfn, 59 ára að aldri. 1792 Gústaf III konungur Svíþjóðar skotinn til bana á grímudansleik. 1871 Viktoría drottning opnar the Royal Al- bert Hall í London. 1886 Nýr gosdrykkur, Coca-Cola, boðinn til sölu í Atlanta í Georgfu. Framleiðandi hans Dr. John Pemberton segir drykkinn Iækna allt frá móðursýki til venjulegs kvefs. Drykkurinn er framleiddur samkvæmt leyni- legri uppskrift, en inniheídur meðal annars koffein úr coca- hnetum og litarefni sem unnið er úr cocalaufum. Búist er við að drykkurinn muni eiga í harðri samkepnni við aðra svip- aða svo sem ímperial Inca Cola. 1947 Heklugos hefst en nær 102 ár eru síðan síðast gaus. Gosið stóð fram í apríl 1948. Afmælisbörn dagsins Elihu Thomson 1853, stofnaði General Electric Company með Thomas Edison. William Walton 1902, breskt tónskáld. Pearl Bailey 1918, bandarísk blökkusöngkona. Annáisbrot dagsins En af Vestfjörðum er satt talað og skrifað: Einn vinnumaður fór í kolaskóg, og færði hönum skattinn sonur húsbónda hans, sem var piltur tólf vetra gamall. En þar eftir sama dags færði þeim báðum vinnustúlka mið- dagsverð. Var þá pilturinn dauður, skorinn á háls. Maður- inn var síðar náður og drepinn, meðgekk sitt vont verk, sem orsakazt hefði af órum. Sögðu menn, að þessi morðingi hefði til þess dags sá prúðlyndasti maður haldinn verið af alþýðu- fólki. Hunvetnskur annáll 1773 Tilvitnun dagsins Satt er það mælt er, lengi skal manninn reyna. Þorfinnur Kárason Máisháttur dagsins Betra er að vera bljúgur en blygðunarlaus. Orð dagsins Hún berdjúpsins hall í augum. hár er blakkt sem mararþang. Logn eryfir brúnabaugum, brjóstið hvikt sem öldufang. Hún er sveipuð sorta og bjanna, situr yzl við stígamól, dóttir nautna og dimmra harma, - ' drifltrein, fallin sorgarsnót. Einar Benediktsson Skák dagsins Gata Kamsky er liðlega tví- tugur Rússi sem bað um pólit- ískt hæli í Bandaríkjunum, löngu eftir að allir gátu yfirgef- ið Sovétríkin sem vildu. Hann er sérvitur. ókurteis og óaðlað- andi í alla staði enda alinn upp af föður sínum, sem er fyrrum boxari og þorpari. Kamsky- feðgar eru knúnir áfram af fé- græðgi og kom ekki á óvart að þeir þekktust boð Saddams Hússeins um að tefla heims- meistaraeinvígi við hinn álíka siðlausa Anatoly Karpov í ír- ak. En í skák dagsins hefur Kamsky hvíll gegn Milos, sem á góðum degi er glúrinn skák- maður. Kamsky hefur svart og ftnnur leið til að vinna heilan mann. Svartur leikur og vinnur mann. 1. ... Bxe2 Hvítur gafst upp; samanber: 1. ... Hxe2 2. Da6 og annaðhvort hvíti biskupinn eða hrókurinn falla í valinn.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.