Alþýðublaðið - 29.03.1996, Qupperneq 3

Alþýðublaðið - 29.03.1996, Qupperneq 3
FOSTUDAGUR 29. MARS 1996 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3 s k o ð a n i r Hjartað og heilinn Á meðan allt logar í illdeilum innan Alþýðuflokksins, hvernig er þá hægt að sameinast öðrum flokkum? Fyrst verður madur að elska sjálf- an sig til að geta elskað aðra. Stundum virðist sem menn hafi gleymt jafnvæginu milli hjartans og heilans og láta hjartað gjörsamlega ráða ferðinni. Slíkt leiðir bara til eins: hjartað springur af ofreynslu. Það er rúmt ár frá inngöngu minni í Alþýðuflokkinn. Þetta eru því hálf- gerð áramót hjá mér og hollt að líta yfir farinn veg og athuga hvað er framundan. Persónuleg kynni mín af flokknum eru eingöngu af hinu góða svo og öll kynni mín af fólki innan hans. Pallborðið | Það er sjaldan sem ég hef verið boðið jafn velkomin í nýjan hóp og þeir SUJ-arar sem ég hef kynnst eru einstakir í sinni röð. En enginn starf- ar í stjómmálaflokki eingöngu til að kynnast fólki þó gott sé. Stefnumál flokksins em skýr og að mínu mati hefur þingflokkurinn staðið sig vel í stjórnarandstöðu og haldið fast við sína stefnu. Það er þó ekki hægt að segja að lognmolla ríki í flokknum. Æsifréttir af deilum innan flokksins hef ég ekki getað skilið og sýnist oft sem menn láti tilfinningarnar hlaupa með sig í gönur. En er þetta ekki einmitt ástæðan fyrir því að jafnaðarmenn geta ekki sameinast? Á meðan allt logar í illdeilum innan Alþýðu- flokksins, hvernig er þá hægt að sameinast öðrum flokkum? Fyrst verður maður að elska sjálfan sig til að geta elskað aðra. Stundum virðist sem menn hafi gleymt jafnvæginu milli hjartans og heilans og láta hjartað gjörsamlega ráða ferðinni. Slíkt leiðir bara til eins: hjartað springur af offeynslu. Allt er þó breytingum háð og blik- ur eru á'lofti um að kynslóðaskipti eigi sér stað innan flokksins. Að undanförnu hafa ungliðarnir í flokknum viljað láta til sín taka á breiðari grundvelli en innan SUJ og trúi ég því að það geti orðið flokkn- um til góðs. Flokkurinn endumýjast ekki nema ungt fólk komi til starfa og sé treyst fyrir ákveðnum verkefn- um. Sem dæmi má nefna að stjóm Alþýðuflokksfélags Reykjavíkur samanstendur nú að miklu leyti af ungliðum og í síðustu viku var stjóm Alþýðufloksfélags Kópavogs kjörin. Þar em ungliðar 3 af 7 stjómarmönn- um. Þessi breyting á þó eflaust ekki eftir að ganga átakalaust fyrir sig. Sumir em hræddir yftr því að missa áhrif og völd, sjá plott í hvetju homi og gleyma hvers vegna menn starfa í pólitík með þá hugsjón að gera heiminn eilítið betri en hann er, með þá von að ísland verði ennþá betra í framtíðinni. Alþýðuflokkurinn á að vera vettvangur fyrir slíkt fólk til að starfa. Það er einlæg von mín að við unga fólkið getum starfað saman innan flokksins, lagt til nýjar hug- myndir en gleymum ekki reynslu sem hefur áunnist á 80 ára líftíma og læmm jafnframt af mistökum hinna eldri. Höldum jafnvægi milli hjartans og heilans. JÓN Ó S K A R v i t i m e n n Valdimar varð afskaplega reiður og daginn eftir hringdi hann í mig og sagði að ég hefði ekkert leyfi til að segja honum sem fyrirliða liðsins hvernig hann ætti að haga sér í keppninni. Anna Margrét Magnúsdóttir fyrrverandi keppandi í spurningakeppninni Kontara- punktur. Helgarpósturinn í gær. Það er ekki upp úr vandræðum eða leiðindum sem ég fer fram. Guörún Agnarsdóttir forsetaframbjóöandi. Helgarpósturinn í gær. Hlusti menn grannt á nið þjóðarsuðsins má greina r Iröðum áhugamanna um póiítík gætir nú vaxandi efasemda um að Davíð Oddsson forsætisráðherra muni gefa kost á sér í kom- andi forsetakjöri. Hafa menn þar til marks að Ólaf- ur Ragnar Grímsson hef- ur nú tilkynnt framboð sitt. Alþýðublaðið hefur heyrt það álit innan úr röðum sjálfstæðismanna að Davíð muni ekki fara fram gegn Ólafi heldur treysta á fjand- vinursinn gamli muni sigra Guðrúnu Pétursdóttur og koma þannig í veg fyrir að tveir helstu andstæðingar Davíðs þau Guðrún Pé og Þorsteinn Pálsson hafi sigur í þessu stríði. Ólafur upplýsti raunar á blaða- mannafundi í gær að menn úr Sjálfstæðisflokknum hefðu orðið til þess að hvetja sig til framboðs. Og nú spyrja menn - var það Davíð?.. Og meira um framboð Ólafs Ragnars. Hann þykir glúrinn kosningamað- ur og menn eru eðlilega farnir að velta fyrir sér hver muni stýra kosningabaráttu hans. Heyrst hefur að þar séu tvö nöfn efst á lista: Náttúrlega Einar Karl Har- aldsson sem hefur sagt upp starfi sínu sem fram- kvæmdastjóri Alþýðu- bandalagsins, náinn sam- starfsmaður Ólafs Ragnars til margra ára og þaul- reyndur kosningastjóri. Margir stuðningsmenn Ól- afs munu þess hins vegar fýsandi að kynningarstjóri íslands, Jón Hákon Magn- ússon, verði fenginn til verksins. Benda þeir hinir sömu á að það sé mun snjallara fyrir Ólaf að fá þekktan sjálstæðismann til að vera í forsvari fyrir bar- áttunni og reyna þannig að þvo af sér Alþýðubanda- lagsstimpilinn... að vakti athygli að sjálf- stæðismenn í borginni vöknuðu af sínum Þyrnirós- arsvefni síðastliðinn mið- vikudag og efndu til blaða- mannafundar um framtíð- arsýn sína í málefnum borgarinnar. Fátt var mark- vert af þeim fundi að frétta og heyrst hefur að misjöfn ánægja ríki innan sjálfstæð- isflokksins með þetta fram- tak. Þar á bæ segja menn að þetta upphlaup sé alfar- ið runnið undan rifjum Árna Sigfússonar sem vilji með þessu freista þess að treysta veika stöðu sína sem oddviti sjálfstæðis- manna í borginni... Eins og segir í Alþýðu- blaðinu í dag hefur Guð- rún Pétursdóttir fram- bjóðandi ráðið sér kosn- ingastjóra, þau Þórunni Sigurðardóttur leikstjóra og Bjarna Þórð Bjarnason verkfræðing. Þykir þetta nokkuð klókur leikur hjá Guðrúnu, því þau koma hvort úr sínum herbúðun- um: Þórunn var virk í starfi Alþýðubandalagsins þartil nýskeð en Bjarni er ein- dreginn sjálfstæðismaður... “FarSido" eftir Gary Larson Þingið tókst vel að öllu leyti nema því að örlítil spenna greip um sig á lokakvöldinu vegna þess - sem ekki var hægt að sjá fyrir - að allar mættu þær í eins kjólum. fimm á förnum vegi Ætlar þú að kjósa Ólaf Ragnar Grímsson sem forseta íslands? Hafþór Hafsteinsson nemi: Nei, minn frambjóðandi er Guðrún Pétirrsdóttir. María Björg Sigurðardótt- ir nemi: Nei, það ætla ég ekki að gera. Guðrún Ragna Garðars- dóttir nemi: Nei, ég hef ann- an í huga. i\ Kristín Jónsdóttir kennari: Ég ætla að kjósa Njörð P. Njarðvfk ef hann býður sig fram. Annars kemur Ólafur Ragnar til greina. Kristín Sigurðardóttir hús- móðir: Það fer eftir því hvaða aðrir valkostir bjóðast. þar út, að þjóðfélagið hvíli á tveimur stofnunum; kirkjunni og hjónabandinu, og aðeins sé til eitt heilbrigt form fjölskyldu, sem beri að verja hvað sem á gengur: karl og kona plús tvö ljóshærð börn. Stefón Hrafn Hagalín i leiðara Helgarpóstsins í gær. Stærð þorsksins þýðir, að miklu færri físka þarf í hvert tonn og segja sjómenn algengt, að aðeins 100 þorska þurfí til þess. Forystugrein Morgunblaðsins í gær. Fiskur úr sjó við íslandsstrendur er góð vara. Þess vegna gengur okkur vel að selja hana. Jónas Haraldsson í leiðara DV í gær. fréttasUot úr fortíð Hestar gúmmískeifur Skósmiður einn í Prag hefir tekið upp á því að búa til gúmmískeifur á hesta. Hann heldur því fram, að hestar, sem látnir eru ganga á þessum skeifum, geti ekki runnið á hálku. Gúmmískeifumar duga tíu sinnum lengur en venjulegar skeifur. Alþýöublaðið jólablað 1934

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.