Alþýðublaðið - 29.03.1996, Side 7
FOSTUDAGUR 29. MARS 1996
V
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
7
í almannatryggingum felst viðhorf byggt
á hugsjón um mannréttindi og betra líf öllum til handa.
Þeirri hugsjón þurfum við að hlúa að.
kcert til Samkeppnisráðs. Hvers vegna
var ákveðið að hafa þessi útboð og er
œtlunin að halda áfram á þeirri
braut?
„Við völdum að hafa útboð á ýms-
um þáttum í starfsemi okkar til þess
að geta náð niður kostnaði. Svo einfalt
er það. Lagt hefur verið að okkur að
spara á öllum sviðum. Þama sáum við
leið til þess að spara án þess að það
bitnaði á sjúkum og fötluðum. Einn
framleiðandi hjálpartækja kærði okkur
til Samkeppnisráðs og vildi láta banna
okkur að vera með útboð. Samkeppn-
isstofirun kvaðst hafa gefið okkur gula
spjaldið. Því var áfrýjað og gula
spjaldið var rifið. Við höfum boðið út
hjálpartæki innan alls Evrópska efna-
hagssvæðisins, enda er markaðurinn
orðinn svo miklu stærri heldur en bara
Island.”
Segulómtœki sem nokkrir sérfrœð-
ingar hér í bœ festu kaup á nýlega hef-
ur verið nokkuð í fréttum nýlega, þar
sem Tryggingastofnun hefur neitað að
taka þátt í kostnaði vegna notkun
þess. Hvers vegna?
„Þetta er spuming um grundvallar-
atriði varðandi kostnað og fjárútlát al-
mannatrygginga. Er eðlilegt að ein-
hverjir menn úti í bæ geti keypt tæki
og byrjað að senda reikninga á rikið,
án þess að haft sé nokkuð samráð?
Slrkt gengur auðvitað ekki, ef kostn-
aður sjúkratrygginga á ekki að fara úr
öllum böndum. í þessu sambandi er
rétt að fram komi að nú er enginn
biðlisti í að konrast í myndatöku t
samsvarandi tæki sem til er á Land-
spítalanum.”
Nú hafa orðið talsverðar skipulags-
breytingar, einstakar stöður og jafnvel
heilu deildimar hafa verið lagðar nið-
ur. Hver er tilgangurinn og hvemig
hefur þetta gengið?
,Jú, það er rétt. Undanfarin tvö ár
höfum við verið að hagræða, endur-
nýja og breyta ýmsu í áherslum stofn-
unarinnar. Nú stendur yfxr vinna við
að endurskapa tölvukerfr Trygginga-
stofnunar. Búið er að taka r notkun
nýtt greiðslukerft, sem sér um greiðsl-
ur til allra þeirra sem fá greiðslur úr
lífeyristryggingum. Verið er að leggja
síðustu hönd á nýtt kerfr sem mun ger-
bylta starfsemi læknadeildar okkar
Það sem hefur kannski staðið okkur
mest fyrir þrifum í þeirri viðleitrú okk-
ar að hagræða og bæta þjónustu er hve
húsnæðið er orðið lítið og óhentugt.
Nýlega ályktaði Tryggingaráð um
þetta mál og við erum að vona að á af-
mælisári getum við bætt úr þessum
húsnæðisvanda.
Fyrst og síðast erum
við þjónustustofnun
Við leggjum áherslu á minnka
skrifftnnsku, slá á það sem stundum
hefur verið kallað vottorðafarganið og
gera stofnunina aðgengilegri fyrir við-
skiptavini okkar. Það er vilji Trygg-
ingastofnunar að veita öldruðum,
sjúkum og fötluðum sem besta þjón-
ustu. Nú er til dæmis í gangi sérstakt
átak til þess að bæta þjónustu við fötl-
uð og sjúk börn og aðstandendur
þeirra. Fleira má bæta, enda vinnum
við stöðugt að ýmiss konar umbótum
og tökum alla gagnrýni alvarlega. Allt
okkar starf snýst jú um það fólk sem
við erum að þjóna, því fýrst og síðast
erum við auðvitað þjónustustofnun.
Félagslega kerfið okkar er orðið mikill
frumskógur og Tryggingastofhun get-
ur lagt sitt fóð á vogarskálina til þess
að hjálpa fólki um þann ffumskóg.”
Frumskógur segirðu. Er það ekki
einhvern veginn þannig sem mœtti
lýsa þeim lögum og reglugerðum sem
Tryggingastofnun starfar eftir? Eru
almannatryggingalögin ekki orðin
alltofflókið?
„Eflaust mætti einfalda lögin. En al-
mannatryggingalög em aldrei fullsam-
in. Þau verða að taka mið af aðstæð-
um og breytast í takt við lifandi sam-
félag. Auðvitað mætti margt betur
fara, bætur em til dæmis allt of lágar
en upphæð þeirra tekur ákveðið mið
af töxtum verkafólks, sem sýnir hvað
þeir em lágir.”
Stundum heyrast þœr raddir að vel-
ferðarketfið okkar sé komið á villigöt-
ur. Að við höfum gengið of langt (
samhjálpinni. Hver er þín skoðun á
þessu?
,,Eg er ekkert frá því að eitthvað sé
til í þessu. Menn verða að vera opnir
fyrir gagnrýni. Mér finnst ástæða til
þess að skoða alla hluti. Auðvitað
þarf að fara vel með fjármuni, við höf-
um enga ótæmandi sjóði til ausa úr.
Til þess að kerfið geti staðið undir sér
verður þó fyrst og fremst að skapa öfl-
ugt atvinnulíf og stuðla að hagvexti í
landinu.”
Eitthvað sem þú vilt segja að lok-
um?
„Nú þegar Tryggingastofnun ríkis-
ins á þetta merkisafmæli er ástæða til
að staldra við og nota þetta tækifæri til
þess að hvetja til nýrrar sóknar á sviði
almannatrygginga. í almannatrygging-
um felst viðhorf byggt á hugsjón um
mannréttindi og betra líf öllum til
handa. Þeirri hugsjón þurfum við að
hlúa að.”
Leggjum í púkkið.
Siminn er 5-687-123
é*
• • •
Samtök áhugafólks
um áfcngls- og
vímuefnavandann
Það er í dag, föstudaginn 29. mars, sem tækifærið gefst
til að leggja lið meðferðarstarfinu á Staðarfelli.
Við stöndum fyrir söfnun meðal allra landsmanna á
Rás 2 og hvetjum þá sem eru aflögufærir til að hringja
og leggja í púkkið.
Nú er meirihluti sjúklinga á Staðarfelli ungt fólk sem er
að reyna að losna úr heljargreipum vímuefnanna. Það er
skylda okkar að leggja því lið.