Alþýðublaðið - 17.04.1996, Page 1
■ Össur Skarphéðinsson átelur íslensk stjórnvöld
vegna framgöngu þeirra í máli rússneska togarans
■ Nær engar líkur á
forsetaframboði Guð-
mundar Eiríkssonar
Davíð
Pétur Kr. Hafstein lýsti síðdegis í
gær yfir framboði sínu til forseta,
einsog Alþýðublaðið hafði reyndar
sagt fyrir um. Hann staðfesti að-
spurður að hann hefði á sunnudag-
inn átt fund í stjórnarráðinu með
Davíð Oddssyni forsætisráðherra,
en kvaðst hvorki hafa falast eftir
stuðningi hans né fengið vilyrði þar
um. Þá kvaðst Pétur ennfremur hafa
rætt við Friðrik Sophusson varafor-
mann Sjálfstæðisflokksins um mál-
ið. Aðspurður hvort hann hefði tal-
að við forystumenn annarra flokka
áðuren hann tók ákvörðun sagðist
Pétur hafa rætt við einn þingmann
Framsóknarflokksins.
Mikill fjöldi ættingja og stuðn-
ingsmanna Péturs var á blaða-
mannafundi hans á Hótel Loftleið-
um og í upphafi flutti frambjóðand-
inn allítarlega tölu. Þar kom meðal
annars fram að hann hefði til
skamms tíma verið búinn að gefa
framboð uppá bátinn, en veður
hefðu skipast skjótt í lofti að af-
loknum páskum.
Pétur sagði tímabært að leggja
aðrar áherslur í meðferð forseta-
embættisins en stundum áður. í
beinu framhaldi sagði hann: „Emb-
ætti forseta Islands á að reka með
hófsemd og látleysi og ekki í stór-
þjóðastíl. Sparnaður og ráðdeild á
að vera í fyrirrúmi og það má aldrei
gerast að fjárútlát embættisins fari
fram úr því sem á er kveðið í fjár-
lögum.“
Ljóst er að Pétur hefur aðrar
áherslur en bæði Guðrún Agnars-
dóttir og Guðrún Pétursdóttir í af-
stöðu sinni til synjunarvalds forseta
á lagafrumvörpum. Hann sagði:
„Það er fráleitt að halda því fram að
í þessu ákvæði felist brjóstvörn lýð-
ræðisins."
Þá sagði Pétur það „bábilju" að
vegur forsetans og fremd sé því
meiri sem hann hafi meiri skyldum
að gegna í útlöndum eða sé „í betri
tengslum við erlenda fyrirmenn".
Frambjóðandinn kvaðst gera sér
ljóst tíminn sé naumur fram að
Tilhugsun-
in fáránleg
- segir þingmaður Sjálfetæðis-
flokksins. „Hann hefurverið
aðalsamningamaður okkar í
viðræðum um úthafsveiðar og
klúðrað málum illilega."
„Ég hef ekki nokkra trú á því að
Guðmundur bjóði sig fram. Hann
hefur verið aðalsamningamaður fs-
lendinga í viðræðum um úthafs-
veiðar, og satt að segja klúðrað
ýmsu illilega með þeim hætti að ég
efast um að nokkur í mínum þing-
flokki vilji sjá hann á Bessastöð-
um. Mér finnst tilhugsunin fárán-
leg,“ sagði þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins í samtali við Alþýðublað-
/ð í gær um möguleika á forseta-
framboði Guðmundar Eiríkssonar
þjóðréttarfræðings. Hann hefur til
þessa ekki útilokað framboð, en
líkur á því eru taldar litlar eða eng-
ar. „Kannski finnst honum gaman,
einsog fleirum, að heyra um sig
talað sem forsetaefni. Ég hef hins-
vegar ekki heyrt í einum einasta
manni sem myndi kjósa hann,“
sagði viðmælandi blaðsins úr þing-
liði Sjálfstæðisflokksins.
Pétur Kr. Hafstein: Allt er unnið fyrir gýg ef vilji hins almáttuga Guðs allra stétta er ekki með í förinni. A-mynd: E.ÓI.
kosningum, enda hafi hann ekki
verið „á hvers rnanns skjá á undan-
förnum árum“. j þessu sambandi
vitnaði Pétur í Árna sögu biskups
þarsem segir að sigursæll sé góður
vilji, en bætti við: „Það er að sönnu
rétt, svo langt sem það nær. Gleym-
um því þó ekki, að maðurinn
áformar en Guð ræður. Allt er unn-
ið fyrir gýg, ef vilji hins almáttuga
Guðs allra stétta er ekki með í för-
inni.“
Skelf ilegt fordæmi
- segir Össur. íslendingar geta ekki verið vissir um að
ríkisstjórn íslands verji landhelgina.
ganga íslenskra stjórnvalda í máli
rússneska togarans hefði verið
„Þetta er skelfilegt fordæmi. I fyrsta
skipið í áratugi blasir það við að fs-
lendingar geta ekki verið vissir um að
ríkisstjóm lýðveldisins veiji landhelg-
ina,“ segir Össur Skarphéðinsson um
þá ákvörðun íslenskra stjómvalda að
sleppa rússneska togaranum sem var
við veiðar innan íslensku landhelginn-
ar.
Höskuldur Skarphéðinsson skip-
herra hjá Landhelgisgæslunni hefur
sagt upp starfi sínu. Ástæðan er
óánægja hans með það hvemig stjóm-
völd búa að Landhelgisgæslunni.
Höskuldur sagði í DV í gær að fram-
hneyksli. „Ég tek heils hugar undir
með skipherranum fyrrverandi að það
er hreinn aumingjaskapur hjá ríkis-
stjóminni að hafa ekki tekið þennan
togara,“ segir Össur. Hann telur þessa
ákvörðun gefa skelfilegt fordæmi og
vera í alla staði óskiljanlega.
„Yfirmenn gæslunnar hafa sagt að
þeir hefðu getað tekið skipið. Sjálfur
dómsmálaráðherra hefur ljóstrað því
upp með hvaða hætti hefði verið hætt
að taka skipið. Hann hefur skýrt frá
upplýsingum sem okkur var trúað fyr-
ir í utanríkismálanefnd og okkur bann-
að að fara með. Hann hefur jafnframt
sagt að ekki hafi legið neinir hags-
munir til grundvallar ákvörðuninni.
Ég kemst bara að einni niðurstöðu. fs-
lenska ríkisstjómin bilaði í hnjánum,
dómsmálaráðherrann hafði ekki pólit-
ískan kjark til þess að taka afdrifaríka
en nauðsynlega ákvörðun. Þetta eru
ótíðindi,“ sagði Össur.
Dómsmálaráðherra hefur skýrt frá
upplýsingum sem okkur var trúað
fyrir í utanríkismálanefnd og okkur
bannað að fara með. Hann hafði
ekki pólitískan kjark til þess að
taka afdrifaríka en nauðsynlega
ákvörðun, segir Össur.
■ Pétur Kr. Hafstein
vill breyttar áhersl-
ur á Bessastöðum
A
I framboð
eftirfund
með
Eldhús-
dagur um
fjármagns-
tekjuskatt
f kvöld verða háðar á Al-
þingi eldhúsdagsumræður svo-
kallaðar um frumvarp ríkis-
stjórnarinnar um fjármagns-
tekjuskatt sem hefur sætt mik-
illi gagnrýni. Umræðurnar
fara fram að beiðni Alþýðu-
flokks og hefjast klukkan
20.30. Þeim verður að vanda
útvarpað og sjónvarpað.
■ Stefnir í að framkvæmdir við forsetasetrið á Bessastöðum kosti tæpan milljarð króna
Oheyrilegur kostnaður
- segir Ágúst Einarsson alþingismaður: „Maður hefur
á tilfinningunni að þarna hafi verið gefið duglega á
garðann við framkvæmdir."
„Þama eru framkvæmdir upp á um
það bil einn milljarð króna, það var
ekki gerð viðhlítandi kostnaðaráætlun
á sínum tíma, og þegar maður skoðar
stærð þeirra húsa sem þarna eru, þá
fínnst manni þetta satt að segja vera
óheyrilegur kostnaður. Maður skilur
eiginlega ekki hvað er að gerast
þarna,“ segir Ágúst Einarsson, þing-
maður Þjóðvaka, en honum hefur bor-
ist svar frá forsætisráðherra við fyrir-
spum sinni urn framkvæmdir á Bessa-
stöðum.
I ítarlegu svari forsætisráðherra seg-
ir að heildarkostnaður við fram-
kvæmdimar, sem ráðgert er að ljúka
haustið 1998, er nú áætlaður um 920
milljónir króna. Heimildir til fram-
kvæmda í fjárlögum frá 1989 til 1996
nerna rétt tæpum 700 milljónum
króna, svo áframhaldandi fram-
kvæmdir eru háðar því að Alþingi
veiti enn um 220 milljónum króna til
verksins. I svarinu kemur fram að
engin kostnaðaráætlun var gerð í upp-
hafi, en í greinargerð um helstu verk-
þætti sem unnin var af embætti húsa-
meistara, Þorsteini Gunnarssyni arki-
tekt og Istaki hf. vorið 1989 var gert
ráð fyrir að heildarkostnaður myndi
nema um 240 milljónum króna. I
svarinu segir að á þeim tíma hafi þó
ekki legið ljóst fyrir í hvaða fram-
kvæmdir skyldi ráðist eða hvert um-
fang þeirra skyldi vera.
Af einstökum þáttum má nefna að
áætlaður kostnaður við endurbygg-
ingu Bessastaðastofu, sem er tæpir
600 fermetrar, er nú 180 milljarðar, en
kostnaður við byggingu nýs íbúðar-
húss fyrir forseta er áætlaður 63 millj-
ónir króna. Húsið er 440 fermetrar að
stærð. Hönnunarkostnaður telst sam-
tals vera 125 milljónir króna.
Ágúst Einarsson segir að sér finnist
auðvitað ekki athugavert að gera emb-
ættissetur forseta vel úr garði, það sé
heldur ekki á neinn hátt við forseta að
sakast í þessu efni. Hinsvegar segir
hann að allar þessar tölur séu miklu
hærri en flestir hafi átt von á. Hann
bendir á að yfirleitt hafi verið rætt urn
að mikið af kostnaðinum sé vegna
fornleifarannsókna. í svarinu komi
hins vegar í ljós að áætlaður kostnaður
við þær sé samtals um 86 milljónir
króna, eða innan við 10 prósent af
framkvæmdum.
Framkvæmdirnar á Bessástöðum
hafa verið í umsjón þriggja nianna
nefndar á vegum forsætisráðuneytis-
ins, svokallaðrar Bessastaðanefndar
sem hefur setið óbreytt síðan 1989.
Ágúst Einarsson talar um „óstjóm-
legan kostnað" í þessu sambandi og
segir: „Það hefur verið unnið að þessu
í mörg ár og í sjálfu sér er þetta á
ábyrgð margra ríkisstjóma. Mér finnst
þó full ástæða til að það sé skoðað
nánar að hér sé verið að endurreisa
nokkur hús fyrir heilan milljarð, á
sama tíma og slegist er á Alþingi og
víðar um nokkrar milljónir í velferðar-
og heilbrigðismál. Ég bara trúi ekki að
þama hafi verið gætt fyllsta aðhalds
og aðsjálni eins og er nauðsynlegt.
Menn virðast menn hafa farið út í
þetta án þess að hafa nokkra yfirsýn
yfir kostnaðarþættina, enda sést það
best á því að nú stefnir í að kostnaður-
inn verði fjórfaldur miðað við það
sem kom frarn í fyrstu lauslegu áætl-
unum.“
„Maður hefur það svolítið á tilfinn-
ingunni að þama hafi verið gefið dug-
lega á garðann við framkvæmdir. Það
er ekki hægt að álíta annað í fljótu
bragði,“ segir Ágúst Einarsson.