Alþýðublaðið - 08.05.1996, Síða 8

Alþýðublaðið - 08.05.1996, Síða 8
■ Islendingar gengu oflangt í tilslökunum gagnvart Norð- mönnum þegar samningur var gerður um skiptingu á veiðum úr norsk-íslenska síldarstofninum. Þetta er sam- hljóða mat þeirra sem eiga hagsmuna að gæta - og þeir hafa margar athugasemdir við samninginn „Ég spyr mig: Hvað meintu stjórnvöld með þessari ákvörðun að heimila 244 þúsund tonna kvóta í vetur? Meintu þeir alls ekki neitt?" segir Sævar Gunnarsson formaður Sjómannasambandsins. »■ * 'mWFILl/ 4 - 8 farþega og hjólastólabílar C OQ CR 90 O OO OO 44 Miðvikudagur 8. maí 1996 Jóhann Jónsson framkvæmda- stjóri Hraðfrystistöðvar Þórs- hafnar Gengið of langt í tilslökunum „í þessum samningi finnst mér gengið of langt í tilslökunum. Við förum niður í 17 prósent hlutdeild og það getur reynst okkur erfitt síðar meir að breyta því. Tímasetn- ing samningaviðræðnanna er ekki rökrétt. Þær fara fram á sama tíma og síldin er um það bil að streyma inn í lögsögu okkar.“ Kristján Ragnarsson fram- kvæmdastjóri LÍÚ I dag v'rta menn ekki neitt „f atvinnurekstri eins og þessum er nauðsynlegt að menn viti með einhverjum fyrirvara hvernig veið- unum á að vera háttað. í dag vita menn ekki neitt. Skipin eru að fara af stað, og ekki er vitað hvaða veiðiheimild kemur í hlut hvers og eins. Þetta er að okkar mati alveg óviðunandi. Veiðunum er ekki stjórnað með þessum samningi því stór aðili fær að leika lausum hala. Við höfum mælt með því að ráðum fiskifræðinga yrði fylgt og alls veidd milljón tonn. En í því sam- bandi höfum við svo sannarlega ekki mælt með því að við einir skærum niður okkar heimild. Það er ekki aðferð til að ná stjórn á veiðunum. Við vorum tilbúnir að skera okkar hlut niður en þá hlut- fallslega miðað við aðra. Ef ís- lensk stjórnvöld hafa talið það of- gera stofninum að við ætluðum að veiða 244 þúsund tonn, af hverju var þá ákveðið að við skyldum veiða 244 þúsund tonn? Við ótt- umst að þessi 17 prósent festist í sessi og þetta ákvæði sem kallað er þróunarákvæði segir mér ekki nokkurn skapaðan hlut um það hvernig aflanum verður ráðstafað í framtíðinni. Það er bara óskhyggja manna að lesa út úr því ákvæði einhverjar niðurstöður." Sævar Gunnarsson formaður Sjómannasambandsins Hvað meintu þessir menn? „Ég er ósáttur við þennan samn- ing. Ég kalla það ekki samning þegar einungis annar aðilinn gefur eftir. Ég hef allan tímann verið sáttur við að minnka heildarveið- ina þannig að Norðmenn skæru líka niður hjá sér. Þetta er ekki raunin og ég er ekki sáttur við það. Ég er einnig ósáttur við tímasetn- inguna. Það er komið fram á vertíð og menn eru búnir að standa í þeirri trú að þeir fari á sjó og veiði 244 þúsund tonn. Menn verða fyrir 67. tölublað - 77. árgangur miklum vonbrigðum. Ég spyr mig: Hvað meintu stjórnvöld með þess- ari ákvörðun að heimila 244 þús- und tonna kvóta í vetur? Meintu þeir alls ekki neitt? Það er talað um þróunarákvæðin í sjöttu greininni. Mér finnst þau loðin, þau hefðu átt að vera skýrari að mínu mati. Ég er sem sagt ósáttur við inni- hald samningsins og tímasetning- una. Reyndar er ég ekkert sáttur við vinnubrögðin því hagsmunar- aðilar hafa verið á þeytingi um víða veröld til að vera til ráðgjafar í þessu máli. Síðan er þeim fyrir- varalaust tilkynnt um þessa niður- stöðu. Þetta eru óviðunandi vinnu- brögð.“ Verð í lausasölu kr. 100 m/vsk ■ Forseti íslands Farand- sendiherra eða héraðs- höfðingi? Félag stjómmálafræðinga efnir til fúndaraðar um hlutverkog völd forseta ís- lands í tilefni af forsetakosning- unum 29. júní. Fyrsti fundur- inn verður haldinn fimmtudaginn 9. maí klukkan 17.15 í stofu 101 íOdda og ber hann yfir- skriftina For- seti íslands: Farandsendi- herra eða hér- aðshöfðingi? Framsöguerindi flytja Ólafur Þ. Harðarsson, dósent í stjóm- málafræði, Val- gerður Sverris- dóttir alþingis- maður og Her- dís Þorgeirs- dóttir stjóm- málafræðingur og svara þau einnig fyrir- spumum úr sal. Félag stjóm- málaffæðinga hefur lagt fyrir framsöguflytj- endur nokkrar spumingar um völd og áhrif forseta íslands sem hljóta að vera í brennidepli fyrir komandi kosningar og skiptast þær í fjóra meginþætti: Pólitískt hlutverk forseta, erlend samskipti, samein- ingartákn þjóðarinnar og erlend samskipti. komið okkar á milli. Hann studdi mig í formannskjörinu og gerir enn, en við aðhyllumst ólík vinnubrögð í pólitík og mál hafa þróast þannig að talsverður skoðanamunur er á milli okkar. Einar Karl var náinn sam- starfsmaður Ólafs Ragnars og vissu- lega emm við Ólafur ólík.“ Einar Karl Haraldsson. „Talsverður skoðanamunur okkar á milli," segir Margrét um uppsögn fram- kvæmdastjóra Alþýðubandalagsins sem var helsti stuðningsmaður hennar í formannskjörinu í haust. Opinn fundur Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur heldur opinn fund um fjármagnstekjuskattinn. Fundarstaður: Scandic Hótel Loftleiðir þingsalir 1-3. Tími: Þriðjudagur 14. maí klukkan 20:30 Frummælendur: Jón Baldvin Hannibalsson formaður Alþýðuflokksins - Jafnaðarmannaflokks íslands Gunnar Helgi Hálfdánarson forstjóri Landsbréfa Gunnlaugur M. Sigmundsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins Fundarstjórn: Gunnar Ingi Gunnarsson formaður Alþýðuflokksfélags Reykjavíkur. Fjölmennum! Stjórnin Margrét Frímannsdóttir í viðtali við Mannlíf r Eg er ekki týnd // n „Ég er því oft pirruð þegar ákveðnir hópar, jafnvel alþingis- menn, halda því á loft að formaður Alþýðubandalagsins hafi týnst eftir að ég tók við,“ segir Margrét Frí- mannsdóttir í viðtali í nýju tölublaði Mannlífs. Þar kveðst hún hafa unnið hörðum höndum við að byggja upp flokksstarf síð- an í haust, en sé lítt gefinn fyrir „strákapólitík" sem felist í því að vera alltaf að trana sér fram í fjölmiðl- um. Aðspurð hverj- ir segi að hún hafi „týnst“ eftir að hún sigraði Steingrím J. Sigfússon í for- mannsslagnum segir lagsins. Hann var einn helsti stuðn- ingsmaður hennar í formannskjörinu, en sagði upp störfum vegna ágrein- ings við Margréti fyrir nokkrum vik- um, einsog Alþýðublaðið hefur skýrt ítarlega frá. Um það segir Margrét: „Einar Karl ákvað að segja starfi sínu Jausu án þess að til sérstakra árekstra hafi Margrét: nefnt sem dæmi Össur Skarphéðinsson. Hann hefur verið duglegur við að koma þeirri skoðun á framfæri að Svavar Gests- son ráði öllu í flokknum og Alþýðu- blaðið talar reglulega um hinn týnda formann." Margrét er líka spurð um sam- skipti sín við Einar Karl Haraldsson framkvæmdastjóra Alþýðubanda- m segir Ég get \ ’jSs-S mi íSi.cnr \ Margrét: Össur dugiegur að koma þeirri skoðun á framfæri að Svavar Gestsson ráði öllu í Alþýðubanda- laginu og Alþýðublaðið talar reglu- lega um hinn týnda formann.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.