Alþýðublaðið - 14.05.1996, Síða 2
2 _________________ALÞÝÐUBLAÐIÐ
s k o ð a n
ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 1996
MíYÐUBMDID
21110. tölublað
Hverfisgötu 8-10 Reykjavík Sími 562 5566
Útgefandi Alprent
Ritstjóri Hrafn Jökulsson
Umbrot Gagarín hf.
Prentun ísafoldarprentsmiðjan hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Sími 562 5566
Fax 562 9244
Símboði auglýsinga 846 3332
Áskriftarverð kr. 1.500 m/vsk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 100 m/vsk
Uppreisnin á ísafirði
í eina tíð var ísafjörður vagga pólitískra hræringa á Islandi,
þaðan bárust straumar út í þjóðlífið og þar hlutu margir áhrifa-
miklir stjómmálamenn eldskím. Nú ber svo við að enn heyrast
pólitísk tíðindi að vestan: kraftmiklir nemendur framhaldsskólans
stálu senunni í bæjarstjómarkosningum og auðmýktu um leið alla
gömlu flokkana. Funklistinn fékk tvo menn og munaði hárs-
breidd að hann yrði næststærsti flokkurinn í nýja, sameinaða
sveitarfélaginu.
Funklistinn var eini sigurvegari kosninganna. Sjálfstæðismenn
náðu ekki því takmarki sínu að vinna meirihluta; Alþýðuflokkur
og Framsóknarflokkur fóru miklar hrakfarir og rétt náðu að
hanga inni í bæjarstjóm; og sameiginlegt framboð Alþýðubanda-
lags, óháðra og Kvennalista fékk tvo menn kjöma en hafði stefnt
að þremur að minnsta kosti. Kjörsókn var aðeins 83 prósent, og
undirstrikar litla trú manna á gömlu flokkunum.
Ýmsar skýringar em á úrslitunum vestra. Funklistamenn komu
keppinautum sínum í opna skjöldu með hressilegri kosningabar-
áttu undir slagorðinu „Fallegt fólk í íyrirrúmi“! Framboð þeirra
var velheppnað sambland af gamni og alvöru, meðan þreytu-
merkin vom auðsæ á hinum listunum. Þá vakti Funklistinn ræki-
lega athygli á þeirri staðreynd að gömlu flokkamir em hver öðr-
um líkir, og allir jafnlíklegir til að verða viðskila við kosningalof-
orðin uppúr því að kjörstaðir loka. Með nokkmm sanni má segja
að framboð og sigur Funklistans hafi verið lýðræðisleg uppreisn
gegn stöðnuðum og hugmyndasnauðum flokkum sem eiga ekkert
svar við kalli tímans. Unga fólkið vestra hefur sýnt hversu það er
megnugt. Ekki kæmi á óvart þótt fúnklistamenn létu að sér kveða
með enn eftirminnilegri hætti í framtíðinni.
Hungur og megrunarlyf
Tvær fréttir úr sitthvorri áttinni í Ríkisútvarpinu vöktu athygli í
gær. Annarsvegar var haft eftir yfirmanni FAO, matvælastofnun-
ar Sameinuðu þjóðanna, að 800 milljónir manna búi við hungur
og næringarskort í heiminum. Hann fúllyrti jafnframt að nægur
matur væri til í heiminum til að brauðfæða alla jarðarbúa. Hin
fréttin var af nýju megrunarlyfí sem verið er að setja á markað-
inn, og er að sögn hið fyrsta sinnar tegundar í tuttugu ár sem
bandarísk heilbrigðisyfirvöld viðurkenna. Hvorki meira né minna
en 30 prósent íbúa í hinum vestræna heimi þjást af oífitu, með til-
heyrandi vandamálum, sjúkdómum og kostnaði.
Hin gríðarlega misskipting auðs í heiminum verður líklega
hættulegasta og viðkvæmasta vandamál næstu aldar. Eftir 30 ár
er reiknað með að mannkyninu hafi fjölgað um þrjá milljarða,
langmest í fátækustu löndum heims. Hömlulaus mannfjölgun
samfara rányrkju á auðlindum jarðar getur aðeins endað með
ósköpum. Brýnasta verkefni alþjóðasamfélagsins er þessvegna
fólgið í því að hjálpa fátæku löndunum til að verða bjargálna, og
kenna þeim að nýta auðlindir sínar á skynsamlegan hátt, þannig
að ekki sé gengið á höfuðstól jarðarinnar. Vesturlönd geta ekki til
lengdar skellt skollaeyrum við eymdinni í hinum svokallaða
þriðja heimi. Þá kann sú tíð að renna upp að megrunarlyf verði
álíka óþörf í Evrópu og þau eru nú í Afríku. ■
IVið í Alþýðuflokknum búum við það að flokksstarf hefur að mestu
legið niðri um langt skeið og allar ákvarðanir um innri og ytri mál
flokksins eru teknar af fámennum hópi manna sem lítinn áhuga
hafa á að hleypa öðrum að.
Stjórnmál eru ógeðsleg
Kannski þarf meira funk?
Ég hef oft velt því fyrir mér undan-
farið hvers vegna í ósköpunum maður
er að eyða tíma sínum í það að starfa í
stjómmálahreyfingu. Réttlætingin sem
ég hef reynt að telja sjálfum mér trú
um er að ég sé að þessu af því að ég
hafi hugsjónir og jafnvel pínulitla
löngun til þess að breyta heiminum
ofurlítið. Ástæða þessara hugsana er
sú að þeirri hugsun skýtur upp oftar
og oftar að þetta vafstur sé eiginlega
hundleiðinlegt. Stöðugar umræður um
vandamál þjóðarinnar og áætlanir um
breytingar sem aldrei verða að veru-
leika geta nefnilega verið niðurdrep-
andi.
Pallborðið
Mín skoðun er sú að stjómmál séu
stöðugt að færast fjær og fjær fólki og
þessu sama fólki er orðið nokk sama
um hvað stjórnmálamenn segja því
það er aldrei neitt að marka hvort eð
er. Stjómmálamenn eru gersamlega
dottnir í þann pakka að umræður
þeirra í milli snúast nær eingöngu um
tæknilegar útfærslur alls kyns mála og
umræður um greundvallarhugmyndir
og viðhorf til lífsins heyrast vart leng-
ur. f augum fólks em stjómmálamenn
aðeins metorðasjúkir valdapotarar og
spilltir íyrirgreiðslukallar. Og það sem
verra er: fólk er búið að gefast upp á
því að breyta og gerir þvf ekkert í mál-
unum nema tuða framan í sína nán-
ustu við eldhúsborðið.
Og þeir sem leggja í það að koma
til starfa lenda í því að sitja fund eftir
fund þar sem þungar umræður um
tæknilegar útfærslur mála tröllríða
öllu. Síðan em samþykktar ályktanir
eða málefnapakkar sem enda ofaní
skúffu og enginn les fyrr en dregur að
flokksþingum, en þá em þau dregin
upp og endurorðuð til samþykktar á
nýju þingi. Það skitpir líka engu máli
hvað stendur í þessum stefnuskrám
því að er ekki farið eftir þeim hvort eð
er. Það er ekki furða að maður hugsi
sig um tvisvar áður en maður eyðir
sólríkum góðviðrisdögum í það að
ræða stjómmál og vinna í málefna-
starfi sem hvergi kemst á ffamfæri.
En stjórnmálamenn eru nú einu
sinni til þess að vinna fyrir fólk en
ekki öfugt eins og stundum mætti
halda. Því þurfum við sem störfum í
stjómmálum að gera okkar starf meira
aðlaðandi til þess að fá fólk til starfa.
Við í Alþýðuflokknum búum við það
að flokksstarf hefur að mestu legið
niðri um langt skeið og allar ákvarð-
anir um innri og ytri mál flokksins em
teknar af fámennum hópi manna sem
lítinn áhuga hafa á að hleypa öðmm
að. Þessi fámenni hópur hefur að mínu
mati að vissu leyti einangrast í sinni
hugmyndafræði og endurspeglast í
því, að nú er rætt um að Jón formaður
ætli að bjóða sig fram til forseta og að
hans sterkasta vígi sé svæði 101 í
Reykjavík. En svæði 101 í Reykjavík
endurspeglar ekki þjóðina og því væri
æskilegt að flokkurinn breikkaði hug-
myndafræði sína með tilliti til annara
póstnúmerasvæða. Ástandið í öðmm
flokkum er svosem ekkert betra og
enn sem fyrr er við lýði ríkisstjóm
sem samanstendur af hvítum, feitum
lögfræðingum um fimmtugt og eru
hugmyndir þeirra um lífið í samræmi
við það. Til þess að svo megi verða
þarf að breyta vinnubrögðum í þess-
um flokki. Það á að opna hann þannig
að fólk geti komið til starfa á sínum
forsendum. Það er ekki alltaf hægt að
bjóða upp á sömu vinnubrögðin og
segja svo að fólk hafi ekki áhuga. Það
væri nær að aðlaga flokkinn að raun-
veraleikanum úti í þjóðfélaginu, þeim
raunveruleika sem fólk býr við en
ekki þeim raunvemleika sem flokkur-
inn býr við. f nýju sveitarfélagi á
Vestljörðum komu fram skýr skilaboð
nú um helgina. Þar var tæplega fimmt-
ungur kjósenda reiðubúinn að kjósa
frekar lista framhaldsskólanema sem
enga reynslu hafa af stjómmálum, en
atvinnustjórnmálamennina í gömlu
flokkunum. Þetta er vísbending um
það að stjómmál em ógeðsleg í aug-
um fólks og fólkið var rekar til í funk
en spillta stjómmálamenn. Mér finnst
það bara gott mál og ef við sem störf-
um í stjómmálum athugum ekki okkar
gang þá munu aðrir en við veljast til
þess að stjóma þessu landi í framtíð-
inni - og kannski er það bara fínt.
Höfundur er félagsráðgjafi
Atburðir dagsins
1610 Óður munkur vegur Hin-
rik IV Frakkakóng með hnífi.
1922 44 sjómenn týndu lífi
þegar fimm skip fórust í fár-
viðri á Vesturlandi og Norður-
landi. 1948 Gyðingar lýsa yfir
stofnun ísraelsnkis. 1955 Var-
sjárbandalagið, hemaðarbanda-
lag austantjaldsríkja, stofnað.
1959 Pétur Ottesen lét af þing-
mennsku. Hann sat á Alþingi í
tæp 43 ár, lengur en nokkur
annar.
Afmælisbörn dagsins
Thomas Gainsborough 1727,
enskur listmálari. Otto Klem-
perer 1885, þýskur hljóm-
sveitastjómandi. Bobby Darin
1936, bandarísk poppstjama.
Annálsbrot dagsins
Svíar voru mestallt ár þetta í
Pólen að brcnna og bræla.
Vom þó mjög slegnir af Pólsk-
um og kóngur þeirra særður
mjög í því slagi. Vom þeir út-
drifnir úr Pólen. Ætluðu nú
Danir að stija þeini í vegi, þá
þeir fæm heim um.
Seiluannáll 1657.
Hlátur dagsins
Konu sem þekt hefur ágætan
mann finst góður maður hlægi-
legur.
Snæfríður t' íslandsklukku Halldórs
Laxness.
Klerkar dagsins
Fólkiö gaumgæfir prestana á
stéttunum til þess að sjá hvað
þeir meina í stólnum. R. Cecil.
Málsháttur dagsins
Nú er nokkuð um, nautið dans-
ar.
Orð dagsins
Engu get ég treyst,
tnrtryggi jafnvel
vin minn
efann.
Jón úr Vör; Engu get ég treyst.
Skák dagsins
Skákdæmi dagsins er bráðlag-
legt, ættað frá Moskvu 1972.
Lyustrov hefur svart og á leik
gegn lvanovsky. Svartur hefur
fórnað skiptamun og bætir nú
um belur - enda mát í sjón-
máli.
Svartur mátar i tveimur leikj-
um.
1. ... Dd3+!! 2. Hxd3 Rel
Skák og mát!