Alþýðublaðið - 14.05.1996, Qupperneq 5
ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ1996
V
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
5
i ð t a I
rangra ákvarðana eða breytni. Finn-
urðu til samúðar með þessum einstak-
lingum?
, Jú, vissulega finn ég oft til samúð-
ar, en dómari verður að gæta þess að
láta tilfinningar ekki stjóma gjörðum
sínum.“
Finnst þér reynsla þín í starfi hafa
kennt þér að einhver ákveðin gildi
cettu að vera einstaklingnum dýrmœt-
ari en önnur ilífinu?
„Störf mín á ísafirði og í Hæstarétti
staðfesta þá lífsskoðun mína að dreng-
skapur og heiðarleiki eigi að vera
grundvallaratriði í lífi hvers einasta
manns. Þeim sem hefur gott mannorð
og góða samvisku eru allir vegir fær-
iri“
Það vakti athygli þegar þú tilkynnir
um framboð þitt að þú vitnaðir í Lilju
Eysteins munks. Mér skilst að þú hafir
mikinn áhuga á bókmenntum?
, Já, ég hef það og hef haft lengi. Ég
hef svolítið safnað bókum og les tölu-
vert, skáldsögur, ljóð og sagnfræði."
Hverjir eru eftirlœtishöfundar þín-
ir?
„Ég vil ekki tilgreina neina sér-
staka, finnst það fánýtt. Það er svo
breytilegt hvaða höfunda maður leitar
til, fer gjaman eftir aldri, þroska og til-
finningum hveiju sinni."
Hvað gefur skáldskapur þér?
„Fyrst og fremst betri og dýpri
skilning á mannlífinu. Og hugarró og
styrk til að skilja annað fólk og sjálfan
mig.“
Rætt við Davíð
Nú skrifaðir þú grein í Morgun-
blaðið í febrúar 1991 þar sem þú var-
aðir við framboði gegn sitjandi for-
manni Sjálfstœðisflokksins.
„Ég skrifaði þá grein vegna þess að
aðdragandi baráttunnar var mér ekki
að skapi. Mér fannst að þar væri ekki
rétt að málum staðið. Ég skýrði þau
sjónarmið mín í greininni. Ég tók eng-
in frekari þátt í átökum í Sjálfstæðis-
flokknum eins og ranglega hefur verið
látið í veðri vaka. A þessum ámm tók
ég einfaldlega engan þátt í starfsemi
Sjálfstæðisflokksins, hafði hætt því
þegar ég tók við sýslumannsembætt-
inu á ísafirði 1983. Þetta var eina til-
efnið þar sem ég lét skoðun mína í
ljós.“
Hafið þið Davíð Oddsson einhvem
ttmann rætt þessa grein ?
„Já, það höfum við gert í fullri
hreinskilni. Ég held að honum sé ljóst
hvað fyrir mér vakti og hvers vegna
ég fann mig knúinn til að láta þessa
skoðun mína í ljós.“
En hann hefur varla verið ánœgður
með skrifin?
„Ég geri ekki ráð fyrir því.“
Það vakti mikla athygli að þú skyld-
ir rceða við Friðrik Sophusson og
Davíð Oddsson um forsetaframboð
þitt.
„Þeir vom meðal þeirra fjölmörgu
sem ég ræddi við áður en ég tók þessa
ákvörðun mína. Ég leitaði ekki eftir
neinum stuðningi hjá Davíð Oddssyni
eða Friðriki Sophussyni og veit ekki
enn um hug þeirra til framboðs míns.
Við Davíð höfum þekkst allt frá
menntaskólaárunum og höfum átt
samskipti gegnum tíðina. Að eitt sam-
tal við hann geri framboð mitt pólit-
ískt, það finnst mér hreinasta firra.“
Þú lítur ekki á það sem framboð
i>iss arms íSjálfstœðisflokknum?
„Nei, ég lít ekki á það sem framboð
nokkurs arms í Sjálfstæðisflokknum.
Það eru stuðningsmenn úr flestum
flokkum sem hafa hvatt mig til þessa
„Ekki ætla ég að
dæma um það hvernig
ég er eða hvaða kosti
ég hef til að bera.
Reyndar hef ég ekki
komið mér upp nein-
um kostum. Það
hvernig ég er, og
hvernig ég kem fram,
er mér eðlislægt. Ég
ætla ekki og mun ekki
tíunda kosti mína í
þessari kosningabar-
áttu."
framboðs. Framboðið er á algjörlega
ópólitískum forsendum og byggist
fyrst og fremst á þeim hugmyndum
sem ég hef um embætti forseta Islands
og ég gerði grein fyrir þegar ég til-
kynnti ífamboð mitt.“
Vœntirðu þess að Kjartan Gunrtars-
son rœsi kosningamaskínu Sjálfstœð-
isflokksins þér til stuðnings?
„Ég vænti þess ekki og hef ekki far-
ið fram á slíkt við hann né nokkurn
annan.“
Nú er umdeildur stjómmálamaður f
baráttunni um forsetastólinn og hefur
gífurlegt forskot á aðra frambjóðend-
ur. Annar litríkur stjórnmálamaður
þykir Kklegur til að blanda sér í slag-
inn. Hvaða skoðun hefur þú á því að
forseti íslands hafi haft afskipti af
stjómmálum?
„Það er öll reynsla dýrmæt, stjóm-
málareynsla ekki síður en önnur
reynsla. Ég hefði haldið, að óreyndu
að minnsta kosti, að erfiðara væri fyrir
umdeilda stjómmálamenn en aðra að
verða sameiningartákn þjóðarinnar.
En ef þjóðin kýs það, þá er valið
hennar.“
Mun ekki tíunda kosti mína
Nú varstu mjög góður námsmaður
og hefur verið nefndur fullkominn
embœttismaður. Mönnum ber flestum
saman um að þú sért algjörlega
vammlaus. Hvernig hefurðu komið
þér uppþessum eiginleikum?
„Ekki ætla ég að dæma um það
hvemig ég er eða hvaða kosti ég hef
til að bera. Reyndar hef ég ekki komið
mér upp neinum kostum. Það hvemig
ég er, og hvemig ég kem fram, er mér
eðlislægt. Ég ætla ekki og mun ekki tí-
unda kosti mína í þessari kosningabar-
áttu. Það verða aðrir að gera. Það eina
sem ég get gert, er að færa fram lífs-
skoðanir mínar og sjónarmið mín um
embætti forseta íslands.“
Hyemig myndirðu lýsa þér?
„Ég endurtek að ég ætla ekki að
lýsa mér eða tíunda kosti mína. Við
það situr.“
En nú ertu ekki einn í framboði
heldur þið hjónin. Hvers virði finnst
þér hjónabandið vera?
„Við Inga Ásta emm ákaflega ham-
ingjusöm. Það hefúr verið sagt að við
bætum hvort annað upp og það er ein-
nútt þannig sem ég tel að hjónaband
eigi að vera; að tveir einstaklingar nái
saman þannig að þeir haldi sjálfstæði
sínu og einkennum en bæti hvom ann-
an upp og styrki. Ef það tekst þá verð-
ur ekki á betra kosið. Þetta hefur okk-
ur Ingu Ástu tekist.“
Mér heyrist á þér að þú teljir þig
lánsaman mann.
,Já, ég er það sannarlega og ég er
reiðubúinn að taka öllu sem að hönd-
um ber.“ ■