Alþýðublaðið - 14.05.1996, Page 8
* *
XWREVmZ/
4 - 8 farþega og hjólastólabílar
5 88 55 22
Þriðjudagur 14. maí 1996
70. tölublað - 77. árgangur
Verð í lausasölu kr. 100 m/vsk
■ Þingmenn vilja hvalveiðar
Við erum ekki skuldbundin neinum
- segir Gísli S. Einarsson þingmaður Alþýðu-
flokksins. „Ekki í nokkrum vafa um að við get-
um selt hvalkjötið."
„Ég tel að við eigum að hefja
hvalveiðar nú þegar og ég er ekki í
nokkrum vafa um að við getum
selt afurðirnar," segir Gísli S. Ein-
arsson þingmaður Alþýðuflokksins
en í síðustu viku var utandagskrár-
umræða á Alþingi að beiðni Guð-
jóns Guðmundssonar þingmanns
Sjálfstæðisflokksins. Nánast alger
einhugur var meðal þingmanna um
að hefja hvalveiðar hið fyrsta, en
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráð-
herra hefur ekki viljað segja til um
hvenær ákvörðun verði tekin.
„Það er markaður fyrir hvalkjöt,
engin samtök hafa útilokað við-
skipti við okkur og við erum ekki
skuldbundin neinum í þessu sam-
bandi. Við eigum mjög mikið und-
ir hvalveiðum, því þegar við hætt-
um hvalveiðum urðum við af um
1,5 prósenti af þjóðartekjunum eða
hátt í tveimur milljörðum en það er
ámóta upphæð og við reiknum
með að fá af norsk-íslenska síldar-
stofninum," segir Gísli og telur
Gisli: Þegar við hættum hvalveið-
um urðum við af 1,5 prósenti af
þjóðartekjum. Það jafngildir þeirri
upphæð sem veiðarnar úr norsk-ís-
lenska síldarstofninum færa okkur.
þurfa einfalda samþykkt frá ríkis-
stjórninni um að hefja veiðar.
„Þingið mun samþykkja þá sam-
þykkt. Ég er þess fullviss að þeir
munu fara varlega í fyrstu, enda
þarf þess, en síðar tel ég að við
eigum að hefja stórhvalaveiðar
undir vísindalegri ráðgjöf og svo
hrefnuveiðar á sama grundvelli og
Norðmenn," segir Gísli.
Próflestur í skugga ráðhússins Sólarblíða og próflestur eru hinar fullkomnu
andstæður, en þessari Reykjavíkurstúlku tókst að sameina þær í gær, þegar Einar Ólason Ijósmyndari var á
ferð um miðborgina.
Séra Jón Bjarman, höfundur nýrra
hugleiðinga.
■ Hugleiðingar séra
Jóns Bjarmans
Að heiman
og heim
Út er komin bókin Að heimart og
heim - sex hugleiðingar eftir séra Jón
Bjarman. Hann er sjúkrahúsprestur
þjóðkirkjunnar en var um árabil
fangaprestur, einsog fram kemur í
hugleiðingum hans. Hugleiðingamar
hafa allar sama viðfang og snið: ritn-
ingartexta, stutta íhugun og frumsam-
ið ljóð sem á rætur í textanum. Jón
Bjarman hefur sent frá sér fjórar frum-
samdar bækur, tvö smásagnasöfn og
tvær ljóðabækur, auk nokkurra þýddra
bóka.
Vorsýning í
Listaskólahúsinu
Á laugardag opnaði vorsýning
Myndlista- og handíðaskóla íslands
í Listaskólahúsinu að Laugarnes-
vegi 91. Þar sýna útskriftarnemar
lokaverkefni sín, en á þessu vori
eru brautskráðir 42 nemendur eftir
þriggja ára nám við einhverja af
sérdeildum skólans. í tilefni sýn-
ingarinnar er komin út bók með
efni frá útskriftarnemum og verður
hún til sölu á sýningunni. Vorsýn-
ingin stendur til 19. mai, en nánar
verður frá henni sagt í Alþýðublað-
inu á fimmtudaginn.
■ Ávextir og grænmeti
draga úrsjúkdómum
Grænmeti og
ávextir í hvert
■ Deiglan á Akureyri
Sölusýning á
verkum Stefáns
frá Möðrudal
A uppstigningardag, fimmtudaginn
16. maí, verður opnuð í Deiglunni á Ak-
ureyri sölusýning á verkum Stefáns ffá
Möðrudal. Stefán var afkastamikill mál-
ari og lét eftir sig nokkum fjölda verka
sem verða sýnd á þessari sérstæðu sýn-
ingu. Sýningin stendur aðeins í fjóra
daga og lýkur henni simnudaginn 19.
maí.
mál
Hjartavernd, Krabbameinsfélagið
og Manneldisráð hafa sameinast um
átak til að auka neyslu á grænmeti
og ávöxtum undir kjörorðinu
„Borðum grænmeti og ávexti - 5 á
dag“. í tilkynningu frá Manneldis-
ráði af þessu tilefni segir að Islend-
ingar borði mun minna af ávöxtum
en æskilegt geti talist, hvort sem
miðað er við ráðleggingar Alþjóða-
heilbrigðismálastofnunar eða inn-
lend manneldismarkmið. Hollusta
þessara matvara er hinsvegar óum-
deild, og hafa rannsóknir síðustu
ára meðal annars sýnt, að með því
að borða ríflega af grænmeti og
ávöxtum má draga úr hættu á
hjartasjúkdómum og mörgum teg-
undum af krabbameini.
Með yfirskrift átaksins, „Borðum
grænmeti og ávexti - 5 á dag“, er
átt við að æskilegt sé að borða að
minnsta kosti fimm skammta af
grænmeti, ávöxtum og kartöflum á
dag. Hver skammtur er skilgreindur
sem einn meðalstór ávöxtur, 50
grömm af grænmeti, tvær til þrjár
kartöflur eða eitt glas af hreinum
ávaxtasafa.
í lok tilkynningarinnar segir:
„Það er von Hjartaverndar, Krabba-
meinsfélagsins og Manneldisráðs
að þessi einfaldi boðskapur um
fimm skammta á dag geti bætt
heilsu þjóðarinnar og dregið úr
ótímabærum sjúkdómum af völdum
óheppilegra neysluvenja.“
■ Heilsufar Reykvíkinga
2298 með kvef
Send hefur verið út frettatilkynning
um farsóttir í Reykjavi'kurumdæmi í
febrúar 1996, samkvæmt skýrslum sex
heilsugæslustöðva og Læknav:iktarinn;ir
sf. 2298 greindust með kvef og aðrar
veirusýkingar í efii loftvegum, 210 með
iðrakvef, 161 með lungnabólgu, 145
með hálsbólgu af völdum sýkla, 36 með
hlaupabólu, 14 með rauða hunda, 8 með
inflúensu, 3 með einkimingasótt, 3 með
maurakláða, 2 með matareitrun, 1 með
hettusótt og 1 með kíghósta.