Alþýðublaðið - 16.05.1996, Síða 1
Fimmtudagur 16. maí 1996 Stofnað 1919 72. tölublað - 77. árgangur
■ Helsti talsmaður ræstingakvennanna á hótelum Flugleiða rekin eftir að Vinnueftir-
litið óskaði eftir skýringum á framkomu fyrirtækisins í garð starfsmanna
Flugleiðir beita starfs-
menn andlegri kúgun
- segir Sigurður Guðmundsson formaður Félags
starfsfólks í veitingahúsum. „Hjá mörgum íslenskum
fyrirtækjum viðgengst andleg kúgun, og fólk lifir í
þrælsótta við atvinnurekendur." Vinnueftirlitið að
rannsaka málið.
„Brottrekstur starfsmanns fyrir
að hafa spyrnt við fótum gegn því
andlega ofbeldi sem þarna átti sér
stað er mjög alvarlegt mál,“ sagði
Sigurður Guðmundsson formaður
Félags starfsfólks í veitingahúsum
í samtali við Alþýðublaðið í gær.
Félagið hafði beðið Vinnueftirlit
ríkisins að kynna sér mál um 10
ræstingakvenna sem unnu á hótel-
um Flugleiða, og átti að knýja til
■ 30 manna leikhópurtil
Litháens á vegum Þjóð-
leikhússins
Uppseltá
Don Juan í
Vilníus
„Við sýnum tvisvar á hátíðinni og
það er víst löngu uppselt á báðar sýn-
ingamar. Það fylgdi meira að segja
sögunni, að þetta væru einu sýning-
amar sem er uppselt á. Þetta segir sína
sögu um annarsvegar stöðu leikstjór-
ans á heimavelli og hinsvegar um
áhuga á íslandi og íslensku leikhúsi,"
sagði Stefán Baldursson þjóðleikhús-
stjóri í samtali við Alþýðublaðið. 30
manna hópur fer í næstu viku í leik-
ferð á vegum Þjóðleikhússins á leik-
listarhátíð í Vilníus í Litháen, með
uppfærsluna á Don Juan sem leikhús-
ið sýndi í vetur við góðar undirtektir.
Þrír af virtustu leikhúsmönnum Lithá-
ens áttu heiður af uppfærslunni hér-
lendis. Hátíðin kallast „LIFE“ og er
nú haldin í þriðja skipti á vegum leik-
listarsambandsins í Litháen, mennta-
málaráðherra landsins og borgar-
stjórnar Vilníus. Þangað er jafnan
boðið virtum og athyglisverðum leik-
hópum víðsvegar að úr heiminum.
að minnka við sig vinnu um helm-
ing. Yfirmenn fyrirtækisins hvöttu
þær til að sækja um atvinnuleysis-
bætur til að vega upp tekjumissinn,
eða útvega sér svarta vinnu.
Nokkrum klukkustundum eftir
að fulltrúar Vinnueftirlitsins áttu
fund með yfirmönnum hjá Flug-
leiðum vegna kvörtunar um að fyr-
irtækið beitti ræstingakonur „and-
legri kúgun“ var Louise Kjartans-
son, ein kvennanna, rekin. Louise
var helsti talsmaður kvennanna
gagnvart fyrirtækinu og hafði beitt
sér gegn því að þær þyrftu að
minnka við sig vinnu. Eftir brott-
rekstur hennar skrifuðu aðrar ræst-
ingakonur undir samning um
minni vinnu. Samkvæmt heimild-
um Alþýðublaðsins er málið litið
alvarlegum augum hjá Vinnueftir-
litinu, og því alls ekki lokið. Kári
Kristjánsson hjá Vinnueftirliti rík-
isins staðfesti að stofnunin myndi
á næstunni senda Flugleiðum er-
indi vegna málsins, en vildi að
öðru leyti ekki tjá sig um það efn-
islega.
Sigurður Guðmundsson sagði að
Félag starfsfólks í veitingahúsum
myndi fylgja málinu eftir: „Það er
alvarlegt mál að fólk sem er búið
að vinna langan aldur hjá Flugleið-
um skuli með þessum hætti vera
þvingað til að minnka við sig
vinnu, einmitt á þeim tíma sem
vinnuþörfin er mest hjá fyrirtæk-
inu. Hjá mörgum íslenskum fyrir-
tækjum viðgengst andleg kúgun,
og fólk lifir í þrælsótta við at-
vinnurekendur. Við áttum hinsveg-
ar ekki von á þessu frá Flugleið-
um. En það var táknrænt þegar
Hótel Loftleiðir hélt uppá 30 af-
mæli voru sumar af þessum konum
heiðraðar fyrir vel unnin störf,
meðan þær voru með uppsagnar-
bréfið í vasanum," sagði Sigurður
Guðmundsson.
Ungir
listamenn
Um þessar mundir stend-
ur yfir sýning útskriftar-
nema í Myndlista- og
handíðaskóla íslands.
Halldór Björn Runólfsson
gerði sér ferð í Laugar-
nesið á vegum Alþýðu-
blaðsins, skoðaði sýning-
una og ræddi við ungu
listamennina. Meðal við-
mælenda hans var Eyrún
Sigurðardóttir. Sjá miðopnu.
■ Elías Davíðsson tónskáld vill draga íslenska ráðamenn til ábyrgðar vegna aðildar íslands að
viðskiptabanni á íraksem kostað hefur hálfa milljón manna lífið
Vill að utanríkisráðherra verði ákærður
Elías: Ég hefði brugðist borgaralegri, siðferðilegri og lagalegri
skyldu minni ef ég hefði látið ógert að vekja athygli þingheims á
stuðningi starfandi ráðherra við slíkan verknað.
„Hér með tilkynnist yður að ég
ásaka núverandi utanríkisráðherra,
Halldór Ásgrímsson, um að viðhalda
þátttöku Islands í aðgerðum gegn al-
menningi í Irak sent fela í sér ntann-
dráp, alþjóðleg hryðjuverk og stríðs-
glæpi.“
Með þessum orðuni hefst bréf sem
Elías Davíðsson tónskáld kóm til Ólafs
G. Einarsson forseta Alþingis í gær. El-
ías sendi jafnframt bréf til Hallvarðs
Einvarðssonar ríkissaksóknara og fór
fram á, að höfðað yrði opinbert mál
gegn Jóni Baldvin Hannibalssyni tyrr-
um utanríkisráðherra vegna sama máls.
ísland er aðili að alþjóðlegu við-
skiptabanni á írak, sem staðið hefur
síðan írakar gerðu innrás í Kúvæt fyrir
fimm árum. Viðskiptabannið hefur leitt
ómældar hörmungar yfir írösku þjóð-
ina, og segir Elías í bréfum sínum til
forseta Alþingis og ríkissaksóknara að
500 þúsund óbreyttir borgarar hafi látið
lífíð. Eh'as segir að hann hefði brugðist
borgaralegri, siðferðilegri og lagalegri
skyldu sinni, hefði hann látið ógert að
vekja athygli þingheims á stuðningi
starfandi ráðhena við slíkan verknað.
Hann segir ennfremur í bréfi sínu til
forseta Alþingis: „Samkvæmt 14. grein
stjómarskrár og samkvæmt lögum um
ábyrgð ráðherra er það einungis á færi
Alþingis að ákæra starfandi ráðherra
vegna meintra embættisbrota, þar með
talinna brota á almennum hegningar-
lögum og öðmm refsiverðum verknaði.
Því skora ég á yður að gera viðeigandi
ráðstafanir til þess að Alþingi íslend-
inga geti uppfýllt skuldbindingar sínar
samkvæmt ákvæðum stjómarskrár og
íslenskra laga og samkvæmt skuldbind-
ingum íslands að þjóðarétti."
Halldór Ásgrímsson. Samkvæmt
stjórnarskrá er ekki hægt að sækja
sitjandi ráðherra til saka, og því
biður Elías forseta Alþingis að taka
á málinu.
■ Er ámælisvert hversu
mjúkum höndum frétta-
menn fara um forseta-
frambjóðendur?
Bardaginn um
Bessastaði -
hysterísk aug-
lýsingavelia!
„Það er ámæhsvert hversu mjúkum
höndum fréttamenn fara um forseta-
frambjóðenduma. Það er farið að tala
um þá á annan hátt en venjulegt fólk.
Auðvitað á að ræða um forsetaffam-
boðið af fullri virðingu. Hins vegar
þarf að spyija mjög skýrra spuminga
um embættið og það hvað þetta fólk
vill gera á Bessastöðum og hvað það
hafi gert fyrir þjóð sína. Hvers vegna
það sé verðugt til að verða forseti Is-
lands,” segir Þómnn Sveinbjamardótt-
ir stjómmálafræðingur og varaþing-
maður meðal annars í viðtali við Al-
þýðublaðið í dag. Blaðið leitaði til
fólks úr öllum áttum og innti það eftir
áliti þess á bardaganum um Bessa-
staði. Flestum fmnst kosningabaráttan
heldur dauf og embættið sjálft óspenn-
andi: „Embættið er þess eðlis að það
er skelfileg hugsun fyrir fólk sem er
spontant og skemmtilegt að það megi
ekki lengur vera þannig af því það er -
komið í embætti forseta íslands," segir
Hannes Öm Blandon sóknarprestur.
Og Bragi Kristjónsson fombókasali
segir meðal annars: „Alls konar fólk
sem ekki hefur tilkynnt að það ætli
fram er að tilkynna að það ætli ekki
ffam. Það er að tilkynna eitthvað sem
kannski var í bígerð en ekkert hefur
orðið af. Þetta er ekkert annað en
hysterísk auglýsingavella."
Sjá blaöslðu 7
Blettur á
glansmynd
Flugleiða
- sjá leiðara
Hvað er að
Birni Bjarnasyni?
- spyr Guðmundur Andri Thorsson
- sjá blaðsíðu 2
Hið rétta andlit
Shakespeares
loks fundið
-sjá blaðsfðu 6
Ráðist á
iaunafólk
- sjá grein Glsla S. Einarssonar
á blaðsíðu 3