Alþýðublaðið - 16.05.1996, Síða 2
2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 16. MAI 1996
s k o ð a n i r
MMÐUBIMÐ
21112. tölublað
Hverfisgötu 8 -10 Reykjavík Sími 562 5566
Útgefandi Alprent
Ritstjóri Hrafn Jökuisson
Umbrot Gagarín hf.
Prentun ísafoldarprentsmiðjan hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Sími 562 5566
Fax 562 9244
Símboði auglýsinga 846 3332
Áskriftarverð kr. 1.500 m/vsk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 100 m/vsk
Blettur á glansmynd
Flugleiða
Kyndugt uppátæki hjá Birni. Og óheppilegt
því Ríkisútvarpið er illa statt eftir margra ára
afskipti Sjálfstæðismanna af stofnuninni.
Ekkert íslenskt fyrirtæki leggnr jafnmikið uppúr ímynd sinni og Flug-
leiðir. Auglýsingar Flugleiða miða að því að sýna að þar fari traust fyr-
irtæki, byggt upp af samhentum hópi starfsmanna. Gæðastjómun er
boðorð dagsins hjá hinum nútímalegu stjómendum Flugleiða, og þeir
gera mikið úr því hversu vel sé að starfsmönnum búið. Þetta er glans-
mynd auglýsinganna. Bakvið þessa glansmynd er annar vemleiki. Því
fengu nokkrar ræstingakonur, sem starfað hafa ámm saman hjá fyrir-
tækinu, að kynnast nýlega. Konumar vom í fullu starfi en var tilkynnt
að þær yrðu að minnka við vinnu um helming. Þá hefur komið fram að
stjómendur Flugleiða sögðu konunum að þær gætu sótt um atvinnuleys-
isbætur til að vega upp tekjumissinn - eða bara fengið sér svarta vinnu
einhversstaðar.
Yfirmenn Flugleiða gera það ekki endasleppt, einsog fram kemur í
Alþýðublaðinu í dag. Stéttarfélag kvennanna fór þess á leit við Vinnu-
eftirlitið að það kannaði máhð, og taldi - réttilega - að um andlega kúg-
un væri að ræða. Vinnueftirlitið kynnti sér mál kvennanna og fulltrúar
stofnunarinnar áttu síðan fund með stjómendum Flugleiða. Eftir þann
fund fékk sú kona sem verið hefur málsvari ræstingakvennanna sent
uppsagnarbréf heim til sín. Jafnframt var ekki óskað eftir því að hún
ynni út uppsagnarfrestinn. Þetta var klárlega ósvífm hefridaraðgerð, og
átti að sýna konunum að þær kæmust ekki upp með neitt múður. I kjöl-
farið skrifuðu þær konur sem enn héldu vinnunni undir nýjan samning
um hálfsdagsstarf.
Framkoma Flugleiða í þessu máli er blettur á fyrirtækinu og í hróp-
andi mótsögn við vel hannaða glansímyndina. Þama er níðst á þeim
sem síst geta varist. Þetta em laun hins vellauðuga fyrirtækis til þeirra
sem hafa unnið í þágu þess ámm saman á smánarlaunum. En málinu er
ekki lokið, og er nú í höndum Vinnueftirlitsins. Full ástæða er hinsvegar
til að ræða þetta mál á opinbemm vettvangi, sem og réttleysi launafólks.
Enginn vafi er á því að sum fyrirtæki í landinu nýta sér atvinnuleysið til
hins ítrasta, og hika ekki við að bijóta öll siðalögmál á starfsmönnum í
trausti þess að óttinn við atvinnumissi komi í veg fýrir að þeir leiti réttar
síns.
Er lýðræðið óvirðing
við Davíð Oddsson?
Það er alkunna að Davíð Oddsson forsætisráðherra unir sér ekki nema
mátulega vel í þingsal. Síðan hann var kjörinn á þing fyrir fimm árum
hefur hann verið iðinn við að gera lítið úr störfum löggjafarsamkom-
unnar, og með því móti átt dijúgan þátt í að móta neikvæð viðhorf þjóð-
arinnar til Alþingis. Nú er margt aðfinnsluvert við starfshætti og skipu-
lag Alþingis, en forsætisráðheira hefur aldrei með sannfærandi hætti
getað útskýrt hversvegna honum er svona uppsigað við þingið; þaðan af
síður hefur hann komið með tillögur til úrbóta.
Trúnaður til sölu
Kyndugt það uppátæki Björns
Bjamasonar útvarpsmálaráðherra að
skipa Pál Magnússon, nokkra krakka
og Akureyring í nefnd um firamtíð Rík-
isútvarpsins. Krakkamir eru úr Heim-
dalli, Akureyringurinn er Akureyringur
en PáU er eins og kunnugt er yfirmaður
klám- og ofbeldissviðs hjá Islenska Ut-
varpsfélaginu - þegar hann starfaði
sem fréttamaður hjá ríkisfjölmiðhnum
gat hann sér hins vegar einkum orð
fyrir einarða baráttu sína í því brýna
réttlætismáli að fá að auglýsa bindi.
Jón Olafsson, sem er yfirmaður Páls,
kvað tillögur nefndarinnar viturlegar
og mátti á honum skilja að ánauð væri
létt af Ríkisútvarpinu að þurfa ekki að
standa í veraldlegu stússi eins og aug-
lýsingum, en sjálfur er hann vafalaust
tilbúinn að taka á sig þann kross.
Vikupiltar
Þetta er viskulegt, eins og mamma
myndi segja.
Kannski myndu tillögurnar ekki
hljóma illa ef til væri önnur íslensk
sjónvarpsstöð. Svo er ekki. Og kannski
tillögumar myndu ekki hljóma svo vit-
lausar ef ekki væri borin von að stofn-
unin myndi nokkum tfmann fá allar
þær tekjur af nefskatti sem henni bæri
samkvæmt lögum. Hér á Iandi stendur
framkvæmdavaldið aldrei við það sem
löggjafarvaldið ákveður - og raunar
hefur Ríkisútvaipið iðulega verið svift
tekjstofnum sem því höfðu verið
eymamerktir. Útkoman yrði að sjálf-
sögðu sú að stofnunin yrði enn frekar
fjársvelt og dagskrá þess meira og
minna keypt af stofnunum og félaga-
samtökum úti í bæ og Jón Ölafsson
sæti einn að öllum sjónvarpsauglýsing-
um, að vísu með slettu og slettu til hins
kanasjónvarpsins, sem Mogginn rekur.
Kyndugt uppátæki hjá Birni. Og
óheppilegt því Ríkisútvarpið er illa
statt efitir margra ára afskipti Sjálfstæð-
ismanna af stofnuninni, en sjálfstæði
hennar og óhæði virðist þeim fyrir-
munað að skilja eða sætta sig við, og
hafa ráðskast með hana eins og komm-
únistaflokkur, telja Ríkisútvarpið eitt-
hvað á sínum vegum. Það er brýnt að
losa þessa stofnun við afskipti stjóm-
málamanna, leggja niður hið fráleita
útvarpsráð þar sem sitja fávísar silki-
húfur utan úr bæ og skipta sér af
mannahaldi og dagskrá án þess að hafa
annað til þess unnið en að starfa ötul-
lega tyrir flokka sína íyrir kosningar.
Að fá að setjast í útvarpsráð virðist hér
á landi sams konar umbun og sendi-
herraembætti eru í Bandaríkjunum.
Við eigum enn eitir að súpa seyðið af
síðustu afskiptum ráðsins af málum
sem því koma ekkert við, en öllum er í
fersku minni þegar það heimtaði að
sendur yrði söngvari í Evróvision-
keppnina, og þar með var peningurinn
búinn fyrir það árið til dagskrárgerðar.
Þetta mun hafa skeltilegar afleiðingar,
þvt martröðin 'mun rætast: lagið Skúb-
bídú er svo bjánalegt á einhvetja evr-
ópska vísu að það mun sigra.
Það er brýnt að losa stofnunina und-
an tengslum við atvinnulífið svokall-
aða - afleggja kostunina. Það er brýnt
að gera sjónvarpið að menningarstofn-
un sem landsmenn geta treyst, og kom-
inn er tími til að losa rás tvö undan
þeirri byggðastefnukvöð að fólk t
dreifðum byggðum landsins þurfi að
heyra það nýjasta í poppi - eins og það
hafi ekki nóg tækifæri til þess með
Geirmund á annarri hverri þúfu - getur
hann ekki tekið að sér rappið líka íyrir
það?
Rás tvö. Hún er óneitanlega svolítið
íhaldssöm, sem er skrýtið einkenni á
slíkri stöð. Rás tvö er svo stöðnuð að
hún er eins og gamla herbergið hans
Stefáns Jóns Hafstein ef ntamma hans
hefði varðveitt það með öllu dótinu eft-
ir að hann flutti að heiman, öllu
skemmtilega dótinu, nema nú væri ryk
og köngulóarvefur sest á það og hann
væri sjálfur löngu farinn. Því að hann
er farinn. Og ýmsir af bestu sonum rá-
sinnar líka: Skúli Helgason og Þor-
steinn J. Vilhjálmsson svo að tveir þeir
vöskustu séu nefndir. Fyrir vikið vant-
ar rás tvö það bit sem ætti að vera sjálf-
ur tilverugrundvöllur hennar og fylgdi
Stefáni Jóni. Meinlaust skvaldur og
þjóðarsálin alsett köngulóarvef þar sem
alltaf þegar maður kveikir á henni skal
vera óðamála Steingrímur l.m.n.o.einn-
igp. Sigurðsson. Dagskráin er eins og
allir starfsmennirnir séu frammi að
horfa á sjónvr.pið milli skyldubund-
inna kynninga.
Ríkisútvarpið heitír til þessa byggst
á einhvers kr ir sáttmála þjóðar og
stofnunar; þjóðin lagði við hlustir og
starfsmenn stofnunarinnar lögðu sig
alla fram um að segja satt og rétt frá og
vanda sig við framsetningu máls vegna
þess að menn töldu að þjóðin væri að
hlusta og þjóðin treysti þessum starfs-
mönnum. Það skapaðist gagnkvæmur
trúnaður og enn er þessi sáttmáli í fullu
gildi á rás eitt og á fféttastofum útvarps
og sjónvarps. Þessi trúnaður beið
hnekki í tíð Hrafns Gunnlaugssonar
þegar Baldur Hermannsson tók að búa
til myndskreyttar kjallaragreinar með
marxískum söguskýringum qg frjáls-
hyggjuboðskap. En harih roinaöi ekki
því þetta var bára Báldur að blaðra og
Islendingar hafa állfaf háff gaman af
blaðri.
Þessi trúnaður milli þjóðar og stofn-
unar mun hins vegar bresta ef lengra
verður haldið áfram á þeirri braut að
selja aðgang að þeirri auðlind sem
þessri trúnaður er. Það ber æ meira á
því í dagskrá sjónvarps að félagasam-
tök, fyrirtæki og stofnanir láta gera
skjallmyndir um sig og selja síðan
sjónvarpinu. Nú er verið að endursýna
áróðursmyndir fyrir landbúnaði sem
gerðar em á vegum bændasamtakanna.
Nýlega hófst þáttaröð á vegum verk-
fræðingafélagsins sem tjallar um það í
löngu og seigfljótandi máh hversu þeir
séu æðislegir. Happdrætti Háskólans
keypti sér heilan skemmtiþátt og heilan
Hemma Gunn, sem er frábær sjón-
varpsmaður og ætti ekki að þurfa að
standa í þessu skrumi. Umsvif auglýs-
ingadeildar RÚV virðast hafa farið
stjómlaust úr böndunum með tilkomu
samkeppni og afsiðun sem henni
fylgdi og nú er svo komið að fyrir-
ferðamestar í auglýsingatímum eru
auglýsingar um auglýsingar Ifá auglýs-
ingadeildinni. Þar sem verið er að
segja: Hæ hó! fullt af fólki verður að
horfa! Auglýsið! Hæ hó! Trúnaður til
sölu!
Þetta er viskulegt. ■
Nýjasti kaflinn í köpuryrðasögu Davíðs gagnvart þinginu birtist í
Tímanum í gær. Þar sagði hann að stjómarandstæðingar sýndu Alþingi
lítilsvirðingu með því beijast af alefli gegn vinnumarkaðsffumvörpum
ríkisstjómarinnar. Orðrétt segir í blaðinu: „Forsætisráðherra segir að
það afli stjómarandstæðingum ekki virðingar útávið að tala í tvo til þijá
tíma fyrir tómum þingsölum. Hann segir það hinsvegar ekki trafla störf
annarra þingmanna, þótt stjómarandstæðingar veiji löngum stundum í
ræðustól Alþingis gegn fmmvörpum ríkisstjómarinnar.“
Hvað hefur stjómarandstaðan verið að tala um? Hún hefur verið að
tala gegn fmmvörpum sem fela í sér stórkostlega skerðingu á réttindum
launamanna og verkalýðshreyfingar. Stjómarandstaðan - í samvinnu
við hreyfmgu launþega - hefur gert sitt ítrasta til að koma í veg fyrir að
stigið verði skref áratugi aftur í tímann. Stjómarandstæðingar hafa reynt
að verjast atlögu ríkisstjómar Davíðs Oddssonar að lýðræði og frelsi
launamanna. Þetta hefur stjómarandstaðan á Alþingi gert samkvæmt
þeim leikreglum sem gilda. En leikreglur lýðræðisins em forsætisráð-
herra ekki mjög að skapi - Davíð Oddsson afgreiðir það einfaldlega
sem óvirðingu þegar fjórir stjómmálaflokkar, gervöll verkalýðshreyf-
ingin og þorri landsmanna em honum ósammála. ■
m a
Atburðir dagsins
1457 Bjöm ríki Þorleifsson, 49
ára höfðingi á Skarði, sleginn
til riddara og falin hirðstjóm á
Islandi. 1510 Listmálarinn San-
dro Botticelli, einn mestur
snillingur heims um sína daga,
deyr í fátækt í Flórens. 1861
Fyrsta litijósmyndin sýnd í
Lundúnum. 1901 27 manns
drukknuðu með skipi sem sökk
austur af Heimaey. Einum
manni var bjargað. 1942 Ólafur
Thors myndar fyrstu ríkisstjóm
sína af fimm. 1959 Fyrsti
landsleikur íslendinga í körfu-
bolta; gegn Dönum í Kaup-
mannahöfn. 1966 Tískubúðin
Karnabær opnar í Reykjavík.
1978 Líkkista Charles Chaplins
kemur í leitirnar; henni var
rænt úr svissneskum kirkju-
garði 10 dögum áður.
Afmælisbörn dagsins
Erik Satie 1866, franskur tón-
smiður. Dcnnis Hopper 1936,
bandarískur leikari. Grace Jo-
nes 1955, poppstjarna frá Ja-
mæka.
Ræða dagsins
Tækifærisræður eru sjaldnast
pappírsins virði sem þær eru
skrifaðar á.
Leslie Henson.
Annálsbrot dagsins
12. Septembris sofnaði hægt og
vel sú heiðurs kvenpersóna
Halldóra Guðbrandsdóttir, lá
karlæg nokkur ár, 85 ára, fag-
urt ljós þessa lands af guð-
hræðslu og ölmusugjöfum.
Seiluannáll 1658.
Málsháttur dagsins
Flest fýsir sælan, og snúðu þér
upp, Imba mín.
Ast dagsins
Ekkert á jörðinni er eins yndis-
legt og sönn ást milli pilts og
stúlku í góðu veðri um nótt á
vori, þegar hestamir em sofn-
aðir í túnunum.
Halldór Laxness; Salka Valka.
Orð dagsins
Tœkifœrið gríptu greitt,
giftu mun það skapa,
jámið skaltu Itamra heitt,
að liika er sama og tapa.
Steingrímur Thorsteinsson.
Skák dagsins
í hugum margra skákmanna
jafnast ekkert á við að fórna
drottningunni fyrir mátsókn. í
skák dagsins hefur Arachamia
svart og á leik gegn Sadler, og
þótt hvítur láti ófriðlega og hóti
öllu illu knýr svartur fram
snotran vinning.
rm
ptD'rij Íf n
m PC4 ípgj 1 li km
!pi 1 i pjj
i
|| 1 n l2taa
Svartur leikur og vinnur.
1. ... Dg5!! 2. Rf6+ Drottning-
in er friðhelg, ella mátar svart-
ur snarlega. 2. ... Hxf6 Leikn-
um er lokið: hvítur gafst upp.