Alþýðublaðið - 16.05.1996, Qupperneq 6
6
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 16. MAÍ1996
s a g a
„Dauðagríman" sem hingað til hef-
ur verið talin svikin er ekta sam-
kvæmt Hammerschmidt-Hummel.
Flower myndin er frá árinu 1609 og
menn spyrja sig hvort Shakespear
hafi sjálfur setið fyrir.
Chandos myndin sýnir skáldið á
þrítugsaldri, þar sem hann skartar
eyrnalokk.
Grafík myndin er talin frá 1623.
Brjóstmyndin af Shakespeare hefur
skemmst í aldanna rás.
■ Þýsk fræðikona segist hafa fundið hið rétta andlit Shakespeares
Dó Shakespeare
Menntamálaráðuneytið
Nám í RED Cross
Nordic United World
College
Red Cross Nordic United World College í Fjalar í Vest-
ur-Noregi er alþjóðlegur norrænn menntaskóli sem
rekinn er sameiginlega af Norðurlöndunum og í
tengslum við Rauða krossinn. Nám við skólann tekur
tvö ár og lýkur með viðurkenndu alþjóðlegu stúdents-
prófi, International Baccalaureate Diploma (IB).
Kennsla ferfram á ensku. íslensk stjórnvöld eiga aðild
að rekstri skólans og þýðst þeim að senda 1 nemanda
á næsta skólaári. Nemandinn þarf sjálfur að greiða
uppihaldskostnað sem nemur 15.000 norskum krón-
um á ári og auk þess ferðakostnað.
Menntamálaráðuneytið auglýsir hér með eftir um-
sækjendum um skólavist fyrir skólaárið 1996-1997.
Umsækjendur skulu hafa lokið sem svarar einu ári í
framhaldsskóla, hafa gott vald á ensku og vera á aldr-
inum 16-19 ára. Umsóknir þurfa að berast mennta-
málaráðuneytinu, í síðasta lagi 5. júní. Nánari upplýs-
ingar eru veittar í menntamálaráðuneytinu, fram-
haldsskóla- og fullorðinsfræðsludeild, í síma 5609500.
Þar er einnig að fá umsóknareyðublöð.
AlþýðubSaðið
best í rúminu
Kennari í enskum bók-
menntum við Mainzháskóla í
Þýskalandi, Hildegard Hamm-
erschmidt-Hummel, hefur nú
lýst því yfir að hún telji rann-
sóknir sínar endanlega stað-
festa hvernig Shakespeare leit
út, auk þess sem þær gefi til
kynna að dauða hans megi
rekja til krabbameinsmyndunar
við vinstra auga.
Fyrir þrettán árum hóf
Hammmerschmidt-Hummel að
safna saman þeim myndum af
Shakespeare, sem fylgdu útgáf-
um leikrita hans. Hún safnaði
3.300 myndum allt frá 1594 til
dagsins í dag. Söfnunin kom
henni á bragðið í leitinni að
þeirri mynd af höfundinum sem
væri sannleikanum samkvæm-
ust. Var það grafíkmynd, högg-
mynd, ein tveggja olíumynda
eða dánargríma?
Árið 1623 kom út fyrsta
heildarsafn leikverka Shake-
speare en með því fylgdi graf-
íkmynd eftir Hollendinginn
Martin Droeshout. Rithöfund-
urinn Ben Johnson orti ljóð í
tilefni útgáfunnar og kvað
myndina vera af Shakespeare,
en Droeshout var einungis
fimmtán ára þegar Shakespeare
lést. Hver var þá fyrirmyndin
að verki hans? Umrædd högg-
mynd er hins vegar eftir enskan
myndhöggvara Gheerart Jans-
sen og er geymd í kirkju við
Stratford þar sem Shakespeare
var grafinn. Hún hefur
skemmst í aldanna rás og
breyst.
Tjarnarkvart-
ettinn í
Gerðubergi
Tjamarkvartettinn heldur tónleika í
Gerðubergi næstkomandi laugardag,
18. maí kl. 17. Kvartettinn hefur á síð-
ustu ámm vakið athygli fyrir vandað-
an flutning á sönglögum úr ýmsum
áltum og frá ýmsum tímum.
Á þessum tónleiku er efnisskráin að
vanda fjölbreytt. Má þar nefna ný
sönglög eftir Hróðmar Inga Sigur-
björnsson samin fyrir kvartettinn og
einnig ýmsar nýstárlegar útsetningar á
íslenskum söng- og dægurlögum allt
frá Sigvalda Kaldalóns til Spilverks
þjóðanna. Allt efni er flutt án undir-
Íeiks „a capella."
Tjamarkvartettinn er skipaður þeim
Kristjáni Hjartarsyni bassa, Hjörleifi
úr krabba?
Olíumyndirnar eru svokallað-
ar Chandos og Flower myndir.
Þá fyrri gaf Chandos lávarðar
National Portrait Gallery í
London á 19. öld, en hún er af
manni þrjátíu til þrjátíu og
fimm ára með dökkbrún augu,
brúnt hár og eyrnalokk í vinstra
eyra. Sú seinni er nefnd eftir
konu, sem gaf myndina lista-
safni konunglega Shakespeare
leikhússins. Sú mynd er af
manni um það bil áratug eldri
og líkist Droueshout grafík-
myndinni. „Dauðagríman",
sem almennt var álitin fölsuð,
er í eigu Darmstadt borgar í
Þýskalandi og er líklegt að
þýskur aðalsmaður hafi keypt
hana í London um 1775. Á
bakhlið grímunnar er ritað dán-
ardægur Shakespeare.
Hammerschmidt-Hummel
ákvað að nota opinbera rann-
sóknaraðferð til að komast að
því hvað myndirnar fimm ættu
sameiginlegt. Með aðstoð Al-
ríkislögreglunnar í Wiesbaden
bar hún grafíkmyndina saman
við málverkin tvö. Lögreglan
fann 17 andlitsdrætti í myndun-
um, sem voru eins og myndun-
um öllum, og var hægt að
sanna að um nákvæmlega sama
andlit væri að ræða.
Það sem Hummel þótti
merkilegast við myndirnar var
kúla ofan við vinstri augabrún
skáldsins, en kúlan var greini-
leg á báðum málverkunum,
grafíkmyndinni auk þess sem
mótar fyrir henni á „dánargrím-
unni“. Fræðinga greinir á um
hvað kúlan gefi til kynna. Sam-
kvæmt Walter Lerche augn-
lækni gefur kúlan til kynna
eitlastækkun og er þannig vísir
um banvænt krabbameinsæxli,
meinafræðingar taka undir þá
kenningu en húðsjúkdóma-
læknar telja „kúluna“ einungis
vera bólgu.
Hammerschmit-Hummel dró
þrjár ályktanir af rannsókninni
á myndunum; út frá andlits-
byggingunni og bólgunni eða
kúlunni: bæði málverkin eru
upprunaleg og máluð þegar
leikritahöfundurinn var á lífi,
grafíkmynd Droeshout byggir á
Flower myndinni og hin tor-
tryggilegu „dánargríma" er
raunveruleg dánargríma Shake-
speares. Samkvæmt Hummel
þýðir þetta að þær myndir sem
áður hafa verið taldar gefa rétta
mynd af Shakespeare - grafík-
myndin og brjóstmyndin, eru
ekkert annað en eftirmyndir.
Þrátt fyrir merkilega upp-
götvun hefur Hammerscmidt-
Hummel átt í erfiðleikum með
að sannfæra kollega sína um
réttmæti niðurstöðu sinnar.
Shakespeare-sérfræðingurinn
Stanley Wells segir hana
byggja á líkum, að ekki sé
hægt að segja fyrir víst hvað
kúlan gefi til kynna þar sem
ekki séu til neinar eðlilegar og
raunsannar myndir af Shake-
speare. Dieter Mehl, forseti
þýska Shakespere félagsins
spyr hins vegar: „Skiptir þetta
nokkru máli?“
Newsweek
An undirleiks. Tjarnarkvartettinn hefur töfrað marga með söng sínum.
Hjartarsyni tenór, Kristjönu Arn-
grímsdóttur alt og Rósu Kristínu Bald-
ursdóttur sópran. Þau hafa starfað
saman í sjö ár og á þeim tíma komið
víða fram bæði hér á landi og erlendis,
sungið í útvarpi og sjónvarpi og sent
frá sér tvo hljómdiska.
Sjónvarpsþáttur um Tjamarkvartett-
inn sem sýndur var í Ríkissjónvarpinu
nú á dögunum vakti mikla athygli og
munu eflaust margir höfuðborgarbúar
taka því fagnandi að fá tækifæri til að
hlýða á söng hans nú um helgina.