Alþýðublaðið - 31.05.1996, Side 1
■ Ásta B. Þorsteinsson telur alvarlega galla á grunnskólafrumvarpi menntamálaráðherra
Heilagtstríð
klefa 13
Sævar Marino Ciesi-
elski í klefa númer 13
í Síðumúlafangelsinu.
Þangað hefur hann
ekki komið i tæp 20
ár en fór í gær með
Einari Ólasyni Ijós-
myndara. Hann segir
í samtali við Alþýðu-
blaðið að hluti af
honum hafi dáið í
þessum klefa enda
var hann þarna í eitt
og hálft ár. í lækna-
skýrslu, sem Alþýðu-
blaðið hefur undir
höndum, frá árinu
1978 undirrituð af
Guðsteini Þengilssyni
lækni stíluð á Jón
Thors, fulltrúa í
Dóms- og kirkjumála-
ráðurneytinu, segir:
„... nú er einangrunin
farin að kvelja hann
einum um of, og erf-
itt að segja hversu
lengi hann haldi hana
út með vit sitt
óskert."
Sævar segir í viðtali
að hann sé orðinn
langþreyttur á bar-
áttu sinni við kerfið
og að Þorsteinn Páls-
son svari bréfum
hans ekki.
Sjá bls. 7
■ Sighvatur Björgvinsson við eldhúsdags-
umræður í gærkvöldi
Fólkið er aftast í skut
- segir Sighvatur og telur ríkisstjórnarsamstarfið byggja á
samstjórn kyrrstöðuafla og sérhagsmunavörslu.
„Hvað gerist þegar Sjálfstæðis-
flokkur og Framsóknarflokkur ná
saman um stjóm landsins? Ávallt hið
sama. f slíkri samsuðu sökkva ætíð til
botns þau frjálslyndu framfaraöfl,
sem finna má í flokkunum báðum.
Undirtökunum nær kyrrstöðuliðið,
verðir sérhagsmunanna, andstæðing-
ar almannahagsmuna, fólkið sem
hefur gærdaginn fyrir framtíðarsýn."
Þetta voru upphafsorð ræðu Sig-
hvats Björgvinssonar við eldhúsdags-
umræður á Alþingi í gærkvöldi. Sig-
hvatur sagði með ríkisstjórn Sjálf-
stæðisflokks og Framsóknarflokks
væri kyrrstaðan komin til að vera.
Hann sagði einnig að ríkisstjórnin
gætti varðveislu sérhagsmuna á
kosmað almannahags.
Undir lok ræðu sinnar sagði Sig-
hvatur:
,fólk í fyrirrúmi" var aðalslagorð
Framsóknarflokksins í síðustu kosn-
ingum. Er Ingibjörg Pálmadóttir að
framkvæma þá stefnu í heilbrigðis-
ráðuneytinu? Er Páll Pétursson að
framkvæma þá stefnu í félagsmála-
ráðuneytinu gagnvart fólkinu í verka-
lýðsfélögunum? Er Guðmundur
Bjamason að framkvæma þá stefnu
með búvörusamningum? Er Halldór
Ásgrímsson að framkvæma þá stefnu
með ofurtollunum, sem eyðilögðu
Gatt-samninginn? Er Framsóknar-
flokkurinn að framkvæma þá stefnu
með skattalækkununum til stóreigna-
mannanna? Nei, fólkið er aftast í
skut. Skipið sjálft liggur kyrrt við
festar sérhagsmunanna. Það ilýtur
ekki lengur.
Er þetta óskastjóm unga fólksins,
sem hefur jákvæða framtíðarsýn? Er
þetta óskastjóm fijálslyndra og víð-
sýnna karla og kvenna, sem vita að
virk þátttaka Islands í fjölþjóðlegu
samstarfi, fijáls verslun og viðskipti,
heilbrigð samkeppni á markaði og
skipulagsbreytingar í opinberum
rekstri em lyklarnir að bættum lífs-
kjörum, auknum tækifærum til
menntunar, þekkingaröflunar og
þroska og aukinni lífshamingju. Ég
segi nei. Samstjóm kyrrstöðuaflanna
og sérhagsmunavörslumannanna læt-
ur aldrei drauma þessa fólks rætast.
Hún hefur ekki gert það á sínu fyrsta
starfsári. Hún mun ekki gera það á
þeim árum, sem hún kann að eiga
eftir á valdastólunum. Vonandi verða
þau sem fæst.“
Jafnvel brot á jafnræðisreglu
stjómarskrárinnar
- segir Ásta. Telur frumvarpið ekki huga að nemend-
um sem þarfnast sérkennslu.
„Það virðist vera meginmarkmið
þessara breytingartillagna að fá
sveitarfélögin til að samþykkja yfir-
töku á rekstri grunnskólans, hvað
sem það kostar og jafnvei með því
að færa fórnir hvað varðar þarfir,
réttindi og hagsmuni nemenda sem
eiga undir högg að sækja í grunn-
skólum landsins í dag,“ segir Ásta B.
Þorsteinsdóttir varaþingmaður, sem
situr á Alþingi um þessar mundir,
um frumvarp menntamálaráðherra
um breytingar á lögum um grunn-
skóia. I frumvarpinu er fjallað um
ýmislegt sem varðar fjármögnun á
rekstri grunnskólans við tilfærsluna
til sveitarfélaganna, eins og kennslu-
stundafjölda og námsframboð,
kostnað í þágu byggingafram-
kvæmda og fleira. Asta telur mjög
alvarlegt að ekki sé þar einu orðið
vikið að því hvernig fjármagna eigi
sérkennslu og stuðning við fötluð
börn eða önnur böm sem þurfa sér-
staka aðstoð í grunnskólum landsins.
„Óneitanlega veldur það miklum
vonbrigðum að menntamálanefnd
Alþingis skuli leggja fram frumvarp
þar sém ekki er gert ráð fyrir nokk-
urri þróun í málefnum þessa hóps
nemenda,'1 segir Ásta.
Ásta segir að samkvæmt breyting-
artillögunum virðist sem verið sé að
lögfesta möguleika samtaka sveitar-
félaga á því að sameinast um rekstur
sérskóla. Þetta geti haft þau áhrif að
einstök sveitarfélög sjái sér hag í því
að senda börn sem þurfi mikinn
stuðning í sérskóla á höfuðborgar-
svæðinu, sem með því yrðu einskon-
ar safnskólar fyrir allt landið.
„Rekstur sérskóla þarf ekki að heyra
undir mörg sveitarfélög eins og látið
er að liggja í frumvarpinu og þessi
breyting á lögum um grunnskóla er
algjörlega óþörf og jafnvel brot á
jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar,“
segir Ásta
„Það hljóta að teljast eðlileg
vinnubrögð að um málefni þessa
hóps verði fjallað áður en Alþingi fer
í sumarleyfi," segir Ásta.
gegn Olafi
Ragnari?
Spjótin standa nú á Ólafi Ragnari
Grímssyni úr öllum áttum. Elías Dav-
íðsson tónskáld dreifði texta á ensku á
internetinu í vikunni þar sem hann
sakar Ólaf um aðild að glæpi gegn
mannkyninu. Elías hvetur alla mús-
lima og araba til að íhuga vel það sem
kom fram í viðtali Ríkisútvarpsins við
Ólaf Ragnar 17. mars síðast liðinn.
Þar segir hann koma fram að Ólafur
styðji viðskiptabann á írak og stuðli
þannig, ásamt öðrum ráðamönnum
heimsins, að hungurdauða hálfrar
milljónar bama. I texta Elíasar, sem er
undir fyrirsögninni: íslenskur forseta-
frambjóðandi styður ofsóknir gegn
aröbum, kemur fram að Ólafur Ragnar
sé í skoðanakönnunum líklegastur til
að hreppa forsetastólinn af þeim sem í
framboði eru. Þá upplýsir Elías jafn-
framt að hann hafi formlega farið
fram á það við íslenska dómstóla að
þeir undirbúi réttarrannsókn á máli
þessu. Elías ætlar jafnt utan lands sem
innan að vekja athygli á því sem hann
segir glæpsamleg og skammarleg um-
mæli forsetaframbjóðandans.
Sævar
aftur í
Með hækkandi sól breytist afgreiðslutíminn hjá
Sjóvá-Almennum. Frá 28. maí verður
opið frá klukkan 8 til 16.
sm
Sími 569 2500
ALMENMAB
Grænt númer 800 5692
AUK/SÍAk116d11-389