Alþýðublaðið - 06.06.1996, Qupperneq 2
2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 6. JÚNÍ1996
s k o ð a n i r
21122. tölublað
Hverfisgötu 8 -10 Reykjavík Sími 562 5566
Útgefandi Alprent
Ritstjóri Hrafn Jökulsson
Auglýsingastjóri Amundi Amundason
Umbrot Gagarín hf.
Prentun ísafoldarprentsmiðjan hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Sími 562 5566
Fax 562 9244
Símboði auglýsinga 846 3332
Áskriftarverð kr. 1.500 m/vsk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 100 m/vsk
íslendingar hafa það
fínt. Að meðaltali
Miðað við höfðatöluna margfrægu eiga íslendingar fleiri litasjón-
vörp en nokkur önnur þjóð í heiminum. Sama máli gegnir um
myndbandstæki og einkabflaflotinn tekur öllum öðrum fram. Verð-
bólga er nánast engin og atvinnuleysi, þrátt fyrir allt, minna en víð-
ast annarsstaðar. Svo Islendingar hafa það fínt. Eða hvað?
Skýrsla Þjóðhagsstofnunar um laun og lífskjör á íslandi og í Dan-
mörku og fleiri löndum er athyglisverð um margt. Tímakaup á Is-
landi er lægra en í flestum löndum sem okkur er gjamast að bera
okkur saman við: í hittifyrra var Island þannig í 19. sæti af 24 yfir
mánaðarlaun verkafólks í iðnaði eftir skatta og tryggingagjald í
OECD ríkjum. Þá leiðir skýrslan í ljós að tekjur hjóna í Danmörku
voru 39 prósent hærri en á íslandi, en ráðstöfunartekjur voru þar
tæplega 15 prósent hærri. Það sem þó er athyglisverðast - og alvar-
legast - við skýrsluna, er hve íslendingar þurfa að hafa mikið fyrir
að halda uppi lífskjörum sínum. Islendingur í fullu starfi vinnur að
meðaltali 50 klukkusmndir á viku, en Daninn aðeins 39. Þetta stafar
vitanlega af því að tímakaupið er miklu lægra hérlendis, en það er
aftur skýrt með lítilli ffamleiðni.
Edda Rós Karlsdóttir hagfræðingur hefur gert merkilegar saman-
burðarrannsóknir á launum á íslandi og Danmörku. í Alþýðublaðinu
í dag bendir Gísli S. Einarsson alþingismaður bendir á að niðurstöð-
ur hennar eru í öllum meginatriðum samhljóða skýrslu Þjóðhags-
stofnunar, en Gísli lagði snemma vors fram frumvarp á Alþingi um
lögbindingu lágmarkslauna og byggði röksemdir sínar að vemlegu
leyti á rannsóknum Eddu. Hún segir í skýrslu sinni: „Þær skýringar
sem helst hafa verið nefndar á lágum launum á íslandi er lág fram-
leiðni, einfalt atvinnulíf, skortur á fúllvinnslu, smæð fyrirtækja og
markaða og hár flutningskostnaður. Þessar skýringar, og fleira, þarf
að skoða nánar. Taka þarf fast á þeim atriðum sem hægt er að breyta
og bæta. Strax.“
Edda varpar því líka fram, að svo virðist sem margir hræðist mjög
að íslendingar feti í fótspor annarra Norðurlandaþjóða, hvað varðar
háar atvinnuleysisbætur, sem letja alþýðu fólks til vinnu - en að hitt
heyrist sjaldnar að íslendingar hafí áhyggjur af því að láglaunastefn-
an letji íslensk fyrirtæki til framsækni. Gísli S. Einarsson segir í
samtali við Alþýðublaðið í dag að í reynd sé verið að niðurgreiða
laun fyrir mörg fyrirtæki. Þetta kemur heim og saman við niðurstöð-
ur Eddu sem segir í skýrslu sinni: „Það er almennt viðurkennd skoð-
un að tengsl séu milli skattkerfis og launastigs þjóða. Spyija má hver
sé í raun að borga launin; fyrirtækin eða ríkið? Það má færa rök fyrir
því að í samanburði við Danmörku sé íslenska rfldð að niðurgreiða
stóran hluta launanna."
Meðaltalstölur segja aldrei alla söguna. Rannveig Guðmundsdóttir
formaður þingflokks Alþýðuflokksins boðar að hún muni fara fram
á rannsókn á lífskjörum einstakra stétta á íslandi og Danmörku. Þeg-
ar niðurstöður shkrar rannsóknar liggja fyrir er fyrst hægt að meta
hvar þörfin er brýnust fyrir úrbætur og stefnubreytingu. Við umræð-
ur um skýrsluna á Alþingi í gær gerði Rannveig líka að umtalsefni
hvaða áhrif hinn óhóflegi vinnutími íslendinga hafi á fjölskyldulífið.
Um þetta segir hún í viðtali við Alþýðublaðið í dag: „Sú staðreynd
að bæði hjón vinna mun meira hér en í Danmörku bitnar á bömun-
um og skapar þarmeð erfiðari uppvaxtarskilyrði. Það kemur ekki
ffam í þessari skýrslu, fremur en sá vandi sem skapast við umönnun
aldraðra og sjúkra hjá yfirkeyrðum og þreyttum fjölskyldum. Al-
þýðuflokkurinn hefur lagt fram tillögur um samræmda opinbera fjöl-
skyldustefnu. Stefna okkar hefur fengið víðtækan stuðning allra sem
um hafa fjallað, en hún hefur ekki fengist afgreidd á Alþingi.“
Lífsgæði verða ekki bara mæld í þeim krónum sem koma uppúr
launaumslaginu - fremur en litasjónvörpum eða bifreiðum: það em
mannréttindi að veita fólki tækifæri til að sinna og rækta fjölskyld-
una. Þessvegna er vinnuþrælkun einsog viðgengst á íslandi mann-
íjandsamleg. Það á að vera forgangsmál að bæta lífskjör fólks með
þeim hætti að það þurfi ekki að vinna myrkranna á milli. Afleiðing-
amar af því yrðu bæði víðtækar og jákvæðar - og myndu áreiðan-
lega skila margvíslegum arði. ■
Kraftmikill Loftur
Verkefni: Galdra Loftur,
ópera í þremur þáttum, byggð á
leikriti Jóhanns Sigurjónssonar
Höfundur: Jón Ásgeirsson
Hljómsveitarstjóri:
Garðar Cortes
Leikstjóri: Halldór E. Laxness
Leikmynd: Axel Hallkell
Búningar: Hulda Kristín
Magnúsdóttir
Lýsing: David Walters
Sýningarstaður: íslenska Óperan
sjálfum sér. Þriðji þáttur gaf verkinu
síðan dramatíska þyngd svo að á
heildina litið verður ekki betur séð en
Jón hafi skilað afburða góðu verki
sem muni lifa um framtíð í íslensku
óperulíft.
Frammistaða allra söngvaranna var
þeim til sóma og enn einu sinni sann-
aðist að það er orðið með ólíkindum
hversu stóran og góðan söngvarahóp
við íslendingar eigum.
Að öðrum ólöstuðum er Þorgeir
Það hýtur að teljast til stórtíðinda í
íslensku listalífi þegar frumsýnd er
ópera eftir innlendan höfund, svo fá-
tæk er sagan af slíkum listaverkum.
Jón Asgeirsson er fullsæmdur af verki
sínu og ekki fer hjá því að maður dáist
að þeim kjarki og elju sem að baki
býr. Með Galdra Lofti hefur Jón skap-
að fullburða sjálfstætt listaverk sem
vissulega byggir á leikriti Jóhanns
Sigurjónssonar, en með því að nota
ljóð og brot úr ljóðum Jóhanns gefur
Jón sögunni nýja dýpt og fær mann
raunar til að velta því fyrir sér hversu
nátengd örlög Lofts og saga er lífi og
starfi Jóhanns. Sagan af Lofti, skóla-
pilti á Hólum, býður uppá mikil dram-
atísk tilþrif og þau skortir ekki í verki
Jóns og raunar var helst að maður
saknaði á köflum hægari og lýrískari
þátta, einkum á þetta við um fyrsta
þáttinn sem í minningunni verður með
einhveijum hætti sístur þáttanna þrig-
gja. En annar þátturinn gerði betur en
vega það upp, er raunar gullkorn í
Leikh ús
I
Andrésson stjarna sýningarinnar og
skilar feikilega erfiðu hlutverki Lofts
með glæsibrag. Þóra Einarsdóttir er
ung og upprennandi söngkona og
frammistaða hennar í hlutverki Dísu,
sýnir að þar er mikið efni á ferðinni.
Loftur Erlingsson syngur andann eða
samvisku Galdra Lofts og gerði það
afburðavel. Þá var leikur hans með
miklum ágætum
Leikstjóm Halldórs E. Laxness er
ekki fyrirferðarmikil, hófstillt og lát-
laus, jafnvel um of. Þannig verður
lokaatriði annars þáttar ekki eins sterkt
a a t a 1 6 . ú n í
og verið gæti. Eins varð persóna Lofts
full einlit í verkinu og verður það að
skrifast á reikning leikstjórans. Loftur
var einfaldlega of illa innrættur frá
byrjun og erfitt að hafa með honum
samúð í hremmingum hans. Svo langt
gekk þetta að búningur hans var látinn
undirstrika þetta illa innræti, svart leð-
ur og sundurgerðarlegt vesti að hætti
Hollywood.
Búningar Huldu Kristínar eru ann-
ars hið prýðilegasta verk stílhreinir og
einfaldir, sérstaklega voru búningar
kvennanna vel heppnaðir.
Lýsing David Walters er einn af
burðarásum sýningarinnar. Feiknagott
verk sem er mikill gerandi í sýning-
unni og samspil hennar og leikmynd-
arinnar skapar dulúðugt og dramatískt
umhverfi sem styður og styrkir fram-
vindu sýningarinnar.
Leikmynd Axels Hallkels er ein-
föld, stfihrein og skapar kraftmikla,
glæsilega og gefandi umgjörð um til-
finningasveiflur verksins. Axel er í sí-
felldum þroska sem leikmyndahönn-
uður og hlýtur að teljast með þeim
bestu í faginu.
Hljómsveitarstjóm Garðars Cortes
var örugg og verður ekki annað sagt
en hann hafi haldið utanum flutning-
inn með styrkri hendi fagmannsins.
Niðurstaða: Sýning sem telst til
stórviðburða í íslensku Iistalffl.
Höfundurinn Jón Ásgeirsson hef-
ur unnið þrekvirki og öll vinna
aðstandenda er þeim til mikils
sóma.
Atburðir dagsins
1584 Prentun Guðbrandsbiblíu
lauk. Hún var gefin út í 500
eintökum. 1938 Sjómannadag-
urinn haldinn hátfðlegur í
fyrsta sinn. Fjórðungur Reyk-
víkinga tók þátt í hátíðahöld-
um. 1944 Bandamenn efna til
mestu innrásar sögunnar þegar
milljón manna herlið tekur land
á Ermarsundsströnd Frakk-
lands. 1949 Framtíðarhroll-
vekjan 1984 eftir George Or-
well kemur út. 1961 Austur-
ríski sálgreinirinn Carl Jung
deyr. 1976 Bandaríski auðkýf-
ingurinn Jean Paul Getty, sem
eignaðist fyrstu milljón dollar-
ana sína tvítugur, deyr. 1989
Trylltur múgur, yfirkominn af
sorg, tætir klæðin af líki Kho-
meinis erkiklerks þegar hann er
borinn til hinstu hvílu í íran.
Afmælisbörn dagsins
Alexander Púskín 1799, rúss-
neskt stórskáld. Þorvaldur
Thoroddsen 1855, jarðfræð-
ingur. Guðmundur Finnboga-
son 1873, landsbókavörður og
rithöfundur. Thomas Mann
1875, þýskur rithöfundur.
Björn Borg 1956, sænskur
tennismeistari, sigraði fimm
sinnum í einliðaleik á Wim-
bledon.
Tækni dagsins
Fyrst er að vilja, afgángurinn er
tækni.
Halldór Laxness; Kristnihald
undir Jökli.
Málsháttur dagsins
Eigi er hver slíkur sem hann er
séður.
Annálsbrot dagsins
Fannst sá fjórði heimspartur,
sem heilög ritning ekki getur,
sem nefndist Amerika, og hef-
ur sú heimsálfa nafn af þeim
manni, sem fann, er hét Amer-
icus Vesputius. Plato vottar
þessi heimspartur hafi í fymd-
inni eða forðum kallazt Atlant-
ia.
Skarösárannáll 1497. (Ártaliö er
vitanlega skakkt: Kólumbus sigldi
vestur um haf áriö 1492.)
Samningur dagsins
Samningar em ágætir á meðan
til em einhverjir heimskingjar
sem halda þá.
Bismarck.
Orð dagsins
Ósnotur maður
hyggur sér alla vera
viðhlœjendur vini.
Hávamál.
Skák dagsins
Staðan í skák dagsins er ekki
öll þarsem hún er séð - í fljótu
bragði að minnsta kosti. Wem-
er hefur hvítt og á leik gegn
Webster: hvítur er tveimur peð-
um undir og svarta b-peðið er
að renna upp í borð og því
virðist barátta hvíts næsta von-
líúl.
Hvítur leikur og heldur jafnt-
eflL
1. Hxb2! Hh2+ 2. Kf3 Hxb2 -
og hvítur er patt!