Alþýðublaðið - 06.06.1996, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 6. JÚNÍ1996
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
s k o ð a n i r
Það má ekki pissa bakvið hurð
Ef stjórnvöld ætluðu virkilega að taka mark
á þeim rannsóknum sem sýnt hafa fram á að
tóbak sé hættulegt ættu þau auðvitað að
banna það, sama í hvaða formi þess er neytt.
Ekki verður annað sagt en að yfir-
völd þessa lands hugsi vel um heilsu
og velferð þegna sinna. Keppst er við
að setja fram boð og bönn og reglu-
gerðir af ýmsu tagi sem hafa það göf-
uga markmið að passa uppá að við
Pallborð
r 1 Hreinn
Hreinsson
skrifar
förum okkur ekki að voða í öllu þessu
frelsi sem þjakar okkur nútímamenn-
ina. Nýjasta dæmið um þetta er frum-
varpið um tóbakið sem varð að lögum
fyrir stuttu. Þar með er okkur bannað
að taka tóbak í nef og vör auk þess
sem þar er unglingum bannað að
kaupa tóbak nema þeir hafi náð átján
ára aldri. Eflaust er fleira frumlegt og
gott að fmna í þessu frumvarpi, sem
ég veit ekki um, en það er nú svo
margt sem ég veit ekki hvort eð er
þannig að það skiptir ekki máli.
Það sem vekur þó athygli mína er
að enn virðist það vera að stjómvöld
séu hálfvönkuð við gerð þessara laga.
Sá tvfskinhungur sem kemur þarna
fram er alveg með ólíkindum en kem-
ur þó ekki á óvart enda í góðu sam-
ræmi við ,',happy go lucky“ stefnuna
sem ríkt hefur í tóbaks- og áfengis-
málum landsmanna frá því að Ingólfur
nam hér land og datt í það fyrstur
manna.
Eftir gildistöku laganna má eki taka
í nefið eða vörina af því að það er svo
hættulegt fyrir heilsuna að mati sér-
fræðinga. Eftir sem áður má þó reykja
sígarettur sem að mati sömu sérfræð-
inga em líka hættulegar heilsunni. Og
gott ef það eru ekki nákvæmlega
sömu hættulegu efnin í báðum þessum
vömm það er tóbak og öll þau eitur-
efni sem í því em. í raun má jafnvel
færa rök fyrir því að það sé betra að
tóbaksfíklar taki sullið í vörina eða
nefið frekar en að reykja það í sígar-
ettum. Sígarettur senda nefnilega frá
sér reyk sem á það til að leita í önnur
lungu en þess sem reykir. Með öðmm
orðum er verið að banna tóbaksneyslu
í einu formi en leyfa í öðm. Þetta er
svona álíka gáfulegt og að banna fólki
að drekka Smirnoff vodka en leyfa
fólki að drekka Wybrova vodka.
(Minnir reyndar á það að banna bjór
en Ieyfa sterk vín eins og gert var á lít-
illi eyju fyrir nokkrum árum). Með
samþykkt þessa fmmvarps em þing-
menn að friðþægja samvisku sína en
opinbera um leið hræsni sína. Goður
vinur minn og sérfræðingur um
krabbameinslækningar, benti mér
reyndar á að fullkomna hefði mátt
hræsnina með því að selja einungis
sígarettur í apótekum eða sérstökum
sígarettubúðum reknum af ríkinu til
þess að takmarka aðgengi líkt og gert
er með hættulega stöffið, áfengi.
I fmmvarpinu er aldur þeirra sem
kaupa mega sígarettur einnig hækkað-
ur úr sextán í átján ár sem í sjálfu sér
er göfug hugsun. Staðreyndin er hins
vegar sú að það aldurstakmark er ekki
virt í dag eins og glögglega kom fram
í könnun sem gerð var í Hafnarfirði.
Þar var unglingur undir aldri látinn
fara í allar verslanir bæjarins og kaupa
sígarettur og fékk hann afgreiðslu án
athugasemda í 90-95 prósent verslana.
Augljóslega mun það því litlu breyta
að hækka aldurinn því það fer enginn
eftir þessum lögum hvort eð er. Sjálf-
ur er ég alls ekki talsmaður þess að
krakkar reyki heldur er ég að benda á
að það þýðir ekkert að setja bara ein-
hver lög sem hafa það eina markmið
að friða samvisku einhverra þing-
manna sem lent hafa undir þrýstingi
tóbaksvamarmanna.
Kjami málsins er sá að boð og bönn
hafa ekkert að segja nema þeim sé
fylgt eftir á einhvern hátt. Og væri
ekki betra að hafa boð og bönn í lág-
marki og einbeita sér frekar að því að
breyta viðhorfum fólks þannig að fólk
fari að þeim lögum sem nú þegar gilda
í landinu.
Yfirgangur stjómvalda af þessu tagi
hefur ekkert annað upp á sig en að
fólk verður andsnúið þeim því það sjá
allir heimskuna í þessu. Hvemig á ég
eiginlega að geta tekið þann alvarlega
sem bannar mér að taka í vörina af því
það er svo hættulegt fyrir mig en leyf-
ir mér að reykja þrátt fyrir að það sé
líka hættulegt fyrir mig? Ef stjómvöld
ætluðu virkilega að taka mark á þeim
rannsóknum sem sýnt hafa fram á að
tóbak sé hættulegt ættu þau auðvitað
að banna það, sama í hvaða formi þess
er neytt. Og ef stjórnvöld ætlast til
þess að aldurstakmörk séu virt þá þarf
að hafa viðurlög sem em nógu sterk til
þess að verslunareigendur tækju ekki
áhættuna af því að selja unglingum
tóbak.
Það fer rosalega í taugamar á mér
þegar stjómvöld taka sig svona til og
ætla að vera góð við fólkið í landinu
og vemda það fyrir hættum heimsins
með lögum eins og þessum. En ef
stjómvöld hafa ekkert betra til mál-
anna að leggja en þetta, þá tel ég mig
alveg geta valið fyrir mig með hvaða
hætti ég hyggst fá krabbamein af tób-
aksneyslu. Hvort það er vegna reyk-
inga eða vegna þess að ég tek í vörina
varðar stjómvöld ekkert um.
Höfundur er félagsráðgjafi.
Dularfull saga, tengd gerð
kvikmyndarinnar Djöfla-
eyjan, hefur gengið um
nokkurt skeið í kvikmyndakr-
eðsum borgarinnar. Neyðar-
boð bárust að utan þar sem
filman erframkölluð þess
efnis að hún væri ónýt. Þeg-
ar aðstandendur fóru til að
athuga málið reyndist allt í
stakasta lagi með filmuna
þar til kemur að atriði þar
sem „Skífu-Jón" Ólafs-
son, sem fer með hlutverk
prests nokkurs, er hempu-
klæddur í Dómkirkjunni og
býr sig undir að stinga hönd
sinni í vígt vatn. Þá sást bara
svart. Leikstjórinn Friðrik
Þór Friðriksson hefur ekki
fengist til að staðfesta þessa
sérkennilegu sögu en haft er
eftir honum að prestar séu í
tísku í dag og hann leitist við
að lafa í tískunni. Því sé fullt
af prestum í Djöflaeynni.
Tökum er nú lokið og klipp-
ing langt komin. Hljóðsetn-
ing hefst 18. júní en fyrirhug-
að er að sýna myndina í
september...
Kosningaskrifstofa Ólafs
Ragnars Grímssonar
hefur nú tekið upp á því að
senda fjölmiðlum ýmsar
fréttir úr kosningabaráttunni.
Þessu framtaki er að sjálf-
sögðu tekið fagnandi á öll-
um fréttastofum landsins
sem þurfa þá ekki að hafa
eins mikið fyrir hlutunum. í
herbúðum Olafs má finna
gamlar kempur úr blaða-
mennsku, svo sem Mörð
Árnason og Karl Th. Birg-
isson, sem fara létt með að
framreiða efnið á réttan hátt.
Hér er dæmi: „í gærkvöldi
sóttu Ólafur Ragnar og Guð-
rún Katrín afmælistónleika
Bubba Mortherss í Þjóðleik-
húsinu, en Bubbi er vinur
þeirra hjóna frá gamalli tíð
og mikill stuðningsmaður
framboðsins. Bubbi fagnaði
nærveru þeirra sérstaklega
og sagðist lýsa því yfir með
stolti að hann hygðist kjósa
Ólaf Ragnar. Tónleikagestir í
Þjóðleikhúsinu tóku undir
með hraustlegu lófataki."
Þetta kemur lesendum Al-
þýdubladsins ekki á óvart
því poppgoðið sagðist styðja
Ólaf Ragnar í nýlegu við-
tali...
Einn er sá þingmaður sem
jafnan fer eigin leiðir.
Meðan aðrir alþingismenn
lýðveldisins voru ýmist að
taka til á borðum sínum, eða
hreinlega farnir, eftir að
samkomulag tókst um þing-
lok í gær, stóð Hjörleifur
Guttormsson sem fastur
fyrir í ræðupúlti. Hann hafði
ýmsar athugasemdir við
frumvarp um náttúruvernd
og hefur í tvígang tekist að
þæfa málið svo það næði
ekki fram að ganga. Að
þessu sinni var honum boð-
ið að setjast í nefnd, sem átti
að endurskoða lögin strax í
sumar. Hjörleifur afþakkaði
og ákvað fremur að reyna að
tala málið í hel í þriðja sinn.
Öðrum þingmönnum var
eiginlega nóg boðið, og
þegjandi samkomulag var
um að leyfa Hjörleifi að tala
sig hásan...
h i n u m e g i n
"FarSide" eftir Gary Larson
„Frábaert! Alveg frábært!... Er einhver með aðra hugmynd
en þá að innræta óttablandna virðingu?"
fimm á förnum vegi
Hvað er eftirminnilegastfrá þinginu sem er að Ijúka? spurtáAiþingi.
Ögmundur Jónasson, Al-
þýðubandalagi og óháö-
um: Ekkert eitt atvik er mér
eftirminnilegast. Mér finnst
merkilegast að sjá hvað ríkis-
stjómin er sjálffi sér samkvæm
í að koma stóreignafólki í fyrir-
rúm í öllum málum.
Rannveig Guðmundsdótt-
ir, Alþýðuflokki: Það hve
mörg stór og þung ágreinings-
mál komu inná borð þing-
manna, hve óbilgjöm stjómar-
stefnan var í þessum málum. í
vetur hef ég fundið glöggt hve
mikið vald felst í svo stómm
þingmeirihluta.
Sigríður Anna Þórðardótt-
ir Sjálfstæðisflokki: Mér er
eftirminnilegast hversu mörg
mál hafa klárast og hversu
stjómarflokkamir hafa starfað
vel saman. Þá hefur samstarf
við stjómarandstöðu verið með
ágætum.
Guðmundur Hallvarðsson,
Sjálfstæðisflokki: Þegar
stjómarandstaðan yfirgaf þing-
húsið í vetur með miklu írafári.
I annan stað samþykkt frum-
varpsins um stéttarfélög, sem
ég var á móti og taldi tíma-
skekkju.
Margrét Frímannsdóttir,
Alþýðubandalagi: Umræð-
urnar um vinnumarkaðsfrum-
vörpin. Óvirðing stjórnarliða
var alger, þeir hunsuðu umræð-
ur, og mér fannst þetta fyrsta
skrefið í þá átt að bijóta niður
það þjóðfélag sem við viljum
sjá.
m e n n
Sextíu og tvö prósent af heild-
arframleiðslukostnaði sýna
svo ekki verður um villst, hver
niðurstaðan varð fyrir tveimur
árum. Hliðstæð hlutföll eru
óbreytt í dag.
Heimir Steinsson fer á kostum aö venju í
reglubundnum en þó sérstökum greinum
sínum um útvarp og sjónvarp allra
landsmanna. Mogginn í gær
Víkverji var þó það heppinn,
að þegar hann uppgötvaði
brottnám bæjarskrárinnar,
átti hann eitt eintak af gömlu
skránni og á enn og gætir eins
og sjáaldur auga síns.
Aðstandendur Símaskrárinnar, minnugir
fársins í fyrra, fagna eflaust látum um for-
setakosningar og Listahátíö. Víkverji sér þó
til þess að þeir sleppi ekki alveg við
aðfinnslur. Moggi í gær.
íslenskur auglýsingamaður
stöðvar ekki styrjaldir. Lík-
lega er almenn skynsemi besta
vörnin gegn öllu vopnaglamri.
En stærsti gallinn við almenna
skynsemi er sá að hún er ekki
nógu almenn.
Einar S. Guðmundsson segir í kjallaragrein
að einhver barnalegasta og jafnframt hlægi-
legasta auglýsingaherferð seinni tíma sé nú
í fullum gangi. DV í gær.
Fjármálaráðherra varð við til-
mælum nefndarinnar og gaf út
reglugerð í vor, sem æ síðan
verður við hann kennd. Hann
hefur að sjálfsögðu verið hafð-
ur að háði og spotti, innan og
utan Alþingis, og þá enn frek-
ar, þegar til kastanna kemur
að beita reglugerðinni í sumar.
Jónas Kristjánsson ritstjóri að andskotast í
hinni makalausu Tölvunefnd og notar að
venju tækifærið og víkur óbeint að gáfnafari
Friðriks Sophussonar. DV í gær.
Ég held að það sé einna eftir-
minnilegast þegar kokkurinn
datt ofan í lestina og hand-
leggsbrotnaði á báðum. Við
hlógum í hálfan mánuð að því.
Snorri Sturluson íþróttafréttaritari á Bylgj-
unni og Stöð 2 segir af einkennilegri kímni-
gáfu sinni í nýútkomnum Víkingi
sjómannablaði.
Það er hægt að bera virðingu
fyrir Jackie Chan. Enginn hef-
ur gert jafnlélega mynd af
jafnmikilli ástríðu og hann.
Arnaldur Indriðason um kvikmyndina Barist
í Bronx sem er sýnd í Regnboganum.
Mogginn í gær.
fréttaskot úr fortíð
Hvítur maður
kvænist
svartri konu
Um þessar mundir er mikið umtal í
Suður-Afríku vegna þess, að þýzkur
maður Willie Heddar hefur gengið að
eiga Zulu-konu. Mörg blöð hafa
skorað á stjómina að banna þenna
ráðahag, enda þótt lögin leyfi slíkan
ráðahag, skýrt og skorinort. Þetta er
annað hjónaband hvíts manns og
svartrar konu, síðan heimsstyijöldin
hófst. En það hefir aldrei borið við að
hvít kona hafi gengið að eiga svartan
mann.
Sunnudagsblað Alþýðublaðsins,
14. júlí 1935.