Alþýðublaðið - 06.06.1996, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 5. JUNI 1996
ALÞVÐUBLAÐIÐ
listahátíð '
■ Einar Örn er fulltrúi í nefnd
Listahátíðar. Jakob Bjarnar Grétars-
son settist með Einari á grasbala við
útitaflið og reyndi að flækja gamla
pönkarann í mátgildru.
Var pönkið bernskubrek?
Er Einar að breytast í
hámenningarsnobbhænsn?
Ég verð að
sjá hvernig
hinn helm-
ingurinn lifir
-segir Einar Örn en hann annast meðal
annars klúbb Listahátíðar.
Einar Öm Benediktsson er
titlaður fulltrúi í bæklingi
þeim sem gefinn var út til
kynningar á þeim atburðum
sem verða á Listahátíð ’96.
Einar Öm segist ekki vita hvað
það felur í sér að vera fulltrúi,
(„hvað gera fulltrúar?“), hann
bara vinni þama og leitist við
að leysa þau mál sem uppá
borð koma. Einar Öm var held-
ur ekkert alltof hrifinn af því að
veita viðtal en hann fékk að
vera með hvítt og byrjar rólega
með því að útskýra hvaða hug-
mynd liggi að baki klúbbi
þessi sé og hvar ætli hinn sé? Það er
Listahátíð? Fólk þarf því ekki að
þræða öll önnur kaffihús þar sem er
sami glasaglaumurinn og sama hjómið
sem gengur árið útí gegn. Þarna er
einstakur glasaglaumur því hann er
aðeins á tveggja ára fresti og það er
núna. Klúbburinn á ekkert endilega að
fróa fólki. í raun þarf ekki nema eina
forsendu fyrir því að fólk komi og hún
er sú að það er Listahátíð.“
Listahátíð afsnobbun
Hvemig þykir þe'r hafá tekist til að
velja atriði á Listahátíð svcma per-
sónulega og prívat?
„Ég held að það hafi tekist nokkuð
vel. Eg er orðinn það gamall
Listahátíðar. Sikileyjarvöm.
Alveg einstakur
glasaglaumur
„Hugmyndin er einföld," seg-
ir Einar Om en honum er auð-
sýnilega annt um klúbbinn. „Það
em fimmtíu og eitthvað atburðir á
Listahátíð að þessu. sinni og mikið
af þeim atburðum em útí Loftkast-
ala. A hverju kvöldi er eitthvað að
gerast þar inni í sal og frammi er
prýðileg aðstaða, bæði fyrir veitingar
og fyrir fólk að koma saman. Það hef-
ur myndast hefð fyrir því að hafa
klúbb Listahátíðar sem býður uppá
vettvang fyrir fólk að hittast og er
þannig ein viðbót í dagskrá Listahá-
tíðar. Einhver atriði verða í boði en
hugmyndin er ekki sú að menn komi
til að láta mata sig heldur er þetta
öðruvísi vettvangur - viðbót við
menningarflóm Reykjavíkur meðan á
Listahátíð stendur. Þess vegna heitir
þetta klúbbur."
Með öðrum orðum, vettvangur fyrir
þá sem stunda Listahátíð að koma og
verajullir saman ?
„Eg vildi nú ekki segja þetta svona.
Klúbburinn þarf ekkert endilega að
vera drifinn áfram af alkóhóli. En það
er alveg gefið að fyrir suma er mikið
álag að fara á hinar og þessar sýningar
og mikið álag iyrir listamenn að koma
hinum og þessum sýningum frá sér.
Þama er hægt að slappa af. Fólk getur
slappað af heima hjá sér og það getur
slappað af þama.“
Og borið saman bœkur sínar um
alla menningarviðburðina?
„Ef það endilega vill. En auðvitað
er ekki skilyrði að fólk ræði menningu
og listir á líðandi stundu þannig að
það fái gjörsamlega uppí kok af því
og fari að æla. Tilgangur klúbbsins er
frekar að vera hinn vettvangurinn. Það
myndast alltaf ákveðin stemmning
þegar Listahátíð er. Við vitum að
Listahátíð er í Reykjavík. En hvar er
hún? Hún er um alla borg og mið-
punkturinn verður í klúbbnum. Það
em margir sem gleðjast yfir Listahá-
tíð, (það eru margir sem ógleðjast
líka), og þeir vita að þama er glaðst og
þurfa ekki að spekúlera: Hvar ætli
Fólk þarf því ekki að þræða öll
önnur kaffihús þar sem er sami
glasaglaumurinn og sama hjómið
sem gengur árið útí gegn. v«g"a lesu lauúsjf og aiit
Þarna er einstakur glasaglaumur
því hann er aðeins á tveggja ára
og það er núna. Klúbburinn á
ekkert endilega að fróa fólki.
að ég man eftir Listahátíðum þar sem
var kannski ekki neitt sem var ágætt.
Nú er ég búinn að sjá eitt atriði sem er
gott. Maureen Flemming. Jújú, ég
held að Listahátíð sé góð.“
Nú er ekki ólíklegt aðfólk sjái í þe'r
einskonar fulltrúa alþýðumenningar í
þessu Listahátíðarapparati öllu.
Hvemig sýnist þér hlutföllin hámenn-
ing - lámenning vera? Örstutt!
„Ég er hjá Listahátíð sem starfs-
maður. Ég er ekki fulltrúi lámenning-
ar. Ég veigra mér við að skilgreina
hvað er fínt og hvað er ófínt. Ég vil
ekki gera það. Ég hef alltaf gengið út
frá öðmm forsendum og ætla ekki að
fara að taka uppá því núna á gamals
aldri.“
En nú hefur verið einhver snobb-
stimpill á Listahátíð í gegnum tfðina?
„Eg veit alveg hvað þú átt við og ég
veit líka hvað þú vilt að ég segi. Nei.
Smekkur manna er misjafn. Ef ein-
hveijir hafa áhuga á einhverju sem á
að kallast hámenning þá snobba þeir
fyrir því. Ef það er eitthvað sem kall-
ast lámenning, segjum til dæmis ein-
hver sjónvarpsþáttur sem á að tilheyra
lámenningu, segjum Miami Vice...“
Já, eða Guiding Light...
„... eða það. Það er líka snobb. Ég
sé engan mun. “
Hvaða atriði œtlar þú að leggja þig
sérstaklega eftir?
„Ég hef ekki hugleitt það. Ég verð
að vinna. Ég ætla bara að grípa það
sem ég get séð. Ég ætla að reyna að
sjá sirkusinn og héma... já.“
Nú fórnar blaðamaður riddara og
talar urn „off the record“ og spyr Ein-
ar hvemig honum lítist nú á þetta í al-
vömnni? Einar þiggur ekki fómina.
„Bara „on the record“. Ég held,
lega þarft fyrirbæri. Ef þú
ert að tala um snobb þá er-
um við að færa alþjóða-
menningu til landsins. Það er
fólk sem er búið að bíða ég
veit ekki hvað lengi eftir David
Bowie eða hvaða myndlist sem er...
síðan er þetta allt í einu komið. Það er
afsnobbun að fá þessi atriði til lands-
ins því áður fyrr var það eingöngu
fólk sem hafði eitthvað milli handanna
sem gat farið út og kýlt á þetta. Nú em
atriðin komin heim í hérað og fólk
getur sótt þau þangað.“
Er ekki að vinna fyrir óháða
Listahátíð
(Hér kemur nokkuð þvælið mið-
tafl.)
Hann hefur nú kostað eitthvað þessi
bœklingur?
„Ég veit ekkert um það. Ég er bara
starfsmaður. Það er það sem felst í því
að vera fúlltrúi. Ég leysi þau verkefni
sem koma
uppáborð." Það er afsnobbun
át?vonáþvUð í 3ð fá ÞeSSÍ atrÍðÍ tU
landsins því áður
fyrr var það eingöngu
fólk sem hafði
eitthvað milli í mínum huga er ekki hákúl
handanna sem gat ,úr °s lákúltúr Þó að Það sé
farið út og
kýlt á þetta
Símaskrá 1997
verðir þú titlað-
ur fyrrverandi
fulltrúi?
„Ég er titlaður
fulltrúi í síma-
skránni og
fyrrverandi
póstbifreiðar-
stjóri.“
Hefurðu eitthvað
hitt þennan Goldie sem cetlar að fara
að giftast Björk? Er þetta ekki algjör
asni?
„Nei, nei, þetta er prýðispiltur."
Áttu von á þvt' að það komi margir
á Listahátíðarklúbbinn ?
„íslendingar eru orðnir svo góðu
vanir. Það þarf alltaf eitthvað til að
trekkja. Þetta verður bara að koma í
ljós.“
Þetta var svoldið gott hjá þér þama
með afsnobbunina. Ertu til í að út-
skýra það aðeins nánar?
„Þú getur alveg fundið fólk sem
virkilega vill hafa þetta fyrirbæri sem
einhveija snobbhátíð. Þetta er líka sagt
um tónlist. Þær hljómsveitir sem ég
hef verið í, og nú get ég bara talað út
frá minni persónulegu reynslu,
Purrkur Pilnikk og Kukl vom að spila
tónlist 10 prósentanna. Við náðum
aldrei út fyrir þann markað. Ekki held-
ur Sykurmolamir í byijun. Við vomm
að spila fyrir þá sem höfðu fengið
trúna. Ég hef aldrei nálgast hluti á
þann hátt að ég þurfi að ná til þeirra
sem em þegar búnir að skipta um trú.
Með Listahátíð þá hugsa ég að fólk
vilji halda í þessa hluti til að geta haft
eitthvað til að kjamsa á. Það vill hafa
eitthvað sem gefur hinu daglega froð-
usnakki gildi. Hvað er list og hvað er
ekki list? Það er hveijum og einum í
sjálfsvald sett hvað honum finnst
gaman. Það kom öllum á óvart þegar
Sykurmolarnir voru ekki lengur að
predika yfir þessum tíu pró-
sentum. Flestir eru með
einhverjar myndir á
veggjunum heima hjá
sér. Og þó að það séu
kannski eftirprentanir
þá em þetta oft myndir
sem búið er að sýna á Listahátfð.
búið að koma því þannig fyr-
ir. Alþýðulist? Ég veit það ekki.
Ég nenni ekki einu sinn að hugsa
um það. Og ég hef ekki áhuga á
þessum snobbstimpli."
Hahahahahaha. Ha?
,Já, þú getur hlegið. Þegar ég segi
fólki að ég sé að vinna fyrir Listahátíð
þá er yfirleitt spurt:
- Já, fyrir óháða Listahátíð?
- Nei, Listahátíð, segi ég, í Reykja-
vík!
-Jájá.
Þú ert að tala um að ég sé einhver
alþýðumaður. Ég veit ekki til þess. Ég
Einar Örn: En auðvitað er ekki skil-
yrði að fólk ræði menningu og listir
á líðandi stundu þannig að það fái
gjörsamlega uppí kok af því og fari
að æla.
borga bara mína skatta eins og hver
annar. Ég tel það snobb að hafa áhuga
á golfi. En margir sem em undir ein-
hverjum kvóta í launum hafa áhuga á
golfi. Er golf þá snobbíþrótt?“
Ekki að svíkja Sigga pönk
En það er ekki óeðlilegt að spyrja
þig útí snobbið, þú þessi einn affyrr-
verartdi ceðstuprestum pönkbylgjunn-
ar sem gaf skít i allt sem kallaðist fín
list?
„Þú vilt sjálfsagt fá svar á borð við:
Ég verð að sjá hvemig hinn helming-
urinn lifir. Þú mátt alveg hafa það eftir
mér. Ég held að það skaði ekki nokk-
um mann að fá víðsýni í sitt líf. Það er
merki um bata og uppbyggjandi að
vera ekki með einhveija rörasýn á h'f-
ið. Þeir sem vilja kíkja á Listahátíð
sem snobb em með ákveðna rörasýn.
Það má setja þetta á allt. Ef fólk temur
sér ekki víðsýni þá emm við komnir
út í þrætupólitísk atriði. Ég reyni að
öðlast skilning á sem flestu. Sumir
vilja það hreinlega ekki. Sumum
finnst Guiding Light algjört krapp.
Sumum finnst Sinfóníutónleikar al-
gjört krapp.“
Ertu ekki bara að svfkja Sigga pönk
og Bjarna Móhtkana?
„Ég var nú aðeins á undan þeirn.
Nei, við skulum bara rokka yfir íikrist-
infræðina. Sá yðar sem syndlaus er
kasti fyrsta steininum. Fyrst að kynna
sér hlutina svo að dæma. Ef einþveij-
um finnst Guiding Light (hvað sem
það nú er) algjört krapp þá er best að
horfa á það áður en sá hinn sami ;kem-
ur sér upp þeirri skoðun."
Nú er Einar koniinn í svo mikinn
ham að blaðamaður Alþýðublaðsins
býður honum jafntefli sem hann þigg-
ur - sem betur fer.