Alþýðublaðið - 11.06.1996, Blaðsíða 1
Forsetaframbjóðandi í hremmingum yfir Snæfellsjokli
Hurð flugvélar opnaðist í
fimmþúsund feta hæð
Pétur Kr. Hafstein hélt hurðinni þangaðtil flugvélin lenti.
■ Samningaviðræður við Norðmenn og Rússa um kvóta í Barentshafi runnar út í sandinn
Guðs mildi að ekki var samið
- segir Össur Skarphéðinsson alþingismaður. Alls óvíst að samningur núna styrki stöðu okkar þegar úthafs-
veiðisamningurinn er kominn til framkvæmda.
„Þetta var ekki sérlega skemmti-
leg reynsla meðan á þessu stóð,“
sagði Pétur Kr. Hafstein forseta-
frambjóðandi í samtali við Alþýðu-
blaðið en á laugardag opnaðist
hurð á sex sæta flugvél sem Pétur
var farþegi í þegar hún var í fimm-
þúsund feta hæð yfir Snæfellsjökli.
Pétur var á leið á kosningafundi á
Snæfellsnesi og meðal farþega í
vélinni voru eiginkona hans, Inga
Ásta’ Hafstein, Pétur Hrafn, yngsti
sonur þeirra, og vinur hans, Hlynur
Valsson.
Hlynur sat við hurðina en Pétur
náði að halda henni aftur. Það var
hinsvegar með öllu ókleift að loka
„Ég þakka guði fyrir að samn-
ingar tókust ekki á þeim grunni
sem kynntur var í fjölmiðlum. Ég
sé satt að segja ekki hvað rekur
okkur til samninga um Smuguna,
því ég er ekki sannfærður um að
það styrki okkur til frambúðar,
þegar samningur Sameinuðu þjóð-
anna um úthafsveiðar tekur gildi.
En það sýnast mér helstu rök ís-
lenska ráðherraparsins," sagði
Össur Skarphéðinsson, sem á sæti
í utanríkismálanefnd Alþingis. Um
helgina slitnaði uppúr samninga-
henni meðan vélin var á lofti, og
því þurfti Pétur að halda hurðinni
uns vélin lenti á Rifi.
„Nei, ég hugsaði nú ekki mikið
um hættuna meðan á þessu stóð,
mér fannst fyrir öllu að drengur-
inn, sem sat við hurðina, og aðrir í
vélinni slyppu óskaddaðir. Ég held
varla að veruleg hætta hafi verið á
ferðum," sagði Pétur. Hann bar
sérstakt lof á flugmanninn fyrir
rétt og snöfurmannleg viðbrögð.
Pétur og Inga Ásta með
soninn Pétur Hrafn.
viðræðum fslendinga, Rússa og
Norðmanna um kvóta í Barents-
hafi, og er óljóst hvert framhaldið
verður.
Össur minnti á, að það hefði
ekki síst verið fyrir andstöðu Al-
þýðuflokksins að tókst á sínum
tíma að koma í veg fyrir að Þor-
steinn Pálsson sjávarútvegsráð-
herra bannaði Smuguveiðarnar.
„Menn lögðu nú ekki þann slag á
sig til að fallast á að Þorsteinn
semji enn einu sinni af sér, en
samningur uppá tólf til þrettán
þúsund tonn einsog var í burðar-
liðnum er fráleitur frá sjónarhóli
íslenskra hagsmuna. Hvað rekur
okkur til að semja um takmörkun á
veiðum á alþjóðlegu hafsvæði, sér
í lagi þegar ljóst er að viðkomandi
stofn er sterkur, og ekki í neinni
hættu. Þarna er engin rányrkja á
ferðinni."
Össur sagði að allir samningar
yrðu að gera ráð fyrir því að ís-
lendingar fengju óáreittir að veiða
í flottroll, það væri lykilatriði fyrir
veiðarnar. Hann sagðist ekki viss
um að nokkur fótur væri fyrir stað-
hæfingum um að samningur núna
myndi styrkja stöðu okkar þegar
úthafsveiðisamningurinn er kom-
inn til framkvæmda. „Er einhver
vissa fyrir því? Hafa Norðmenn og
Rússar lagt það á borðið? Ef svo er
hefur utanríkismálanefnd ekki ver-
ið kynnt það.“
Þess má geta að síðustu ár hafa
Islendingar veitt upp í 35 þúsund
tonn á ári, og í sumar er líklegt að
aflinn verði miklu meiri, eða 50 til
60 þúsund tonn.
■ Nýstárleg skoðana-
könnun á vegum Ástþórs
Magnússonar
r
Olafurefstur
hjá Ástþóri
Ástþór Magnússon forsetafram-
bjóðandi véfengdi í sjónvarpsþætti í
fyrrakvöld þau vinnubrögð sem notuð
eru við skoðanakannanir, og sagði að
hann hefði sjálfur látið gera könnun
sem sýndi aðra niðurstöðu en þær
kannanir sem birst hafa hingað til.
Hann neitaði hinsvegar að skýra nánar
frá könnuninni, framkvæmd hennar
og niðurstöðum.
Samkvæmt upplýsingum sem Al-
þýðublaðið fékk í gær hjá heimilda-
manni á kosningaskrifstofu Ástþórs
var könnunin framkvæmd með þeim
hætti að atkvæðaseðlar og kjörkassar
voru útbúnir og fólki víðsvegar um
Reykjavík gefin kostur á að „kjósa“
leynilega. 412 greiddu atkvæði með
þessum hætti en 23 seðlar voru auðir
eða ógildir. 389 atkvæði voru gild og
þau skiptust á þessa leið: Ölafur Ragn-
ar Grímsson 200 atkvæði (51,4 pró-
sent), Pétur Kr. Hafstein 79 atkvæði
(20,3), Guðrún Agnarsdóttir 45 (11,6
prósent), Guðrún Pétursdóttir 39, (10)
og Ástþór Magnússon 26 (6,7).
Fylgi Ástþórs í þessari könnun er
talsvert meira en hingað til hefur
mælst, en einsog heimildamaður Al-
þýðublaðsins sagði, var framkvæmd
hennar ekki með strangvísindalegum
hætti.
Ólafur Ragnar
málalaðastur
Ólafur I Ragnar Grímsson og
Guðrún Agnarsdóttir töluðu iang-
mest í umræðuþætti sjónvarpsins í
fyrrakvöld. Þangað mættu allir
frambjóðendurnir fimm og sátu
fyrir svörum fréttamanna. Ólafur
Ragnar talaði í 26 mínútur, Guðrún
Agnarsdóttir í 22, Ástþór Magnús-
son í 14, Pétur Kr. Hafstein í 13 og
Guðrún Pétursdóttir í 11 mínútur.
■
PftOTIM
Architectural
Solignum Architectural
fyrir íslenskan markað í
meiraNatt>30ár.
PROT1É
'\SOLIGNUM 3K.
Solignum
‘M 1 Medium Brcwn
|' Traditianal prescrvativc
PROTIM
PLIGNUM
Architectural
iöpaque a
"oodstain
Þu mátt ekki sofna á verðinum!
K.Richter