Alþýðublaðið - 11.06.1996, Blaðsíða 3
ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ1996
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
s k o ð a n i r
Staöreyndir í stað rógs
Ungur maður að nafni Birgir Her-
mannsson vék á dögunum nokkrum
orðum að mér og Jóni Steinari
Gunnlaugssyni í grein hér í blaðinu.
Sakaði hann okkur um að hafa efnt
til rógsherferðar gegn Ólafr Ragnari
Pallborð |
I ^J| Hólmsteinn
Gissurarson
Grímssyni forsetaframbjóðanda,
enda værum við að bila á taugum
vegna mikils fylgis hans r' skoðana-
könnunum. Ég veit ekki hvar Birgir
þessi hefur alið manninn, en í öllum
menningarríkjum er talið sjálfsagt að
skoða vandlega feril þeirra sem
bjóða sig fram til æðstu trúnaðar-
starfa. Ég hef ekki gert annað opin-
berlega en rifja upp nokkrar stað-
reyndir.
• Það er staðreynd, en ekki rógur,
að Ólafur Ragnar Grímsson hefur
margoft gerst sekur um ósæmilegt
orðbragð á opinberum vettvangi.
Skýrasta dæmið um það var þegar
hann sagði úr ræðustóli á Alþingi að
Davíð Oddsson hefði sýnt skítlegt
eðli sitt, þegar Davíð taldi ógætilegt
að Ólafur hefði sem fjármálaráðherra
og formaður Alþýðubandalagsins
skipt við sömu auglýsingastofu
(Hvíta húsið). Önnur dæmi eru ofsa-
fengnar árásir hans á Flugleiðir árið
1980 og á Hafskip árið 1985, sem
Þingtíðindi geyma.
• Það er staðreynd, en ekki rógur,
að Ólafur Ragnar Grímsson tók í
upphafi ráðherraferils síns verðlaust
veð gilt fyrir söluskattsskuld fyrir-
tækis sem þáverandi kosningastjóri
hans (Bjöm Jónasson) rak, en ríkis-
sjóður tapaði kröfunni þegar fyrir-
tækið varð gjaldþrota. Nokkrum
mánuðum síðar sigaði Ólafur lög-
reglunni á ýmis fyrirtæki sem áttu í
deilum við opinbera aðila um sölu-
skattsgreiðslur, lét loka þeim fyrir-
varalaust og tók ekki gilda banka-
ábyrgð fyrir meintri skuld. Hefur
hann verið dæmdur fyrir ólögmæta
lokun eins þeirra (Þýska-íslenska
hf.).
• Það er staðreynd, en ekki rógur,
að Ólafur Ragnar Grímsson hefur
margoft sagt ósatt í því skyni að
skreyta feril sinn. Ég nefni tvö dæmi.
Hann sagði í viðtali við Séð og heyrt,
að hann hefði gert Nand Khemka
nokkurn að ræðismanni Islands á
Indlandi. En Sigurður Helgason hef-
ur lagt fram gögn um það, að Ólafur
kom þar hvergi nærri, enda hitti hann
ekki Khemka fyrr en nokkrum mán-
uðum eftir að ákvörðun hafði verið
tekin í málinu. Ólafur Ragnar segir
líka í æviágripi í ársskýrslu Parlia-
mentarians for Global Action 1991,
að hann hafi verið þingmaður á
„elsta þjóðþingi heims“ frá 1974, en
hann varð fyrst þingmaður 1978.
• Það er staðreynd, en ekki rógur,
að Ólafur Ragnar Grímsson hefur
sagt ósatt um það sem flestum er
helgast, en það er trúarsannfæringin.
í réttarsal 1989 sagðist hann ekki
trúa á guð og staðfesti framburð sinn
í dómsmáli með drengskaparheiti í
stað eiðs. Samkvæmt íslenskum lög-
um verða menn að vinna eið, sé þess
krafist, nema þeir lýsi því fyrir dóm-
ara að þeir trúi ekki á guð eða séu
ekki í viðurkenndu trúfélagi. Hér í
Alþýðublaðinu 22. maí síðastliðinn
neitaði hann því hins vegar að hann
væri trúlaus, og kvaðst vera í Þjóð-
kirkjunni.
• Það er staðreynd, en ekki rógur,
að Ólafur Ragnar Grímsson hefur
fylgt allt annarri utanríkisstefnu en
þorri þjóðarinnar. Hann hefur verið á
móti aðild íslands að Atlantshafs-
bandalaginu, vamarsamningnum við
Bandaríkin, aðild íslands að Evr-
ópska efnahagssvæðinu og samning-
um um erlenda stóriðju. I því efni
hef ég engu við að bæta rækilega
greinargerð, sem birtist hér í blaðinu
IÉg veit ekki hvar Birgir þessi hefur alið mann-
inn, en í öllum menningarríkjum er talið sjálf-
sagt að skoða vandlega feril þeirra sem bjóða
sig fram til æðstu trúnaðarstarfa.
fyrir skömmu eftir formann Alþýðu-
flokksins, Jón Baldvin Hannibalsson.
• Það er staðreynd, en ekki rógur,
að Ólafur Ragnar Grímsson gerði í
fjármálaráðherratíð sinni samning
við háskólamenntaða starfsmenn rík-
isins, sem hann rauf skömmu síðar,
og hefur hann verið dæmdur fyrir
ólögmætt samningsrof.
Nú skora ég á Birgi Hermannsson
að reyna að hrekja þessar staðreynd-
ir. Ef hann getur það ekki, þá er hann
ómerkur orða sinna.
Höfundur er dósent við Háskóla íslands.
Friðarpostulinn Ástþór
Magnússon upplýsti í
Sjónvarpinu í fyrrakvöld að
kostnaður hans vegna aug-
lýsingaherferðar síðustu
vikna væri um 30 milljónir
króna. Hann hefurfjölda
fólks í vinnu og ætlar að
fara mikinn þærtæpu þrjár
vikur sem eru til kosninga.
Meðal starfsmanna hans
eru Halldór Bragason tón-
listarmaður og Önundur
Björnsson, og er sá síðar-
nefndi titlaður fjölmiðlafull-
trúi Ástþórs. Önundur hefur
komið víða við: var um
skeið prestur og rak auk-
þess bókaforlagið Tákn
sem fór á hausinn fyrir
nokkrum árum. Hann er
efalítið hugmyndafræðing-
ur Ástþórs þegar kemur að
kristilegum málefnum, en
Ástþór leggur mikla áherslu
á guð í áróðri sínum...
Sagt er að mikið veislu-
hald sé á Álftanesi þess-
ar vikurnar. Nú styttist í að
Vigdís Finnbogadóttir
láti af embætti og því kapp-
kostar hún að leyfa sem
flestum að njóta þeirrar
miklu upphefðar sem felst í
boði til Bessastaða. Nú síð-
ast mun Vigdís hafa boðið
gömlum sundfélögum til
samsætis - eitthvað þrjátíu,
fjörutíu manns plús mak-
ar...
r
Inýjasta tölublaði hins út-
breidda tímarits, Variety,
birtist afar jákvæð umfjöll-
un um kvikmyndina Einkalíf
sem Þráinn Bertelsson
gerði og sýnd var hérlendis
í fyrra. Einkalíf var sýnd á
hátíðinni í Cannes á dögun-
um við góðar undirtektir.
Myndin hlaut einmitt góða
dóma á íslandi, en aðsókn
brást væntingum...
r
IFréttabréfi Kvennalistans
lesum við að vorþing
flokksins hafi verið haldið á
dögunum, en ekki fór mikið
fyrir því í fjölmiðlum. Þar
kemur fram að verkalýðs-
hreyfingin var harðlega
gagnrýnd, en þingflokkur
Kvennalistans hlaut hins-
vegar „mikið hrós" fyrir
frammistöðu sína í vetur.
Þá er og sagt frá því að
flokkurinn fékk nýverið tvær
konur utan Kvennalistans,
Kamiilu Rún Jóhanns-
dóttur og Sigrúnu Erlu
Egilsdóttur, til að lýsa við-
horfum sínum til Kvennó.
Um niðurstöður þeirra á
fundinum segir meðal ann-
ars: „Komu þær með ýmsar
athyglisverðar athuga-
semdir um Kvennalistann
sem sumar hverjar komu
konum i vægast sagt opna
skjöldu. Það sem snerti
kvennalistahjartað einna
óþægilegast var þegar þær
upplýstu að ímynd kvennal-
istakonunnar úti um borg
og bý væri kona á fimm-
tugsaldri sem gengi ávallt í
krumpugalla og hælaskóm
og var greinilegt að sú kona
á ekki uppá pallborðið hjá
öllum." Manni getur nú
sárnað...
h i n u m e g i n
"FarSide" eftir Gary Larson
Aldrei leggja hestinum þínum í vafasamari hverfum borg-
arinnar.
Jón Briem vélsmiður: Ólaf-
ur stóð sig langbest, en mér
fannst Pétur góður.
Óttar Svavarsson vegfar-
andi: Guðrún Agnarsdóttir
kom vel út í þættinum.
Jón G. Björnsson skrjf-
stofumaður: Mér fannst Ól-
afur Ragnar og Pétur Kr. Haf-
stein koma best út.
Ari Viðar Jóhannesson
tölvunarfræðingur: Pólitík-
usamir Ólafur Ragnar og Guð-
rún Agnarsdóttir komu best út.
Ágústa Magnúsdóttir full-
trúi: Ólafur og Pétur voru
bestir.
JÓN ÓSKAR
v i t i m e n n
Efist einhver um að það sé
markverðara að vera trúr eig-
in sannfæringu í listsköpun en
kenjum markaðarins, ætti sá
hinn sami að hugsa sinn gang.
Sindri Freysson í Mogganum - af öllum
blööum.
Bowie myndi gera Dorian
Gray grænan af öfund.
Sami.
Fyrr var kjaftur fantastór
en fáir hlustuðu á’ann.
Þegar h.ann lærði að þegja fór
þjóðin öll að dá’ann.
DV birti í gær þessa vísu uppúr Víkurblað-
inu. Lesendur geta giskaö á um hvaöa for-
setaframbjóðanda er ort.
Það eina sem heldur manni
vakandi eru nokkrar spengi-
legar diskódrottningar.
Sæbjörn Valdimarsson um myndina Köld
eru kvennaráö í Laugarásbíói. Mogginn á
sunnudaginn.
Þrjátíu þúsund einstaklingar,
67 ára og eldri, eiga 17 millj-
arða af þessu sparifé hjá okk-
ur. Þetta er lífeyrissjóður elli-
lífeyrisþega á íslandi. Þessir
sparifjáreigendur er ekki
„breiðu bökin“ - auðmennin.
Þetta fólk ætlum við að verja.
Sverrir Hermannsson, húsbóndinn í Lands-
bankanum, um fjármagnstekjuskattinn.
Mogginn á sunnudag.
Ólafur G. Einarsson sýndi það
á liðnu þingi að hann er rögg-
samur forseti Aiþingis. Kjör
forseta hafa verið færð að því
sem gerist með ráðherra. Það
er eðlilegt og tímabært.
Jónas Haraldsson í forystugrein DV í gær.
Boris Jeltsín bjartsýnn fyrir
forsetakosningarnar á sunnu-
dag: Finnur á sér að hann
sigrar í fyrstu umferð.
DV í gær. Boris Jeltsín er náttúrlega vanur
að finna á sér, svo hann hlýtur aö hafa rétt
fyrir sér.
Það að konur hafi ekki náð
eins langt og karlar í skákinni
held ég að sé fyrst og fremst
vegna þess að þær taka sér
ekki sama tíma og karlar í að
sinna sínum áhugamálum eins
og skák og öðrum íþrótta-
greinum.
Birna Þórðardóttir um ummæli Helga Ólafs-
sonar þess efnis að konur vanti baráttu-
skapiö og þá karlmennsku sem þarf til að ná
langt í manntaflinu. DV í gær.
fréttaskot úr fortíð
Farsælt
hjónaband
Einhver djúpvitur spekingur hefir
varpað fram þeirri spumingu, hvemig
ætti að stofna til hjónabands, svo að
það yrði farsælt. Annar spekingur,
ekki síðri, stakk upp á því, að maður-
inn væri heymarlaus og konan mál-
laus, og myndi þá vel fara.
Sunnudagsblað Alþýðublaðsins
5. júlí 1936.