Alþýðublaðið - 11.06.1996, Blaðsíða 5
4
ALÞÝÐUBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ1996 ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ1996 _______________ ALÞÝÐUBLAÐIÐ
m e n n i i n g IV' 3 f ó r n m á 1
Barnslík í líkkistu Reykjavík um 1925.
■ Halldór Björn Runólfsson skrifar um sýningar þarsem
sjálfur dauðinn er í aðalhlutverki
Að velta sér upp
úr dauðanum
Reyndar verður manni oft hugsað til þjóðlegr-
ar matargerðar frammi fyrir þessum voveif-
legu myndum. Úttútnaður handleggur manns-
ins sem látist hefur af lungnabólgu eftir að
hafa drekkt sér er undarlega líkur ósoðnum
sláturkeppi.
Það voru blendnar tilfmningar sem
bærðust í hjörtum gesta á opnun sýn-
ingar Sjónarhóls á ljósmyndum Andr-
es Serranos síðdegis á mánudag.
Frammi fyrir stórum og óvægnum
myndum hans af illa fömum líkum var
sem áhorfendum væri brugðið. Það
var greinilegt að þeir voru vanir allt
annarri og mildari tegund myndlistar.
Um kvöldið var uppákoman kórónuð
með opnun á Mokka á íslenskum Ijós-
myndum af látnum bömum og ung-
lingum. Sérlegur vemdari beggja sýn-
inga var „maðurinn með ljáinn“
hempuklæddur með amboðið beitta,
vappandi álútur kringum sýningasal-
ina. Osjálfrátt hægðu ökumenn á neð-
anverðri Hverfisgötunni á sér þegar
þeir sáu þessa gráleitu vera. Þeir hafa
eflaust getið sér til að þar færi enn eitt
átakið á vegum Umferðaráðs.
Jafnframt slógu aðstandendur sýn-
inganna á óhugnaðinn innandyra með
Andres Serrano
Stunginn til bana 1992.
þessum táknræna gjömingi. Með því
að gera dauðann sýnilegan, og jafnvel
svolítið leikrænan, komu þeir á móts
við gesti sem ekki eru vanir því að
myndlist fjalli um annað en fegurð
forms og lita. Þó mátti finna á mörgum
þeirra sem stóðu í Sjónarhóli miðjum
að þeim fannst nóg um óhugnaðinn í
stóram cibachrome-litmyndum Andres
Serrano. Kalla menn þó ekki allt
ömmu sína nú til dags þegar óhugnan-
legu sjónvarpsefni er dengt yfir þá eins
og hverju öðra auglýsingaregni.
Meginuppistaðan á sýningu Serran-
os er úr syrpu hans Líkhúsinu, frá
1992. Sem blökkumaður af kúbönsk-
um og hondúrasískum ættum er hon-
um nærtækur hinn daglegi óhugnaður
sem vofir yfir hverfum innflytjenda í
New York og öðrum bandarískum
stórborgum. Þarna er Jane Doe, hin
ónefnda blökkukona sem lögreglan
kálaði. Augun era sokkin og það er
farið að slá í húðina. Þannig líkist hún
engu frekar en sviðakjamma.
Reyndar verður manni oft hugsað til
þjóðlegrar matargerðar frammi fyrir
þessum voveiflegu myndum. Uttútn-
aður handleggur mannsins sem látist
hefur af lungnabólgu eftir að hafa
drekkt sér er undarlega líkur ósoðnum
sláturkeppi. Þrútnar æðarnar undir
rauðleitri húðinni eru sjónrænt ekki
svo Ijarri slenginu sem hálfgagnsæjar
vambimar halda saman. Munurinn á
ísskápnum og líkhúsinu er ef til vill
ekki annað en stærðin þegar öll kurl
koma til grafar.
Til að miða Serrano
betur út era svo nokkrar
myndir úr syrpu hans af
Kirkjunnar þjónum, frá
1991. Þarna fáum við
smjörþefinn af þeirri
vídd sem gerði lista-
manninn frægan að end-
emum árið 1989. Það
byrjaði með árásum
AFA, bandarísku fjöl-
skyldusamtakanna á ljós-
mynd Serranos af Piss-
Kristi, plastkrossi með
Frelsaranum sem hann
dengdi í hlandbala árið 1987 og festi
svo á filmu. Eftir þetta komst listamað-
urinn greiðlega á skrá Jesse Helms yfir
varhugaverða listamenn sem meina
skyldi aðgang að öllum opinberum
styrkjum.
Að sjálfsögðu sást Helms og öðram
íhaldssömum þingmönnum yfir djúp-
trúarlega undirölduna í verkum Serran-
os. Hann var ekki að deila á trúna
heldur Kirkjuna sem stofnun og mark-
aðstorg. AFA og Helms hefðu því fúllt
eins getað útskúfað allri hugmynda-
fræði mótmælendatrúarinnar á þeirri
einföldu forsendu að Lúter og Kalvín
væru sögulega séð ekki annað en
óprúttnir og uppivöðslusamir óróa-
seggir.
En að Andres Serrano ólöstuðum
hlýtur sýningin á Mokka, Dauðinn í (s-
lenskum veruleika, að teljast einstæður
fengur. Aldrei hefur þessi hlið á ís-
lensku samfélagi verið opinberað með
svo afdráttarlausum hætti þótt dauða-
myndir séu vel þekkt stærð í ljós-
myndasögu nágranna okkar. Þetta
samvinnuverkefni Mokka og Þjóð-
minjasafnsins er þeim mun metnaðar-
fyllra sem því er fylgt úr hlaði með
bók með á annan tug greina um dauð-
ann. Reyndar dekkar bókin einnig ljós-
niyndir Andres Serranos.
Dauðamyndirnar íslensku eru á
fjórða tug, eftir um það bil 15 ljós-
myndara og spanna árin frá 1886 til
1956. Langflest era þó frá öndverðri
20. öld. Það eru öðram fremur börn
sem prýða þessar áleitnu myndir, böm
sem hafa verið kistulögð og hvíla í
friði einsog þau sofi rótt.
Við fyrstu sýn slær mann umbúða-
laust raunsæið og áfallið sem fráfall
bamanna hefur á nánustu en þeir era
oftast ekki með á myndinni. Olíkt því
sem virðist hafa verið býsna algengt
hjá nágrönnum okkar, að minnsta kosti
í hinum enskumælandi heimi, er ekki
reynt að dylja staðreyndir málsins. Oft
var hið látna barn fært í sitt fínasta
púss og haft sitjandi milli foreldra
sinna eins og það hefði óvart lokað
augunum þegar blossinn tendraðist í
stúdíóinu.
Slíkt „fals“ virðist ekki hafa átt upp
á pallborðið hér. Hins vegar er reynt
að líkja eins vel eftir svefni og kostur
er þótt hitt sé jafnframt algengt að áhrif
dauðans séu hvergi dulin. Á nokkram
myndanna ber holdafar bamanna vott
um návist dauðans. Annað hvort eru
hin látnu í rúmum sínum og vöggum
eða þau hafa verið kistulögð með
blómaskrúði.
Ef til vill boða þessar tvær sýningar
breyttar áherslur í sýningahaldi hér-
lendis. Það er vissulega tími til kominn
að við fslendingar losum okkur við
fjötra skynlausra fegurðasjónarmiða
þegar myndlist er annars vegar og fór-
um að kannast við fleiri og marg-
breytilegri hliðar á almennum sjón-
menntum. Þá er löngu tímabært að fé-
lagsleg ljósmyndalist fái þann sess sem
henni ber og Ijósmyndarar fyrri tíðar -
með brautryðjandann Sigfús Ey-
mundsson í broddi fylkingar - sáðu til
í lok síðustu aldar og upphafi þessarar.
Myndlist snýst ekki einvörðungu um
mannlausa náttúru heldur einnig og
engu síður um mannlega náttúru og
náttúra mannlegs samfélags. ■
■ Á landsfundi Þjóðvaka um helgina var dustað rykið af gömlum hugmyndum Vilmundar
Gylfasonar um grundvallaruppstokkun íslenska stjórnkerfisins. Þjóðvaki vill aukinn rétt til
þjóðaratkvæðis, jöfnun atkvæða, að forsætisráðherra sé kjörinn beinni kosningu og að
ráðherrar víki af þingi. Þeir sem aðhyllast þessar hugmyndir segja að þetta kerfi myndi
auka sjálfstæði Alþingis og skerpa skilin milli löggjafarvalds og framkvæmdavalds. Blaða-
menn Alþýðublaðsins leituðu álits á þessum róttæku hugmyndum
Parf að stokkáJ
spilin upp.
upp í stjómarráð bæti þingið. Þingið
verður dýrara og embættismönnum í
stjómarráðinu fjölgar um tíu. Ég tek
fram að Alþýðubandalagið hefur ekki
mótað sér skoðun á þessum málum í
einstökum atriðum. En ég held að
ísraelska aðferðin styrki þingið vera-
lega sem þar með yrði samkeppnisað-
ili við framkvæmdavaldið en í ekki
vasanum á því.“
Árni Gunnarsson,
framkvæmdastjóri
Þarna eru baráttu-
mál Alþýðuflokks-
ins
„Það hlýtur að vera auðvelt fyrir al-
þýðuflokksmenn að skrifa undir flest
af því sem fram kemur í stjómmála-
ályktun Þjóðvaka. Þama era á ferðinni
mál sem Alþýðuflokkurinn er búinn
að berjast fyrir um áratuga skeið, eins
og veiðileyfagjald, hagræðingu í vel-
Jón Baldvin Hannibalsson,
formaður Alþýðuflokksins
Engin rök fyrir
klofningi jafnaðar-
manna
„Stjómmálaályktun Þjóðvaka úr
Viðey staðfestir það, sem áður var vit-
að, að í stærstu málum skortir ekki
málefhalega samstöðu milli Alþýðu-
flokks og Þjóðvaka. Ályktunin tekur á
fimm málum.
Það fyrsta er veiðileyfagjald í sjáv-
arútvegi,
sambærilegt orkugjald fyrir nýtingu
orkulinda og krafan um nýjan búvöru-
samning. Allt eru þetta gömul baráttu-
mál Alþýðuflokksins.
Annað málið snertir fjárhagsgrund-
völl velferðarkerfisins sem hefúr verið
eitt meginþemað í stefnu og starfi Al-
þýðuflokksins frá upphafi til þessa
dags.
Þriðja málið, um að sameina fólkið
á vinnustöðunum í eitt stéttarfélag og
auka áhrif starfsfólks á stjómir stórfyr-
irtækja, er sígilt baráttumál jafnaðar-
manna.
Fjórða málið um réttlátt skattakerfi
er kjami jafnaðarstefnunnar.
Fimmta málið um stjómkerfis-
breytingar, eins og til dæmis um jöfn-
un atkvæðisréttar og lagasetningu um
þjóðaratkvæði, era með sama hætti
baráttumál Alþýðuflokksins frá upp-
hafi vega. Þetta staðfestir að engin
rök era fyrir klofningi í röðum jafnað-
armanna vegna málefnaágreinings.
Þetta staðfestir líka að ástæðulaus
klofningur jafnaðarmanna er til þess
eins fallinn til að veikja áhrif jafnaðar-
manna á stjóm landsins, eins og
reynslan sýnir. Það er einnig ástæða til
að minna á að þingmenn Alþýðu-
flokks og Þjóðvaka náðu órofa sam-
stöðu um málefni og málflutning á því
þingi sem nú var að ljúka. Engin hald-
bær rök era fyrir því að viðhalda
flokkslegri sundrangu jafnaðarmanna.
Ég tek því eindregið undir niðurstöð-
una um það að menn læri af mistök-
unum og, eins og segir í ályktuninni,
„að jafnaðarmenn bjóði sameiginlega
fram við næstu Alþingiskosningar.
Það er aðeins eitt atriði í stjóm-
málaályktun Þjóðvaka sem valdið get-
ur ágreiningi. Það er að komið verði á
beinni kosningu framkvæmdavalds-
ins. Þetta er hið gamla baráttumál
Bandalags jafnaðarmanna frá því fyrir
kosningar 1983 um að kjósa forsætis-
ráðherra eða æðsta handhafa fram-
kvæmdavaldsins beinni kosningu og
hverfa þar frá þingræðisskipulaginu.
Þessi hugmynd hefur komið upp
nokkram sinnum á lýðveldistímanum
en aldrei hlotið verulegar undirtéktir.
Reynslan sýnir að þjóðir hverfa ekki
frá rótgróinni hefð eins og þingræðinu
nema það hafi beinlínis beðið skip-
brot. Þrátt fyrir margvíslega galla í ís-
lensku stjómkerfi, sem rekja má til
ójöfnuðar í kosningarétti og úreltrar
kosningalöggjafar, hefur þjóðin ekki á
tilfinningunni að þingræðið hafi beðið
skipsbrot. Þessi tillaga er róttæk og
mundi vafalaust kalla á uppstokkun
flokkakerfis. og kalla fram tveggja
flokka kerfi, sérstaklega ef kosið yrði
um forsætisráðherrann í tveimur lot-
um til að tiyggja meirihlutakjör. Það
þarf miklu vandaðri rökstuðning og
meiri umræðu um stjómkerfisbylt-
ingu, en rúmast í þessum fáu orðum í
stjómmálayfirlýsingu á einu blaði."
Vilhjálmur Þorsteinsson
kerfisfræðingur
Langur með-
göngutími hug-
mynda
„Alþýðuflokkurinn hefur samþykkt
á flokksþingi oftar en einu sinni að
ráðherrar sitji ekki á þingi. Ég styð þá
hugmynd. Varðandi þá hugmynd að
kjósa beri forsætisráðherra beinni
kosningu þá er það einmitt hugmynd
sem Bandalag jafnaðarmanna og Vil-
mundur Gylfason komu með á sínum
tíma. Hún hefur kosti og galla. Menn
hafa bent á það sem ókost að þess
háttar kosning yrði populistísk kosn-
ing. Svo má á móti spyrja: Er nokkuð
að því?
Ég hef verið hrifinn af hugmynd-
um sem ganga í þá átt að tengja betur
saman vilja kjósenda og skipan-fram-
kvæmdavaldsins. Eins og staðan er í
dag virðist oft býsna langt á milli vilja
kjósenda og þeirrar ríkisstjómar sem
nær völdum. Ég hef jákvætt viðhorf
gagnvart hugmyndum sem miða að
því að minnka bilið þar á milli. Það er
hægt að hugsa sér fleiri útfærslur þar á
en þetta er hugmynd sem er vel þess
virði að líta á. I tengslum við forseta-
kosningamar er að skapast umræða
um jöfnun atkvæðisréttar. Ég fagna
þeirri umræðu. Þegar við í Bandalagi
jafnaðarmanna gösluðumst í þeim
málum þá var stundum eins og við
væram að beijast við vindmyllur;
áhugi fólks virtist ekki vera fyrir
hendi. Þróunin nú er ánægjuleg.
Áhuginn hefur verið að aukast og
augu fólks að opnast fyrir þessu
vandamáli. Þetta er kannski eðlilegt
ferli. Menn á borð við Vilmund koma
fram með hugmyndimar. Þær ná ekki
fjöldafylgi en skjóta rótum í þjóðarvit-
undinni. Síðan vega menn og meta at-
burði í stjómmálum með hliðsjón af
þessum hugmyndum. Sumar hug-
myndanna eiga nú talsvert meira fylgi
heldur en þegar þær vora settar fram.
Hver hefði trúað því að framsóknar-
þingmenn færa fram og töluðu fyrir
jöfnun atkvæðisréttar, eins og mér
skilst að Siv Friðleifsdóttir og Ólafur
Öm Haraldsson hefði gert? Þetta er
kannski hinn eðlilegi meðgöngutími
hugmynda, en mér finnst hann reynd-
ar svolítið langur. Þrettán ár.
Ég hef ekki trú á því að Alþingi
eigi að fjalla um breytingar á stjómar-
skránni. Ég hef alltaf verið fylgjandi
gömlu hugmyndinni um nokkurskon-
ar stjómlagaþing sem endurskoði
stjómarskránna. Hver veit? Kannski
gerist það eftir önnur þrettán til tjórtán
ár.“
Svavar Gestsson,
þingflokksformaður
Alþýðubandalagsins
Sver sig í ætt ann-
arra vinstri flokka
„í þessum tillögum sver Þjóðvaki
sig í ætt annarra vinstri flokka eins og
eðlilegt er því fátt er nýtt undir sólinni.
AÐ því er varðar tölulið fimm bendi
ég á þetta:
Tillögur um þjóðaratkvæði sem
fari fram með skipulegum hætti eftir
að tiltekinn hluti, jafnvel minnihluti
þjóðarinnar, hefur óskað þess er einna
skýrastur í tillögum Alþýðubandalags-
ins í stjómarskrámefnd 1983 en ég
hygg að Ragnar Amalds sé aðalhöf-
undur þeirra tillagna. Það kemur því
ekki á óvart að við séum yfirleitt sam-
mála slíkum hugmyndum.
Við höfum alltaf verið samferða í
þeim kjördæmabreytingum sem gerð-
ar hafa verið hér á landi og hafa allar
miðast við að stuðla að jöfnun at-
kvæða eða jafnara vægi atkvæða. Ég
tel einsýnt að við yrðum samferða í
næstu lotu ef um það mál tækist víð-
tæk samstaða sem er mikilvæg for-
senda að mínu mati. Ég tel reyndar
einsýnt að fljótlega og fyrir næstu al-
þingiskosningar verði gerð alvarleg at-
laga að því að breyta kjördæmaskip-
uninni og kosningalögunum. Það er
óskynsamlegt fyrirfram að gefa það
upp hvemig slík breyting ætti að vera
í einstökum atriðum en ég tel bæði
koma til greina að fækka kjördæmum
og minnka mismuninn á milli vægis
atkvæða eftir lanéshlutum. Ég spái því
að ekki náist sátt um að landið verði
eitt kjördæmi fyrr en í annarri eða
þriðju lotu kjördæmabreytinga héðan í
frá.
Ég vil stuðla að raunveralegum að-
skilnaði framkvæmdavalds og lög-
gjafarvalds. Mér ofbýður hvemig rík-
isstjómin niðurlægir Alþingi hvað eft-
ir annað Ég tel að ísraelska aðferðin -
þar sem forsætisráðherra er kosinn
beint um leið og þingið er kosið geti
vel komið til greina. Ég tel hins vegar
ekki að það að ráðherramir fari allir
ferðarkeifinu og jafnari tekjuskipt-
ingu. Það er mér ánægjuefni að sjá
málin frá tímum Vilmundar heitins
Gylfasonar, eins og um breytingar á
stjómskipuninni, beina kosningu
framkvæmdavalds, aukið atvinnulýð-
ræði og vinnustaðasamninga
Það er hins vegar sárgrætilegt að
stór hluti þjóðarinnar sem keppir að
sama pólitíska markmiðinu skuli vera
að þvælast í mörgum stjómmálaflokk-
um. Það þjónar litlum tilgangi að gefa
út stjómmálaályktanir með áherslum
sem allir geta fallist á þegar skortir
skyrkinn til að hrinda stefnunni í
ffamkvæmd. Við þurfum ekki nýja
flokka til að túlka jafnaðarstefnuna.
Hún er mjög skýr og klár. En því fleiri
sem flokkamir verða sem kenna sig
við frelsi, frið og jafnrétti því minni
von að þeir nái árangri. Draumurinn
um stóra jafnaðarmannaflokkinn
strandar enn á persónulegum hags-
munum."
Vilhjálmur Egilsson,
þingmaður Sjálfstæðisflokksins
Hlutir sem hafa
enga úrstitaþýð-
ingu
„Þessa hluti má í sjálfu sér ræða. Ég
held hins vegar að þeir hafi enga úr-
slitaþýðingu um það hvemig okkur
vegnar. Ef við lítum í kringum okkur
þá sé ég ekki að það sé samasemmerki
milli þess hvemig framkvæmdavaldið
er kosið og hvemig þjóðinni gengur
að koma undir sig fótunum.
Kostimir era þeir að betur er skilið
á milli framkvæmdavalds og löggjaf-
arvalds. Gallamir era hins vegar þeir
að ef framkvæmdavaldið og löggjafar-
valdið era sitt á hvorri línu þá er erfið-
ara að ná fram ákvörðunum. Það era
kostir og gallar á þessu en í sjálfu sér
hef ekki afdráttarlausar skoðanir á því
á hvom veginn þetta eigi að vera. Ég
er tilbúinn að ræða málin.
Jöfnun atkvæðisréttar er mál sem
er að þróast í rétta átt. Ég held hins
vegar að það mætti huga að fleiri at-
riðum í sambandi við kosningalög-
gjöfina. Sjálfur er ég hrifnastur af hug-
inyndinni um einmenningskjördæmi
og tel að fólk eigi ekki að vera skyld-
ugt til að kjósa á þeim stað þar sem
það býr, heldur geti það fengið að
kjósa í þeim kjördæmum sem það vill.
Þingmenn eiga að vera fulltrúar fólks-
ins en ekki Ijallanna."
Ólafur Örn Haraldsson,
þingmaður Framsóknarflokksins
Ekki Þjóðvaki sem
stýrir umræðunni
„Þessi atriði eru til umfjöllunar hjá
öllum stjómmálaflokkum, ekkert síður
hjá Framsóknarflokknum en öðrum.
Ég hef til dæmis beitt mér mjög
ákveðið fyrir jöfnun atkvæðisréttar.
Það er ekki Þjóðvaki sem stýrir þess-
ari umræðu, Alþýðuflokkurinn sinnir
henni og hópur einstaklinga úr öðrum
flokkum.
Það ætti að skoða mjög vandlega
hvort ráðherrar eigi að sitja á þingi.
Atriði er varða beina kosningu og
ffamkvæmdavaldið hef ég ekki skoð-
að þannig að ég þori að setja frarn
ákveðnar skoðanir um þau.
Annars finnst mér kominn tími til
að menn veiti athygli málefnum eins
og aðgangi að landi og landnýtingu.
Það búa níutíu og fimm prósent þjóð-
arinnar í þéttbýli og eru landlaust fólk.
Við þurfum að tryggja aðgang al-
mennings að landinu án þess að ganga
einhliða á rétt landeigendanna. Það
þarf að nást sátt um þessi atriði og það
verður að gerast meðan við höfum
tækifæri til, því ef við missum tökin á
lendum við í fyrirsjáanlegum árekstr-
um.“
Kristín Ástgeirsdóttir,
þingkona Kvennalistans
Þjóðvaki þarfað
skýra hugmyndir
sínar betur
„Mér hefur lengi þótt skorta mjög á
að Þjóðvaki skýri betur hvað býr að
baki hugmynda hans. Þjóðvakafólki er
gjarnt að skella fram fullyrðingum svo
sem um nauðsyn á sameiningu jafnað-
armanna án þess að skilgreina um
hvað sú sameining eigi að snúast eða
hvað hinir heittelskuðu eri sundraðu
jafnaðannenn eiga að gera eftir að þeir
era gengnir í lukkulegt hjónaband.
I stjómmálaályktun Þjóðvaka er að
þessu sinni að finna hugmyndir um
stjómkerfisbreytingar sem oft hefur
verið slegið fram en hafa lítt verið
ræddar, hvað þá rökstuddar. Ég get
tekið undir að það þarf að einfalda
reglur um þjóðaratkvæði og að sjá til
þess að ákveðinn hópur fólks geti
knúið fram þjóðaratkvæðagreiðslur
um einstök og mikilvæg mál í sam-
bandi við afgreiðslu EES-samningsins
1993.
Jöfnun atkvæða er sjálfsagt mál
sem virðist þó vefjast ótrúlega fyrir
þessari þjóð sem vill telja sig til lýð-
ræðisþjóða.
Ég hef lengi verið þeirrar skoðunar
að skilningur manna á þrískiptingu
ríkisvaldsins sé afar takmarkaður hér á
landi, en þó ber nokkuð á togstreitu
milli valdsviða líkt og þekkist til
dæmis í Bretlandi og Bandaríkjunum.
Hér hefur framkvæmdavaldið þó
greinilega yfirhöndina. Því er ég sem
parlamentaristi sammála því að greina
þurfi mun betur milli löggjafarvalds
og framkvæmdavalds en nú er gert,
annars vegar með því að ráðherrar séu
ekki þingmenn (þó þarf að hugsa það
mál vel), hins vegar með því að auka
til muna sjálfstæði í vinnubrögðum
þingsins, þar sem ráðuneytin hafa allt
of mikil álirif auk þess sem þingmenn
era allt of ósjálfstæðir.
Hvað varðar beinar kosningar fram-
kvæmdavaldsins hef ég meiri efa-
semdir. Það gafst heldur illa nýverið í
Israel að kjósa forsætisráðherrann
beint. Slikar kosningar geta farið að
snúast meira um menn en málefni og
sú staða getur komið upp að mikill
munur verið á stefnu þeirra sem kosn-
ir era til þings og hinna sem kosnir
yrðu ráðherrar. Það gæti kallað á tíma-
freka samninga líkt og gerist í Banda-
ríkjunum en yrði um leið mikið að-
hald að báðum. Hér er einfaldlega
hugmynd á ferð sem þarf að ræða.
Hitt er svo annað mál hversu flókið
stjómkerfi og kosningakerfi jafn lítil
þjóð og Islendingar eiga að hafa yfir
sér. Ef eitthvað þarf að einfalda það til
muna. Aðalatriðið er að stjómkerfið sé
lýðræðislegt og að það virki í þágu al-
mannahags. Þjóðvakafólk þarf að
skýra betur hvemig það hugsar sér
þessar breytingar en það er að sjálf-
sögðu gott eitt um það að segja að enn
einu sinni sé riðið á vaðið, einhvem
tímann komumst við yfir á bakkann
hinum megin.“ ■
Stéttin
erfyrsta
skrefið
iim...
Mikiðúrval
afhellmn
og steinum.
Mjög gott verð.
STÉTT
HELLUSTEYPA
HYRJARHÖFÐI 8
112 REYKJAVÍK
SÍMI 577 1700 -FAX 577 1701