Alþýðublaðið - 16.07.1996, Page 3

Alþýðublaðið - 16.07.1996, Page 3
ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚLÍ1996 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3 s k o ð a n i r Eg styð ráðuneytið! Undanfarna mánuði hafa heilsu- gæslulæknar unnið að því með starfs- mönnum heilbrigðisráðuneytisins að fmna vænlegar leiðir að því markmiði að byggja upp og styrkja heilsugæsl- una á höfuðborgarsvæðinu og reyndar á landsbyggðinni allri. Eftir margra mánaða vinnu komust menn að þeirri niðurstöðu að lausn verkefnisins fælist fyrst og fremst í óaðskiljanlegri þrí- einingu, það er: Pallborðið | Gunnar Ingi Gunnarsson skrifar • Að breyta stjórnskipulaginu þannig að öll heilbrigðisþjónusta utan stóru sjúkrahúsanna í Reykjavík félli undir eina stjórn í stað þess að lúta þríþættu húsbóndavaldi, eins og nú er háttað. Þannig yrði eitt stjómvald gert ábyrgt fyrir því að tryggja íbúunum alla lögbundna utanspítalaþjónustu eftir skipulagi þar sem saman færi sanmhæfð stjórnsýsla og fjármála- ábyrgð. • Að tryggja heilsugæslunni alla þá mönnun og aðstöðu sem hentar íbúa- fjölda hvers svæðis. Þar sem ólíklegt var talið að höfuðborgarbúar fengju útgreidda þá inneign, sem safnast hef- ur upp í ríkissjóði í biðinni eftir heilsugæslu á við dreifbýlið, var ákveðið að leita annarra og jafnvel betri úrræða, Sú spuming hefur meðal annars komið upp hvort eitthvað vit sé í því að byggja hús undir heilsugæslu á vegum hins opinbera fyrir 140 þús- und krónur per fermetra þegar aðrir hafa gert það fyrir 70 þúsund? Varðandi sjálfan rekstur stöðvanna er meðal annars ætlunin að taka mið af þeirri reynslu sem þjónustusamn- ingurinn við Læknavaktina s/f í Reykjavík hefur leitt í ljós síðastliðin tíu ár. • Að stuðla með valfrjálsu stýri- kerfx að virku skipulagi verkaskipting- ar milli lækna sem starfa utan sjúkra- húsa. Hér er um að ræða kerfi þar sem bæði neytendur og sérfræðingar geta valið um það hvort þeir vilji vera með í fimm ára tilraun með stýrikerfi tilvís- ana eða ekki. Þeir sem ekki vilja vera með búa áfram við núverandi skipu- lag. Þeir neytendur sem hins vegar kjósa að taka þátt í tilrauninni fá ódýr- ari þjónustu en nú er og betri leiðsögn um heilbrigðiskerftð með bættu upp- lýsingaflæði. En sérfræðingar fá bón- us. Aformað er að tilraumn verði und- ir virku eftirliti, bæði frá sjónarhóli hagkvæmni og faglegra markmiða. Endanleg útfærsla þessarar tilraunar liggur ekki fyrir ennþá, enda mun fimm manna starfshópur vinna að henni strax að loknum sumarleyfum. Hér að ofan hef ég lýst þeim þrem- ur meginþáttum sem menn telja að verði að fylgjast að í framkvæmd til að heilsugæslan verði gerð hæf til að sinna sínu hlutverki. Mikilvægt er að víðtæk samstaða náist að baki þessara áforma til að þau komist í höfn. í fjölmiðlum hef ég þegar orðið var við neikvæð viðbrögð einstakra koll- ega. Neikvæðni þeirra virðist mér raunar léttvæg því læknamir kváðust jafnframt ekki vita um hvað málið snerist. Hitt fannst mér sínu verra þegar ég sá vopnabróðurinn Sighvat fara með hörku gegn hinu valftjálsa stýrikerfi í hinum ýmsu ijölmiðlum. Einnig í Al- þýðublaðinu. Mér fannst gagnrýni samheijans ekki verri fyrir það eitt að vera andóf gegn hinu valfrjálsa stýri- kerfi heldur vegna þess að hann brást við röngum forsendum. Það þótti mér sárast. Eg hef bent Sighvati á að út- færsla áformanna um hið valfrjálsa stýrikerfi liggi alls ekki fyrir. Ég hef Ég hef bent Sighvati á að útfærsla áformanna um hið valfrjálsa stýrikerfi liggi alls ekki fyrir. Ég hef einnig bent honum á að hið valfrjálsa stýrikerfi muni alls ekki kljúfa þjóðina í ríka og fátæka. einnig bent honum á að hið valfijálsa stýrikerfi muni alls ekki kljúfa þjóðina í ríka og fátæka. Og jafnvel þótt ein- greiðsla þjónustugjalda yrði ofaná sem útfærsla hins valfrjálsa kerfis þá myndi sú upphæð sem til umræðu hefur komið aldrei ná þeim 6000 til 12000 króna útgjöldum sem núver- andi kerfi kallar á til þess að fá afslátt- arkort. Upphæðimar, sem hingað til hafa verið ræddar sem árleg ein- greiðsla, til að fá ókeypis heilsugæslu og afslátt á sérfræðiþjónustu yrðu lægri bæði fyrir sjúka og fátæka en í núverandi kerfi og liggja því nær markmiðum okkar jafnaðarmaima. Það gildir einnig í heilbrigðisþjón- ustunni að það er sama hvaðan gott kemur. Og auðvitað er það algjör tímaskekkja að viðhalda þeim póli- tíska ósið að sirma hlutverki stjómar- andstöðu með því fara með sjálfvirk- um hætti gegn flestu eða jafnvel öllu því sem ríkisstjómir áforma að gera - og öfugt. Ráðuneyti heilbrigðismála er með áform um róttækar úrbætur varðandi homstein heilbrigðisþjónustunnar - heilsugæsluna. Áformin eru ávöxtur margra mánaða viðræðna ráðuneytis- manna og heilsugæslulækna. Ég hvet alla þingmenn til að vinna að fram- gangi málsins, bæði á Alþingi og utan þess. Ég styð ráðuneytið í þessu máli. Höfundur er formaður Alþýðuflokksfé- lags Reykjavíkur og læknir. ví hefur löngum verið haldið fram með sanni að íslendingar gefi lítið til þróunarhjálpar í saman- burði við önnur vestræn ríki. Innan ríkisbatterísins er Þróunarsamvinnustofn- un íslands sem sinnir ýms- um verkefnum undir fána þróunarhjálpar. Stofnunin hafði meðal annars milli- göngu þegar togarinn var gefinn til Grænhöfðaeyja um árið. Fregnir þess efnis hafa borist hingað til landsins að tap sé á rekstri togarans sem er aftur rakið til spillingar yfirvalda. Oft- ar en ekki virðist viðleitnin til að aðstoða bágstödd ríki skila litlu sem engu. Nú eru uppi hugmyndir meðal valdhafa að leggja Þróunarsamvinnustofnun Islands niður enda er lítið mál að koma þeim verk- efnum sem hún sinnir fyrir í deild innan utanríkisráðu- neytisins. Þróunarstofnun- inni veitir forstöðu Björn Dagbjartsson fyrrum þingmaður Sjálfstæðis- flokksins en stofnunin hef- ur einkum vakið athygli á undanförnum árum fyrir að gefa út einkar vönduð fréttabréf... Ferðafélag íslands hyggst fá fjölmiðla í auknara mæli í lið með sér og bjóða nú fjölmiðlafólki til dagsferðar á Hveravelli á fimmtudaginn. Þar verð- ur starfsemi félagsins kynnt ásamt nýgerðum samningi við Minjavernd um varðveislu á elsta sæluhúsinu þar, en því húsi er ætlað hlutverk sem færðslusetur... Sameiningarmálin hafa nú fengið byr undir alla vængi eftir sumarferð jafn- aðarmanna um síðustu helgi. Þingmenn þriggja flokka voru meðal þátttak- enda. Össur Skarphéð- insson Alþýðuflokki var hrókur alls fagnaðar í ferð- inni sem og Bryndís Hlöðversdóttir Alþýðu- bandalagi. Þingmenn Þjóð- vaka voru í meirihluta: Ásta Ragnheiður Jó- hannesdóttir, Svanfríð- ur Jónasdóttir og Mörð- ur Árnason. Hins vegar var engin þingkona Kvennalista með í för... Samstarfsverkefni Borg- arleikhússins og Al- heimsleikhússins á leikriti Hlínar Agnarsdóttur Konur skelfa - toilettdrama gekk með miklum ágætum á síðasta leikári. Leikritið fjallar um samskipti fólks á kvennaklósetti skemmti- staðar og virðist sem áhorfendur séu forvitnir um hvað þar fer fram því sýningar slöguðu hátt í sextíu. Nú hefur verið ákveðið að taka upp þráð- inn þar sem frá var horfið, enda þurfti að hætta sýn- ingum fyrir fullu húsi, og hefjast sýningar aftur strax í upphafi næsta leikárs... fimm á förnum vegi Ertu sammála þeirri niðurstöðu vísindamanna að loðnir karlmenn séu greindari en hinir? Húbert Nói Jóhannesson Arni Harðarson tónlistar- Benedikt Guðbjartsson Gunnar Guðjónsson sjón- Róbert Douglas þjónn: myndlistarmaður: Nei, af maður: Nei, ég hef ekki rann- bankamaður: Nei, þetta er tækjafræðingur: Nei, þetta Nei, það er til fullt af gáfuðuin því að ég hef mjög erfiðan sakað málið og þar af leiðandi fáránleg kenning. eru tilhæfulausar en mjög sköllóttum mönnum. málstað að verja. er ég óhæfur. fyndnar yfirlýsingar. JÓN ÓSKAR v i t i m e n n En endurtekningin í náttúrunni ber fjölbreytni hennar vitni. ÖII svartfuglsegg eru eins. Samt eru engin tvö eins(!) Úr helgispjalli Matthíasar Johannessens í Morgunblaðinu. Morgunblaðið árnar Raunvísindastofnun Háskólans farsældar í tilefni þrjátíu ára afmælis. Forystugrein Morgunblaðsins á sunnudag. Eymd íslands er einfaldlega kjósendum að kenna. Þar hafiði það: lokaorð Jónasar Kristjáns- sonar í leiðara DV á laugardag. Sumarið er tími tilbreytingar, ræktunarstarfs, heyverkunar, ferðalaga, mannfagnaðar og úti- vistar, svo eitthvað sé nefnt. ísólfur Gylfi Pálmason alþingismaður Framsóknar íTímanum á laugardag. Maðurinn fékk siðferðis- kenndina í arf frá öpunum. Fyrirsögn greinar í DV á laugardag. Þetta hlýtur að skýra eymd íslenskra kjósenda. Spurningunni um hver væru mestu mistök hans svaraði Lebed af einstökum hroka: „Að reyna að stökkva rúmlega hæð mína. En mér tókst það engu að síður.“ Moggi á sunnudag sagöi frá Alexander Lebed, herforingja og orðháki. Með því að færa Sogn undir stjórn Sjúkrahúss Reykjavíkur er Sogn úr sögunni, það verður engin réttargeðdeild. Grétar Sigurbergsson. Honum var nýverið sagt upp starfi sem yfirlæknir á Sogni, þótt öllum beri saman um, að þar hafi verið unnið frábært starf. „I saw your beautiful film, Tár úr steini, which I profoundly admired and tried to find you afterwards to congratulate you.“ Úr bréfi hins heimskunna leikstjóra, Johns Schlesingers, til Hilmars Oddssonar. Tíminn birti þessa ritsmíð á laugardag. fréttaskot úr fortíð Frakkar ræna verkamannakaupi Frá Köln er símað: Frakkar hafa lagt hald á 13 milljarða marka, er voru í hraðlestinni milli Berlínar og Kölnar og ætlaðir voru til greiðslu á verka- mannakaupi. Alþýðublaðið, 27. febrúar 1923.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.