Alþýðublaðið - 20.08.1996, Síða 6
6
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 1996
s k i I a b o ð
BQRG A RSKIPULAG REYKJAVIKUR
BORGARTÚNI3 ★ 105 REYKJAVÍK * SÍMI563 2340 ★ MYNDSENDIR 562 3219
Efstaleiti hús RKÍ
Nú stendur yfir í sýningarsal Borgarskipulags og bygg-
ingarfulltrúa kynning á breyttri afmörkun lóðanna Efsta-
leiti 1, 3, 5, 7 og 9. Jafnframt er þar til sýnis tillaga, sem
hlaut 1. verðalaun í samkeppni um skrifstofuhús fyrir
Rauða kross íslands.
Kynning er á 1. hæð að Borgartúni 3
til 27. ágúst nk.
BORGA RSKIPULACt REYKJAVÍKUR
BORGARTÚNI3 ★ 105 REYKJAVÍK ★ SÍMI563 2340 ★ MYNDSENDIR 562 3219
Hverfakort af Borgarhiuta 8
GRAFARVOGUR
íbúðarhverfin í Grafarvogi:
Folda-, Húsa-, og Hamrahverfi
og athafnahverfið á Ártúnshöfða.
ORÐSENDIIMG FRÁ BORGARSKIPULAGI
TIL ÍBÚA OG HAGSMUNAAÐILA
Á Borgarskipulagi Reykjavíkur er að hefjast vinna við
hverfakort borgarhluta 8, Folda-, Húsa-, og Hamrahverfi
og athafanhverfið á Ártúnshöfða. íbúar og aðrir hags-
munaaðilar eru hvattir til þess að koma ábendingum á
framfæri við Borgarskipulag um það sem þeir telja að
betur mætti fara í borgarhlutanum, t.d. varðandi byggð,
umferð og umhverfi, s.s. stíga, leiksvæði og önnur úti-
vistarsvæði. Þær munu verða teknar til gaumgæfilegrar
athugunar og metnar með tilliti til heildarskipulags
borgarhlutans.
Ábendingum óskast skilað skriflega eða munnlega fyrir
20. september til Hlínar Sverrisdóttur landslagsarkitekts
eða Margrétar Þormar, arkitekts á Borgarskipulagi
Reykjavíkur.
) Útboð
F.h. Sjúkrahúss Reykjavíkur og Dagvistar barna
er auglýst eftir tilboðum í ferska kjúklinga. Útboðs-
gögn fást á skrifstofu vorri frá og með mánud. 19.
ágúst nk. á kr. 1.000.
Opnun tilboð: Miðvikudaginn 18. sept. 1996, kl.
11, á sama stað.
shr. 121/6
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3- 101 Reykjavík
Sími 552 5800 Bréfsími 562 2616
Alþýðublaðið
■ Borgarskákmótið
1996
Hannes Hlífar
með fullt hús
Hannes Hlífar Stefánsson sigraði
með glæsibrag á Borgarskákmótinu
1996 sem haldið var um helgina.
Fyrsta Borgarskákmótið var haldið
á 200 ára afmæli Reykjavíkurborg-
ar, og fór það nú fram í ellefta
skipti. Alls voru þátttakendur 84 og
var dregið um hvaða fyrirtæki þeir
tefldu fyrir. Röð efstu manna var
sem hér segir: 1. Hannes Hlífar
Stefánsson (Islenskir aðalverktakar)
7 vinningar af 7 mögulegum. 2.-3.
Helgi Áss Grétarsson (Rarik) og
Þráinn Vigfússon (Póstur og sími) 6
vinningar. 4.-6. Magnús Orn Ulf-
arsson (Suzuki), Héðinn Stein-
grímsson (Alþýðubandalagið),
Bragi Halldórsson (Bæjarskipulag
Reykjavíkur) 5,5 vinningar. 7-15.
Þröstur Þórhallsson (Visa), Ágúst
Sindri Karlsson (Núðluhúsið), Jó-
hannes Gísli Jónsson (Smurstöð
Essó, Stórahjalla), Sævar Bjarnason
(Sjóvá-Almennar), Davíð Ólafur
Ingimarsson (Leigjendasamtökin),
Arnar Þorsteinsson (Tölvukjör),
Jón Garðar Viðarsson (Fiskifélag
íslands), Sveinn Kristinsson, Ragn-
ar Fjalar Sævarsson (Emmess ís) 5
vinningar. Aðrir fengu minna.
■ Ástand heilsugæslu
á Suðurlandi
Með öllu
óviðunandi
Á fundi sem héraðslæknirinn á
Suðurlandi boðaði til með stjórn-
endum heilbrigðisstofnana, fulltrú-
um sveitarfélaga og þingmönnum
kjördæmisins vegna hinnar alvar-
legu stöðu sem upp er komin í
heilsugæslunni við uppsagnir heim-
ilislækna, var eftirfarandi ályktun
samþykkt samhljóða:
„Fundur haldinn á Selfossi 16.
ágúst 1996 ályktar að það ástand
sem nú ríkir heilsugæsluþjónustu á
Suðurlandi sé með öllu óviðunandi.
Því skorar fundurinn á samninga-
nefndir heimilislækna og ríkisins að
ganga nú þegar til samninga."
■ Konur og fjölskyldur
í dreifbýli
FA0 á Akureyri
Matvæla- og landbúnaðarstofnun
Sameinuðu þjóðanna (FAO) og
landbúnaðarráð Evrópu (ECA)
halda áttunda vinnufund um þátt
kvenna og fjölskyldna í þróun
dreifðra byggða á Hótel KEA Ak-
ureyri dagana 25.-28. september.
Fundinn sækja um 50 fulltrúar frá
Evrópulöndunum og fer hann fram
á ensku og frönsku. Um fimm full-
trúar stofnana og félagasamtaka á
íslandi mega sækja fundinn. Þeir
aðilar sem hafa áhuga á að senda
fundinn er beðnir um að hafa sam-
band við landbúnaðarráðuneytið,
þar sem dagskrá og önnur gögn um
fundinn liggja fyrir.
Aðalfundur
kjördæmisráðs
Alþýðuflokksins
á Vestfjörðum
Aðalfundur kjördæmisráðs Alþýðuflokksins
á Vestfjörðum verður haldinn að Núpi í Dýrafirði
23. og 24. ágúst 1996.
Fundurinn hefst með
sameiginlegum kvöldverði
klukkan 20.
Að kvöldverði loknum
flytur Guðmundur Árni
Stefánsson varaformaður
Alþýðuflokksins erindi um stjórnmála-
viðhorf og málefni Alþýðuflokksins.
Fundifram haldið á
laugardag klukkan 10.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnmálaviðhorf:
Sighvatur Björgvinsson
alþingismaður.
Áætluð fundarslit
klukkan 17.
Stjórnin.