Alþýðublaðið - 21.08.1996, Síða 2
2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 199Ó
s k o ð a n i r
MÞYBUBU9ID
21162. tölublað
Hverfisgötu 8 -10 Reykjavík Sími 562 5566
Útgefandi Alprent
Ritstjóri Hrafn Jökulsson
Fréttastjóri Jakob Bjarnar Grétarsson
Auglýsingastjóri Ámundi Ámundason
Umbrot Gagarín ehf.
Prentun ísafoldarprentsmiöjan hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Sími 562 5566
Fax 562 9244
Áskriftarverð kr. 1.500 m/vsk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 100 m/vsk
Vandamálið
Þorsteinn Pálsson
Sumir stjómmálamenn leysa vandamál - aðrir stjómmálamenn
em vandamál. Þorsteinn Pálsson er glöggt dæmi um hið síðar-
nefnda. Ráðherraferill hans er varðaður afglöpum, allar götur síð-
an hann hafði um hríð lyklavöld í forsætisráðuneytinu fyrir hart-
nær áratug og til þess að hann fékk sjávarútvegsráðuneytið í sára-
bætur fyrir glataðan formannsstól í Sjálfstæðisflokknum.
A nýafstöðnum aukaaðalfundi Félags úthafsútgerða var Þor-
steinn Pálsson harðlega gagnrýndur fyrir að hafa samið af sér í
stórmálum sem snerta hagsmuni þjóðar innar í samskiptum við
erlend ríki. Sérstaklega var vísað til samninga um skiptingu
karfakvóta á Reykjaneshrygg og síldarkvóta í Síldarsmugunni.
Fundurinn sá sérstaka ástæðu til að þakka Davíð Oddssyni fyrir
að hafa tekið fram fyrir hendumar á Þorsteini þegar sjávarútvegs-
ráðherrann var í þann veginn að afsala Islendingum stórkostleg-
um hagsmunum á Flæmingjagrunni. Um það sagði Snorri
Snorrason útgerðarmaður á Dalvík í samtali við Alþýðublaðið í
gær: „Ef tillögur Þorsteins Pálssonar sjávarútvegsráðherra hefðu
náð fram að ganga, hefðum við getað veitt um sexþúsund tonn af
rækju á Flæmingjagrunni á þessu ári. Við emm núna búnir að
veiða 14 þúsund tonn og gera má ráð fyrir að veiðamar nái allt að
20 þúsund tonnum.“
Veiði íslensk skip 20 þúsund tonn af rækju á Flæmingjagrunni
- 14 þúsund tonnum meira en Þorsteinn Pálsson taldi vel viðun-
andi - skilar það allt að fjómm milljörðum króna. Það er nötur-
legt til þess að hugsa að engu munaði að Þorsteinn mótmælti ekki
fyrir hönd Islendinga tilhögun veiða á þessu svæði, en það hefði
skilað okkur aðeins sexþúsund tonna afla á árinu. Hann var búinn
að tilkynna utanríkisnefnd Alþingis að hann myndi ekki bera
fram mótmæli, en Davíð Oddsson knúði hann til þess á elleftu
stundu. Forsætisráðherra hefur vitanlega séð fyrir þær stórpóli-
tísku afleiðingar sem það hefði ef Þorsteinn fengist að komast
upp með, einu sinni enn, að bera hagsmuni íslendinga fyrir borð.
Sjávarútvegsráðherra hefúr frá öndverðu sett stein í götu þeirra
djaifhuga útgerðarmanna sem sótt hafa á fjarlæg mið. Frægt var
fyrir þremur ámm þegar Þorsteinn reyndi að banna Smuguveið-
amar, og „hann hefði gert það ef Jón Baldvin hefði ekki barið á
honum með hjálp Davíðs,“ svo aftur sé vitnað í orð Snorra
Snorrasonar. Smuguveiðamar hafa skilað íslenska þjóðarbúinu
milljörðum króna, skapað fjölda manns atvinnu og em ein helsta
ástæða efnahagsbatans. En Þorsteinn hefur ekki ennþá séð
ástæðu til að styðja við bakið á þeim útgerðarmönnum sem sækja
í Smuguna og á önnur alþjóðleg hafsvæði. I þessu sambandi era
ummæli Snorra athyglisverð: „Það er ekkert leyndarmál að við
höfum verið í þrefi við íslensk stjómvöld en ekki önnur.“
Félag úthafsútgerða minnir í ályktun sinni á, að það sé almennt
viðurkennt að efhahagsbatinn í þjóðlífinu eigi að miklu leyti ræt-
ur að rekja til aukinna úthafsveiða. Islenskum stjómvöldum beri
því að styðja þennan atvinnuveg í stað þess að taka þátt í viðleitni
annarra þjóða til að koma böndum á framtak íslenslö'a útgerða og
sjómanna á þessu sviði. Sú hefur því miður ekki verið raunin, að
minnsta kosti ekki hvað varðar sjávarútvegsráðherrann. Linkind
Þorsteins gagnvart útlendingum er furðuleg og kostnaðarsöm
einsog dæmin sanna. Hægt væri að nefna fleiri mál: Hvemig
hann veigraði sér við að veija fískveiðilögsögu Islands gegn rúss-
neskum landhelgisbrjótum og fingurbrjóta í samskiptum við
Norðmenn í hveiju málinu á fætur öðm.
Menn skyldu hafa í huga að Þorsteinn Pálsson starfar í umboði
Sjálfstæðisflokksins, og þótt ráðherrann sé harla einangraður í
flokknum skrifast mistök hans og afleikir vitanlega á reikning
Sjálfstæðisflokksins. Því hlýtur það að vera áleitin spuming í for-
ystusveit sjálfstæðismanna hve lengi Þorsteini á að líðast „að
hafa stórfellda hagsmuni af íslenska þjóðarbúinu", einsog komist
er að orði í ályktun úthafsútgerðarmanna.
Að öllu samanlögðu er Þorsteinn Pálsson þessvegna það
vandamál íslenskra stjómmála sem hvað brýnast er að leysa. ■
IRaunar segja umgetnar yf irlýsingar meira um höfunda sína en um Ríkisútvarpið,
hljóðvarp eða sjónvarp. Þær benda til þess, að það liggi eitthvað illa á mönnunum.
Þeir eru lítið eitt vansælir, blessaðir, í sumarblíðunni, hnuggnir og leiðir.
Ríkisútvarpið er í sókn
Fyrir fáum dögum fékk ég í hendur
nýja hlustendakönnun, sem gerð
var dagana 24. júlí til 6. ágúst. Niður-
stöður könnunarinnar eru einkar
ánægjulegar fyrir Ríkisútvarpið hljóð-
varp, - eða „Utvarpið", eins og það er
nefnt frá gamalli tíð og nýrri. Heildar-
niðurstaðan er sú, að frá kl. 7 að
morgni til kl. 24 hlusta að meðaltali
21 af hvetjum hundrað íslendingum á
Útvarpið. Á sama tíma hlusta að með-
altali 6 af hvetjum hundrað Islending-
um á þá stöð, sem næst kemur í röð-
inni á eftir Útvarpinu.
Pallborðið
Þegar nánar er hugað að þessum
tölum, kemur í ljós, að 17% íslend-
inga hlusta á Útvarpið milli kl. 7 og 8
á morgnanna, en 20% milli kl. 8 og 9.
Frá 9 til 12 hlusta 25% landstnanna,
en í hádeginu 42%. Hliðstæðar tölur
getur að líta síðdegis, en þá sveiflast
hlustendafjöldinn á milli 17 og 20
hundraðshluta allrar þjóðarinnar.
Sú stöð sem kemur næst á eftir Út-
varpinu er hvarvetna víðs fjam því að
komast með tæmar þar sem Útvarpið
hefur hælana. Yfirburðir Útvarpsins
eru algjörir.
a q a t a I
Útvarpið skiptist í Rás 1 og Rás 2.
Varðandi hlustun er Rás 2 í farar-
broddi, og ber hún í því efni höfuð og
herðar yfir allar aðrar útvarpsrásir á Is-
landi. Áf þessu má ljóst vera að hvergi
er um að ræða vinsælli hljóðvarpsdag-
skrá í landinu en þar sem dagskrá Rás-
ar 2 er.
Þessar niðurstöður erú víðs fjarri
því að vera nokkur nýlunda. Ár hvert
eru gerðar reglubundnar kannanir á út-
varpshlustun Islendinga og sjónvarps-
áhorfi. Jafnan kemur í Ijós, að Ríkisút-
varpið sjónvarp ber í sama tilliti langt
af öðrum sjónvarpsrekstri í landinu.
Ríkisútvarpið, hljóðvarp og sjónvarp,
er þannig hverju sinni í fylkingar-
bijósti - ævinlega.
Yfirleitt gerir Ríkisútvarpið lítið að
því að hampa þessum staðreyndum.
Starfsmenn hljóðvarps og sjónvarps
hafa þær til viðrrúðunar og hliðsjónar
hver í sínu verki. En við látum að
jafnaði ógert að miklast af árangrin-
um. E.t.v. lítum við á það sem sjálf-
sagðan hlut, að útvarp og sjónvarp
allra íslendinga beri af öðmm.
Þetta ytra tómlæti okkar um áhorfs-
og hlustendakannanir breytir þó ekki
einni staðreynd: Niðurstöður kann-
anna leiða í ljós að Ríkisútvarpið er í
sókn. Frá könnun til könnunar, frá
misseri til misseris, frá ári til árs held-
ur Ríkisútvarpið nflega hlut sínum í
samanburði við aðra ljósvakamiðla.
Hver sóknarlotan tekur við af annarri
og allt stefnir í eina átt.
Ástæða til þess, að ég set tölur um
framangreint efni í Alþýðublaðið í
dag, er sú að hér birtust í gær viðtöl
við nokkra menn. þar sem að hluta til
kvað við undarlegan róm. „Rás 2 er
stöðnuð" sagði einn viðmælenda
blaðsins. Og annar lýsti því yfir um
Ríkisútvarpið í heild, að „furðulegur
doði“ væri yfir stofnunni. Þessum
snilliyrðum brá blaðið síðan á loft eins
og við var að búast og gérðiTÍr þeim
íyrirsagnir: . ■ . ■
„Rás 2 er stöðnuð'-V- „Furðulegur
doði“ yfir Ríkisútvarpinu. Slfkar full-
yrðingar koma illa saman og heim við
þær einföldu staðreyndir, sem að
framan getur. Islendingar upp til hópa
em bersýnilega á allt annari skoðun en
þeir góðu menn, sent þarna töluðu.
Alntenningur hlustar á Rás 2 og gefur
fyllsta gaum að Ríkisútvarpinu í heild,
hljóðvarpi og sjónvarpi og lætur sér
þetta allt bærilega líka. Kannanir á
hlustun og áhorfi beinlínis sanna slíkt
svo að ekki verður um villst.
Raunar segja umgetnar yfirlýsingar
meira um höfunda sfna en um Ríkisút-
varpið, hljóðvarp eða sjónvarp. Þær
benda til þess, að það liggi eitthvað
illa á mönnunum. Þeir em lítið eitt
vansælir, blessaðir, í sumarblíðunni,
hnuggnir og leiðir. Um annað eða
meira er hér ekki að ræða. -
Hins vegar segja títtnefndar yfirlýs-
ingar ekkert um Ríkisútvarpið, hvorki
sjónvarp né hljóðvarp. Þar ríkir ekki
doði né stöðnun, eins og í hugskoti
fyrr greindra manna. Þar er og verður
fram haldið þeirri sókn, sem staðið
hefur um hríð og enginn sýnilegur bil-
bugur er á.
Höfundur er útvarpsstjóri.
2 1 á 9 ú s t
Atburdir dagsins
1011 Njáll Þorgeirsson og fjöl-
skylda hans brennd inni á
Bergþórshvoli. 1238 Örlygs-
staðabardagi háður í Blöndu-
hlíð í Skagafirði. 1327 Játvarð-
ur II Englandskonungur drep-
inn í fangelsi. 1792 Frakkar af-
nema konungdæmið. 1832 Sir
Walter Scott, vinsælasti rithöf-
undur heims, deyr. 1903 Fyrsti
vestrinn frumsýndur. 1942 Sjö
manna áhöfn vélbátsins Skaft-
fellings bjargar 52 Þjóðverjum
af sökkvandi kafbáti við Bret-
land. 1957 Hákon VII Noregs-
kóngur deyr. 1958 Friðrik OI-
afsson, 24 ára laganemi, út-
nefndur stórmeistari í skák,
fyrstur íslendinga. 1973 Ásgeir
Sigurvinsson, 18 ára, lék fyrsta
Icik sinn sem atvinnumaður í
fótbolta; með Standard Liege í
Belgíu.
Afmæiisbörn dagsins
H.G. Wells 1866, enskur rit-
höfundur. Larry Hagman
1931, bandarískur leikari. Lc-
onard Cohcn 1934, kanadísk-
ur tónlistarmaður.
Annáisbrot dagsins
Sleginn í hel Didrik van Mynd-
en hirðstjóri, í Skálholti, við
11. mann, af landsetum kirkj-
unnar. Þá var og drepinn Pétur
Spons í Hruna, þessir allir fyrir
óguðlega breytni, rán og harð-
fengi.
Vatnsfjarðarannáll elzti, 1539.
Mammút dagsins
Fátt cr algeingara en öldúngar í
forustuliði tímans sem verða
innlixa þar sem þeir eru komnir
einsog mammútar og aðrir
stólpagripir sem bíða dóms-
dags í frcðmýrum Síberíu mcð
þessar voðalegu tennur og
Iaungu kjafta.
Halldór Kiljan Laxness,
Skáldatími.
Málsháttur dagsins
Uxinn fór í England, kom aftur
naut.
Stjórnarfar dagsins
Fullkomnasta stjórnarfarið er
það, þegar rangindin í garð
liins vesælasta eru talin árás á
alla. Sólon.
Orð dagsins
Einhvemtíma efe'g rx
einhvemtíma kemur logn,
einhvemtíma útú sæ
einhverntímu fœ ég lirogn.
SigurðurJósúason.
Skák dagsins
I skák dagsins eru báðar droltn-
ingamar í uppnámi, en hvítur
nýtur þess að eiga leik. Kic-
hniev hefur hvítt-og á leik gegn
Damljanovic; skákin var tefld í
Sibenik í Króatíu árið 1989.
Hvitur leikur og vinnur.
1. Dxc8! Og svarta staðan er
töpuð, samanber 1. ... Dxc8 2.
Rf6+ Kh8 3. Hh7 mát.