Alþýðublaðið - 21.08.1996, Blaðsíða 5
\/IKUDAGUR 21. ÁGÚST 1996
ALÞÝÐUBLAÐHD
5
Stjórn Alþýðuflokksins, sem kjörin var á flokksþingi
fyrir tveimur árum: Valgerður Guðmundsdóttir ritari,
Guðmundur Árni Stefánsson varaformaður, Jón Baldvin
Hannibalsson formaður og Sigurður Arnórsson ritari.
verða stóra málið á kotnandi flokks-
þingi.
Innri málefni flokksins eru sígilt
verkefni og þau þarfnast skoðunar og
endumýjunar. Það þarf örugglega að
fríska upp á það og halda því vakandi.
Það veldur okkur hér vissulega
áhyggjum hvað flokkurinn er orðinn
lítill og hann hefur minnkað í þeirri
umræðu sem nú er. Mér finnst til
dæmis með óKkindum hvað Ingibjörg
Pálmadóttir, núverandi heilbrigðisráð-
herra, kemst létt frá þessu. Sighvatur
hefði verið aflífaður í íjölmiðlum á
hveijum degi ef hann hefði staðið fyrir
öllum þessum niðurskurði. Víst höf-
um við áhyggjur af því hvað h'tið fer
fyrir okkar ágæta flokki nú rétt sem
stendur. Málefhastaðan hefur alltaf
verið góð og við höfum látið stela frá
okkur alltof mörgum góðum málum
þegar þau eru komin á rekspöl hveiju
sem því er um að kenna. Kannski
vantar einhveija fylgni þegar á reynir.
Vissufega má velta því fyrir sér hvers
vegna ágætar hugmyndir okkar og
verk skila sér ekki í betra kjörgengi.
Kannski er sundurlyndið stundum of
mikið innan okkar ágætu raða. Ef við
horfum til Hafnfirðinga tel ég að þeir
eigi að leysa sín mál sjálfir. Þeir hafa
verið menn til þess hingað til. En það
þarf að huga að því hvaða áhrif þær
deilur hafa á flokkinn til lengri tíma.
Eg sé enga lausn í því að skipta um
formann. Við eigum að veija þennan
formann sem við höfum og styrkja til
allra þeirra góðu verka sem ég veit að
hann er fær um að inna af hendi.“
Hrönn Hrafnsdóttir
í Reykjavfk ■
Doði yfir flokks-
starfinu
„Ég hef einmitt verið að velta þessu
fyrir mér. Mér finnst að það mætti út-
færa hugmyndina með veiðileyfa-
gjaldið. Hveijir eiga miðin og hveijir
eiga Island? Veiðileyfagjaldið ætti að
vera í deiglunni á flokksþinginu með
skírskotunum svo eitthvað sé nefnt.
Það er ekki mikil endumýjun í
flokknum en þó er eitthvað um að nýtt
fólk sé að koma til starfa. En ef ég á
að segja alveg eins og er, þá er doði
yfir flokksstarfinu í heild. Því miður.
Og ég veit ekki hvað er að gerast úti á
landi en hef það á tilfinningunni að
starfið sé lítið. Það er alltaf auðvelt að
gagnrýna og ég veit ekki hvað er til
ráða. En eitthvað þarf að gera. Áhuga-
samt fólk um hag Alþýðuflokksins
ætti hugsanlega að ferðast um landið
og standa fyrir fundum.
Varðandi sameiningarmálin þá er
saklaust að gera ályktanir en það eru
verkin sem tala. Orð eru til alls fyrst
en það er búið að tala ansi mikið. Ég
var púrítani og vildi bara hafa minn
flokk en núna er ég jákvæðari á sam-
einingu en áður.“
Gunnar Ingi Gunnarsson
formaður Alþýðuflokksfélags
Reykjavíkur
Vantar hreinfega
leið inní flokkinn
„Það er auðvitað margt sem ætti að
vera til umræðu á flokksþinginu. Ég
vil undirbúa þetta flokksþing með
tvennum hætti. Annars vegar vil ég
setja nefnd í að skoða innviði flokks-
ins með það í huga að styrkja stoðir
hans og virkja betur samskipti og
tengsl. Mér finnst það afskaplega mik-
ilvægt. Sannleikurinn er sá að það eru
víða brotalamir. Ég hef heyrt að það
sé víða vandi og ég þekki það hér í
Reykjavík að það þarf að taka veru-
lega til hér innanhúss. Á sama tíma er
það augljóst að það þarf að koma
skrifstofíifyrirkomulagi og rekstri í
virkara form. Við höfum orðið vitni
að því að það hafa verið erfiðleikar
fyrir þá sem hafa ætlað sér að ná sam-
bandi við flokkinn og jafnvel að
ganga í hann: Það vantar hreinlega
leið inní flokkinn. Það gengur ekki.
Þetta vil ég að verði tekið fyrir. Ég vil
einnig að sett verði undirbúningsnefnd
í málefnavinnu. Málefnaleg staða
flokksins hefur undanfarið verið af-
skaplega góð. Við verðum að velja úr
þau málefni sem við viljum setja á
oddinn á næstunni. Við þurfum í raun
að fara að undirbúa næstu kosningar.
Við stöndum frammi fyrir því, þrátt
fyrir ffábæra málefnastöðu og góðan
aðgang að hæfileikafólki, að Alþýðu-
flokknum hefur ekki tekist að konia
skilaboðum sínum á framfæri og hon-
um hefur ekki tekist að safna liði að
baki málefnum. Þetta þurfum við að
ræða og þetta vandamál þarf að leysa.
Það kann að vera að ímynd flokksins
hafi alls ekki verið í samræmi við
væntingar okkar. Það er eins og það
séu erfiðleikar við að koma málefnun-
um á framfæri.
Alþýðuflokkurinn hefur ekki efni á
því að hafa vandamál á borð við það
sem er uppi í Hafnarfirði. Við verðum
að sjá til þess að á hveijum einasta
stað sé ekkert það óafgreitt sem
skemmir fyrir heildinni. Mér finnst að
flokksforystan ætti að hlutast til um
þessi mál. Það er eðlilegt að þeir sem
eiga að gæta heildarhagsmuna flokks-
ins taki á þessu máli. Nú höfum við í
Alþýðuflokksfélagi Reykjavíkur sett
upp ákveðið prógramm þar sem við
ætlum að hefjast handa við það að
taka á flokksstarfinu í Reykjavík eins
og reglur félagsins segja reyndar til
um. Það hlýtur að vera algjör forsenda
fyrir því að koma málefnaboðskapn-
um út, geta kynnt flokkinn með virk-
um hætti, að starfsemin sé á lífi og
boðskiptin innan flokks gangi eðlifega
fyrir sig. Þetta vantar og meðan þetta
vantar eigum við ekki að eyða of
miklum tíma í umræðu um samvinnu
og sameiningu. Þetta er forgangs-
atriði."
Þóra Arnórsdóttir
framkvæmdastjóri SUJ
Fúlir flokksmenn
eða fúll flokkur?
,J3f tekst að vekja upp steindauða
málefnavinnuna fyrir þetta flokksþing
á ég von á að mest verði fjallað um
grunnatvinnuvegina. Ég vildi hins
vegar sjá umræðu um menntamál og
stefnu mótaða á því sviði. Alþýðu-
flokkurinn hefur satt að segja enga
stefnu í þessum málaflokki og meðan
þessi ríkisstjóm situr verðum við að
vera með grundvallarsjónarmið á
hreinu: Hvað finnst okkur um skóla-
gjöld og inntökupróf við Háskóla ís-
lands, hver er stefna okkar í málefnum
Lánasjóðs íslenskra námsmanna, á að
taka upp samræmt stúdentspróf og
stytta menntaskólann? Svona mætti
lengi telja. Evrópustefhunni á heldur
ekki að gleyma eða stinga undir stól,
það er hlutverk okkar að halda um-
ræðunni lifandi meðal landsmanna og
koma í veg fyrir að núverandi stjóm-
völdum takist að þegja hana í hel.
Eins og við vitum öll hefur innra
starf flokksins ekkert verið, eins þó
þessir málefnahópar hafi verið skipað-
ir í kringum þingmennina í vetur sem
leið. Ég er alveg skelfilega ósátt við
það hvemig virðist vera ólund í öðmm
hveijum flokksmanni. Spumingin er
auðvitað sú, hvað sé orsök og hvað af-
leiðing - em flokksmenn svona súrir
vegna þess að flokksstarfið er ómögu-
legt, eða er flokksstarfið ómögulegt
vegna fúlla flokksmanna? Hvað með
að skrúfa upp brosið og bjóða ffam
krafta sína til að byggja það upp?
Hvað varðar flokksforystuna, þá segi
ég það hreint út að ég vona og reikna
með að formaðurinn haldi áfram, það
em hins vegar vandræði að okkur
vantar heila kynslóð inn í framvarða-
sveit flokksins til að taka við keflinu.
Næstu leiðtogaefni sem ég sé em það
ung að þau em ekki tilbúin í slaginn
fyrr en að nokkmm ámm liðnurn. Ég
held því að það verði engar meirihátt-
ar umtumanir í forystunni. Ég læt
sameiningarmál liggja milli hluta, sú
geijun er í gangi og óþarfi að analýs-
era hana daglega, árangurinn kemur í
Ijós, ef hann verður einhver.
Ungir jafnaðarmenn halda sam-
bandsþing sitt skömmu fyrir flokks-
þing og þar kemur í ljós hveijar verða
okkar megin áherslur á flokksþinginu.
Ég held að óhætt sé að segja að okkar
starf hafi verið öflugra en flokksins
sem við emm hluti af og einkennst af
mun meiri lífsgleði og bjartsýni. Ég
vona að það smiti út frá sér á flokks-
þinginu og flokksmenn þjappi sér
saman einu sinni til að takast á við þau
verkefni sem liggja fyrir eftir það.
Jafnvelmeðbrosávör..." ■
Stéttín
erfyrsta
skrefið
■
Mifaðúrval
afheEum
ogsteinum.
Mjöggottverð.
SIÉTT
HELLUSTEYPA
HYRJARHÖFÐI 8
112 REYKJAVÍK
SÍMI 577 1700-FAX 577 1701
Frá skrifstofu
Alþýðuflokksins
Skrifstofan veröur opin á
þriðjudögum og fimmtu-
dögum eftir hádegi. Þeim
sem vilja fá upplýsingar um
starf flokksins er bent á aö
Þröstur Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri þingflokksins,
veröurtil viðtals á
skrifstofunni á þessum
tímum.