Alþýðublaðið - 21.08.1996, Blaðsíða 3
MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 1996
ALÞÝÐUBLAÐH)
3
s k o ð a n
Einkavæðing félagshyggjunnar!
IÞað er gott að geta sagt að öll börn í Reykjavík á tilteknum aldri eiga kost leikskólarými.
Það er hinsvegar staðreynd að þegar hluti þessara barna er í leikskólanum eiga þau þess
ekki kost að vera þar undir handleiðslu leikskólakennara einsog er lögbundið.
egar síðasti borgarstjórnarmeiri-
hluti ætlaði og fór langleiðina með
að einkavæða strætó risu upp vandlæt-
ingarfullir vinstrimenn og töluðu um
hvað það væri ijandsamlegt gagnvart
borgarbúum að einkavæða þjónustu-
fyrirtæki þeirra. Hversu illa væri farið
með starfsfólkið sem missti ýrnis rétt-
indi sem það hefði unnið sér inn sem
borgarstarfsmenn. Svo sigruðum við í
kosningunum og við, sem studdum
Pallborðið |
Reykjavíkurlistann, héldum að nú
rynni upp ný og betri tíð.
Eitt af kosningaloforðum Reykjav-
íkurlistans var að byggja leikskóla,
fjölga leikskólarýmum svo öll böm í
borginni fengju að njóta þessarar sjálf-
sögðu, lögbundnu þjónustu og menn
lögðust undir feld til að íhuga hvaða
leiðir væru færar til að efna loforðin.
Það er gott að geta sagt að öll böm í
Reykjavík á tilteknum aldri eiga kost
leikskólarými. Það er hinsvegar stað-
reynd að þegar hluti þessara bama er í
leikskólanum eiga þau þess ekki kost
að vera þar undir handleiðslu leik-
skólakennara einsog er lögbundið.
Á sama tíma og þensla verður á
vinnumarkaði eru það gömul og ný
sannindi að erfitt getur verið að manna
störf í leikskólanum einsog önnur lág-
launastörf. Merki þess mátti til dæmis
sjá í Morgunblaðinu síðastliðna
sunnudaga þegar meirihluti leikskóla í
eigu Reykjavíkurborgar auglýsti eftir
starfsfólki.
Á árum áður höfðu úrræðagóðir
foreldrar og framtakssamir leikskóla-
kennarar, sem vom orðnir þreyttir á
dugleysi borgarinnar, komið sér upp
leikskólum. Fljótlega eftir að fulltrúar
félagshyggjunnar komust til valda sáu
þeir að sumir þessara leikskóla stóðu
ekki of traustum fótum fjárhagslega.
Til að styrkja samkeppnisstöðu þess-
ara fyrirtækja, svo þau gætu keypt
leikskólakennara frá borginni, ákváðu
borgaryfirvöld að stórauka fjárframlög
til einkaleikskólanna.
Sumir fulltrúar þeirra flokka sem
stóðu á þingpöllum og andæfðu
áformum ríkisstjómarinnar um með-
ferð á opinberum starfsmönnum hafa
sjálfsagt andað léttar í laumi. Lög um
réttindi og skyldur opinberra starfs-
manna vom samþykkt og með því er
fulltrúum þessara sömu flokka auð-
veldara að einkavæða þjónustustofn-
anir borgarinnar, til dæmis undir heiti
þjónustusamninga. Því við það verða
réttindi og skyldur starfsfólks ekki
þeirra áhyggjuefni.
Leikskólar Reykjavíkurborgar em
varla mikið lengur samkeppnishæfir
um mannafla, vegna myndarlegs
stuðnings borgaryfirvalda við einkal-
eikskólana. Á kostnað ýmissa réttinda
og skyldna em þeir í góðri stöðu til að
yfirbjóða þau laun sem borgin býður
sínu fólki.
Það er farið að gægjast óþyrmilega
mikið undan félagshyggjugærunni,
fijálshyggjustrýið.
Höfundur var einn af fulltrúum Alþýðu-
flokksins á Reykjavíkurlistanum.
JÓN ÓSKAR
v i t i m e n n
Um kremauglýsingarnar
má segja að margar kvenfrelsis-
sinnaðar konur nota krem við öllu
mögulegu, skammast sín ekkert
fyrir það og finnst kúgun að
mega það ekki.
Harðar deilur eru í nýrri Veru vegna
auglýsinga í síðasta tölublaði. Hér stendur
ritnefnd fyrir máli sínu.
Síðasta helgi sýnir, hvernig
Reykjavík getur verið, þegar hún
vill. Hún er öðrum þræði borg
menningar og borg heilsuræktar,
þótt hinum þræðinum sé hún borg
drykkjuláta og ofbeldis.
Jónas Kristjánsson í forystugrein DV í gær.
Já, það verður halló Akureyri
hjá mér, og ég mun flytja
norður mjög fljótlega.
Birgir Guömundsson aöstoðarritstjóri Dags-
Tímans í Tímanum í gær.
Ég lít í spegilinn á hverjum
morgni og segi við sjálfan mig:
Ég er mesti íþróttamaður í heimi.
Dan O'Brian, Ólympíumeistaii
í tugþraut. Mogginn.
Nú heyrist hinsvegar
í pottinum að kratískir kremló-
lógar séu komnir á þá skoðun
að Hallgrímur [Helgason] sé
hreint ekki höfundurinn heldur
Jón Baldvin Hannibalsson.
Einsog fleiri velta kollegar okkar á Tímanum
því mjög fyrir sér hver skráir dagbækur for-
setans, sem birst hafa í Alþýðublaðinu.
Bíll er dýr regnhlíf!
Fyrirsögn greinar Margrétar
Sæmundsdóttur í Mogganum.
„Bílalausi dagurinn"
er á fimmtudag.
En hvað gerist?
Nýr ráðherra er úrræðalaus
og gengur lengra nokkur hefur
áður gert í flötum niðurskurði
og stefnulausum aðgerðum.
Margrét Frímannsdóttir les Ingibjörgu
Pálmadóttur pistilinn í DV í gær.
En þessa þulu kunna nú
allir eins vel og forsetinn okkar
trúarjátninguna, sem hann fór
svo fallega með í kirkjunni þegar
hann bar krosslnn í gullkeðjunni
í fyrsta sinn.
Oddur Ólafsson í Tímanum í gær.
Belas la deklivo...
Þetta þýöir „fögur er hlíöin" á
esperantó. Tíminn í gær.
t a I n a t a I
Tíu fjölmennustu
kaupstaðir íslands
1. desember 1995
Reykjavík 104.258
Kópavogur 17.659
Hafnarfjörður 17.537
Akureyri 14.920
Reykjanesbær 10.340
Garðabær 7.801
Akranes 5.105
Mosfellsbær 4.917
Vestmannaeyjar 4.805
Seltjamanies 4.541
hinumegin
"FarSide" eftir Gary Larson
Tímaritið Séd og heyrter
væntanlegt í dag og er
óhætt að segja að ástin
blómstri á síðum þess. Sagt
er í máli og myndum frá
tveimur brúðkaupum sem
fram fóru um síðustu helgi,
en þá gengu í hjónaband
þau Baltasar Kormákur og
Lilja Pálmadóttir, og þau
Kristín Jóhannesdóttir og
Jón Garðar Ögmundsson.
Lilja er dóttir Pálma heitins
Jónssonarí Hagkaup en
Kristín er dóttir Jóhannesar
Jónssonar í Bónus. Það
hefur því mikil sæla ríkt í
tveimur af auðugustu kaup-
mennskufjölskyldum lands-
ins. Þá er í tímaritinu rætt við
Heimi Karlsson, og mun
hann meðal annars segja frá
vistinni á Stöð 2 og að rugl-
uð yfirstjórn hafi fælt marga
hæfileikamenn frá fyrirtæk-
inu - en Heimir hlýtur ein-
mitt að teljast í þeim hópi.
Ennfremur er sagt frá veislu
sem haldin vartil heiðurs
Jónasi Jónassyni útvarps-
manni í tilefni þess að 20 ár
eru liðin síðan þeir Bakkus
fóru hvor sína leið. Þá ætti
ungdómurinn að gleðjast yf-
ir veggspjaldi af hljómsveit-
inni Blur en hana skipa að
sögn einhverjir helstu hjarta-
knúsarar heims. Blurtreður
upp í Laugardalshöll í sept-
ember og er svo gott sem
uppselt...
Knattspyrnufélagið Þróttur
hefur ekki verið i fremstu
röð síðustu árin, en skaust á
toppinn í 2. deild á dögunum
með sigri á FH. Mikill hugur
er í Þrótturum og fyrir leik-
inn marseruðu stuðnings-
menn liðsins frá Sæviðar-
sundi niður á Valbjarnarvöll.
Sigurmarkið skoraði Sigurd-
ur Hallvarðsson, sem nokk-
uð er hniginn á efri ár knatt-
spyrnumanna. í herbúðum
Þróttar er Sigurður kallaður
„Super-sub", en hann kem-
ur oftast inná sem varamað-
ur og setur þá iðulega mark
á leikinn. Sigurður hafði ekki
verið nema 15 mínútur á
vellinum þegar hann skoraði
sigurmarkið - og var þá
snimmendis skipt útaf aftur
enda búinn að gera skyldu
sína...
r
Adögunum gerðum við
góðlátlegt grín að slúð-
urdálki Tímans þar sem því
var haldið fram að Þor-
steinn Pálsson væri hugs-
anlega á leið í ritstjórastól
Morgunblaðsins. Alkunna er
að Mogginn og Þorsteinn
eiga enga samleið í sjávarút-
vegsmálum og hefur oft
gengið á með hörðum skeyt-
um. En orðrómurinn um
möguleika á því að Þor-
steinn verði arftaki Matthí-
asar Johannessens er
býsna þrálátur og gengur
enn um bæinn. Víst er um
að sú hugsun er Davíð
Oddssyni mjög að skapi að
Þorsteinn hverfi úr stjórn-
málum, en það verður enn-
. þá að álítast efamál að
Morgunblaðið geri forsætis-
ráðherra þann greiða að
ráða Þorstein í vinnu...
„Hér er síðasta færslan sem Ari Trausti hefur fært í dag
bókina sína: Nú hef ég unnið traust þeirra og á morgun
ætla ég að kanna nánar geðslag þessara risavöxnu en yfir-
veguðu prímata með því að kenna þeim Ola Skans."
fimm á förnum vegi
Ætlar þú að leggja bílnum á morgun?
Gísli Steinar Gíslason at-
vinnurekandi: Nei. hann er
atvinnutæki mitt.
Sigurður Sverrisson pípu-
lagningamaður: Nei, ég get
það ekki starfs nu'ns vegna.
Jón Heiðar Guðmunds-
son rekstrarráðgjafi: Já, ég
ætla með strætó í vinnuna.
Erna Hauksdóttir fram-
kvæmdastjóri: Já, hann er
hvort sem er á verkstæði, svo
ég fer minna ferða annaðhvort
hjólandi eða með strætó.
Anna Birgisdóttir banka-
maður: Já, ég tek alltaf strætó
í vinnuna.
Heimild: Hagtölur mánaðarins.